Þjóðviljinn - 26.08.1978, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 26.08.1978, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 26. ágúst 1978 Blaðberar óskast Austurborg: Bólstaðahlið (1. september) Skaftahlið (1. september) Vesturborg: Háskólahverfi (1. september) Melhagi (1. september) Miðsvæðis: Grettisgata (nú þegar) Óðinsgata (1. september> Laufásvegur (1. september) Neðri Hverfisgata (nú þegar) Neðri-Laugavegur (nú þegar) Seltjamames: Lambastaðahverfi, Seltj. (1. sept.) Lindarbraut Seltj. (1. sept.) Kópavogur: Langabrekka (1. september) Skjólbraut (1. september) Vighólastigur (1. sept.) afleysingar Múlahverfi DJOOVIUINN Siðumúla 6. Simi 8 13 33 Keflavík Blaðberar óskast nú þegar. Upplýsingar i sima 1373. UOBVIUINM Afgreiðslustarf Okkur vantar mann til starfa á afgreiðslu blaðsins nú þegar. Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra. DJOÐVIUINN Skagaströnd Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Þjóðviljann á Skagaströnd frá 1. sept. n.k. Upplýsingar hjá' núverandi umboðs- manni, Ingvari Sigtryggssyni, Bogabraut 16, simi 4647, eða hjá Þjóðviljanum, skrifst. i Reykjavik, simi 91-81333. JtJOJMUINN Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi hringdi: Ymislegt úr Eyium Vestmannaeyjar. Þar ',,'láta menn engan bilbug á sér finna”. Magnús Jóhannsson frá Hafn- arnesi, — nú búsettur i Vestmannaeyjum, — hringdi i Landpóst og fórust orð á þessa leið: Þrátt fyrir meiri háttar at- vinnuleysi, sem alltaf er böl- valdur hvar sem þess verður vart, — i Vestmannaeyjum eru um þessar mundir 144 á at- vinnuleysisskrá, — láta menn engan bilbug á sér finna. Sjó- menn dytta að bátum sinum, verkamenn og húsmæður taka upp kartöflur, fara til fýla og ná sér i lunda i pottinn. Loðnuflot- inn er norður i höfum og ein- staka bátur aflar i sig með út- siglingu i huga. Nú er lokið við að leggja vara- rafstreng frá Eyjum til lands, rúma 13 km. Mikið öryggi verð- ur að þessum nýja streng, þvi komið hefur fyrir, að sá gamli hafi verið slitinn upp af skipum og er skemmst aö minnast er varðskip kubbaði hann i sundur hér i innsiglingunni i vetur og varð af mikið tjón. Þakka meg- um við Garðari Sigurðssyni, al- þingismanni, þótt fleiri kunni að vilja eigna sér hlutdeild, eins og með nýja flugturninn. Verið er að dytta að kirkju- turninum en hann var farinn að láta á sjá, enda ekki fyrir loft- hrædda menn að klifa hann. Bærinn heldur áfram starf- semi sinni og eru aðalverkefnin hitaveitan og Bárugatan, sem á að verða göngugata, malbikuð til beggja endg en hellulögð i miðju. Byggingaframkvæmdir eru viða um bæinn og eru bráða- birgðahúsin I hrauninu sem óð- ast að hverfa. Mikill áhugi er hjá flestum á vinstri stjórnarviðræðunum og vona flestir, að Lúðvik Jóseps- son verði forsætisráðherra. Þó dró bliku á loft i gærkvöldi, (Magnús hringdi á fimmtudag), — út af stöðu Alþýðuflokks- manna — og þetta kalla menn lýðræði. Nei, það er vitað mál, að búið er að selja landið Atlantshafsbandalaginu. Það eru verk Alþýðu- og Sjálfstæðis- flokksins, sem svo hrópa: Lýð- ræði! lýðræði! lýðræði! Nær væri þessum fyrrverandi verka- lýðsflokki að loka túlanum, sem fyrst. mj/mhg Kúabúin gáfu hæstu fjölskyldutekjur 1977 Uppgjör búreikninga fyrir árið 1977 lauk i júli. Samtals færðu 230 bændur búreikning en i aðalvinnslu var sleppt 66 búum, þar sem þau voru á ýmsan hátt afbrigðileg, þá sér- Litli og stóri Kona ein hér i borginni hringdi i Landpóst og lét i ljósi furðu sina og fyrirlitningu á þeirri afstöðu Benedikts Gröndals og annarra Alþýðu- flokksmanna sama sinnis að gera tilraun til þess að sprengja viðræðurnar um vinstri stjóm á þvi að Lúðvik Jósepsson yrði forsætisráðherra fremur en Benedikt sjálfur eða einhver slikur. Skyldi Benedikt ekki vera að þóknast þar einhverjum öðrum en Islendingum? Lúðvik Jósepsson hefur leitt þessar stjórnarmyndunarvið- ræður með þeirri festu og skör- ungsskap, sem honum er lagin en þó jafnframt sýnt þá lipurð og tilhiiðrunarsemi, sem oftast er óhjákvæmileg, þegar bræða þarf saman ólik sjónarmið. Lúðvik ber um flest af islenskum stjórnmálamönnum nú um stundir og enginn ætti fremur að verða forsætisráð- herra en hann, ef mynduð verður vinstri stjórn, enda'yrði það honum öðrum fremur að þakka. Hér skiptir i tvö horn um þessa menn. Lúðvik stækkar af framkomu sinni en Benedikt smækkar, — og haföi þó af minna að má. Svo mælti frúin og var hvergi myrk i máli. —mhg staklega með verulegar tekjur af öðru en landbúnaði. Þau 164 bú, sem tekin voru með, var skipt i 3 flokka. Kúabú voru 71, sauðfjárbú 51 og blönduð bú 42. Meðalstærð búreikningabúanna 1977 var 580 ærgildi en það jafngildir 29 mjólkurkúm eða 580 kindum. Kúabúin voru stærst meö 786 ærgildi, blöndu)iu búin voru með 517 ærgildi og sauðfjárbúin 402 ærgildi. Meðalfjölskyldulaun af landbúnaði og vextir af eigin fé reyndust vera 2.5 milj. kr. þegar eignir hafa verið fyrntar um 599 þús. kr. Miðað við niðurstöður búreikninga fyrir árið 1976 er þetta 65% hækkun. Kúabúin voru með hæstu fjöl- skyldutekjur eða 2,8 milj. kr., sauðfjárbúin höfðu 2,23 milj. kr. og blönduðu búin 2,32 milj. kr. Fjölskyldutekjur hækkuðu mest á kúabúunum, þar næst á blönd- uðu búunum en minnst á sauðfjárbúunum. A undan- förnum árum hafa orðið sveiflur á tekjum eftir bútegundum. Arið 1969 og til og með árinu 1973 skipa kúabúin efsta sætið en árið 1974 og 1975 voru sauð- fjárbúin hæst. Árið 1976 voru fjölskyldutekjur svipaðar i Öllum flokkum en árið 1977 skipa sauðfárbúin neðsta sætið. Ein aðal ástæðan fyrir þessum breytingum eru sveiflur á afurðamagni eftir árskú og kind, frá ári til árs. Meðalnyt hefur hækkað siðustu tvö ár en afurðir eftir vetrarfóðraða kind hafa minnkað. Verðá kjarnfóöri var einnig mjög hagstætt 1977, miðað við mjólkurverðið, en það er einn stærsti kostnaðarliður á kúabúum. Framleiðslu- kostnaður var að meðaltali 4,59 milj. kr. en framleiðslutekur reyndust vera 7.09 milj. kr. Stærsti liðurinn var kjarnfóður eða 1,15 milj. kr., áburður var keyptur fyrir 778 þús. kr., kostnaður við vélar reyndist vera 600 þús. kr., aðkeypt þjón- usta 504 þús. kr., vextir, trygg- ing o.fl. var 604 þús. kr. Fjárfesting var að meðaltali 2,17 milj. kr. á býli. Mestu fjár- magni var varið til bygginga eða 1.17 milj. kr., vélar voru keyptar fyrir 758 þús. kr. Þó nokkur skuldaaukning varð á árinu en i árslok námu þær að meðaltali 3.19 milj. kr. eða tæpum 700 þús. kr. meira en i upphafi ársins. Vinnustundir fjölskyldunnar voru 4.153, fjöl- skyldutekjur á vinnustund voru kr. 602. Arið 1976 var veltan á búreikningabúunum 5.01 milj. kr., en á sl. ári 7.09 milj. kr. og nemur sú hækkun 41% og munar Íar mestu hvað kjarnfóður ækkaði litið. Bændur áttu þvi hlutfallslega meira eftir af framleiðslutekjunum en árið 1976, til greiðslu fyrir eigin vinnu og vinnu fjölskyldunnar. (Heim.: Uppl.þjón. landb.) —mhg Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.