Þjóðviljinn - 26.08.1978, Page 20

Þjóðviljinn - 26.08.1978, Page 20
DJÚDVIUINN Laugardagur 26. ágúst 1978 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægtað ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðs- ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348. Skipholti 19, R. 1 BUÐlKl simi 29800, (5 llnur)^-^ " Versliö í sérverslun með litasjónvörp og hljómtæki Jafn- tefli í 16. skákinni 16. einvfgisskák lauk i gær með jafntefli án þess að teflt yrði áfram. Biðstaðan var talin mjög jafnteflisleg og eftir næturlangar rannsóknir hafa keppendur komist að þeirri niðurstöðu aö ekki væri meira að fá út úr stöö- unni.Staðan ieinviginu er þá sú að Karpov hefur hlotiö 3 vinninga gegn 1 vinningi Kortsnojs. 12 skákir hafa endað meö jafntefli. Næsta skák veröur tefld á morgun. Þá hefur Kortsnoj hvitt. Ásmundur Stefánsson hagfrœðingur ASI: r Oraunhæft að tala um frjálsa verðlagníngu Hœgt að færa verðlag í landinu niður um 5% í heild Aðalfundur Skógrœktar- r félags Islands Aðalfundur Skógræktar- félags íslands hófst i gær- morgun að Stóru-Tjarnar- skóla i S-Þingeyjarsýslu. Jónas Jónsson formaður Skógræktarfélagsins flutti ávarp i upphafi fundarins, en að þvi loknu bauð formaður Skógræktarfélags Suður- Þingeyjarsýslu, Hólmfriður Pétursdóttir húsfreyja i Reynihlið, fulltrúa velkomna með stuttri ræðu. A aðalfundinum verða flutt fjölmörg erindi. Snorri Sig- urðsson, framkvæmdastjóri félagsms, flutti yfirlit um störf félagsins á siðasta ári. Lesnir voru reikningar og Sigurður Blöndal skóg- ræktarstjóri flutti yfirlitser- indi um skógræktarmál. Þá var gefin skýrsla um störf Framhald á 18. siöu • Astæðurnar fyrir þvi aö inn- kaupsverð erlendrar vöru er 21- 27% hærra hér en á hinum Norðurlöndunum geta verið margvislegar. En ég tel að mest ráði þar að innflytjendur taka sér umboðslaun úti'og láta þau leggj- ast við verð vörunnar. 1 mörgum tilfellum fer þetta i gegnum bankakerfið en ekki er óliklegt að sumt fari inn á banka erlendis. Einnig má telja vist að sumir inn- flytjendur láti hlunnfara sig i verðinu og þar með okkur sem kaupum vöruna. Þetta sagði As- mundur Stefánsson i samtali viö blaðið. Að sjálfsögðu á það einhvern þátt i þessu að innflytjendur þurfa að kaupa i smærri skömmt- um og að pökkunarkostnaður er eitthvað meiri en það getur aldrei skýrt þennap mikla mun. Hér þarf greinilega að rannsaka aö hve miklu leyti verið er að brjóta skatta- og gjaldeyrislöggjöfina. En aðalatriðið er þó að losna viö þennan ófögnuð. 1 visitölunni er hátt i þriðjung- ur útgjaldanna af erlendum upp- runa. Þar sem hér er um könnun á afmörkuðum vöruflokkum að ræða þá er erfitt að draga álykt- anir af henni. En hægt er að full- yrða að ef úrtakið gefur rétta mynd af heildinni væri hægt aö færa verðlag niður um 5% i heild ef hætt væri með þessa viöskipta- hætti. Asmundur Stefánsson hagfræöingur ASl vöruflokkum sem könnunin nær til er augljóst að samkeppnin hindrar ekki að innflutningsaðilar kaupi á háu verði og velti þvi yfir á neytendur. Annað hvort er hér um að ræða að þeir hafa einokun- araðstöðu gagnvart ákveðnum vörum eða að þeir geta treyst þvi aö allir hafi sama háttinn á og kaupi á háu verði. Það er þvi algjör lifsblekking að markaðsaðstæöur séu þannig hér að samkeppni geti haldið verðlagi niðri. Með þessari könnun er verið að koma til móts við kröfur verka- lýöshreyfingarinnar, en. hún hef- ur i mörg ár krafist þess að gerð- ur væri verðsamanburður innan- lands og eins við önnur lönd. Ég tel mjög brýnt að málið sé kannaö mjög itarlega þannig að við fáum glögga yfirsýn i einstök- um þáttum þess Sú könnun snýr ekki einungis að verðlagsyfir- völdum heldur einnig að þeim sem fara með gjaldeyris- og skattamál. Við þurfum að fá að vita hve miklu fé er kastaö i út- lendinga og hve mikið innflytj- endur draga til sin frá islenskum neytendum. HH Þessi könnun sýnir hversu óraunhæft er að tala um frjálsa verðlagningu i landinu. 1 þeim Viöhald á kennurum í Kennaraháskólanum 99 A vegum Kennaraháskóla Is- lands hafa um 400 starfandi kenn- arar veriö i endurmenntun á námskeiðum nú siðustu vikuna. Námskeiðunum lýkur nú um. helgina. Þjóðviljinn leit í gær inn á mynd- og handmenntakennara- námskeið sem fram fór i einum 8-9 stofum i Armúlaskóla. Þar voru um 200 kennarar að störfum og námi. Siðan 1972 hafa nám- skeið sem þetta veriö árlegur þáttur i endurmenntun kennara. Þarna var ýmislegt i gangi og má nefna smiðar, vefnaö, leir- mótun, frjálsan saum, teiknun, málun og fleira. Kennara-nem- endurnir voru einnig látnir gera kennsluáætlanir, skipuleggja kennsluhúsnæði og aðstöðu til mynd- og handmenntakennslu. Er þess að vænta að neipendur hafi eins mikið gagn og ánægju af þessu námskeiöi eins og kennar- arnir. Einn nemendanna á kennara námskeiöinu leggur sig fram við listsköpun. Hraða við- ræðunum segir Ólafur Jóhannesson Ólafur Jóhannesson sagði i samtali við Þjóðviljann að stjórnarmyndunarviðræðurnar hefðu gengiö eðlilega fyrir sig i gær og haldiö hefði verið áfram viðræðum frá þvf sem horfiö var. Hann sagði að menn hefðu lýst yfir fúllum vilja að halda áfram þessum viðræðum, skip- að hefði verið i undirnefndir sem starfa i dag og á morgun, en næsti fundur viðræðunefnd- arinnar verður siödegis á sunnudag. Ólafur sagðist ekki geta sagt um það hvenær þessu lyki en hann myndi leggja áherslu á aö hraða viðræðunum eftir megni. Aðspurður sagðist hann gera sér vonir um að flokkarnir legðu niður ágreininginn um heitustu málin, t.d. utanrikismál, en þann málaflokk ætti alveg eftir að ræða auk annarra mikil- vægra málaflokka. —Þig. Nýrri undirnefnd komið á fót Fjallar m.a. um utanríkismál A viðræðufundi stjórnar- myndunarflokkanna þriggja sem haldinn var i gær var ákveöiö að stofna nýja nefnd, sem fjalla á um öll önnur mál en efnahagsmál. Einar Agústsson var kjörinn formaður nefndar- innar, en auk hans sitja f nefnd- inni Jón Helgason fyrir Fram- sóknarf lokkinn, Vilmundur Gylfason og Sighvatur Björg- vinsson fyrir Alþýðuflokkinn, en Alþýðubandalagið mun ákveða hverjir verða fulltrúar þess I nefndinni á þingflokksfundi, sem hefst kl. 10 i dag, laugar- dag. Þjóðviljinn haföi samband við Einar Agústsson og spuröi hann, um hvaða málaflokka nefndin ætti aö fjalla. Einar sagði að nefndin ætti að fjalla um alla málaflokka aðra en efnahagsmál og þar með einnig untanrikismál. Einar var þá spurður hvort hann væri trúaður á að sam- komulag næðist við Alþýðju- bandalagið um utanrikismál. Einar sagði að honum hefði ekki heyrst það að þau ættu eftir að verða óþægur ljár i þúfu. Hann geröi ráð fyrir að samið yrði um svo til óbreytta stefnu i meginatriðum. Aðspurður svaraði hann að stefnt yrði að þvi að ná sam- komulagi um að einangra her- stööina i samræmi við þær hug- myndir sem upp komu I fyrri vinstristjórnarviöræöunum, en að öðru leyti sagöist hann ekki geta tjáö sig um verkefni þess- arar nýju nefndar. Nefndin mun halda sinn fyrsta fund kl. 13.30 i dag. —Þig

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.