Þjóðviljinn - 01.09.1978, Side 1

Þjóðviljinn - 01.09.1978, Side 1
UOÐVIUINN Föstudagur 1. september 1978 —188. tbl. 43. árg. Hinir þrir nýju ráöherrar Aiþýöubandalagsins voru á fundi I Þórshamri þegar Þjóóviljamenn trufluöu þá. Frá vinstri: Svavar Gestsson, viöskiptaráðherra, Hjörleifur Guttormsson, iönaöar- og orkumála- ráöherra og Ragnar Arnalds, mennta-og samgöngumálaráöherra. (Ljósm. Dana) OLAFUR JOHANNESSON, f orsætisráðherra: Meiri hluti þjóðarinnar vildi þetta — Ég er auðvitað mjög ánægö- ur yfir þvi, að þessi tilraun skyldi takast, sagöi ólafur Jóhannesson isamtali við Þjóðviljann i hádeg- inu i gær. Ólafur færir sig nú um set innan stjórnarherbúöanna, úr dómsmálaráöuneytinu i forsætis- ráðuneytið. — Stjórnarmyndunarmálin voru komin i slika sjálfheldu, aö það hefði verið til mikillar van- virðu fyrir alþingi, ef ekki hefði tekist að mynda stjórn núna. 1 annan stað er sá vandi sem við er að etja svo aðkallandi, að stjórnarmyndunmátti ekki drag- ast lengur. Framhald á 18. siðu ólafur Jóhannesson: Hefði veriö alþingi til vanviröu ef ekki heföi tekist að mynda stjórn... VINSTRI STJORN TEKUR VIÐ í DAG I gærmorgun tilkynnti ólafur Jóhannesson# for- maður Framsóknarflokks- ins/ forseta islands/ að sér hefði tekist að mynda meirihlutastjórn með Alþýðubandalaginu og Alþýðuflokknum. Þar með var á enda liðlega tveggja mánaða stjórnarkreppa hér á landi, þar sem allir stjórnmálaf lokkar hafa komið við sögu sem hand- hafar umboðs til stjórnar- myndunar. 1 siðu 8 i blaðinu i dag er Samstarfsyfirlýsing stjórnar- flokkanna birt i heild, en þunga- miðja hennar er, að samningar verkalýðshreyfingarinnar skulu ganga i gildi á ný, eftir sjö mánaða baráttu hreyfingarinnar, niðurgreiðslur verða auknar á landbúnaðarafurðum og sölu- skattur felldur niður af mat- vörum. Til þess að afla fjár til þeirrar miklu fjármagnstilfærslu, sem i þessum aðgerðum felst, verða skattar á fyrirtæki og stóreignir auknir. Trygging kaupmáttar er höfuðverkefnið, segir Ragnar Arnalds, ráðherra mennta- og samgöngumála Stjórnarsáttmálinn ber þess merki, aö hann var settur sam- an á skömmum tfma. Þar vant- ar ákvæði um fjölmörg mál, sem þar heföu þurft að vera, sagði Ragnar Arnalds, sem nú tekur viö embætti menntamála- ráðherra og samgönguráöherra nýrrar vinstri stjórnar, þegar Þjóðviljinn ræddi viö hann I gærmorgun. Ragnar hefur ekki setið í ráðherrastóli fyrr, en áralöng þingseta gerir þaö að verkum, aö honum éru hnútar þessara málaflokka og annarra löngu kunnir. Enda var ekki annaö að heyra á honum, en hann hlakkaöi til að takast á viö verkefnin, fremur en að hann kviöi þvl á nokkurn hátt. — Þessi mál sem þarna vant- ar eru mörg þess eðlis að um Ragnar Arnalds: Stjórnar- myndunin tengist fyrst og fremst óvenjulegri aöstööu I efnahags- og atvinnumálum... (Ljósm.: Dana) þau hefði hugsanlega náðst samkomulag ef timi hefði unnist til, en um það var ekki að ræða. Stjórnarmyndunin nú tengist ' fyrst og fremst þeirri óvenju- legu aðstöðu i efnahags- og at- vinnumálum, sem hér blasir við. Annars vegar er um að ræða það viðfangsefni, að tryggja kaupmátt launa með afnámi kaupránslaganna og hins vegar að koma i veg fyrir yfirvofandi atvinnuleysi um allt land. Við vorum i kapphlaupi við timann og með hliðsjón af þessu hafa stjórnarflokkarnir orðið sammála um að það yrðu loka- orðin i samstarfsyfirlýsingunni, að málefnagrundvöllur vegna þessarar stjórnarsamvinnu yrði tekinn til endupskoðunar á næsta ári. — hm Alþýðu- bandalagið fór i rikisstjórn vegna tveggja stórverkefna síöu 3 Skipting ráðherraembætta i hinni nýju rikisstjórn er þannig, að hver flökkur fær i sinn hlut þrjá ráðherra og fjögur ráðu- neyti, þannig: Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra. Steingrimur Hermannsson, dóms- og kirkjumálaráðherra og landbúnaðarráðherra. Tómas Arnason, fjármálaráð- herra. Ragnar Arnalds, mennta- og samgönguráðherra. Svavar Gestsson, viðskiptaráð- herra. Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar- og orkumálaráðherra. Benedikt Gröndal, utanrikis- ráðherra. Kjartan Jóhannsson, sjávarút- vegsráðherra. Magnús H. Magnússon, heil- brigðis-, trygginga- og félags- málaráðherra. Þessi nýja vinstri stjórn, sem lita verður á sem beint afsprengi þeirrar kröfu verkalýðshreyfing- arinnar að hér á landi tæki við vinstri stjórn, tekur formlega við störfum á rikisráðsfundi klukkan 15 i dag. —hm. TVOFALT LANDHELGISAFMÆLI í DAG: 12 mílur 20 ára 50 mílur 6 ára t dag eru liöin 20 ár siöan fisk- veiöilögsaga tslands var færö út I 12 milur og 6 ár slöan hún var færö út I 50 mllur. 1 bæöi skiptin sem þcssir merku áfangar I þjóö- freisis- og atvinnumálum tslendinga náöust, var vinstri stjórn viö völd og Lúövik Jóseps- son sjávarútvegsráöherra beggja stjórna. öflug NATÓ-riki og bandamenn þeirra uröu aö láta undan siga fyrir einhug tslend- inga sem vlsuöu forsjá NATÓ á bug. Baráttan fyrir stækkun land- helginnar hefur verið eitt stærsta málið I Islenskum stjórnmálum siðast liöin 30 ár. Sósialistar hafa verið þar i fylkingarbrjósti, enda um að ræða lifshagsmunamál vinnandi stétta i landinu. Hins vegar hafa islenskir NATÓ-vinir staðið uppi sem erindrekar erlendra afla en skirrðust ekki við aö vinna gegn íslenskum málstað. Þetta hefur orðið ljóst i endurteknum þorskastriö- um við Breta, eina af bandalags- þjóðunum I NATÓ. I baráttunni fyrir óskoruðum rétti Islendinga til auðlinda iand- grunnsins og sjávarins yfir þvi, eru tveir áfangar lang-stærstir. Það eru einmitt þeir áfangar sem ástæða er til að minnast sérstak-- lega i dag, 1. september, útfærsl- Lúövik Jósepsson. Sem sjávarút- vegsráöherra undirskrifaöi hann reglugerö um útfærsiu fiskveiöi- lögsögunnar I 12 milur 1958 og reglugerö um útfærslu i 50 milur 1972. — Ljm.: Leifur. an i 12 mílur 1958 og 50-milna út- færslan 1972. Aögerðir íslendinga hafa orðiö öðrum þjóðum for- dæmi og haft afdrifarik áhrif til stefnumótunar á alþjóðavett- vangi. Þessir tveir stœrstu áfangar landhelgis- baráttunnar eru báðir tengdir nafni Láðvíks Jósepssonar Allar reglugerðir um útfærslu landhelginnar undanfarin 30 ár hafa byggst á lögum um visinda- lega verndun fiskimiða land- grunnsins frá 1948. Hins vegar hefðu þau lög orðið pappirsgagn eitt ef ekki hefði komið til sú stefnufasta forysta um fram- Frh. á baksiðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.