Þjóðviljinn - 01.09.1978, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Föstudagur 1. september 1978
Félagið Ísland-DDR
Gesellschaft Island-DDR
Dr. Bruno Kress, prófessor við Ernst-
Moritz-Arndt-Universitát i Greifswald,
heldur fyrirlestur og spjallar við áheyr-
endur um efnið
„íslensk tunga i Þýska
alþýðulýðveldinu”
i Auditorium, Hótel Loftleiðum, föstudag-
inn 1. sept. 1978, kl. 20.30. Prófessor Bruno
Kress er vel kunnur fyrir þýðingar sinar á
verkum Halldórs Laxness og visindastörf
i norrænum fræðum.
Allir áhugamenn velkomnir.
Stjórnin
Frá Menntaskólanum
1 Reykjavík
Skólinn verður settur mánudaginn 4.
september kl. 2.
Nemendur safnist saman við skólahúsið
laust fyrir kl. 2.
Rektor
UTBOÐ
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboði
i jarðvinnu (gröft og fyllingu) við aðveitu-
stöð við Varmahlið i Skagafjarðarsýslu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 116,
Reykjavik.
Tilboðum skal skilað til tæknideildar Raf-
magnsveitna rikisins á sama stað fyrir kl.
14.00 mánudaginn 11. september 1978.
Þurrkaður harðviður
Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik
og oregon pine. Harðviðargólflistar fyrir
parket. Sendum i póstkröfu um allt land.
HÖFÐATÚNI 2 - REYKJAVÍK
Sfmi: 22184 (3 Ifnur)
Blikkiöjan
Asgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — enntremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
C Simi
Þjóðviljans
er
81333
íslensk listakona vinnur lista-
verk fyrir erlendan adila
Sigrún Jónsdóttir vift listaverk sitt, sem Skandinaviska Knskilda Rank
en hefur pantaö.
— opnar auk þess
sýningu í
Stokkhólmi
á sama tima
Að undanförnu hefur Sigrún
Jónsdóttir listakona unnið að
undirbúningi sýningar, sem hún
er að fara að setja upp i Stokk-
hólmi i september. Er sýningin á
vegum Námsflokka sænsku kirkj-
unnar, og verður hún i Hel-
ands-galleriet i Stokkhólmi, sem
er eitt virtasta galleriið þar i
borg. Auk þess hefur Sigrún verið
að leggja siðustu hönd á
góbelin-vefmynd i sumar, en þá
vefmynd pantaði stærsti banki
Sviþjóðar, Skandinaviska Ensk-
ilda Banken fyrir nokkru hjá
henni. Völdu fulltrúar bankans
myndina úr hópi skissmynda sem
Sigrún hafði gert i Skaftafelli I
öræfum, en hún er einmitt ættuð
þaðan úr sveitinni.
Stærð myndarinnar tak-
markast við þau vinnubrögð, sem
Sigrún viðhafði við gerð hennar,
en hún er ofin á nokkurs konar
steinaldarvefstól i Vik i Mýrdal.
Þetta gerði Sigrún til að geta
verið i sem nánustum og
stöðugustum tengslum við
náttúruna i Skaftafelli.
Ennfremur má geta þess, að
Sigrún fer ótroðnar slóðir við
gerð myndarinnar, og nýtir
meöal annars óunna ull, til að ná
fram sérstökum blæbrigðum
hreyfingar i myndinni. Auk þess
hefur hún tekið hluta af náttúr-
unni sjálfri, það er steina, og ofið
inn i myndina.
Sigrún gat þess ennfremur i
viðtali við blaðamann Þjóðvilj-
ans, að hún hefði unnið úr hug-
myndinni að verkinu i tólf
myndum, sem hún hefði gert á
hör eða unnið i batik.
Sigrún heldur utan innan
skamms til að vera viðstödd
opnun sýningar sinnar i Stokk-
hólmi, en hún hefur áður haldið
sýningar í Sviþjóð.
—jsj.
Starfsemi leikfélaga
út um land að hefjast
— rætt viö Helgu Hjörvar, framkvæmdastjóra
Bandalags íslenskra Leikfélaga um vetrarstarfið
,,Það er nú ekki enn
farið að hefja æfingar
hjá leikfélögunum út um
landið, en vetrarstarfið
hjá okkur hófst á viku-
námskeiði í raddbeitingu
og taltækni, þar sem þau
Hilde Helgason frá Leik-
listarskóla islands og
Orest Koslowsky frá leik-
listarskólanum i Malmö í
Sviþjóð kenndu.'Nám-
skeiðið var vel sótt, og
mætti þar fólk alls staðar
af á landinu".
Þannig fórust Helgu Hjörvar.
framkvæmdastjóra Bandalags
islenskra leikfélaga, þegar
blaðið hafði samband við hana
og forvitnaöist um, hvernig
vetrarstarfi leikfélaganna yrði
háttað i vetur.
,,Þó nokkur leikfélög eru vel á
veg komin með að velja sér leik-
rit til flutnings, og eitt leikfélag,
Leikfélag Keflavikur, hefur
þegar haldið námskeið i leik-
rænni tjáningu, sem svo er
nefnd, og var Þórunn Sigurðar-
dóttir leiðbeinandi á þvi nám-
skeiði.
Yfirleitt hefjast æfingar i
september hjá þeim leikfélög-
um sem snemma eru á ferðinni,
en starfið dreifist siðan nokkuð
jafntá allan veturinn. þannig að
yfirleitt er alltaf einhver leik-
sýning i gangi einhvers staðar
Helga Hjörvar: Fjárhagurinn
er bágborinn, en einhvern veg-
inn er þó reynt aö ná endum
saman.
yfir vetrartimann. Mörg leikfé-
lög eru lika farin að setja upp
fleiri en eitt verk á ári, þannig
að starfsemin hefur aukist gif-
urlega núna seinustu árin.
Starf skrifstofunnar hérna i
Reykjavik er meðal annars að
vera til aðstoðar við val leikrita,
við eigum einnig að aðstoða við
val á leikstjórum. og það hefur
færstmjög i vöxt, að leikarar og
leikstjórar hafa sótt i starf úti
um land. Hins vegar helst okkur
ekki mjög vel á leikstjórum, þar
sem við getum ekki boðið neina
tryggingu fyrir lágmarksstarfi
og þar með lágmarkslaunum.
Það hefur lika færst i vöxt, að
nýir leikstjórar hafa skráð sig,
og eru nú yfirleitt 5-6 nýir leik-
stjórar á skrá á haustin.
1 fyrra voru 55 frumsýningar
á vegum leikfélaganna. óg með-
altalið á sýningafjölda var um
10. Sýningargestafjöldi er þetta
um 1.000 manns á hvert ieikrit
sem sýnt er, þannig að alls hafa
um 55.000 sýningargestir komið
á sýningar leikfélaganna. Og
þess ber að gæta, að oft er um að
ræða eina leikhúsið sem fólk
hefur tök á að sækja.
Sá styrkur. sem okkur er
veittur af rikinu til að halda
þessari starfsemi uppi, var upp-
haflega miðaður við, að hægt
væri að greiða með honum laun
leikstjóra. Núna er hins vegar
ráð fyrir þvi gert af fjárveit-
ingavaldinu, að styrkur þessi
nemi um 2-300.000 króna, meðan
leikstjóralaunin eru 400.000
krónur. Þarna myndast þvi ó-
hjákvæmilega nokkuð bil, sem
verður að brúa á einhvern
hátt”.
—jsj.