Þjóðviljinn - 01.09.1978, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. september 1978
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýös-
hreyfingar og þjóöfrelsis
Útgefandi: {Jtgáfufélag ÞjóBviljans. Framkvæmdastjóri: EiBur Berg-
mann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gests§on Fréttastjóri: Ein-
ar Karl Haraldsson. Umsjón meB sunnudagsblaBi: Arni Bergmann.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiBsla auglýs-
ingar: SiBumúla 6, Simi 81333 Prentun: BlaBaprent hf.
Áfangasigur
í kjarabaráttunni
( dag gerist það í f jórða sinn í sögu íslenska lýðveldis-
ins að sósíalistar taka þátt í ríkisstjórn. (slenskir sósíal-
istar hafa aldrei skorast undan þeirri ábyrgð að taka
þátt í að stjórna þessu þjóðfélagi og beina því inn á þær
brautir er bæta kjör og lífsafkomu alþýðu. I öll þessi
f jögur skipti hef ur ýmist verið yf irvofandi víðfeðmt at-
vinnuleysi ellegar langvarandi atvinnuleysistími verið
og stjórnarþátttaka sósíalista leitt til þeirrar atvinnu-
uppbyggingar er bægði vofu atvinnuleysis frá dyrum
verkafólks. I dag blasti við að átta þúsund launamenn í
fiskiðnaði yrðu atvinnulausir. Myndun vinstri stjórnar-
innar og efnahagsráðstafanir hennar munu koma í veg
fyrir atvinnuleysið sem af lokun frystihúsanna hefði
leitt.
í dag vinnst sigur í þeirri sjö mánaða kjarabaráttu
sem háð hefur verið frá þvf fráfarandi ríkisstjórn setti
kaupránslögin illræmdu í febrúar. Samstarfsyfirlýsing
stjórnarflokkanna felur í sér að kaupránslögin frá því í
febrúar og mai verða þegar í stað numin úr gildi með
bráðabirgðalögum. Samfelld mótmæli launafólks er
birtust í verkföllum, útflutningsbanni, fundasamþykkt-
um og ákærunum um að gera kosningarnar að kjarabar-
áttu hafa nú leitttil þess að þessi ólög verða væntanlega í
dag numin úr gildi. Þessi áfangasigur vannst fyrir at-
fylgi Alþýðubandalagsins.
I dag vinnst ekki aðeins sá áf angasigur að brjóta kaup-
ránslögin á bak aftur. Samstarfsyfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar felur í sér að kjörorð kosningabaráttunn-
ar: „Samningana í gildi" nær fram að ganga. Laun
verða greidd samkvæmt þeim kjarasamningum sem síð-
ast voru gerðir, þó þannig að verðbætur á hærri laun
verði sama krónutala og á laun, sem eru 233 þúsund kr. á
mánuði miðað við dagvinnu. Þannig hefur tekist að ná
fram baráttumálunum sem sett voru á oddinn í kosn-
ingabaráttunni.
Það er I jóst að ríkisstjórn sú er í dag sest við stjórnvöl-
inn er mynduð til að glíma við af mörkuð verkefni eink-
um íefnahags-og kjaramálum. Stjórnarflokkarnir hafa
komiðsér saman um breytta stefnu í ef nahagsmálum er
miðar að því að koma efnahagslíf i þjóðarinnar á traust-
an grundvöll. Það er gert ráð fyrir að beita nýjum að-
ferðum í glimunni við verðbólguna. En það sem hæst ber
er að þessi ríkisstjórn hefur sett sér að hafa náið sam-
starf við samtök launafólks og ná samkomulagi við þá
aðila um lausn þess hnúts sem verið hefur í kjaramálum.
Þannig viðurkennir þessi stjórn aö íslensku þjóðfélagi er
ekki hægt að stjórna í stríði við verkalýðsstéttina, en
slíkt strið varð einmitt banabiti hægri stjórnarinnar sem
fer frá borði i dag.
Hið langvinna þóf um stjórnarmyndunina gef ur aftur
á móti ekki ástæðu til bjartsýni um árangur þessarar
stjórnar né langlífi. Er hinir svonefndu verkalýðsflokk-
ar náðu þeim árangri í kosningum að fá tæp 45%
atkvæða gældu margir verkalýðssinnar við það að þessir
flokkar sem nú eru nær jafnstórir bæru gæfu til náins
samstarf s um lausn mála með hagsmuni verkalýðsstétt-
arinnar að leiðarljósi. Samningaþóf ið, atlagan gegn for-
ystu Lúðvíks Jósepssonar og nú síðast ágreiningurinn i
Alþýðuf lokknum sýnir að ágreiningur þessara flokka er
gífurlegur, þó tekist haf i að ná samstöðu um af mörkuð
verkef ni. Þessi ágreiningur hef ur leitt til þess að Fram-
sóknarflokkurinn hefur fengið lykilaðstöðu í þessu
stjórnarsamstarfi. Launafólk væntir þess þó,að verka-
lýðshreyf ingin njóti góðs af því að verkalýðsf lokkarnir
eru, þegar þeir standa saman,sterkasta aflið í þessari
stjórn.
En þó fagnað sé áfangasigrum í kjarabaráttunni með
nýrri stjórn og afnámi kaupránslaganna, þá skyggir
margt á þessa stjórnarþátttöku islenskra sósíalista.
Alþýðubandalagið hefur ekki fengið þann styrk sem
þarf til að knýja fram þær þjóðfélagsbreytingar sem
einar leysa varanlega vanda íslensks hagkerfis. Það
fékk ekki styrk tii að knýja nú fram kröfuna um úrsögn
úr Nató og herinn burt. Alþýðubandalagið hefur ekki
hvikað frá stefnu sinni í utanríkismálum, en sigur næst
ekki í þjóðfrelsismólum nema með styrkri f jöldabaráttu
og virkni, einnig frá samtökum launafólks. Stjórnar-
myndunin vekur hroll í herbúðum Natósinna og nú er lag
til að hef ja víðfeðmt áróðursstrfð í þjóðfrelsismálunum.
I því striði mun Þjóðviljinn beita sér af alefli. —óre
Verkalýðshreyf-
ingin gegn dr.
Gylfa
Dr. Gylfi Þ. Gislason prófess-
or var einn af helstu hugmynda-
smiBum svokallaBrar „viB-
reisnar’Vstefnu i efnahagsmál-
um sem hafin var til vegs á ár-
unum i kringum 1960. ABals-
mark þeirrarstefnuskyldu vera
frjáls markaBsviBskipti. Rikis-
forsjá skyldi vera i lágmarki,
allur rekstur skyldi „standa
undir sér”, kaupgjald fara eftir
frjálsum samningum og helst
vera óvisitölubundiB, innflutn-
ingur skyldi vera gersamlega
óheftur og gjaldeyrissala ekki
takmarkast af öBru en gjaldþoli
kaupendanna og taka svo erlend
neyslulán fyrir afganginum.
Þessi stefna blómstraBi mjög i
upphafi „viöreisnar” meö þeim
afleiöingum aö kaupmáttur
launa hriöversnaBi, ýmis at-
vinnurekstur komst á heljar-
þröm vegna innflutnings sam-
keppnisvara og brask og spá-
kaupmennska þreifst býsna vel
i skjóli alls „frelsisins”. Þetta
mynstur hefur siöan fariö I
gegnum ýmsa hringi allt til
þessa dags og notiö góös af
ýmislegum samningum um
„friverslun” þar sem Island
hefur veriö lagt aö jöfnu viö gró-
in iönaöarveldi miljónaþjóö-
anna. Aftur á móti hefur verka-
lýöshreyfingin barist af dugnaöi
viö þetta „frjálsræöismynstur”
dr. Gylfa og náö þeim árangri
aö einhvers konar visitölubætur
eru nú efst á blaöi af kjara-
samningakröfum hverju sinni.
Á í höggi við
rangan kratisma
Athygli hefur vakið aö dr.
Gylfi Þ. Gislason hefur beitt sér
mjög gegn þvi aö flokkur hans,
Alþýöuflokkurinn, semji sig inn
i rikisstjórn á þeim málefnum
fremstum aö standa vörö um
kaupmátt launa og peningalega
afkomu launafólks. Heyrst
hefur aö dr. Gylfi telji þetta
ógna mjög þvi efnahagskerfi
sem hann ber fyrir brjósti,
frjálsum markaðsviöskiptum. I
flokki dr. Gylfa eru vist æöi
margir af þeim sem eru
tengdir verkalýðsfélögunum,
svo grunnhyggnir aö þeir vlsa
þvi efnahagskerfi noröur og
niöur sem ekkigetur séö frjálsa
kjarasamninga i friöi. En dr.
Gylfi er hagfræöimenntaöur
maöur og hans skilningur er sá
aö frjálsir kjarasamningar séu
aukaatriöi en frjáls markaðs-
viðskipti aöalatriöi. Er ekki aö
efa, aö dr. Gylfi fer létt meö aö
sanna aö sin skoöun ein sé réttur
(sósialdemó) kratismi en
skoðun verkalýösfélagamann-
anna sé rangur kratismi.
r
Pólitísk hagfrœði
Sjálfstœðis-
flokksins
Haft er fyrir satt aö dr. Gylfi
hafi haft á hendinni á flokks-
stjórnarfundi Alþýðuflokksins á
miövikudag óformlegt boö frá
Geir Hallgrimssyni um aö Sjálf-
stæöisflokkurinn mundi veita
minnihlutastjórn Alþýöuflokks-
ins hlutleysi og verja hana falli.
Þetta mun dr. Gylfi hafa talið
kostaboð, þar sem það tryggði
framhaldslif viðreisnarkerfis-
ins. En þrátt fyrir tungulipurö
dr. Gylfa og óeigingjarnan
stuöning sonarins, hlaut þessi
pólitiska hagfræöi hins sanna
kratisma aö lúta i lægra haldi.
Valt efnahags-
stefnan á
dómsmálunum?
Vilmundur Gylfason er mesta
lipurmenni eins og hann á kyn
til. Ekki bar á ööru en hann gæti
vel sætt sig viö efnahagsstefnu
nú nýmyndaðrar rikisstjórnar
hér fyrir nokkrum dögum þegar
glytti i ráöherrastól honum til
Vilmundur, sonurinn.
handa. Þaö voru akkúrat dóms-
málin sem freistuöu hins unga
Tyrkja meö krata. Svo fóru
leikar aö dómsmálin svifu á
braut frá sjónum Vilmundar og
lentu hjá framsóknarmanni. Þá
er Vilmundur allt i einu oröinn
stjórnarandstæöingur. Og út á
hvaö? llt á þaö að efnahags-
stefna stjórnarinnar sé tómt
pip. Spurningin er: Hugöist Vil-
mundur gera einhverjar efna-
hagslegar rppgötvanir I em-
bætti dómsmálaráöherra? Hélt
hann aö undir hans stjórn mundu
veröir laganna draga einhverja
ótalda fjársjóöi fram úr hirslum
„neöanjarðarhagkerfisins”? —
Þetta þyrfti hinn ritglaöi Vil-
mundur aö útskýra og um leiö
stuöning sinn viö þaö braskara-
hagkerfi sem faöir hans baröist
sem hetjulegast fyrir i 12 löng
,,viöreisnar”-ár? Og er enn aö
gylla fyrir flokksbræörum sin-
um sem hinn sanna kratisma.
Umframréttur i
Bandaríkja- i
manna
Það væru tiðindi ef aö þvi ■
kæmi, sem látið er liggja aö i •
frétt i Morgunblaðinu i gær, aö j
Bandarikin afnæmu vegabréfs- I
áritanir erlendra feröamanna. !
Um langt skeið hefur sú ein- |
kennilega mismunun viögengist ■
Gylfi, faöirinn.
aö bandariskir þegnar feröast J
án nokkurrar fyrirstööu um öll |
lönd Evrópu, en þegnar ■
Evrópurikja þurfa aö ganga i I
gegnum nálarauga bandarísku '
leyniþjónustunnar ef þeir óska ■
eftir aö heimsækja Bandarikin. •
Þær spurningar sem lagöar eru ■
fyrir Evrópumenn i ferðahug- I
leiöingum til Bandarikjanna er 5
hinar furöulegustu og sumar |
hverjar mjög móögandi. ■
Grennslast er fyrir um kynsjúk- |
dóma i ættinni og þeir lagöir aö B
jöfnu viö róttækar skoöanir á ■
þjóöfélagsmálum, svo aö dæmi J
sé tekiö. Jafnframt er mönnum ■
gert ljóst að ekki þýöi að svara I
þessum spurningum út af, þvi S
aö Stóri bróöir hafi þá á skra', I
sem geymi fyllri upplýsingar ■
um hvern einstakling en hann |
sjálfur hefur tiltækar. Ot af ■
fyrir sig er ekki ástæöa til aö I
ætla að þetta njósnakerfi J
bandarísku sendiráðanna og i
leyniþjónustustarfsmanna
þeirra verði afnumið um leiö og !
vegabréfsáritanirnar, — ávinn- I
ingurinn væri aðeins sá aö ■
dregið væri úr þvi formlega |
misrétti sem nú er á milli ■
bandariskra þegna og t.d. þegna |
Utflutningur á ull og bandi
bannaður
til framleiðslu eftirlikinga í S-Asíu og Austurlöndum nœr
Viðskiptaráðuneytið setti i gær
ákveönar reglur um útflutning á
ull og ullarbandi. Reglur þessar
kveða á um, aö útflutningsleyfi
veröa ekki veitt fyrir ullarbandi
sem ætla má aö fari til eftirlik-
inga i löndum Suöur-Asiu og
Austurlöndum nær. Hiö sama á
viö um útflutning þessarar vöru
til nýrra markaðssvæöa i öðrum
heimshlutum. Þessi regla gildir
þó ekki um handprjónaband i
neytendaumbúðum.
Otflutningur ullarbands má
samkvæmt þessum nýju reglum
ekki fara fram úr þvi magni, sem
flutt var út 1977. Þá verður út-
flutningur loöbands, sem nota má
’til framleiöslu ullarfatnaöar meö
ýfðri áferö ekki leyföur. Ekki
veröur heldur leyföur út-
flutningur þveginnar og óþveg-
innar ullar og ullarafklippna.
Frávik frá þessum reglum
koma aðeins til greina i sérstök-
um tilfellum að höföu samráöi við
stærstu útflytjendur á þessu sviöi.
—eös
Vetraráætlun SVK
Mánudaginn 4. september
1978gengur i gildi Vetraráætlun
SVK,er þá ekið á 12 min. fresti i
staö 15 min i sumaráætlun.
akstur á kvöldin og um helgar
óbreyttur.
Þetta er sama fyrirkomulag
og verið hefur undanfarna vetur
og er ekki um aö ræða breytingu
á akstursleið.
Hinsvegar er
„leiöakerfiö i endurskoöun og
vonandi styttist i niðurstööur úr
henni.
Farþegum er bent á aö hægt
er aö fá áætlunarspjöld i vögn-
unum og á Skiptistööinni i
Kópavogi.