Þjóðviljinn - 01.09.1978, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 01.09.1978, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. september 1978 Samstarfsyfirlýsing Aiþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks um stjórnarmyndun: Breytt efnahagsstefna Ríkisstjórnin telur það höfuB- verkefni sitt á næstunni að ráða fram Ur þeim mikla vanda, sem við blasir i atvinnu- og efna- hagsmálum þjóðarinnar. HUn mun þvi einbeita sér að því að koma efnahagsmálum á traust- an grundvöll og tryggja efna- hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, rekstrargrundvöll atvinnuveg- anna, fulla atvinnu og treysta kaupmátt lægri launa. Rikisstjórnin mun leggja áherslu áað draga markvisstUr verðbólgunni með þvl að lækka verðlag og tilkostnað og draga Ur vixlhækkunum verðlags og launa og halda heildarumsvif- um i þjóðarbUskapnum innan hæfilegra marka. HUn mun leit- ast við að koma I veg fyrir auð- söfnun i skjóli verðbólgu. Rikisstjórnin mun jafnframt vinna að hagræðingu i rikis- rekstri og á sviði atvinnuvega með sparnaði og hagkvæmri ráðstöfun fjármagns. Rikisstjórnin mun vinna að félagslegum umbótum. HUn mun leitast viö að jafna lifskjör, auka félagslegt réttlæti og upp- ræta spillingu misrétti og for- réttindi. Þessum meginmarkmiðum hyggst rikisstjórnin einkum ná með eftirgreindum aðgerðum: •. Sarostarl vió aóiía vinnu- markaðarins Rikisstjórnin leggur áherslu á að komið verði á traustu sam- starfi fulltrUa launþega at- vinnurekenda ogrikisvalds sem miði m.a. að þvi að treysta kaupmátt launatekna jafna lifs- kjör og tryggja vinnufrið. Unnið verði að gerð þjóðhags- og framkvæmdaáætlunar sem marki m.a. stefnu i atvinnuþró- un fjárfestingu tekjuskiptingu og kjaramálum. Jafnframt verði mörkuð stefna um hjöðn- un verðbólgu i áföngum og ráðstafanir ákveðnar sem nauðsynlegar eru i þvi skyni m.a. endurskoðun á visitölu- kerfinu, aögerðiri skattamálum og nýja stefnui fjárfestingar- og lánamálum. 2. Efnahagsmál 2.1. Fyrstu aðgerðir. Til þess að tryggja rekstur atvinnuveg- anna, atvinnuöryggi og frið á vinnumarkaði og veita svigrúm til þessað hrinda i framkvæmd nýrri stefnu i efnahagsmálum mun rikisstjórnin nii þegar gera eftirgreindar ráðstafanir: 1) Lög um ráöstafanir i efna- hagsmálum frá febrdar 1978 og bráðabirgðalög frá mai 1978 verði felld Ur gildi. Laun verði greiddsamkvæmt þeim kjarasamningum, sem siðast voru gerðir, þó þannig að verðbætur á hærri iaun verði sama krónutalan og á laun sem eru 233.000 kr. á mánuði miðað viö dagvinnu. 2) Verðlagverði lækkað frá þvi sem ella hefði orðið m.a. með niðurgreiðslum og afnámi söluskatts af matvælum sem samsvarar 10% i visitölu verðbóta 1. september og 1. desember 1978 og komið verði i veg fyrir hvers konar verðlagshækkanir eins og unnt reynist. Rikisstjórnin mun leggja skatta á atvinnu- rekstur, eyðslu, eignir, há- tekjur og draga Ur Utgjöldum rikissjóðs til þess að standa straum af kostnaði við niður- færsluna. 3) Til þess aö koma i veg fyrir stöðvun atvinnuveganna verði þegar i staö fram- kvæmd 15% gengislækkun, enda verði áhrif hennar á verðlag greidd niður (sbr. lið 2). 4) Rekstrarafkom a atvinnu- vega verði bætt um 2-3% af heildartekjum með lækkun vaxta af afuröa- og rekstrar- lánum og lækkun annars rekstrarkostnaðar. 5) Gengishagnaöi af sjávar- afurðum verði ráðstafað að hluta i Verðjöfnunarsjóð að hluta til útgerðar vegna gengistaps og loks til hag- ræðingar i fiskiðnaði og til þess að leysa sérstök staö- bundin vandamál. 6) Verðjöfnunargjald það sem ákveðið hefur veriö af sauð- fjárafurðum f ár verði greitt úr rikissjóði. 2.2. Breytt efnahagsstefna. 1 þvi skyni að koma efnahagslifi þjóðarinnar á traustan grund- völl leggur rikisstjórnin áherslu á breytta stefnu i efnahagsmál- um. Þvi mun hún beita sér fyrir eftirgreindum aðgerðum: 1) 1 samráði við aðila vinnu- markaðarins veröi gerð áætiun um hjöðnun verðbólg- unnar i ákveðnum áföngum. 2) Skipa skal nefnd fulltrúa launþega, atvinnurekenda og rikisvalds til endurskoðunar á vifmiðun launa við vlsitölu. Lögð verði rik áhersla á að niðurstöður iiggi sem fyrst fyrir. 3) Stefnt verði að jöfnun tekju- og eignaskiptingar m.a. meö þvi að draga úr hækkun hærri launa og með verðbólgu- skatti. 4) Stefnt verði að jöfnuöi i viðskiptum við útlönd á árinu 1979 og dregið úr erlendum lántökum. 5) Mörkuð veröi gjörbreytt fjár- festingarstefna. Með sam- ræmdum aðgerðum verði fjárfestingu beint i tækni- búnað endurskipulagningu og hagræðingu f þjóðfélagslega arðbærum atvinnurekstri. Fjárfesting i landinu veröi sett undir stjórn, sem marki heildarstefnu í fjárfestingu og setji samræmdar lánareglur fyrir fjárfestingasjóðina i samráði við ríkisstjórnina. 6) Dregiðverðiúr fjárfestingu á árinu 1979 og heildarfjár- munamyndun verði ákveðin takmörk sett. 7) Aðhald í ríkisbúskap verði stóraukið og áhersla verði lögö á jafnvægi i rikisfjár- málum. 8) Rikisstjórnin mun leita eftir samkomulagi við samtök launafólks um skipan launa- mála fram til 1. desember 1979 á þeim grundvelli að samningarnir frá 1977 verði framlengdir til þess tima, án breytinga á grunnkaupi. 1 þvi sambandi er rikisstjórnin reiðubúin til að taka samningsréttarmál opin- berra starfsmanna til endur- skoðunar, þannig að felld verði niður ákvæði um tíma- lengd samninga og kjara- nefnd. 9) Dregið verði úr verðþenslu með þviað takmarka útlán og peningamagn i umferð. 10) Niðurgreiðslu og niður- færslu verölags veröi áfram haidið 1979 með svipuðum hætti og áformað er i fyrstu aðgerðum 1978. 11) Lögð verði áhersla á að halda ströngu verðlagseftir- liti og að verðlagsyfirvöld fylgist með verðlagi nauðsynja i viðskiptalöndum tiisamanburðar. Leitað veröi nýrra leiða til þess að lækka verðlag i landinu. Sérstaklega verðistranglega hamlað gegn verðhækkunum á opinberri þjónustu og slikum aðilum gert að endurskipuleggja rekstur sinn meö tilliti til þess. Gildistöku 8. gr. nýrrar verðlagslöggjafar verði frestað. Skipulag og rekstur inn- flutningsverlunarinnar verði tekið til rækilegrar rannsókn- ar. Stefht verði að sem hag- kvæmustum innflutningi á mikilvægum vörutegundum, m.a. með útboðum. Ottekt verði gerö á rekstri skipafélaga i þvi skyni að lækka f lutningskostnað og þar með almennt vöruverö i land- inu. Fulltrúum neytendasamtaka og samtaka launafólks verði gert kleiftað hafa eftirlit með framkvæmd verðlagsmála og veita upplýsingar um lægsta verð á helstu nauösynjavör- um á hverjum tima. 12) Verðjöfnunarsjóður fisk- iðnaðarins verði efldur til að vinna gegn sveiflum f sjávar- útvegi. 13) Skattaeftirlit verði hert og ströng viðurlög sett gegn skattsvikum. Eldri tekju- skattslögum verði breytt með hliðsjón af álagningu skatta á næsta ári og nýafgreidd tekjuskattslög tekin til endur- skoðunar. Sérstakar ráðstafanir verði gerðar til að koma f veg fyrir að einkaneysla sé færð á reikning fyrirtækja. 3. Önnur mál 3.1. Landbúnaður.Stefnt verði að sem hagkvæmustu rekstrar- formi og rekstrarstærö búa og að framleiðsla landbúnaðar- vara miðist fyrst og fremst við innanlandsmarkað. Skipuð verði samstarfsnefnd bænda og neytenda sem stuðli að aukinni fjölbreytni í búvöru- framleiðslu og til samræmingar óskum neytenda með aukna innanlandsneyslu að marki. Endurskoðað verði styrkja- og útflutningsbótakerfi land- búnaöarins með það að marki að greiðslur komi bændum að betri notum en nú er. Lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarins verði breytt, m.a. á þann hátt aö teknir verði upp beinir samningar fulltrúa bænda og rikisvaldsins um verðlags-, framleiðslu-og önnur hagsmunamál landbúnaðarins. Jafnframt veröi Framleiðslu- ráði veitt heimild til að hafa með verölagningu áhrif á bú- vöruframleiðslu I samræmi viö markaðsaöstæður. Rekstrar- og afurðalánum verði breytt þannig aö bændur geti fengiö laun sin greidd og óhjákvæmilegan rekstrar- kostnaö svipað og aðrir aðilar fá nú. 3.2. Fiskveiðar og vinnsla. Stjórnun fiskveiða og fisk- vinnslu verði endurskoðuö og gerð áætlun um sjávarútveg og fiskiðnaö. Miðist hún við hag- kvæma og arðsama nýtingu fiskistofna án þess að þeim verði stefnt i hæftu. Staðbundin vandamál verði tekin til sér- stakrar meðferðar og leyst markvisst og skipulega. Ot- flutningsverðmæti verði aukin með betri nýtingu, aukinni vinnslutækni, meiri fjölbreytni i afla, afurðum og öflugri siflu- starfsemi. Gerðverði úttekt á rekstri út- flutningssamtaka i fiskiönaöi fyrirkomulagi hans og hag- kvæmni. 3.3 Iðnaður Unniö verði að áætiun um islenska iðnþróun og skipulegri rannsókn nýrrar framleiðslu sem hentar hér- lendis. Samkeppnisaðstaða is- lensks iðnaöar verði tekin til endurskoðunar og spornað með opinberum aðgerðum gegn óeðlilegri samkeppni erlends iönaöar m.a. með frestun tolla- lækkana. Islenskum iðnaði verði veitt aukin tækniaðstoð til hagræðingar og frámleiöni- aukningar og skipuleg markaðsleit og sölustarfsemi efld. 3.4. Orkumál. Mörkuð verði ný stefna i orkumálum með það að markmiöið aö tryggja öllum landsmönnum næga og örugga raforku á sambærilegu veröi. Komið verði á fót einu lands- fyrirtæki er annist meginraf-. orkuframleiöslu og raforku- flutning um landið eftir aðal- stofnlinum. Fyrirtæki þetta verði í byrjun myndað með samruna Lands virkjunar, Laxárvirkjunar og orkuöflunar- hluta Rafmagnsveitna rikisins. Þaö fyrirtæki yfirtaki allar virkjanir i eigu rikisins og stofn- linur. Gerð verði áætlun um raf- orkuþörf og raforkuöflun til næstu 5-10 ára. 1 þvi sambandi verði endurskoðuð fram- kvæmdaáætlun um Hraun- eyjarfossvirkjun, málefni Kröfluvirkjunar verði tekin til endurmats og tryggt viöunandi öryggi Vestfjaröa og Austur- lands i' orkumálum. Viðræðunefnd við erlenda aðila um orkufrekan iðnað verður lögð niður, enda hefur rikisstjórnin engin áform um að heimila innstreymi erlends áhættufjármagns i stóriðju- fyrirtæki. 3.5. Hagræðingarmál. Banka- kerfið verði tekið til endur- skoðunar og rfkisbönkum fækkað í tvo. Skipulag oliusölu og vátryggingarmála endur- skoðað og leitað hagræðingar. Athugað verði að tengja lyfja- verslun heilbrigðisþjónustu og setja hana undir félagslega stjórn. Endurskoðuð verði lög um Seðlabanka Islands og stöðu hans i stjórnkerfinu. 3.6 Byggðastefna. Byggða- stefnu verði fram haldið með svipuðum þunga og verið hefur. Ahersla verðilögðá hagræðingu og endurskipulagningu atvinnu- greina um land allt og lausn staðbundinna vandamála þar sem atvinnuvegir eiga i sérstök- um erfiðleikum eða búseta i hættu. Skipulag og starfshættir Framkvæmdastofnunar rikisins og fleiri opinberra aðila verði endurskoðuð til að tryggja sem best þessa stefnu. Haldið verði áfram aö flytja þjónustuþætti hins opinbera út á land og efld þar ýmis önnur starfsemi i tengslum við það. 3.7. Samgöngumál. Gerðar verði samgönguáætlanir fyrir landið f heild og einstaka iands- hluta, þar sem samræmdir verði flutningar á landi, sjó og i lofti. Sérstakt átak verði gert til aö leggja bundið slitlag á aðal- vegi og til endurbóta á vegum i strjálbýli. Áhersla veröi lögð á að leysa samgönguerfiðleika staða sem eiga af þeim sökum viövandaað glima f framleiðslu svo og i félagslegum sam- skiptum. 3.8 Trygginga mál. Rikis- stjórnin mun beita sér fyrir endurskoðun á lögum um al- mannatryggingar, þannig að aukin áhersla verði lögð á tekju- jöfnunaráhrif tryggingakerfis- ins. Gerðverði úttekt á kjörum og aðbúnaðialdraöra ogöryrkja og leitast við að tryggja jafnræði óháð búsetu. Unnið verði að úr- bótum iatvinnumálum aldraðra að frumkvæði opinberra aðila og tryggður auðveldur að- gangur þeirra aö opinberum stofnunum. Lögð verðiáhersla á aö bæta aðstöðu þeirra sem eru likamlega eða andlega fatlaðir. Sett verði löggjöf sem tryggi öllum landsmönnum verð- tryggðan lffeyri og stefnt aðein- um lifeyrissjóði fyrir alla lands- menn. 3.9 Dómsmál. Rikisstjórnin mun beita sér fyrir því að haldið verði áfram umbótum I dóms- málum er stuðla m.a. að aukn- um hraða i afgreiðslu mála, greiðari aðgangi almennings að dómstólum, svo sem meö lög- fræðilegri aðstoð án endur- gjalds og mjög aukinnar að- stöðu til harðari baráttu gegn efnahagslegum brotum. Lögð verði sérstök áhersla á að vinna gegn skatta- og bók- haldsafbrotum. Athugaö verði hvort rétt sé að setja á fót sér- stakan dómstól er fjalli um slik mál. 3.10 Menntamál.Sett veröi lög um framhaldsnám og sérstök áhersla lögðá að efla verknám. Aukinn verði réttur starfs- fólks til endurmenntunar aðeig- in vali án kaupskerðingar og verkþjálfunarnámskeið skipu- lögð i auknum mæli. 3.11 Húsnæðismál. Áhersla verði lögð á félagsleg sjónarmið i húsnæðismálum. Sett verði löggjöf um réttindi leigjenda, löggjöf um verkamannabústaði verði endurskoðuð, stefnt verði að þvi að hækka húsnæðislán og létta fjármagnsbyrði með leng- ingu lánstima. Endurskoðuð verðilöggjifl um fasteignasölu. 3.12 Umhverfismál. Stjórn- sýsla á sviði umhverfismála verði endurskipulögð með það aö markmiði að færa saman i eittráðuneyti heistu máiaflokka á þessu sviði. Unnið verði aö lagabótum varðandi skipulags- mál, mengunarmál, starfeum- hverfi og vinnuvernd, náttúru- rannsóknir og þjóðminjavernd. 3.13. Atvinnulýðræði. Sett verði löggjöf um atvinnulýðræði og byrjað á þvi að veita starfe- fólki aðild að stjórnun rikis- fyrirtækja 3.14 Verkaskipting rikis og sveitarfélaga. Haldið verði áfram athugun á verkefna- skiptingu rikis og sveitarfélaga og fengin niðurstaða svo fljótt sem kostur er. 3.15 Starfshættir Alþingis. Rikisstjórnin mun beita sér fyrir þvi að fram fari endur- skoðun á þingsköpum Alþingis. 3.16 Utanrikismál. Þar eð rikisstjórnarflokkarnir hafa ekki samið um stefnuna i utan- rikismálum, verður i þeim efn- um fylgt áfram óbreyttri grund- vallarstefnu og verður þar á eigi gerð breyting nema samþykki allra rikisstjórnarflokkanna komi til. Það skal þó tekið fram, aö Alþýðubandalagið er andvigt aðild Islands að Atlantshafs- bandalaginu og dvöl hersins i landinu. Ekki verða heimilaðar nýjar meiri háttar fram- kvæmdir á yfirráðasvæði varnarliðsins. 4. Endurskoðun stjórnarskrár Rikisstjórnin mun beita sér fyrir þvi að nefnd sú sem stofna ber til þess að fjalla um endur- skoðun stjórnarskrár sam- kvæmt samþykkt Alþingis og samkomulagi þingflokka þar um, ljúki þvf verki á tilsettum tima. Jafnhliöa fari fram endurskoðun á lögum um kosningar til Alþingis og á lög- um um kosningar til sveitar- stjórna. 5. Nefnd um athugun á öryggismálum Rfkisstjórnin mun beita sér fyrir þvf að sett verði upp nefnd, þar sem allir þingflokkar eigi fulltrúa og verði verkefni nefndarinnar að afla gagna og eiga viðræður við innlenda og erlenda aðila til undirbúnings álitsgerðum um öryggismál Is- lenska lýðveldisins. Nefndin geriýtarlega úttekt á öryggis- málum þjóðarinnar, stöðu landsins i heimsátökum, val- kostum um öryggisstefnu, nú- verandi skipan öryggismála og áhrif á islenskt þjóölff svo og framtíð herstöðvanna eftir að herliðið fer og varnir gegn hópum hryöjuverkamanna. Nefndin fjalli einnig um hug- myndir um friðlýsingu, friðar- gæslu og eftirlit á Norður-At- lantshafi og láti semja yfirlit yfir skipan öryggismála smá- rikja i heiminum, einkum ey- rikja sem eiga svipaöra hags- muna aö gæta og Islendingar. Nefndin fái starfskrafta og fé til aðsinna verkefnum sinum og til að gefa út álitsgerðir og greinargerðir um afmarkaða þætti i því skyni að stuðla að al- mennri umræöu. 6. Endurskoðun Stjórnarflokkarnir eru sam- mála um að endurskoða sam- starfsyfirlýsingu þessa á árinu 1979.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.