Þjóðviljinn - 01.09.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 01.09.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. september 1978 Föstudagur 1. september 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 11 I STJÓRN ARKREPPAN í MÁLI OG MYNDUM Þingkosningarnar 1) Alþingiskosningar fóru fram sunnudaginn 25. júní. I kosningun- um töpuöu stjórnarflokkarnir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis- flokkur, 10 þingsætum. Aö morgni miövikudags 28. júni gekk rikis- stjórnin á fund forseta og afhenti lausnarbeiðni sína. Hvorki forset- inn né forystumenn flokkanna vildu tjá sig um þaö við blaðamenn hverjum yrði falin stjórnarmyndun. Þessi mynd er tekin á rikisráðsfundi, viö upphaf stjórnarferils rikisstjórnar Geirs Hallgrimssonar. Forsetinn hefur óformlegar viörædur 2) Fimmtudaginn 29. júni hóf forseti tslands dr. Kristján Eldjárn óformlegar viðræður við formenn stjórnmálaflokkanna. Forsetinn ræddi við formennina eftir stærðarröð flokkanna, byrjaöi á Geir Hailgrimssyni ki. 9 um morguninn.Lúðvik Jósepsson mætti þremur stundarfjórðungum siðar, þá Benedikt Gröndal og loks ólafur Jó- hannesson. I þessum viðræðum kynntu flokksforingjarnir forseta stefnumál sin en annars gáfu þeir litið upp um hvað þeim fór á milli i viðræðunum við forsetann. Sama dag hófust óformlegar viðræður milli Lúöviks og Benedikts Gröndals. Lúövik Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins ásamt Kristjáni Eldjárn áður en óformlegur fundur þeirra hófst. Óformlegar viðræður flokkanna 3) Fyrstu dagana i júli funduðu þingflokkar og framkvæmdastjórn og flokksstjórn Alþýðubandalags og Alþýðuflokks og ákváðu að fela forystumönnum sinum að hefja formlegar viðræður sin á milli um hugsanlegt samstarf þessara flokka i rikisstjórn. Forsetinn var þá ekki enn búinn aö taka ákvörðun, hverjum hann fæli stjórnarmvnd- un. Jafnframt fór þingflokkur Aiþýðubandalagsins þess á leit við Framsóknarflokkinn að teknar yrðu upp viðræður flokkana hlið- stæðar þeim sem i gangi voru við Alþýðuflokkinn. Forystumenn AI- þýðuflokksins ræddu einnig við forystumenn Sjálfstæöisflokksins meö samstjórn Alþýðubandalags, Alþýöuflokks og Sjálfstæðisflokks i huga. Myndin er tekin i könnunarviðræðum Alþýöubandalags og Al- þýðuflokks. Benedikt fékk boltann fyrstur 4) Miðvikudaginn 12. júli tók forsetinn ákvöröun og fól Benedikt Gröndal formanni Alþýöuflokksins að hafa forystu um myndun meirihlutastjórnar. Benedikt skýrði frá þvi aö hann ætlaði fyrst að reyna myndun svonefndrar Nýsköpunarstjórnar, þ.e. stjórn Al- þýðubandalags, Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Hann sagði að slik stjórn gæti ráöið best við efnahagsvandann og tryggt frið milli stéttanna i anda kjarasáttmála Alþýðuflokksins. Daginn eftir hélt Alþýöubandalagið þingflokksfund þar sem neitaö var þátttöku i slikri stjórn. Neitunin var rökstudd á þeim forsendum aö i könnunarviðræðum Alþýðuflokks og Alþýðubandalags hefði komiö fram vilji til aö reyna annað stjórnarmynstur og þá fyrst og fremst vinstristjórn. Sjálfstæöisflokkurinn svaraði hins vegar beiðni Al- þýðuflokksins jákvætt. Benedikt stigur hér út úr bifreið sinni á Bessastöðum til að sækja umboðið. Benedikt reynir vinstri stjórn 5) Benedikt Gröndal venti nú kvæði sinu I kross og hóf viöræður um myndun vinstri stjórnar miðvikudaginn 19. júli. Agreiningur var hins vegar i Framsóknarflokknum um stjórnaraöild. og tók for- maður flokksins Ólafur Jóhannesson ekki þátt i viðræðunum, né nokkur annar ráöherra flokksins. Þessar viðræður sigldu i strand i siöustu vikunni fyrir mánaða- mótin júli-ágúst og laugardaginn 29. júli sleit Benedikt Gröndal viö- ræðunum formlega. Ágreiningurinn var á milli Alþýðubandalags annars vegar og Alþýðuflokks og Framsóknarflokks hins vegar, en Alþýðubandalagið hafnaði algerlega 15% gengisfellingarkröfu hinna flokkanna og kröfu þeirra um að sú 7% kjaraskerðing sem hún hefði i för með sér, yrðu i engu bætt. Myndin er tekin laugardagsmorguninn 29. júli er Benedikt lýsti yfir að viðræðunum væri lokið. ( dag fara fram stjórnarskipti á (slandi. Vinstri stjórn tekur við af samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Ráðuneyti Olafs Jóhannessonar tekur við eftir að stjórnarkreppa hefur staðið í landinu frá þingkosningunum sunnudaginn 25. júní eða á 68. degi frá því að Geir Hallgrímsson baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Á þessum tíma hafa verið gerðar 5 árangurslausar tilraunir til myndunar ríkisstjórnar og allir formenn f lokkanna hafa fengið að spreyta sig. I sjöttu tilraun hefur Ólafi Jóhannessyni tekist að koma saman stjórn. Þær samsteypustjórnir sem reynt hefur verið að mynda eru þessar: ,,Nýsköpunarstjórn" (Alþýðubandalag, Alþýðuf lokkur og Sjálfstæðisf lokkur), vinstri stjórn (Alþýðubandalag, Alþýðu- flokkur og Framsóknarflokkur), ,,Þjóðstjórn" (stjórn allra .fjögurra þingflokka), „Stefaníustjórn" (Alþýðuflokkur, Fram- sóknarf lokkur og Sjálfstæðisflokkur) og loks vinstri stjórn nr. 2. I stjórnarkreppunni var einnig alvarlega rætt um myndun utan- þingsstjórnar. Hér á opnunni eru þessar stjórnarmyndunartilraun- ir raktar í máli og myndum f rá því er f ráfarandi ríkisstjórn baðst- lausnar allt til þess að Ölaf i Jóhannessyni var falin stjórnarmynd- un. Geir reynir þjóðstjórn 6) Mánudaginn 31. júli boöaði forseti tslands Geir Hallgrimsson á sinn fund og fól hon- um myndun meirihlutastjórnar. Geir tók sér tveggja sólarhringa frest til að svara beiðni forseta og að fengnu samþykki miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins ákvað Geir aö taka beiðni forsetans miðvikudagskvöldið 2. ágúst. Geir Hallgrimsson lýsti þvi yfir að hann myndi fyrst reyna myndun stjórnar allra flokka, Þjóðstjórnar, sem starfaði til skamms tima og einbeitti sér aö finna lausn á efnahagsvandanum. Geir og Gunnar Thoroddsen hófu þegar könnunarviðræður viö tvo forystumenn frá hverjum flokkLen flokksforingjar og aðrir stjórnmálamenn lýstu þvi yfir að þeim litist illa á þjóðstjórnarhugmyndina. Hér koma þeir Ragnar Arnalds og Kjartan ólafsson til fundar viö Geir i Stjórnarráðs- húsinu. V erkamannasamband- id stöövar „Stefaníu” 7) Eftir sjö daga árangurslausar tilraunir til myndunar Þjóöstjórn- ar gafst Geir upp og snéri sér umsvifalaust aö tilraunum til mynd- unar samstjórnar Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks en þær viðræður hófust föstudaginn 11. ágúst. Myndin er tek- in á fyrsta fundinum. Forystumenn Alþýðubandalagsins lýstu þvi yfir að þeir hefðu trú á þvi að þessir þrir flokkar kæmu sér saman þar sem þeir virtust vera sammála um stefnuna i efnahagsmálum. Mikil óánægja var þó i þingflokki Alþýðuflokksins með þátttöku hans i þessum viðræöum. Framsóknarflokkurinn virtist þó nokkuð reiðubúinn þar sem Ölafur Jóhannesson formaðurinn, var sendur nú i viðræðurnar. Sama dag og viðræðurnar hófust sendi Verka- mannasambandið frá sér ályktun þar sem Alþýðuflokkurinn og Al- þýðubandalagiö voru hvattir til að taka upp viðræður um myndun stjórnar i þágu launþegahreyfingarinnar. Forystumenn beggja þessara flokka lýstu þessu sem óvæntu. lofsverðu og athyglisverðu frumkvæöi. „Söguleg stund” 8) Alþýöuflokkurinn fundaði stift alia heigina 12.-14. ágúst vegna ályktunar Verkamannasambandsins og þriðjudagsmorguninn 15. ágúst hringdi Benedikt i Geir og tilkynnti honum að þátttöku Al- þýðuflokksins i stjórnarviðræðunum undir hans forystu væri lokið. Sama dag skilaði Geir umboði sinu. Jafnskjótt fóru aö heyrast raddir um nauðsyn á utanþingsstjórn og voru þær háværastar i her- búðum Framsóknar. Oformlegar viðræður hófust milli forystu- manna Alþýðuflokks og Alþýðubandalags um hugsanlega myndun minnihlutastjórnar þessara flokka. Miðvikudaginn 16. ágúst rann upp „söguleg stund”. Forsetinn kallaði Lúðvik Jósepsson á fund sinn og fól honum aö hafa forystu um myndun meirihlutastjórnar. Viöræður Alþýðuflokks og Alþýöu- bandalags héldu áfram fram að helginni og Lúðvik ræddi við Ölaf Jóhannesson. Myndin er tekin af Lúðvik og dr. Kristjáni þegar Lúð- vik sótti umboðið til Bessastaða. Lúövík reynir vinstri stjórn 9) Mánudaginn 21. ágúst hófust formlegar viðræður Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks um myndun vinstri stjórn- ar og var unnið mjög ötullega að myndun stjórnarinnar undir for- ystu Lúðviks. Alþýðuflokkurinn gaf þá út yfirlýsingar um aö þeir sættu sig ekki við Lúðvik sem forsætisráðherraefni en Framsókn studdi hann. Lúðvik bað um skýr svör. Fékk þau frá Framsókn, en loðin frá flokksstjórn Alþýðuflokksins, sem Lúðvik túlkaði sem neit- un. Fimmtudaginn 24. ágúst skilaöi Lúðvik umboði sinu. Þá hafði náðst samkomulag um mjög veigamiklar efnahagsaögerðir til næstu 16-18 mánaöa þ.á.m. niðurfærsla verðlags um 8-10% og samningana i gildi. Myndin er tekin á einum viöræöufundi forystu- manna flokkanna. Náiö samráð 10) I stjórnarmyndunarviðræðunum undir forystu Lúðviks Jóseps- sonar var haft mjög náið samstarf við fulltrúa launþegahreyfingar- innar, enda hvatti hún til myndunar stjórnarinnar. A þessari mynd eru fulltrúar launþegasambanda innan vébanda Alþýöusambands- ins að hefja fund með þeim Lúðvik og Benedikt. Skútan bundin Sama dag — 24. ágúst — og Lúövik skilaöi umboðinu meö þeim orðum að skútan væri komin i höfn fól forsetinn Olafi Jóhannessyni myndun stjórnar. Olafur Jóhannesson lýsti þvi yfir aö hann myndi halda áfram á sömu braut og Lúðvik ,,og taka að sér að binda skút- una.” Alþýöufiokkurinn og Alþýðubandalagið samþykktu forystu Ólafs og viöræöurnar um myndun vinstri stjórnar héldu áfram. Miðvikudaginn 30. ágúst lá samstarfsyfirlýsing flokkanna fyrir og þann sama dag héldu þingflokkar og flokkstjórnir fundi þar sem afstaða til samstarfsyfirlýsingarinnar var tekin. Flokksstjórn Al- þýðuflokksins samþykkti hana með 30 atkvæöum gegn 12, flokksráð Alþýðubandalagsins meö 104 atkvæðum gegn 19 og miðstjórn Framsóknarflokksins meö þorra atkvæöa gegn einu. Þaö var svo ekki fyrr en aðfararnótt dagsins i dag að Alþýðuflokkurinn og Al- þýðubandalagiö gengu endaniega frá skipun i ráðherraembætti á þeirra vegum, eins og segir frá á öðrum stað i blaðinu. Olafur Jóhannesson mætir hér til fundár i stjórnarráöinu til aö sækja umboð sitt til forseta. Þig tók saman. ’

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.