Þjóðviljinn - 01.09.1978, Síða 15

Þjóðviljinn - 01.09.1978, Síða 15
Föstudagur 1. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Áningarstaðurinn á Hlemmi Tekinn í notkun í dag I morgun kl. 7 opnaöi nýi áningarstaðurinn á Hlemmi, en allt fram á siðustu stundu voru iðnaðarmenn að leggja siðustu hönd á verkið. I gær gafst tækifæri til þess aö skoða húsið og notfærðu fjöl- margir vegfarendur sér það. Kl. 17 fór fram formleg afhending hússins til borgarstjórnar og fyrir hönd bygginganefndar flutti for- maður hennar, Sveinn Björnsson, verkfræðingur ávarp. Hann rakti byggingarsögu hússins og minnti á aö Hlemmur var hér áður fyrr áningarstaður hestamanna þegar Reykjavik var minni en hún er nú. Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar þakkaði bygginganefnd og iðnaöarmönn- um vel unnin störf og sagði Sigur-- jón að það gleddi sig að taka við þessu húsi fyrir hönd borgarbúa og þó sérstaklega þeirra sem þessi þjónusta er miðuð við, far- þega SVR. Sigurjón gat þess einn- ig aö i húsinu er fullkomin aö- staða fyrir fólk i hjólastólum, bæði hvað aðkomu og skipulag innan húss varðar, og þar eru fyrstu almenningssalernin i Reykjavik, sem fólk i hjólastólum á aðgang að. Sigurjón sagði að þó þeir sem bundnir eru við hjóla- stóla eigi ekki tök á að ferðast með strætisvögnum, þá vænti hann þess að áningarstaðurinn og aðstaðan þar væri áfangi á þeirri braut að efla þátttöku hreyfifatl- aðra i hinu daglega lifi Reykja- vikur. Viðstaddir opnunina voru eins og áöur sagði auk borgarstjórnar og embættismanna fjöldi Reyk- víkinga sem notaði tækifærið og skoðaði húsið. Nýi áningastaöur- inn á Hlemmi er fallegt og bjart húsnæði, bjart og liflegt húsnæði og væri óskandi aö honum yrði hlift viö skemmdarverkum og slæmri umgengni. Nánar veröur greint frá opnuninni i blaðinu á morgun. —AI Björn Þórhallsson: Verslunarmenn hafa Kolbeinn Friðbjarnarson. auðvitað að við treystum þvi að þannig veröi gengið frá launa- málum, aö sá kaupmáttur sem samið var um i sólstöðusamning- unum verði tryggður út árið 1979, hvað öllum almennum launum viðkemur. Þannig verði tryggður vinnufriður i landinu. Um önnur atriði er ég ekki i að- stöðu til að tjá mig, enda ekki get- að kannaö þau. En ég vona það besta. —hm Frá opnuninni á Hlemmi I gær: Sigurjón Pétursson, Eirikur As- geirsson, Guðrún Helgadóttir, Björgvin Guðmundsson og Albert Guðmundsson. Ljósm.: Leifur. dregist aftur úr Björn Þórhalisson. Eins og fram kom i Þjóðviljan- um I gær, sátu þrir miðstjórnar- menn ASl hjá við atkvæöa- greiöslu um að sambandið skyldi taka jákvætt undir málaleitan rikisstjórnaflokkanna þriggja, að samningar skyldu framlengjast i eitt ár án grunnkaupshækkana, að þvi tilskiidu að visitölubætur héldu áfram og kaupránslögin numin úr gildi. Auk þess sem þremenningarnir sátu hjá greiddi einn miðstjórnarmaður atkvæði gegn þessari.málaleitan. Það var Björn Þórhallsson, formaður Landssambands verslunar- manna. — Min afstaða á fundinum var I rauninni tviþætt, sagði Björn þeg- ar Þjóðviljinn ræddi við hann I gær. t fyrsta lagi var ég alfarið á móti þvi aö samtökin afgreiddu þessa málaleitan á þennan hátt, sem formlega samþykkt. Það hafði komiö fram i viðræðum við ákveöna aðila innan Alþýðusam- bandsins, að hugur manna var al- mennt jákvæður og ég tel að það hefði átt að nægja. t öðru lagi, og það er aðalástæð- an, eru verslunarmenn nú svo staddir, að þeir hafa dregist óra- langt aftur úr sinum viömiöunar- aðilum, sem eru félagar BSRB sem vinna sams konar störf og verslunarmenn. Meðan svo er, get ég ekki, vegna minna félags- manna, greitt þvi atkvæði að þeir láti baráttu fyrir grunnkaups- hækkun falla niður i eitt ár. —hm Hress og kátur sagði Karl Steinar um stjórnarmyndunina — Ég er hress og kátur, enda tel ég ástæðu til að ætla að hér sé gerö tilraun til aö leysa þau gifur- legu vandamál er hrjá þjóðfélag- ið, sagði Karl Steinar Guönason, varaformaður Verkamanna- sambands Islands og þingmaður Alþýðuflokksins, þegar Þjóðvilj- inn spurði hann i gær, hvernig honum litist á nýju rikisstjórnina. Eins og kunnugt er voru það þeir Guömundur J. Guðmundsson og Karl Steinar sem báru fram til- lögu þess efnis i framkvæmda- stjórn Verkamannasambandsins, að sambandið kreföist stjórnar- samstarfs Alþýðubandalags og Alþýðuflokks. Sú tillaga var samþykkt og má þvi i raun kalla þá tvimenningana „arkitekta vinstri stjórnarinnar”. Karl Steinar Guðnason. — Ef unnið verður að heilindum með það að markmiði að breyta efnahagsstefnunni, þá er von til þess, aö launþegar eigi I vændum betri tið, sagði Karl Steinar. —hm Kaupmáttur verdi tryggöur næsta ár segir Kolbeinn Fridbjarnarson frá Siglufirði Kolbeinn Friðbjarnarson, for- maöur Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, sagðist vera ánægður með að þessi stjórnarmyndun skyldi hafa tekist. — Þaö sem mér dettur fyrst i hug að fylgi henni jákvætt, er eriendar baekur Poems of Wisdom and Learning in Old English. T.A. Shippey. D.S. Brewer — Rowman and Littlefield 1977. Meðal engilsaxnesks kveð- skapar eru nokkur kvæði sem hefur litið verið sinnt, en sem eru engu að siöur merkileg. Þetta eru kvæði sem útgefandi nefnir Kvæði um visdóm og lærdóm og eru hér útgefin i frumtexta og með þýöingum. Alls hafa verið valin i þessa bók 10 kvæði um þessi efni. Kvæðin votta hugar- heim Engil-Saxa á sinni tiö, skáldsnilli þeirra og list. Allt það sem til er af engilsax- neskum bókmenntum snertir islensk fræöi meira eöa minna, tengslin milli Noregs og Englands voru talsverð á dögum Engil- Saxa og einnig milli ensku og is- lensku frumkirknanna. Þvi eru ritsem þetta eftirtektarverð fyrir þá sem sinna þeim fræðum. The Burning Hill. Elisabeth Kyle. Peter Davies 1977. Elisabeth Kyle hefur skrifað margar skáldsögur og er þetta sú nýjasta. Sögusviðið er suðvestur- hluti Skotlands og atburðarásin, draugagangur, hjátrú og hjú- skaparætlanir. Höfundurinn skrifar lipurlega, persónu- lýsingar eru fremur veigalitlar og mannlifslýsingar sömuieiðis, en höf. tekst að ná vissu andrúms- lofti i frásögnina, svo að sagan verður læsileg. Kyle segist skrifa sögur öðrum til skemmtunar, og gerir ekki frekari kröfur. The Last Dance John Briley. Secker & Warburg 1978. Atburöirnir hefjast i Diíssel- dorf, þar sem Iri nokkur verður fyrir geislavirkni og deyr, lækn- irinn sem stundaöi hann á sjúka- húsinu drukknar áður en hann>- kemst til að hefja eftirgrennsl- anir og fógetafulltrúinn, sem átti að rannsaka ástæðurnar fyrir dauða Irans er ekinn niður og drepinn. Lögreglumaðurinn Kassel verður heldur ekki lang- lifur, eftir aö hann tekur að rann- saka þetta mál. Og frásögnin heldur áfram, dularfuliar persónur koma til sögunnar i Bombay og Moskvu og smátt og smátt vitnast samsæri, sem teygir anga sina um allan heim. Kaunitz kemur til sögunnar og skilur að hann á i kapphlaupi við timann, ef honum á að takast að bjarga miljónum mannslifa undan geisladauöanum. Sagan er spennandi og allt gæti þetta gerst. The Face of Fear. K.R. Dwyer. Peter Davies 1978. Dwyer hefur sett saman nokkr- ar skáldsögur, sem hafa selst vel, þ.e. i fjórum miljónum eintaka. Þessi saga er saga af morðingja sadista, sem hefur myrt 10 konur þegar Harris, sem gæddur er fjarsýni og vinnur sem leynilög- reglumaöur, sér þann sem morð- in hefur framið. Þessu er slegið upp i blööunum og morðinginn ákveður að myrða Harris til þess að komast hjá handtöku. Atvikin haga þvi svo að moröinginn Boll- inger lokkarHarrisogstúlku með honum inn i 42ja hæða skrifstofu- blokk þar sem eltingaieikurinn hefst. Atburðarásin er mjög spennandi og á milli atriða er skotið inn i minningum Bolling- ers. Sagan er lipurlega gerð og endar eins og allir reyfarar. Peter Davies gefur út margvis- legar bækur, bæði lélegar og góö- ar, en eitt er einkenni þessarar útgáfu, að frágangur bókanna, uppsetning og band er alltaf mjög smekklegt. Jonathan Cape# Publisher. Herbert Jonathan Cape — G. Wren Howard. Michael S. Howard. Penguin Books 1977. Michael S.Howardersonur ann- ars aðaleiganda útgáfufyrirtæk- isins Jonathan Cape, hinn var Jonathan Cape. Hér rekur hann sögu útgáfunnar, upphaf hennar og starfsemi fram um 1970. Hann segir frá viðskiptum forlagsins við ýmsa höfunda og skáld, segir ýmsar sögur af útgáfu bóka og viðskiptum og samkeppni við önnur félög. Cape bækurnar voru sérstæöar um margt og forlagið varð brautryðjandi i ýmsum tækninýj- ungum og i frágangi bóka. Til þess að bókmenntir geti blómgast þarf vitaskuld höfunda og einnig gáfaða útgefendur, hugkvæma smekkmenn, sem hafa vit á bók- um og bókagerð. Stofnendur Cape forlagsins höföu þetta til að bera. Meðal höfunda Cape voru, Hemingway, H.G. Wells, T.E. Lawrence ofl. ofl. Blaðberar óskast Austurborg: Bólstaðahlið (nú þegar) Skaftahlið (nú þegar) Njörvasund (nú þegar) Vesturborg: Háskólahverfi (nú þegar) Túngata (sem fvrst) Hjarðarhagi (nú þegar) Miðsvæðis: Laufásvegur (nú þegar) Neðri Hverfisgata (1. okt.) Kópavogur: Langabrekka (nú þegar) Kópavogsbraut (sem fyrst) Álfhólsvegur (sem fyrst) Þverbrekka (sem fyrst) UOBVIUINN Siðumúla 6. Simi 8 13 33

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.