Þjóðviljinn - 26.09.1978, Page 3
Þriðjudagur 26. september 1978 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3'
Erlendar fréttir
í stuttu
máli
Begin leggur tillögur sínar
fyrir þingið
JERUSALEM, 25/9 (Reuter)
— t dag lagði Begin forsætis-
ráðherra tsraels afurðir Camp
David-viðræönanna fyrir
þingið. Hann sagðist segja af
sér ef þingið samþykkti ekki
tillögur sinar. Hann hélt þvi
fram, að tsraeismenn væru
aðeins skuldbundnir til að biða
með frekari framkvæmdir á
vesturbakka Jórdan næstu
þrjá mánuði, þrátt fyrir að
Sadat og Carter væru sam-
mála um fimm ár i þvi
sambandi.
Begin hélt þvi fram að hann
hefði *ryggt eö:
— Engin þjóðaratkvæða-
greiðsla færi fram á
vesturbakkanum né Gaza-
svæöinu.
— Riki Palestinumanna yrði
ekki stofnað.
— Engir samningar yrðu
gerðir við fulltrúa Frelsis-
hreyfingar Palestinu-
manna (PLO)
— Arabiskur fáni yrði ekki
dreginn að húni i
Jerúsalem.
Hannhvatti þingmenn til að
samþykkja drögin, svo endir
yrði skjótt bundinn á áralangt
strið þjóðarinnar við
nágranna sina.
t dag sagði i egypska
útvarpinu, að tsraelsmenn
yrðu að hætta við útþenslu-
stefnu sina, ef þeir vildu ná
sáttum við' Arabaþjóöirnar.
Þar sagði ennfremur að brott-
flutningur tsraelsmanna af
Sinai-skaga myndi sýna að
þeir væru reiðubúnir til að lifa
i sátt og samlyndi við
nágrannaþjóðir sinar. Hvorki
Knesset (þingtsraels) né
rikisstjórn tsraels hefði laga-
legan rétt til athafna á ann-
arra landi, eins og væri þeirra
eigið, jafnvel þótt hernumið
væri. Þvi liggja friðarmögu-
leikar i höndum Knesset,
sagði egypska útvarpið að lok-
Vestur-þýska lögreglan sœrir
mann lífshœttulega
DORTMUND, 25/9 (Reuter)
— t gærdag skaut
vestur-þýska lögreglan á
þremenninga sem voruá skot-
æfingum úti i skógi fyrir utan
Dortmund. Einn maður komst
undan lögreglunni, en annar
var fluttur lifshættulega særð-
ur á sjúkrahús. Konan i hópn-
um særöist einnig. Lögreglan
er á þeirri skoðun að mennirn-
ir séu hryðjuverkamenn, en
segist samt ekki enn vita nöfn
fólksins, fyrren fingraför hafi
veriö tekin af þeim. — Að sögn
Reuters er atburður þessi enn
ein hetjudáðin sem
vestur-þýska lögreglan drýgir
i baráttu sinni gegn hryöju-
verkamönnum.
Verkfallsmenn í Belgíu biöja um
erlenda hjálp
BRUSSELL, 25/9 (Reuter) —
Belgiskir oliuvinnslumenn
sem nú eru í verkfalli, báðu i
dag um aðstoð annarra þjóða,
svo koma mætti í veg fyrir
innflutning á oliu á meðan á
verkfallinustendur. Það hefur
nú staðið á þriðju viku og nær
yfir allt landið.
Talsmenn verkalýðs-
félaganna efast um skjótfeng-
inn endi á verkfallið, sem
hófst þegar oliuhreinsunar-
stöð i Antwerpen var lokað.
Stöðin var i eigu bandariska
oliufélagsins Occidental Oil
Company, og var lokaö vegna
ástands i öryggismálum
vinnustaðarins.
Kennarar handteknir
fyrir að fella niöur vinnu
BRIDGEPORT, Connecticut,
25/9 (Reuter) — 1 gær lauk
nitján daga verkfalli kennara i
Bridgeport. Meöan á verkfall-
inu stóö voru tvö hundruö og
áttatiu kennarar handteknir
fyrirað neita að kenna. Kenn-
arar samþykktu að hefja
kennslu, eftir að samningar
náðust við menntamálaráö
borgarinnar. Kennarar þeir
sem i fangelsi sátu voru þá
látnir lausir.
Flóö eyöileggja hrísuppskeru
BANGKOK, 25)9 (Reuter) —
Stormur geysaði i
Norður-VIetnam i dag. Búist
er við að hann leggi suöur á
bóginn og nái miöhluta lands-
ins á morgun. NIu héruð i
suðurhluta landsins berjast
enn við f lóð sem eyðilagt hafa
mikla hrisuppskeru. Flóðin
hafa einnig herjað á Laos og
Kambodiu. — Talsmenn I
þessum löndum segja náttúru-
hamfarirnar vera einar þær
verstu sem orðið hafa. Auk
manntjóna hefur griðarlega
stór hluti hrisuppskeru þess-
ara þjóða eyðilagst. Tals-
maöur stjórnvalda I Hanoi
sagöi aö alþjóðlegrar hjálpar
væri þörf.
Barn fœöist eftir andiát móöur
CARDIFF, Wales, 25/9
(Reutei') — A föstudag fæddist
barn þremur kortérum eftir
aö móðir þess fórst i
umferöarslysi. Barnið var
ekki I tilraunaglasi, heldur
undir belti móður sinnar.
Þegar læknar komust að þvi
aöhinnýlátnakona hefði verið
þunguð, framkvæmdu þeir
keisaraskurö á likinu. Konan
hafði verið komin átta mánuði
áieið meögöngunnar. Að sögn
lækna er barniö ekki sérlega
hraust, en þeir berjast fyrir
lifi þess. Faöir barnsins er
undir meðferð vegna áfallsins
sem hann varð fyrir.
Að sögn kvenlækna i
Cardiff, er möguleiki á að
börn fæðist allt að klukkutima
eftir dauða móður þeirra.
• •
Omurlegt ástand
ríkir í Nicaragua
Þúsundir manna hafa flúiö land
MANAGUA, 25/9 (Reuter) — Nd
hafa stjórnvöld i Nicaragua náö
borgum þeim á sitt vald, sem
uppreisnarmenn héldu þar til i
siðustu viku. Esteli er sú borg
sem einna verst fór út dr innrás
stjórnarherjanna, — þar, sem
viða annars staðar stendur ekki
steinn yfir steini. Sprengjuárásir
flugvéla lögðu byggingar I rdst,
aukþesssem margarbera merki
vélbyssuskota. Enn er alls óvitað
hve margirlétu lifið i átökunum l
Nicaragua. Talsmenn Rauða
krossins skýrðu frá þvi, aö þeir
hefðu fundið fjöldagröf i Esteli
með fimmtiu manneskjum. Viða
eru tfk brennd, af ótta við farsótt-
ir.
Stjórnarhermenn hafa verið
sakaðir um grimmd, þá sérstak-
lega i garö óbreyttra og óvopn-
aðra borgara. Ein kona benti
grátandi á rústir heimilissins og
sagði hermenn hafa ekiö skriö-
drekum inn I húsið, þrátt fyrir að
hún hefði hrópað aö börn væru
þar inni. Vopn liggja viða á göt-
um, og má sjá að vopn þau sem
ungmenni notuðu gegn herjum
Somoza forseta voru mjög ófull-
komin. Fáni sandinista lá fótum
troðinn á aðaltorgnu i Esteli, og
hafa borgarbúar flúiö rústir
heimili sinna i leit að fæðu og
skjóli. Einn flóttamanna sagöi við
fréttamenn að þeir mættu gjarn-
an segja umheiminum aö stjórn-
arhermenn hefðu lagt Esteli l
eyöi. Almennir borgarar eru nú
enn andsnúnari stjórninni eftir
aðfarir hennar. Herinn neitar öll-
um ásökunum og segir að ef fólk
kvarti undan grimmd hermanna,
sé það sök dulbúinna skæruliða. 1
borginni Chinandega þurrkuðu
stjórnarhermenn einn skæruliða-
hóp gersamlega út. Uppreisnar-
menn sem flúið hafa út á land,
hafa verið skotnir úr lofti.
Ibúar i Chinandega hafa skýrt
frá þvi að á meðan skæruliðar
höfðu borgina á valdi sinu, hefðu
þeir dreift matvælum til fólksins.
Skæruliðar hafa nú flúið til fjalla
og mörg ungmenni slegist i för
með þeim.
1 gær sprungu tuttugu sprengj-
ur i Managua og kveikt var i bil-
um i borginni. Uppreisnarmenn
segjast halda áfram baráttunni
og segja að hver sá sem styðji
stjórnina sé andstæöingur fólks-
ins og verði meðhöndlaður sem
slikur.
Utanrikisráðherrar Ameriku
sitja nú fund og ræða ástandið i
Nicaragua. Fulltrúar Bandarikja
og Venezuela hafa lagt til að
rannsakað veröi hvort frásagnir
fólks af grimmd stjórnarherja
eigiviö rök að styðjast. Fulltrúar
herforingjastjórna vilja hins
vegar ekki að slikt yröi gert, þvi
ekki megi gripa inn i innamíkis-
mál Nicaragua.
Þvi hefur ekki náðst samkomu-
lag rikjanna um að rannsakað
verði fjöldamorð stjórnarhers á
óbreyttum borgurum. Utanrikis-
ráöherra Venezuela, Simon
Consalvi sagði að þrátt fyrir
veika samstöðu yrði reynt að
berjast fyrir mannréttindum i
Nicaragua.
Um það bil sjö þúsund og þrjú
hundruð manna hafa flúið frá
Nicaragua til Honduras að sögn
flóttamannahjálpar Sameinuðu
Þjóöanna. Auk þess eru að
minnsta kosti þrjú hundruö kom-
in yfir landamærin til Costa Rica.
Flóttamannahjálpin hefur sent
yfirvöldum i Honduras 150
þúsund dollara sem verja á til
hjálpar flóttamönnum.
Yflr 130
farast
i flugslysi
SAN DIEGO, Kalifornia, 25/9
(Reuter) — I dag hrapaöi
farþegaflugvél með 134 mönn-
um innanborðs, er hún rakst á
litla flugvél. Sjónarvottur
segist hafa séö þrjár spreng-
ingar áður en vélin hrapaöi
niður á fimm Ibúöarhús. Enn
eróvitað hve margir fórust, en
siðustu fréttir hermdu að alla
vega 136 menn hefðu látist.
Oryggiseftirlitió 50 ára
Skýrsla um
starfsemina
1928-1978
komin út
öryggiseftiriit rikisins á 50 ára
afmæli um þessar myndir. 1
tilefni af afmælinu er komin út 76
blaðsiðna skýrsla um starfsemi
eftirlitsins 1928—1978 og eru i
henni margar fróðlegar upplýs-
ingar m.a. um vinnuslys og slysa-
rannsóknir á islandi.
Auk Friðgeirs Grimssonar
öryggismálastjóra er starfsfólk
eftirlitsins nú þrennt á skrifstofu,
3 tæknifræðingar, 5 vélstjórar og
einn vélstjóri að auki sem er
umdæmisskoðunarmaöur á
Norðurlandi. Þá eru 3 umdæmis-
skoðunarmenn að hluta og 23
aðstoðarskoöunarmenn að hluta.
A blaðamannafundi i gær taldi
Friðgeir Grimsson öryggismála-
A blaðamannafundi I tilefni af 50 ára afmæli öryggiseftirlitsins I gær:
F.v. Garðar Halldórsson tæknifræöingur, Friögeir Grlmsson öryggis-
málastjóri og Jórunn Guðmundsdóttir skrifstofustjóri (Ljósm.: eik).
stjóri aö tiðni vinnuslysa og um en þar þyrfti auðvitaö
öryggi á vinnustöðum væri i svip- fjölmargt að bæta.
uðu formi hér og i nágrannalönd- —-GFr.
SVAVAR GESTSSON, viðskiptaráðherra:
V er ólagsettir litió
að hluta úr landi
SvavarGestsson.
1 sjónvarpsþætti i gærkvöld
skýröi Svavar Gestsson
viðskiptaráðberra frá þvi aö á
næstu dögum myndi hann skipa
nefnd sem ætlað væri að hefja út-
tekt og rannsókn á verðlagsmál-
um innflutningsverslunarinnar. t
nefndinni munu verða fulltrúar
þeirra stofnana sem hafa með
ýmsum ha'tti með innflutning aö
gera s.s. verðlagsskrifstofa,
gjaldeyriseftirlitið, tollskrif-
stofan o.fl. Nefndinni er ætíað að
skila niðurstöðum um næstu ára-
mót.
Það kom fram hjá viðskipta-
ráðherra að i ráði væri aö efla
embætti verðlagsstjóra og gera
þvi kleift að flytja hluta verðlags-
eftirlitsins úr landi og fylgjast
reglulega meö innkaupsveröi á
algengustu neysluvörum i
nágrannalöndum.
Georg Olafsson upplýsti i sjón-
varpsþættinum að ákveðiö væri aö
halda áfram samnorrænum verð-
lagskönnunum og næsta könnun
myndi beinast að verði á neyslu-
vörum út úr búö, en ekki að inn-
kaupsverði eins og sú könnun sem
til umræðu var i þættinum og
vakið hefur miklar deilur hér-
lendis. 1 henni fólst visbending
um að innkaupsverö hérlendis
væri 20 — 27% hærra en annars
staðar á Norðurlöndum.
Fulltrúar verslunarinnar héldu
þvi hins vegar fram i sjónvarps-
þættinum að ef samanburður
væri gerður á verði út úr búð yrði
hann ekki eins óhagstæður og
samanburður á innkaupsverði.