Þjóðviljinn - 26.09.1978, Page 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. september 1978
UMFERÐARSLYSIN
Gisli Björnsson: Kapphlaup um
aft ná I leigubila á náttinni veldur
oft slysum. (Ljósm.: Leifur)
A siysstað.A þessari gangbraut yfir SuOurlandsbraut varO banaslys
fyrir rúmri viku. Volkswagenbillinn ók á 11 ára telpu og varO hún undir
bilnum. Hemlaförin sjást á myndinni. A fyrstu 7 mánuOum ársins, eOa
til 1. ágúst, uröu 40 árekstrar eöa umferOarslys á Laugavegi frá
Hlemmi aö Kringlumýrarbraut, og 63 á Suöuriandsbraut frá Kringlu-
mýrarbraut aö Skeiöarvogi, eöa samtals 103. Þar af voru 10 slys meö
meiöslum og eitt banaslys. Verst er horniö viö Kringlumýrarbraut, en
þar uröu 17 óhöpp á þessum tfma og þar af eitt slys. A gatnamótunum
viö Skeiöarvog voru skráö 8 óhöpp, þar af 2 slys, og á mótum Nóatúns
og Laugavegs 10, þar af eitt slys meö meiöslum.
Fræðsla og áróður
— Ég held aö fræösla og áróö-
ur, bæöi til ökumanna og gang-
andi vegfarenda, hafi mest aö
segja til aö sporna gegn gang-
brautarslysum, sagöi Gisli
Björnsson lögreglumaöur, yfir-
maöur Slysarannsóknadeildar
Umferöardeildar lögreglunnar i
Reykjavik. Sérstaklega tel ég
brýnt aö fólk ofmeti ekki öryggi
sitt á gangbrautunum. Þaö er
alltaf aö sýna sig, að hversu vel
sem gangbrautirnar eru merktar,
með ljósum, skiltum o.s.frv., þá
flaska ökumenn samt á þeim.
Þaö er áberandi að mest er um
börnog gamalt fólk meöal þeirra
gangandi vegfarenda, sem lenda i
umferöarslysum, en þar næst
koma slys á ölvuðu fólki.
Það er greinilegt, aö barnaslys-
um hefur fækkaö siðan umferöar-
fræðsla hófst i skólunum. Þau
voru mun algengari hér áður. Þaö
hefur þvi' sannast, að fræðslan
hefur haft mikið aö segja. Gamla
fólkiö er hins vegar af þeirri kyn-
slóö, sem hefur ekki alist upp meö
bflnum og er af þeim sökum hætt-
ara en öörum i umferöinni.
ölvað fólk veröur þráfaldlega
fyrir bilum, einkum að næturlagi.
Það er algengt aö fólk fer ógæti-
lega á rölt, gengur t.d. dökkklætt i
slæmu skyggni frá veitingahús-
unum. Mjög oft hafa orðið slys á
fólki sem er að koma af veitinga-
húsunum. Lögreglan afstýrir að
visu miklu meö þvi að fjarlægja
drukkið fólk, en þaö er mikiö aö
Brýnt að
f ólk of meti
ekki öryggi sitt
á gangbraut
gera á þessum kvöldum og þvi
ekki hægt aö sinna þessu eins vel
og þyrfti.
Leigubilaskortur
Eins og allir vita er geysilega
mikill leigubilaskortur þegar
danshúsunum er lokað. Þaö veld-
ur þviaö fólk gengur langar leiöir
i leit aö leigubilum. A þessu
vandamáli sýnast mér vera tvær
lausnir. 1 fyrsta lagi, aö húsin loki
ekki öll á sama tima, og i ööru
lagi að strætisvagnar á aöalleiö-
um aki lengur frameftir nóttu á
föstudags- og laugardagskvöld-
um. Ég tel aö ölvun viö akstur
muni lika stórminnka ef auöveld-
ara væri aö ná i bil á þessum tim-
um. Þaö er algengt aö fólk er búið
að biða timunum saman eftir aö
komast milli húsa, en gefst svo
upp og freistast tií aö aka eigin
bfl. Strætisvagnar þyrftu tvi-
mælalaust aö ganga á aöalleiöum
a.m.k. 1-2 klukkutima eftir lokun
danshúsanna. Þetta er ófremdar-
ástand ef boriö er saman viö
borgir erlendis, þar sem strætis-
vagnar eöa neðanjarðarlestir
ganga alla nóttina.
Ef skipulagi þessara mál yrði
breytt mundi þaö lika minnka
alla þessa ölvun á götum úti.
Menn ganga gjarnan úti á ak-
brautum og kapphlaup um aö ná i
leigubila veldur oftslysum, menn
hlaupa þá beint af augum án þess
aö skeyta um umferðina.
Fækkun gangbrauta-
slysa
— Hefur gangbrautaslysum
fækkað eöa fjölgaö undanfariö?
— Égheldáöþeim hafi fækkaö
tiltölulega. Þaö er alltaf veriö aö
reyna aö auka öryggið og undan-
farið hefur mikiö af gangbrautar-
ljósum verið sett upp. En varö-
andi umferöarslysin almennt, þá
eru þaö helst börn og gamal-
menni sem slasast að degi til, en
fólk á öörum aldri á nóttunni, og
þar kemur drykkjan mjög viö
sögu. Eldra fólk er tvimælalaust i
meirihluta þeirra sem slasast að
degi til.
— Sumsstaöar erlendis eru
verstu slysahornin merkt sér-
staklega, vegfarendum til viövör-
unar. Væri ástæða til að taka slik-
ar merkingar upp hér?
— Þaö gæti verið til bóta aö
merkja mestu slysahornin. Þaö
væri einn liöur i aö vekja öku-
menn og gangandi fólk til um-
hugsunar. Allt sem stuðlar aö þvi
hlýtur aö vera til bóta.
Klukkan sýnir skiptingu umferöarslysa I Reykjavik eftir timum sóiar-
hringsins. Dökku súlurnar eru fyrir júni 1978, en þær röndóttu fyrir júnf
1977.
Umbætur
Annars fer tiðni árekstra eöa
óhappa aö sjálfsögðu mjög eftir
þvi hve umferöin er mikil. Það
hafa verið geröar umbætur á
hornum sem voru slæm, eins og
t.d. gatnamótum Lækjargötu og
Hafnarstrætis, og þar hefur þetta
lagast. En að öðru leyti er
árekstra- og slysatiöni háö um-
feröarþunganumog vissulega eru
mörg gatnamót slæm hvaö þetta
snertir, t.d. gatnamót Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar,
Miklatorg og einnig eru ákveöin
gatnamót I Breiöholti slæm, svo
sem gatnamót Breiöholtsbrautar
og Stekkjabakka. Þar er brekka
og liklega vantar þarna um-
feröarljós.
Hraðinn hefur úrslita-
áhrif
Hver er þróunin i umferðar-
slysunum? Má merkja miklar
breytingar milli ára?
— Það má segja aö umferöar-
slysum hafi heldur fækkaö milli
áranna '76-77, en fyrri hluti ársins
1978 bendir til aö þetta ár veröi
ekki gott aö þvi er varðar
árekstra meö meiðslum. Þegar
um er að ræöa árekstra þar sem
alvarleg slys veröa eöa meiri-
háttar meiðsli á ökumönnum og
farþegum, hefur hraöinn úrslita-
áhrif. Meiöslin eru alvarlegri eft-
ir þvi spm hraöinn hefur veriö
meiri. Þess vegna halda margir
þvi fram, aö helsta ráöiö til aö
Framhald á 14. siðu
• Strætisvagnar þyrftu að ganga á • Ekið á börn og aldrað fólk að
aðalleiðum eftir lokun danshúsa degi til, en ölvað fólk i leigu-
bílaleit á nóttunni
Þriöjudagur 26. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Ásgeir Þór Ásgeirsson, h]á Umferðardeild:
Suðurlandsbrautm
býður slysum heim
— Viö fáum margar kvartanir
ogóskirum gangbrautir, bæöi frá
skólum og almenningi, sagöi As-
geir Þór Asgeirsson verkfræö-
ingur i Umfecöardeild borgar-
verkfræöings i viötali viö blaöiö.
Nú eru umferöarljós viö 10
gangbrautir og viö höfum alltaf
veriö aö fjölga þeim. En þaö fer
mjög eftir slaösetningu gang-
brautanna hversu vel þær nýtast.
Gangbrautarljósin á Bústaöavegi
er t.d. á mjög góöum staö, en þaö
er slæmt aö hafa gangbrautir
með ljósum nálægt gatnamótum,
eins og t.d. við Hamrahliö, þar er
staðsetningin ekki eins góö.
A öllum þessum 10 stööum eru
hljóðmerki auk Ijósanna. Menn
þurfa bara að ýta á hnappinn og
biða eftir græna ljósinu, en þvi
miður virðast margir fullorönir
halda að þessi ljós séu bara fyrir
krakka. Það veikir þetta kerfi, ef
menn notfæra sér ekki ljósin og
fara ekki eftir þeim.
— Telur þú að til bóta væri aö
merkja þá staöi sérstaklega, þar
sem umferðarslys eru tið?
— Það eru alltaf uppi ein-
hverjar raddir um aö setja upp
slik merki, en ég held aö reynslan
erlendis hafi sýnt að það er til lit-
ils.
— Nú virðist Suðurlandsbrautin
Asgeir Þór Asgeirsson: Margar
óskir um gangbrautir. (Ljósm.:
Leifur)
vera mikil slysagildra. Hvað
veldur þvi aðallega?
— Suðurlandsbrautin hefur
lengi veriö hálfgert vandræða-
barn i gatnakerfinu og alltaf hafa
veriö miklar fyrirætlanir um
hana. Suöurlandsbrautina áttí aö
leggja niöur eöa loka henni viö
gatnamót Langholtsvegar sam-
kvæmt skipulaginu frá 1962, en
þar áöur voru uppi stórkostlegar
hugmyndir um aö breikka göt-
una. Suöurlandsbraut er ákaflega
ófullkomin og nánast býður slys-
unum heim. Gatan er mjög skor-
in, og t,d. viö gangbrautina hjá
Hótel Esju, þar sem banaslysið
varö um daginn, er kantur aö
sunnanverðu, en enginn aö
norðanverðu. Kantur viö götu
stýrir ökutækjunum betur og fót-
gangandi hafa þá betri viömiöun
ágangbraut. Þá má nefna að viö
veitingahúsið Sigtún, þar sem oft
er mikil umferö, eru engir kantar
beggja vegna götunnar, þannig
aö ekiö er i allar áttir aö og frá
húsinu. Við Reykjaveg þurfa
menn að skipta um akrein á mjög
óheppiiegum staö, þar sem
Suðurlandsbrautin þrengist
skyndilega. Mjögslæmur kafli er
frá Kringlumýrarbraut aö
Grensásvegi,þarna er ekiö hratt
og ýmis vandræöi skapast, oft
vandræöi vegna hinna mörgu
gatnamóta og aksturs aö þeim
fjölmörgu verslunum og
þjónustufyrirtækjum sem þarna
eru.
—eös
UMFERÐARSLYSIN FRÁ ÁRAMÓTUM
320 slvs - 463 slasaðir
Mun fleiri slasaðir en á sama tíma í fyrra
Fyrstu átta mánuöi þessa árs,
janúar — ágúst, iétust 13 manns i
umferðarslysum hér^á landi, en
21 á sama tima i fyrra. Slys sem
höföu i för meö sér meiösli eöa
dauöa voru 320 á þessu timabili,
en 261 á sama tima i fyrra. 236
þessaraslysa uröu I þéttbýli (183 i
fyrra), en 84 i dreifbýli (78 1
fyrra). 463 slösuöust i umferöar-
slysum á þessum 8 mánuöum, en
324 á sama tima i fyrra.
Arekstrar voru algengasti
slysavaldurinn, eða 142. 77 slys
urðu vegna þess aö ekiö var á
gangandi vegfarendur og 89
vegna aksturs út af vegi. Flest
slysin uröu á farþegum, eöa 202
(114 á sama tima i fyrra) og 138
ökumenn slösuöust (104 i fyrra).
298 karlar slösuðust á timabilinu
jan.-ágúst 1978, en 178 konur.
Umferðarslys, þar sem ein-
ungis var um eignatjón aö ræöa,
voru samtals 4215 á fyrstu 8 mán-
uðum þessa árs. A sama tima i
fyrra voru þau 3718. AUt árið 1977
voru slys meö eignatjóni ein-
göngu 5911 talsins, en áriö 1976
voru slik slys 6088.
—eös
STEFNIR í MIKIÐ SLYSAÁR 1978
Fleiri slys uróu á börnum
í umferöinni fyrstu 8
arsins en
mánuði
í fyrra
Af þessari töflu má sjá, aö all-
ar likur eru á þvi aö slys meö
meiðslum verði fleiri á þessu ári
en i fyrra, og likur eru á aö þau
aukist bæöi i þéttbýli og dreif-
býli. Sérstaka athygli vekur, að
slys með minniháttar meiðslum
erunú þegar oröin 265 áfyrstu 8
mánuðum ársins, þ.e. fleiri en
allt áriö 1977. Þaö er einnig um-
hugsunarverð staöreynd, aö 100
börn 14 ára eöa yngri hafa slas-
ast i umferðinni fyrstu átta
mánuöi ársins, eða fleiri en allt
árið I fyrra, en þá urðu slys á
börnum 14 ára og yngri alls 92.
Afyrstu 8 mánuðum ársins 1977
slösuðust nær helmingi færri
börn 0-14 ára en á sama tima i
ár, eöa 59, en 100 nú eins og fyrr
sagði.
Þótt aðeins sé reiknað með
jafnri dreifingu umferðarslysa
yfir árið, stefnir greinilega i
mikla fjölgun þeirra frá fyrra
ári. En á hitt ber að lita, að nú
fer einmitt i hönd sá árstimi,
þar sem oftast hafa orðiö hvaö
flest slys, ekki sist á gangandi
vegfarendum. Börnin streyma i
skólana ogúr, og sólin lækkar á
Jan.
Slys meö meiðslum.............
Dauöaslys ....................
1 þéttbýli....................
t dreifbýli...................
Slasaðir......................
Látnir .......................
Meiri háttar meiðsli..........
Minni háttar meiðsli..........
Karlar........................
Konur.........................
Börn 14ára og yngri...........
allt árid
lofti meö hverjum deginum sem
liður. Likindareikningurinn gef-
ur þess vegna ekki góðar vonir
og allt viröist benda til að árið
1978 verði mikiö umferðarslysa-
ár. Aöeins sameiginlegt átak
allra landsmanna geturspornaö
við þessari ömurlegu þróun.
Hugarfarsbreytingar er þörf i
umferðarmálunum. —eös
-ágúst.
1978 1977 1976
309 .... 400 ■■ .. 421
11 .... 33 .. .. 18
236 .... 316 .. . 343
84 .... 117 .. .. 96
463 .... 536 .. .. 547
13 .... 37 .. .. 19
198 .... 290 .. .. 262
265 .... 246 .. .. 285
298 .... 359 .. .. 373
178 .... 214 .. .. 193
100 .... 92 .. .. 130
Algengt er aö krakkar á hjólum veröi fyrir bil. Þessir ungu hjólreiöagarpar ,,sátu
fyrir"hjá ljósmyndaranum á Furumel, fyrir neöan elliheimiliö Grund. (Mynd: Leifur)
Ný gerö gangbrauta, sem reynd hefur veriö I nýjum hverfum undanfariö. Gatan
mjókkar og hækkar þar sem gangbrautin er. Aöeins einn bill kemst þar yfir og veröur
aö draga allmjög úr hraöanum. (Mynd: Leifur)
Kona á ieiö yfir gangbraut á Bústaöavegi. Þarna eru gangbrautarljós og grindverk.
(Mynd: Leifur)
Ekiö á staur viö Reykjanesbraut.