Þjóðviljinn - 30.09.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.09.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 30. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 ERLENDAR FRÉTTIR r í stuttu máli L____________________ Forsetar Kólumbíu og Venezuela hvetja til aögerða gegn Somoza SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, 29/9 (Reuter) — Forseti Alls- herjarþingsins, Kólumbiumaöurinn Indalecio Lievano Aguirre dreifði i gær bréfi til Allsherjarþingmanna, sem forsetar lands hans og Venezueia skrifubu. Þeir Carlos Andres Pérez forseti Venezuela og Julio César Turbay Ayala Kólumbiuforseti minna umheiminn á þá voveif- legu atburði sem nú gerast i Nicaragua, og hvetja til skjótra að- gerða til að stöðva megi þjóöarmorð það sem nú er framiö i land- inu, undir stjórn Somoza forseta. Þeir minntu á aö saklaust og hjálparvana fólk landsins þarfnaðist samstöðu heimsins gegn ógnarstjórninni. Forseti Allsherjarþingsins, sem er utanrikisráðherra lands sins, sagði að hann vildi koma bréfi þessu á framfæri, þar sem mikið hefði verið rætt um ástandið i Nicaragua á þinginu. Fulltrúi Nicaragua hjá S.þ. segir af sér til að mótmæla stjórn Somoza. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, 29/9 (Reuter) — Fulltrúi I sendi- nefnd Nicaragua hjá Sameinuðu Þjóðunum sagOi af sér i gær I mótmælaskyni viö þjóðarmorö þau sem stjórn Somoza forseta hefur framiö á sföustu vikum. t bréfi sem hann skrifaöi til Alls- herjarþingsins fordæmdi hann hræsnara þá sem tala fagurlega um mannréttindi en þegja yfir þjóöarmoröi þvi sem haröstjórn Somoza er aö fremja á ibúum Nicaragua. Maöur þessi heitir Enrique Paguaga Fernandez og er ihalds- maður. Hann hefur veriö sendifulltrúi lands sins hjá Sameinuðu Þjóöunum i fimm ár. Hann krefst þess að Somoza segi strax af sér, þar eð þvi lengur semhann riki aukist hættan á að vinstri stjórn taki völdin. Kommúnisti myrtur í Róm RÓM, 29/9 (Reuter) — 1 gærkveldi voru tveir menn skotnir fyrir útan skrifstofu kommúnista I Róm. Dó annar þeirra en hinn særöist alvarlega. Mennirnir sátu á bekk fyrir utan skrifstofuna og voru að lesa dagblað kommúnista, 1 ’Unitá, þegar tveir menn óku framhjá og skutu þá með fyrrgreindum afleiðingum. Maðurinn sem lést hét Ivo Zini og var aðeins tuttugu og fjög- urra ára gamall. Kveikti í tilað komastí brunaliðið BRISTOL, 29/9 (Reuter) —Ungur Breti sem á þá ósk heitasta aö veröa brunaliösmaöur greip til örþrifaráös til aö sýna fram á hæfni sina sem slikur. Hann kveikti i tómu húsi og ætlaði aö hjálpa slökkviliði bæjarins viö aö ráöa niðurlögum eldsins, en þegar logarnir fóru aö brciöast út varö hann hræddur og hljóp i burtu. Starfsmenn réttvisinnar voru ekki á sama máli og pilturinn og sögðu að fólk hefði ekkert með að kveikja i húsum til þess eins að geta slökkt eldinn aftur. Skírt í drottins nafni sem djöfulsins LONDON, 29/9 (Reuter) — Hjón ein i London sem tileinkuðu dóttur sina djöflinum fyrir viku, vilja nú einnig skira hana i Guös nafni. Móðir barnsins segist endiiega vilja skira barniö i kirkju, þótt hún sé ekki reiöubúin til aö snúa frá sinni djöflatrú. Ekki gat hún skýrt hvers vegna hún vildi að dóttir sin yrði einnig skirö að kristinna manna sið. Maöúr hennar, sem er sálnahirðir Satans segir heldur ekkert hafa á móti þvi aö dóttir hans verði skirð. Hann segist ekkert hafa á móti kirkjum og telur þær meira að segja leiða margt gott af sér. Hann skaut þvi inn um leið að hann hefði afl til að drepa með göldrum, en það afl fengi hann frá plánetu einni sem hann vildi ekki'nafngreina. Djákninn i Luton haföi þaö um málið aö segja, að engum, sem einlæglega vildi skira barn sitt i Drottins nafni, yrði synjað um slika bón, sem aftur á móti stórefaðist hann um að nokkur prestur fengist til að skira barn þeirra hjóna. Þvi þau væru að kukla með hættulega hluti sem hvorki hann né nokkur annar þekktu nægilega til. Margrét fagnar sjálfstœði sínu og Tuvalu-eyjanna FUNAFUTI, Tuvala, 29/9 (Reuter) — A sunnudag veröur sjálf- stæöi Tuvalu-eyjaklasans I Kyrrahafi fagnaö, en hann hefur ver- iö undir breskri stjórn i áttatiu og sex ár. Af þvl tilefni mun Margrét prinsessa mæta sem fulltrúi Elísabetar systur sinnar. Þetta er fyrsta opinbera heimsókn Margrétar eftir aö hún lenti f skilnaöi viö Snowdon lávarö. Ibúar Tuvalu eru átta þúsund og eru þvi næst minnsta þjóð heims, en sú minnsta er búsett á Nauru og telur aðeins sjö þúsundir manna. Freyðivín hækkar í verði PARtS, 29/9 (Reuter) — Kampavínsframleiöendur skýröu frá þvi i gær, aö i ár yröi minna um kampavin en áöur, auk þess sem þaö yröi nokkru dýrara en áöur var. Vegna kulda og raka i vor, mun ársframleiðslan nema aöeins sjötiu og sjö milljónum flaska, en það er rétt helmingur þess sem varð á siðasta ári. Verðið mun hækka um tiu til þrjátiu af hundraði. Jóhannes Páll páfi er látinn VATIKANIÐ/ 29/9 (Reuter) — I nótt lést Jóhannes Páll páfí# aðeins þrjátiu og þremur dögum eftir að hann var kjörinn eftirmaður Páls páfa, en hann lést i byrjun ágúst- mánaðar. Einkaritari páfans undraöist að hann væri ekki við bænagjörðir snemma i morgun en fann hann siðan dáinn i rúmi sinu. Talið er að hann hafi látist úr hjartasiagi, en hann hefur verið hjartaveill. I morgun gáfu itölsku dagblöðin út sérstök aukablöð sem fjölluöu um páfann og hinn stutta starfs- feril hans. Margir ttalir syrgja hann og þótti þeim hann likjast Jóhannesi fyrirrennara sinum hvað ljúfmennsku snertir. Fjöldi fólks var á götum úti, og sáust margar konur fella tár. Ungur maður sem telur sig vinstri sinn- aðan, sagði andlát páfans snerta sig djúpt, þar sem hann hefði bundið vonir við páfa sem teldi Jóhannes Páll Páfi. sig fulltrúa fólksins en ekki borg- arastéttarinnar. t heimabæ hans var málað á veggi: Lifi páfinn, — þegar hann var krýndur. Aletranir þessar eru ekki enn afmáðar, en i morgun mátti sjá itaiska fánann i bálfri stöng þar i bæ. Starfsmenn itaiska flugfélags- ins Alitalia sem voru i verkfalli, hófu aftur störf i virðingarskyni við hinn nýlátna trúarforingja. A morgun verða allir skólar á ttaliu lokaðir. A Allsherjaþingi Sameinuöu Þjóðanna var þögn i eina minútu til að minnast páfans. Ræðumenn sem töluðu i dag, viku frá texta sinum og vottuðu samúö sina vegna hins óvænta fráfalls hans. Þúsundir manna lögðu leiö sina i kirkju heilags Péturs, til að votta páfanum hinstu viröingu, en likamlegar leifar hans liggja þar á látlausum börum. Andlit hans bar merki um þjáningar, sem hann hefur mátt þola áður en hann kvaddi þetta lif. Nunnur og prestar báðust fyrir á torginu fyrir framan og syrgjendum varð litið upp i glugga ibúöar hans, en þeir voru allir lokaðir og dregið fyrir. Ritari Vatikansins, Jean Villot kardinali mun gegna embætti páfa til bráðabirgða, þar til annar páfi verður kosinn, en það gerði hann einnig eftir lát Páls páfa i siðasta mánuöi. A morgun munu kardinálarnir hittast til aö undirbúa jarðarför Jóhannesar Páls. Ovissa um yiöræöur Egypta og ísraela KAIRÓ 29/9 (Reuter) — Mikil óvissa rikti um þaö I Kairó i dag hvenær Egyptar og tsraelsmenn myndu taka upp þær friöarviö- ræöur, sem samningarnir i Camp David mæitu fyrir um. Gáfu egypsk yfirvöld og opinber mál- gögn ýmsar upplýsingar um þetta, en þær stönguöust mjög á. Síöan israelska þingiö samþykkti i gær samningana frá Camp David hafa egyptar búist viö komu israelskrar sendinefndar, sem heföi þaö hiutverk aö undir- búa viöræöurnar og koma á sim- sambandi miili landanna, en sú sendinefnd hefur ekki enn látiö sjá sig. Egypskir heimildarmenn sögðu að þessir erfiðleikar i sambandi við að ákveða hvenær viðræðurn- ar gætu hafist stöfuðu af hátiða- höldum i lsrael, en á mánudag og þriðjudag halda gyöingar upp á sin áramót, og 11. október halda þeir trúarhátiðina Jom kippúr. Talið er að fyrstu viðræöur Israelsmanna og Egypta muni einkum fjalla um ýmis tæknileg vandamál, sem tengd eru brottflutningi israelsks herliðs frá Sinai-skaga. SUÐUR-AFRIK A: Vorster kjör Inn forsetl HÖFÐABORG, 29/9 (Reuter) — 1 dag var John Vorster kjörinn for- seti Suöur-Afriku, en hann sagöi af sér sem forstæisráöherra fyrir viku vegna heiisuleysis. Eftir- maður hans er Picter Botha, en hann tók viö embætti forsætisráö- herra i gær, eftir mikla valdabar- áttu innan stjórnarflokksins. Búist er við að Vorster forseti muni skipta sér meira af stjórn- málum en fyrirrennarar hans hafa gert til þessa. Þó sagöi hann að loknu kjöri aö hans starf yröi hafið yfir flokkadrætti. Hann mun eflaust verða fulltrúi lands sins i opinberum heimsóknum til ann- arra rikja. Hvað heilsu forsetans snertir, sagði hann að læknar sinir væru Vorster forseti Suöur-Afriku. ánægðir meö gang mála. Nú reynir hann eftir megni að hætta tóbaksreykingum, en hann hefur þótt reykja óhóflega mikið. Réttarhöld í Túnis yfir 30 verklýðsforingjum TÚNIS/ 29/9 (Reuter) — I gær gengu sjötiu og sex lögfræðingar út úr réttar- sal, þegar réttarhöld hóf- ust gegn þrjátíu verkalýðs- foringjum. Gáfu dóms- yfirvöld þa út skipun til átján lögfræðinga sem skyldaði þá til að vera við- staddir réttarhöldin/ ella yrði þeim refsað. Mikil ólga varö þegar lög- reglan lokaði aðstandendur hinna ákærðu inni i hermannaskálum á meðan á réttarhöldunum stæði. Lögreglan handtók sautjan menn, þ.á.m. son og tengdason fyrrver- andi ritara Alþýðusambands Túnis. Lögfræðingarnir gengu út þegar beiðni um frestun réttar- haldanna var neitað, og gekk fyrrverandi dómsmálaráðherra landsins, Mohamed Bellalouna i fararbroddi. Aö sögn franska verkalýðs- sambandsins, var fulltrúi þess við réttarhöldin, Marcel Gaille hand- tekinn af lögreglunni. Sprenging í útvarpsstöð Verkalýðsforingjarnir eru ásakaðir um að efna til óeirða og tiraunar til að velta stjórninni, á meðan á allsherjarverkfalli stóö i janúar á þessu ári. Að minnsta kosti fimmtiu manns létust i átök- um sem þá áttu sér stað. AJACCIO, Korsiku, 29/9 (Reuter) -í gær varö sprenging i útvarps- stöövarbyggingu rétt fyrir utan Ajaccio. Næturvöröur uppgötvaöi sprengjuna og geröi iögreglunni viövart, en hún sprakk, án þess þó aö vaida mannatjóni. Hins vegar olli hún töluveröum skemmdum á útvarpsbyggingunni, sem vcriö var aö ieggja siöustu hönd á. Sprengingar hafa verið tiðar á Korsiku á þessu ári, og talið að bak við þær standi hreyfing sem berst fyrir sjálfstæði Korsiku.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.