Þjóðviljinn - 30.09.1978, Page 7

Þjóðviljinn - 30.09.1978, Page 7
Laugardagur 30. september 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Verkamaðurinn á rétt á að vera ábyrgur fyrir verkum sinum. Hann á rétt á því að vaxa við störf sin og finna gildi þeirra. I hinu kapítalíska framleiðslukerfi er framleiðandinn óábyrgur fyrir því sem hann framleiðir, hversu margar kauphækkanir sem hann fær Goðsögnin og fjóstrúin A þaki grafhýsis byltingar- innar stendur flokksforystan, æðstu handhafar rikisvaldsins og yfirmenn hersins. Þeir eru i sléttpressuðum frökkum, stifir i öxlum, fölir i andliti og þöglir sem gröfin. Þeir standa vörð um goðsöguna um byltinguna og riki verkalýðsins á meðan her- fylkin marsera framhjá og mannfjöldinn hefur andlit sin til himins. A forhlið grafhýsisins má sjá stóra andlitsmynd af goðsagnahöfundinum sjálfum: Karl Marx, — hversu mörg til- efni hefur sá góði maður ekki haft til að snúa sér við i gröf sinni? Hérá íslandi eigum við einnig góða goðsagnasmiði. Vinsæl- asta goðsögnin á Islandi fjallar um hina einstöku einstaklings- hyggju íslendinga. Hún er öllum sönnum tslendingum i blóð borin og þá sérstaklega at- hafnamönnunum, sem i krafti hennar eru ekki háðir landslög- um nema að takmörkuðu leyti, sérstaklega ef um stórþjófnaði eða samsæri gegn hinni flat- neskjulegu meðalmennsku al- múgans er að ræða. ,,A vængj- um vildi ég berast, Kalli minn!” í dagskrárgrein i Þjóðviljan- um 21.9. birtir Asgeir Daniels- son (Fylkingarfélagi) okkur lesendum nýja goðsögu i safnið. Grein hans „Hugmyndir skrif- ræðisins og hugmyndir bylt- ingarinnar” er afar fróðlegt innlegg i deilu þeirra Arna Hjartarsonar (31.8.) og Arnar Ólafssonar (8.9). Deila þessi virðist á yfirborðinu fjalla um þjóðernishyggju og einangr- unarstefnu annars vegar, og alþjóðahyggju og „eðlilega þró- un framleiðsluaflanna” hins vegar. Kjarni þessarar deilu virðist mér þó vera fólginn i mismunandi skilningi á hugtak- inu „eðlileg þróun framleiðslu- aflanna”, og ef dýpra er skyggnst, þá snýst hún ef til vill um mismunandi skilning á sög- unni og framvindunni. Ég fæ ekki betur séð en Asgeir hafi með kenningu sinni um „eðlilega þróun framleiðsluafl- anna” búið til goðsögn og sögu- heimspeki, sem bæði er hafin yfir sjálfa söguna og hinn virka þátttakanda leiksins, manninn sjálfan. Þegar kenningin hefur verið smiðuð, þá skal raunveru- leikinn vera svo góður að hlýða. hvort sem það annars er gert með lögboði, logregluvaldi eða bara tiltölulega meinleysisleg- um rökfræðilegum sjónhverf- ingum, sem auðvitað verður að- ferð Ásgeirs. Sú aðferð leiðir óhjákvæmilega til þversagna. Dæmi: „Þótt forystumenn auð- valdsins geri sér mæta vel grein fyrir þvi að hrun heimsmark- aðarins fæli i sér efnahagslegt hrun eins og 1929, þá geta þeir ekki nema i takmörkuðum mæli spornað gegn tilhneigingu einstakra rikja til efnahagslegr- ar einangrunar...” örfáum sentimetrum neðar heldur Asgeir áfram: „Barátt- an fyrir þessu markmiði (skipulegri framþróun og efna- hagslegri samvinnu) getur aldrei falist i stuðningi við einangrunarstefnu af einhverju tagi. Þvert á móti er nauðsyn- legt að berjast gegn slikum tilhneigingum, hvort sem þæí birtast i formi tollmúra, banni á innflutningi erlends verkafólks eða baráttu gegn fjárfestingu erlendra aðila.” Þetta verður ekki skiliö nema á einn veg, „hugmyndir bylt- ingarinnar” eru um leið helsta hagsmunamál „forystumanna auðvaldsins”. Þessi niðurstaða er að visu i samræmi við kenn- inguna um „eðlilega þróun framleiðsluaflanna”, en hún er ekki i samræmi við raunveru- leikann, m.a. vegna þess að A.D. vikur sér meðvitað undan þvi að gera greinarmun á þeirri „efnahagslegu samvinnu”, sem á sér stað t.d. á milli fjölþjóð- legra auðhringa og ýmissa rikja þriðja heimsins og þeirri efna- hagslegu samvinnu sem samið er um á milli þjóðrikja á jafn- réttisgrundvelli. Ég held að við Asgeir séum sammála um það, að hin kapitaliska séreign, sem er ávöxtur framleiðsluferlis, sem i eðli sinu er félagslegt, verði fyrr eða siðar sú hindrun i vegi framleiðsluaflanna, að hún verði að vikja. Þetta er þróun sem skapar með sér mótsögn, sem kalla má „eðlilega” út frá rökfræðilegu sjónarmiði, en hún verður óhjákvæmilega „óeðli- leg” út frá sjónarmiði þolandandans, sem knýr á um að mótsögnin verði leyst. En þá kemur hin stóra spurning: Hvaða áhrif hefur félagslegt eignarnám á framleiðsluöflin sjálf — þar með talið verkafólk- ið, tæknina, visindin, þekking- una og einnig verkaskiptinguna Ásgeir segir: „Framfara- sinnað eðli sósialismans verður þvi aðeins að raunveruleika, að sósialistar megni að skipuleggja alþjóðlega verka- skiptingu á hærra stigi en þá sem rikir innan auðvaldsþjóð- félagsins i dag.” Ekki verður þetta skilið á annan veg en að sósialistar eigi nú að taka að sér að fullkomna þá alþjóðlegu verkaskiptingu, sem auðvaldið hefur komið á. öilum and-heimsvaldasinnum er ljóst, að aðferð heimsvalda- sinna til þess að misskipta gæð- um jarðarinnar er fólgin i ákveðinni tegund af „alþjóð- legri verkaskiptingu”. Sam- kvæmtskilningi A.D. virðist það vera verkefni byltingarinnar að koma þessari verkaskiptingu „á æðra stig”, sem virðist þvi fela i sér, að ekki verði um eðlisbreyt- ingu á þessari verkaskiptingu að ræða. Sósialisminn er þá orð- inn ,æðsta stig auðvaldsins” fyrir tilverknað hinnar „skipulegu framþróunar” framleiðsluaflanna og „skyn- samlegu” efnahagssamvinnu. Hvað varð um framleiðandann sjálfan, gerandann i þessari framvindu, er hann ekki týndur, Asgeir? Ein af röksemdum Asgeirs fyrir þjónustuhlutverki erlends auðmagns við framþróun fram- leiðsluaflanna og stéttabaráttu verkalýðsstéttarinnar á tslandi og annars staðar er sú, að þessi erlendu auðfélög borgi hærra kaup en innlendir atvinnu- rekendur og auki eftirspurnina eftir vinnuafli. t fyrsta lagi veit Asgeir það sjálfsagt betur en flestir, að hin erlendu auðfélög eru fyrst og fremst að sækja hingað i ódýra orku, og vinnu- aflskostnaðurinn er hlægilegt brot af þeirri fjárfestingu sem felst i orkufrekum stóriðnaði. '1 öðru lagi veit A.D. það einnig betur en flestir, að hin fjölþjóð- legu auðfélög, sem spenna anga sina allt frá S-Kóreu, Indlandi, S-Afriku, Zair, Brasiliu og til Chilehafa það ekki á stefnuskrá sinni að borga verkafólki hærra kaup, heldur að þjappa saman afrakstri vinnunnar á æ færri hendur. En það sem verra er, hér opinberar Asgeir það enn á ný i málflutningi sinum, að hann gengur út frá sömu hag- fræðilegu forsendum og and- stæðingarnir, — hinum peninga- lega ávinningi. Sú kenning, að maðurinn lifi af brauði einu saman, og að stéttabaráttan sé einungis fólgin i þvi að heimta hærra kaup, hefur á máli marx- ista verið kölluð ökonómismi, en var einhvern timann kölluð fjóstrú á islensku. Við Asgeir erum sjálfsagt sammála um, að arðrán það, sem hið kapitaliska hagkerfi byggir á, sé ekki lið- andi. Ég tel þó að annað atriði vegi ekki minna i stéttabarátt- unni: verkamaðurinn á rétt á þvi að vera ábyrgur fyrir verk- um sinum. Hann á rétt á þvi að vaxa við störf sin, finna gildi þeirra og finna að nauðsyn vinn- unnar er jafnframt hin stærsta dyggð. I hinu kapitaliska fram- leiðslukerfi er framleiðandinn óábyrgur fyrir þvi sem hann framleiðir, hversu margar kauphækkanir sem hann fær. Framleiðslan verður honum sú refsing eða sá táradalur, sem hann þarf að ganga i gegnum til þess að geta átt „tómstund” til að sinna eigin þörfum. Frægt er, þegar hlutfallslega vel launaðir verkamenn á færiböndum bila- verksmiðjanna i Detroit tóku að vinna dulin skemmdarverk á framleiðslu sinni. Þeir fundu, að hvaðsem öllum kauphækkunum leið, voru þeir þrælar ómennsks kerfis. 1 stað þess að vaxa og dafna af verkum sinum, veldur launavinnan undir þessu kerfi framleiðandanum andlegri og tilfinningalegri bæklun og gerir lif verkamannsins menningar- snautt i þeim skilningi sem menningin hefur með vöxt og þroska að gera. Þetta er og verður stærsti glæpur auðvalds- ins gagnvart manninum og menningunni. „Eðlileg þróun framleiðslu- aflanna” eins og hún snýr gagn- vart verkamanninum, hlýtur fyrst og fremst að beinast að þvi að sinna þesum brýnu og raun- verulegu þörfum mannsins. Til þess þarf hann að taka tæknina, þekkinguna og visindin i sina þjónustu. Við vitum að núna eru framleiðsluöflin skipulögð út frá reglunni um framleiðsluna fyrir ágóðann. 1 framtiðinni verða þau að þróast- i samræmi við hinar mannlegu þarfir. Einhver veigamesta röksemd andstæðinga sósialismans hefur hingað til verið, að við höfum ekki getað sýnt fram á að fram- leiðsluöflin hafi tekið þeim grundvallarbreytingum, sem hér um ræðir i nokkru hinna sósialisku rikja. Þar hefur að visu verið komið skipulagi á verkaskiptingun a , hin kapitaliska séreign hefur verið þjóðnýtt, en vinnan er hin sama og sá afrakstur vinnunnar, sem kallaður hefur verið gildisauki og áður lenti i höndum kapital- istans, fer nú i að halda uppi risavaxinni yfirbyggingu hins sósialiska rikisvalds, þar sem hin „skynsamlega” skipulagn- ing framleiðslunnar fer fram. Það má ef til vill segja, að fram- leiðsluöflin og verkaskiptingin i þessum rikjum hafi þróast yfir á „æðra” stig út frá vissum hagkvæmnissjónarmiðum, en hinn mannlegi þáttur byltingar- innar hefur dagað uppi. Þrátt fyrir nokkrar mikilvægar og gleðilegar undantekningar i nokkrum af hinum sósialisku rikjum 3. heimsins, þá held ég að þetta sé sú meginregla, sem sérhver sósialisti og byltingar- sinni verður að taka til gaum- gæfilegrar athugunar, ef sósial- isminn á ekki að þróast yfir i það að verða „æðsta stig auð- valdsins” innan ramma goðsög- unnar um „eðlilega þróun fram- leiðsluaflanna og verkaskipt- ingarinnar”. Ameriski herinn er hér á Islandi sem annarsstað- ar i heiminum til þess að tryggja ákveðna „þróun fram- leiðsiuafla og verkaskiptingar” Herstöðvaandstæðingar telja að þessi „þróun” sé hvorki eðlileg né nauðsynleg, þvert á móti lifs- hættuleg. Þess vegna vilja þeir að herinn fari. „Við byltingar- sinnaðir kommúnistar”, svo alþekkt slagorð sé notað, telj- um að sú efnahagssamvinna og verkaskipting, sem felst i raf- orkusölunni til Alusuisse og Grundartangakompanisins sé ekki á jafnréttisgrundvelli og við teljum að hún þjóni ekki „eðlilegri” þróun islenskra framleiðsluafla”, vegna þess að markmið þessarar framleiðslu er ekki að fullnægja mannlegum þörfum, heldur að flytja auð úr höndum margra i hendur fárra. Það köllum við öfugþróun sem stefni gegn lýðræðinu. Ég sé fyrir mér i anda mið- stjórn og æðstu valdhafa Fylk- ingarinnar á þaki grafhýsis byltingarinnar þar sem þeir standa heiðursvörð um goð- sögnina um „eðlilega þróun framleiðsluaflanna” á meðan álfjósin og gúrfjósin og stálfjós- in mala þeim aur og verkalýð- urinn gengur gæsagang fyrir neðan. A forhlið grafhýsisins er mynd af goðsagnahöfundin- Bókaforlagið Iðunn: Gefur út 57 jólabækur Nýjar skáldsögur eftir Pétur Gunnarsson, r Olaf Gunnarsson og Þorstein Antonsson Bókmenntasaga eftir Heimi Pálsson Bókaforlagið Iðunn gefur út 57 jólabækur að þessu sinni og bæk- ur þess á öliu árinu eru um 100 og mun það einsdæmi um bókaút- gáfu hér á landi. Meðal þeirra bóka sem koma út nú á næstunni er Straumar og stefnur i islensk- um bókmenntum eftir 1550 sem er hugsuð sem kennslubók i framhaidsskólum en hana hefur sárlega vantað. Það er Heimir Pálsson menntaskóiakennari sem er höfundur bókarinnar en hún er hugsuð sem listasaga i leiðinni og hefur Jón Keykdal valið myndir i hana. Að sögn Jóhanns Valdimars- sonar i Iðunni eru aðrar helstu jólabækur þessar: Slitrur eftir Brodda Jóhannes- son en það eru hugleiöingar með nýstárlegu sniði, heimspekilegar vangaveltur og greinar. Ný skáldsaga eftir Pétur Gunnarsson i beinu framhaldi af Punktur, punktur, komma, strik. Ekki er þó alveg vist að takist að koma henni út fyrir jól. Miljón prósent menn eftir ólaf Gunnarsson, skáidsaga um menn sem eru að vinna sig upp i við- skiptum. Bókin hefur verið þýdd á ensku og er stórt forlag i New York áhugasamt um að gefa hana út. Disneyrimur eftir Þórarin Eldjárn Öldin okkar 1961-1970 Svarfdælingar.seinna bindiö af ábúendatali Svarfaðardals. Saga frá Skagfirðingum, þriðja bindið eftir þá Jón Espólin og Einar Bjarnason Skáldað i skörðin eftir Asa I Bæ, sögur af vinum og vandamönnum og skrýtnum fuglum. Lifið er skáldlegt, ný ljóðabók eftir Jóhann Hjálmarsson. Kjarval eftir Thor Vilhjálms- son. Textinn hefur áður birst ásamt myndum eftir Kjarval en nú er hann gefinn út með mynd- um Jóns Kaldals af listamannin- um. Sálumessa 77 eftir Þorstein Antonsson, ný skáldsaga. Sigrún flytur, þriðja barnabók- in i þessum flokki eftir Njörð Njarðvik með myndum eftir Sigrúnu Eldjárn. Gömul steinhús á tslandi, dönsk bók i þýðingu Kristjáns Eldjárns. Þegar vonin ein er eftir eftir Jane Cordeiieri þýðingu Sigurðar Pálssonar. Þetta er reynslusaga franskrar gleðikona. Að iokum má nefna þrjár at- hyglisverðar barnabækur. Það er Tvibytnan eftir Bent Halles i þýð- ingu Guðlaugs Arasonar, mögnuð verðlaunabók frá Danmörku, Leikhúsmorðið eftir Sven Wen- ström i þýðingu Þórarins Eldjárns og Gúmmi-Tarzan eftir Ole Lund Kirkegaard i þýðingu Þuriðar Baxter. —GFr f ( A uglýsingasíminn er 81333 V J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.