Þjóðviljinn - 30.09.1978, Qupperneq 8
;8 StÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 30. september 1978
Þetta eru smiðirnir sem unnu að smiði Snæfellsins á Skipasmlðastöð
KEA. Maðurinn lengst til vinstri er Gunnar Jónsson skipasmiður en 8.
maður frá vinstri er Tryggvi Gunnarsson, sonur hans, sá sem tók viö af
Gunnari.
Véivana og bundið við bryggju grotnaði Snæfellið niöur siðustu árin.
Snæfelliö siglir át Eyjafjörð i sinni fyrstu ferð.
Vélskipinu Snæíelli
frá Akureyri sökkt á fískislóð
Frá því var sagt nýlega í
blöðum Reykjavíkur að
Kaupfélag Eyfirðinga
hefði þann21. sept. s.l. lát-
ið sökkva skipi sínu
Snæfelli á Grimseyjar-
sundi. Af þessu tilefni
langar mig til, i fáum orð-
um, að rifja upp sögu
þessa skips og ræða um
örlög þess. Vélskipið
Snæfell mun vera smíðað í
Skipasmíðastöð K.E.A.
1940-1943, en skipastÖð
þessi var stofnsett í kring-
um 1936 og starfaði að
smíði tréskipa allt til árs-
ins 1974 eða 1975. Yfir-
skipasmiður stöðvarinnar
frá upphafi til ársins 1953
var Gunnar Jónsson mikill
snillingur í smíði tréskipa
og var Snæfellið ein mesta
meistarasmíði hans. Eftir
að Gunnar hætti tók sonur
hans Tryggvi við stjórn
skipasmíðastöðvarinnar.
Allt þar til hún var lögð
niður. Skipsbolur Snæfells-
ins var sérstaklega falleg-
ur á að líta, línur hans
hreinar og fagrar, og var
þetta einkenni á bátum
þeim sem Gunnar Jónsson
smiðaði. Snæfelliðsem var
167 smálesta skip vitnaði
þannig um hið mikla feg-
urðarskyn þessa.skipa-
smiðs. En Snæfellið var
ekki bara fallegt skip á að
horfa, heldur sameinuðust
í þvi bestu kostir skips,
fegurð og sjóhæfni, í því,
var snilligáfa skipasmiðs-'
ins fólgin.
Nú er þetta mikla happa og
aflaskip horfið af sjónarsviðinu,
þar sem eigendur töldu ætlunar-
verki þess lokið. Það var búið á
um 30 ára útgerðartima, að færa
mikla björg i bú kaupfélagsins af
slld og fiski. Þetta var nefnilega
skip sem borgaði sig aö gera út
gegnum árin. Snæfellið mun hafa
komið úr sinni siðustu veiðiferö á
liklega árinu 1973. Þá var sagt, að
skipið þyrfti viðgerð, ef útgerð
þess ætti að halda áfram. Glöggur
maður á skipaviðgeröir mun þá
hafa látið sér detta i hug að slik
viðgerð mundi kosta i kringum 15
milljón krónur.
Þessi viðgerð á skipinu var
aldrei framkvæmd heldur var
Snæfelli lagt við Torfunesbryggju
á Akureyri og þar lá það um-
hirðulaust. Siðar var svo skipið
rúið aflvél og ölium tækjum sem
til gagns voru talin og þessi verö-
mæti flutt á land. K.E.A. gaf svo
vél skipsins Vélskólanum á Akur-
eyri og vonandi kemur hún
nemendum skólans að notum á
næstu árum.
Þannig rúið var svo skipið látið
liggja áfram umhirðulaust, á
meðan deilt var um hver örlög
þess ættu að vera. Fram komu
raddir um.að rétt væri að varð-
veita skipið frá glötun, bæði
vegna sögu þess sem mikils
happa- og aflaskips, en lika vegna
hins, hve meistaraleg smiöi þess
væri. Um það verður heldur ekki
deilt, að smiði Snæfellsins var
mikið afrek i tréskipasmiði á
Akureyri á sinum tima, sem bar
höfundi sinum og öðrum iðnaðar-
mönnum sem að smiðinni stóðu
fagurt vitni. Út frá þessu sjónar-
miði einu, hefði tvimælalaust
verið fengur að þvi að verðveita
skipið fyrir framtiöina. En þetta
var ekki gert, um það vitna
endanleg örlög skipsins, þar sem
það liggur nú á sjávarbotni á
Grimseyjarsundi.
Forráðamenn hins mikla
Kaupfélags Eyfirðinga hefur
sjáanlega skort nægan skilning á
gildi þess, að varðveita skipið,
þarna var ekki um getuleysi aö
ræða, hefði vilji og skilningur
veriðfyrir hendi. En svo ekki sé á
neinn hallað að ósekju, þá veröur
það að koma fram hér, að kaup-
félagið mun hafa gefið um það
yfirlýsingu þegar deilt var um
hvort varðveita ætti Snæfeilið, og
sagt þá, að það væri reiðubúið til
þess að gefa skipsskrokkinn,
þeim sem vildu varðveita hann.
En hafi kostnaðurinn við varð-
veislu skipsins vaxiö svo kaup-
félagsmönnum i augum, að ekki
hafi verið i það ráðist af þeirri
ástæðu, þá var varla við þvi að
búast, að nýr félagsskapur yröi
myndaður á skömmum tima, sem
vildi taka að sér hlutverkiö, enda
varð svo ekki, þvi miður.
Það er ekki hægt að nota sömu
mælistikuna á menningarsögu-
legt gildi þess að varðveita
Snæfellið frá glötun, sem notuð er
til að mæla beinan fjárhagsiegan
gróða. Þetta hefur þó að likindum
verið gert, og þvi fór sem fór.
Snæfellinu verður ekki bjargað úr
þessu, þvi hefur verið sökkt niður
á sjávarbotn á Grimseyjarsundi,
þetta verða þvi einskonar eftir-
mæli um þetta fallega happaskip.
En i þessu sambandi leyfi ég mér
að spyrja: Hver veitir leyfi hér á
landi til þess að sökkva skipum á
fiskislóð innan landhelginnar?
Má gera þetta eftirlitslaust, eða
gilda máske um þetta engar regl-
ur?
Að síðustu vil ég geta þeirra
skipstjóra er stjórnuðu Snæfell-
inu, en þeir voru: Egill Jóhanns-
son, Bjarni Jóhannesson, Baldvin
Þorsteinsson, Trausti Gestson og
Árni Ingólfsson og ef til vill fleiri.
Denard
málaliði
farinn frá
Comoros
MOHONi, Comoros, 28/9
(Reuter) — I dag yfirgaf
franski málaliðinn Bob
Denard Comoros, en þar hef-
ur hann verið yfirmaður
hersins eftir að sósialistan-
um Ali Siolih var varpað frá
völdum og hann myrtur I
mai i vor. Hann er nýbúinn
að fá sér nýtt nafn, Mustafa
Majuu, en núverandi forseti
eyjaklasans, Ahmed
Abdallah tilkynnti á þriðju-
dag að Denard væri á förum.
Denard hefur vaidið mikilii
reiði Afrikuþjóða, og var
sendinefnd Comoros meinuð
þátttaka i fundum Einingar-
samtaka Afrikurikja i sumar
af þeim sökum. 1 siðustu
viku ákváðu sendinefndir
Afrikurikja á Allsherjar-
þinginu að skipta sér ekki af
Comorosbúum á meðan
Denard væri yfirmaður hers
landsins.
Þarna er Snæfellið að fylla sig af síld noröur undir Jan Mayen sumarið 1965. Þessu skipi brást aldrei afli
alla sina úthaldstíð. Or kastinu á myndinni voru háfuð 505 tonn, 2551 Snæfeil og 2501 Björgvin frá Dalvlk.
Sleppt var á annað hundraö tonnum. Um langt skeið var þetta taliö stærsta kast islensks fiskiskips.