Þjóðviljinn - 30.09.1978, Side 13

Þjóðviljinn - 30.09.1978, Side 13
75 ára Laugardagur 30. september 1978! WÓÐVILJINN — SIÐA 13. Karvel Ögmundsson útgerðarmaður, Bjargi, Njarðvík Þeir voru á landleiö og tóku barning fyrir öndveröarnes. Þetta var sumarskip undir stjórn Eggerts Guömundssonar i Bakkabæ á Hellissandi. Einn skipverja varfóstursonur hans og frændi 11 ára gamall. Aö taka barning, þó aö sumri sé, er ekkert barnameöfæri og enda þótt dreng- ur þessi væri enginn aukvisi komst hann i þrot. Arin, sem oft- ast var nokkuö viöráöanleg, varö nú svo ofurþung aö þegar allir kraftar voru löngu þrotnir vogaöi hann loks að lita til formannsins og spyrja hvort hann mætti hvila sig örlitiö. Fóstri hans leit á drenginn og sagöi þungt: ,,Sá sem ætlar að veröa sjómaöur gefst aldrei upp,” og áfram var barist til hafnar. Þeir eru kaldir þessir lærdómar lifsins. Samt voru þeir daglegt brauð alþýöu þessa lands og hvergi frekar en i byggðunum undir jökli þar sem nú er flest i auön. Þar gilti þaö ekkert nema lifiö aö gefast upp fyrir náttúru- öflunum. Menn sóttu sjóinn á skeljum út á opiö haf og margur voöaatburöur geröist á þeim slóö- um þegar sigla þurftil ááhlaups- veörum og lenda á þessari hafn- lausu strönd. Þar brotnaöi marg- ur brimskafl viö Banasker. Hver sem leiöir hugann aö lifs- baráttu fyrri kynslóða hlýtur aö hrifast af þrekinu og dugnaðinum i baráttunni við óbliöa náttúru. Einn þeirra sem læröi fangbrögö- in á þeim timum er 75 ára i dag. Hann heitir Karvel ögmundsson lengst af kenndur viö Bjarg i Ytri- Njarðvik og þaö var hann sem fékk svarið frá Eggerti fóstra sin- um, sem fyrr var getiö. Hann fæddist á Hellu i Beruvik, 30. september, 1903. Foreldrar hans voru Sólveig Guömundsdótt- ir og ögmundur Andrésson sem þá bjuggu á Hellu. Bærinn á Hellu brann ofan af fjölskyldunni þegar Karvel var 7 ára. Hjónin sluppu naumlega meö börnin úr eldin- um, en veraldareigur fáar, og þess vegna dýrmætar, hurfu þar. Fjölskyldan flutti þá út á Hellissand og Karvel fór I fóstur til Eggerts móöurbróður sins i Bakkabæ. Þar ólst hann upp og gekk að störfum á sjo og landi, bráöger og öflugur. Hann kynnist mógröfunum, þeim ógnar þræl- dómi, og rær snemma á sjó sem fyrr er getiö. Hann varö formaöur á vertiöarskipi yngri en allir aðrir á þeim slóöum. Oft var erfitt meö beitu á þess- um árum og þvi sóttu menn skel inn undir Búlandshöfða. Þetta var gert i landlegum og fóru sjómenn gangandi alla þessa leiö og óöu hvern ós á leöinni. Þegar á beitufjöruna kom þurfti aö vera fjara. Þá gátu menn vaöiö út og náð skelinni, en fengsvon var meiri og betri þvi utar sem vaöiö var. Svo fengu þessir blautu og hröktu menn aö liggja i hlööu yfir næsta flóö. Þegar fjaraöi á ný byrjaöi skeljatinslan aftur. Þegar svo flæddi öxluöu menn byrðar sinar og gengu i vetrarkuldanum út á Sand. Skyldi þá ekki hafa hljómað i eyrum ,,Sá sem ætlar aö veröa sjómaöur gefst aldrei upp.” Sagt er aö þeir sem þola slik ósköp hljóti aö veröa hraustir meö afbrigöum. Þaö sannast á Karvel. Hertur i eldi stritsins varö hann þvilikur buröarmaöur að fáa átti hann jafningja, ef nokkra. Ekki voru þó allar stundir eins og ég hef lýst hér að framan. .Næöi gafst af og til og þá drakk Karvel i sig Islendingasögurnar. Þær grópuöust i hugann og eru þar ferskar og tiltækar hvort sem er I einrúmi eöa i góöra vina hópi. Þá var enn viö liöi á Sandi sú forna Iþrótt aö segja sögu. Fólk kom saman og hlýddi á góöan sögumann þylja. Þessa Iþrótt kann Karvel öörum mönnum bet- ur. A Sandi gekk Karvel aö eiga Onnu Olgeirsdóttur, Oliverssonar frá Gröf I Grundarfiröi og Mariu Guömundsdóttur frá Stóru-Hellu á Hellissandi. Þau fluttu búferl- um suöur I Njarðvik 1933 og þar byggöi Karvel ibúöarhúsiö Bjarg, þar sem hann býr enn. Hann haföi stundað útgerö á Sandi og er suö- ur kom færöist hann mikið I fang. Asamt bræörum sinum dreif hann upp útgerö og fiskverkun sem á timabili varö mjög stór i sniöum. Frystihús, sildarsöltun, saltfisk- verkun, skreiöarverkun, allt meö myndarbrag. Jafnframt hlaöast á hann opinber störf. Hann var odd- viti Njarövikurhrepps i 20 ár, formaður ungmennafélags, sinnir bindindismálum, formaöur Otvegsbændafélags Keflavikur I 18 ár, formaöur Oliusamlags Keflavikur og nágrennis I 25 ár, i stjórn Oliufélagsins h.f. og I stjórn Samvinnutrygginga frá upphafi. Hér er mörgu sleppt, en af þessu má sjá hvert traust var til hans boriö. Enginn sinnir svona umfangsmiklum félags- málum án góðrar konu sér viö hliö. Þó vill slikt stundum gleym- ast. Þau Anna og Karvel eignuö- ust 7 börn svo nærri má geta hvort verkefni húsfreyjunnar hef- ur ekki veriö æriö. Heimiliö var mjög gestkvæmt og rausnarlegt. Ekki má gleyma aö Karvel var I fylkingarbrjósti þeirra sem vildu að byggö yröi góö höfn 1 Njarðvik. En þaö þarf stundum nokkuö til aö róta viö kjarklitlum stjórnvöldum þegar barist er fyrirstórum framfaramálum. Þá er gott að hafa lært aö gefast ekki upp þó aö þungur sé barningur- inn. Það, hvernig Landshöfnin i Njarövik varö aö veruleika, er efni I langa sögu sem hér veröur ekki skráð þó vert væri. Karvel var lengi atkvæöamikill forystumaöur I rööum sjálf- stæöismanna og einhver magnaö- asti málsvari þeirra þar suöur með sjó. Þá voru stjórnmálafund- ir f jörugri en nú. Ýmsir hlutu þar kárinur nokkrar eins og gengur. Þarna gat Karvel veriö i essinu sinu þegar fast var deilt. Hins er ekki siöur aö geta hversu sýnt honum gat veriö aö lægja öldur ósamlyndis I þeim samtökum þar sem hann haslaöi sér völl. Stór- lega laginn var hann einnig aö ná samkomulagi i kjaradeilum. Áriö 1958 missti Karvel, önnu, konu sina og voriö 1962 drukknaöi Eggert sonur hans af trillubáti ásamt frændum sinum, Einari og Sævari, en þeir voru synir Þórar- ins bróöur Karvels. Karvel bjó um árabil meö Þór- unni Maggý Guömundsdóttur og eignuöust þau dreng sem skiröur var Eggert eftir bróöur sinum. Á siöari árum hefur Karvel lækkaö seglin og hefur nú litil um- svif I atvinnurekstri. En eins og þeim er titt, sem finna sig hafa hlutverki aö gegna I lifinu, er hann fullur af hugmyndum um margt er til heilla horfir. Hug- stæöir eru honum möguleikar okkar til fiskiræktar, sem viö hvarvetna eigum. Aö framleiöa mat handa hungruöum heimi er stórt og veröugt hlutverk þessari þjóö. Hann trúir heldur ekki að gæfuvegurinn liggi gegnum málmbræösluofna. Þegar þessum aldri er náö og raunar fyrr, fara margir aö kenna gllmunnar við Elli kerl- ingu. Kerling þessi fer sér hægt viö Karvel enda trúlegast aö hann mæti henni meö svipuöum hætti og Loftur mætti Gretti á Kili forö- um og segi ,,Bjóö þú þeim þessa kosti, er þeir þykja góöir, en ekki vil ég svoláta það, er ég á, og fari hvor sinn veg.” 1 gegnum öll hin miklu umsvif langrar ævi hefur afmælisbarniö eignast óteljandi vini viöa um landið og hann er vinur vina sinna, I þvi efni hefur hann hvergi sparaö sjálfan sig ef aöstoöar var þörf og hann gat orðið aö liöi. En um slikt má ekki mikið ræöa. Hverri þjóö er lifsnauösyn aö eiga góöa sagnaþuli. Annars týnir fólk uppruna sinum og veit ekki um lif fyrri kynslóöa i landinu. Þá glatast vitneskja um gömul vinnubrögö, merkileg orö týnast úr málinu og margur fróöleikur fer forgöröum. Aldrei veröur allt skráö á bækur. Þarna hefur sagnasnilld Karvels verið betri en ekki. Varla getur meiri skemmt- un en þá aö sitja i góöum hópi og heyra hann segja frá eigin lifi og genginna kynslóöa. Þá er oft sleg- iö á'létta strengi. Hann ber mikla viröingu fyrir fornri speki og veit aö oft er gott sem gamlir kveöa. Sjálfur er hann nú suður I Þýskalandi aö láta hressa sig viö meö nála- stungu-lækningu upp á kinversku. Þaö er reyndar merkilegt aö þurfa úr landi til sliks. Aö^lokum vil ég senda afmælis- barninu heillaóskir og óska þess af eigingirni aö mega lengi njóta vináttu hans og mannkosta. Þaö er svo framtiöarverkefni aö gjalda liku likt. Siguröur Pálsson Systkinin og listamennirnir Þórarinn og Sigrún Eldjárn — ný kvæðabók Hjá IDUNNI er komin út ný kvæöabók eftir Þórarinn Eidjárn og nefist hún Disneyrimur. 1 Disneyrimum er fjailaö um Walt , Disney (1901-1966) lif hans og störf fyrir og eftir dauöann, segir á bókarkápu. Disneyrimur eru 6 rimur sem eru hver um 60 erindi , en alls eru um 340 erindi i bókinni. Höfundurinn hefur stuðst viö fjölda fræðirita um bragfræöi Is- lenskra rimna, um teiknimynda- sögur og hugmyndafræöi Disney- framleiösunnar og ævisögur um Disney sjálfan. Disneyrimur skýra sig þó sjálfar. Má segja að rimurnar fjalli ekki beinlinis urh Disney sem persónu, þótt þær reki lif hans og starf, heldur um Disney sem menningardreifi og fyrirtækisstjóra. Disneyrimur eru tilraun ungs höfundar til að nota forna menn- ingarhefö, rimnaformið, i episku ljóði. Hann notar mansöngva sem inngang að hverri rimu, eins og heföin býöur, og yrkir undir hefö- bundnum bragarháttum. Verður þaö aö teljast til tiöinda á þessari „rimlaúsu skeggöld”. ( Höfundur Disneyrimna, Þórar- inn Eldjárn, er fæddur I Reykja- vik 1949. Hann hefur áöur gefiö út kvæöabókina Kvæöi (1974). I bókinni eru 12 teikningar eftir Sigrúnu Eldjárn. Sigrún er fædd i Reykjavik 1954, er myndlistar- maöur aö mennt og starfi og hef- ur fengist talsvert viö bóka- skreytingar á undanförnum ár- um. Bókin er 89 bls. að lengd, prent- uö i Grafik hf. Bókfell hf annaöist bókband. Ný strætisvagnaleið: Leið 14. Lækjar- torg — Sel Mánudaginn 2. október n.k. hefst almennur akstur á nýrri leið, nr. 14, Lækjartorg - Sel, sern ætlaö er aö þjóna ört vaxandi byggö i Seljahverfi og um leiö Breiöholti 1 eða þeim hluta þess, sem nú á lengst að sækja i veg fyrir strætisvagna, þ.e. viö austanveröan Arnarbakkann. Nú i sumar hefur veriö haldiö uppi tilraunaakstri á þessari leiö á mestum anntlmum þ.e. 2 feröum aö morgni og 3 feröum siödegis en framvegis veröur ekið á þessari leiö ■ alla virka dags, þ.e. mánudaga til föstudaga frá kl. 7 til kl. 19 óslitið á klukkustundar fresti fyrst um sinn. Ekið veröur frá LækjartorgiumMiklubrautog Reykjanesbraut (sömu leiö og nr. 13) aö Arnarbakka, um Arnarbakka réttsælis, en siöan um Seljahverfi sömu leið ognr. 11 - rangsælis - til baka um Arnarbakka rangsælis og siöan sömu leiö og áður til baka i Miðbæinn. Þar sem hér á aö vera um hraöferðarþjónustu aö ræöa (akstuntimi milli Lækjartorgs og Seljahverfis veröur aöeins 20 min. ), veröa biöstöövar fáar á leiöinni (hinar sömu og hjá leið 13), annarsstaöaren i Breiöholti, þar sem stansaö verður viö allar biðstöövar á leiöinni. Vagninn ekur 10 min. yfir hvern heilan tima frá Lækjartorgi og á hál.fa timanum frá Skógarseli. Sérstök athygli skal vakin á þvi aö seinasta ferö á þessari leiö frá Lækjartorgi verður kl. 18.10 (úr Seljahverfi kl. 18.30), þ.e. feröin, sem farin hefur veriö i sumar frá Lækjartorgi kl. 19.10, fellur aftur niður. Prentuö hefur veriö viöbót viö Leiðabók SVR 1978 meö upplýsingum um hina nýju leiö, og fæst hún á sölustööum SVR. Þaö er von forráöamanna SVR, aö meö þessari auknu þjónustu veröi komiö til móts viö þarfir og óskir ibúa ofangreindra hverfa. Erindi um umhverfismál I verkfræði- og raunvisinda- deild Háskóla Islands veröa á næstu vikum flutt 11 erindi um umhverfismál. Til þeirra er stofnaö fyrir nemendur i verk- fræði, eölisfræöi og efnafræöi, en aögangur er öllum frjáls, eins þeim sem ekki eru nemend- ur i háskólanum. Er gert ráö fyrir nokkrum umræöum á eftir hverju erindi. Umsjón hefur Einar B. Pálsson prófessor. Erindin veröa flutt á mánu- dögum kl. 17:15 i stofu 158 i húsi verkfræði- og raunvisindá- deildar Harðarhaga 6. Þau eru ráögerö svo sem hér segir: 2. október: Hjörleifur Guttormsson, liffræðingur, iönaðarráöherra: Maöur og umhverfi. 9. október: Unnsteinn Stefánsson, prófessor i haffræði: Sjórinn sem um- hverfi. 16. október: Agnar Ingólfsson, prófessor i vistfræði: Ýmis undirstööuatr- iöi ivistfræði. 23. október: Ingvi Þorsteinsson MS, Rannsóknarstofnun landbún- aöarins: Gróöur, gróöureyöing, rányrkja. 30. október: Þorleifur Einarsson, prófessor i jarðfræði: Jarörask viö mannvirkjagerö. 6. nóvember: Arnþór Garðarsson, prófessor i liffræöi: Rannsóknir á röskun lifrikis. 13. nóvember: Jakob Björnsson, verkfræöing- ur, orkumálastjóri: Orkumálog umhverfi. 20. nóvember: Jakob Jakobsson, fiskifræðing- ur, Hafrannsóknastofnun: Mat á auðlindum sjávar. 27. nóvember: Árni Reynisson, framkvæmda- stjóri Náttúruverndarráös: Skipulag náttúruverndarmála. 4. desember: Vilhjálmur Lúöviksson, efna- verkfrasðingur: Verkfræðilegar áætlanir og valkostir. 11. desember: Einar B. Pálsson, prófessor i byggingarverkfræöi: Matsatr- iöi og sjónarmiö. Fréttfrá Háskóla tslands. Kvenstúdentafélag íslands og félag íslenskra háskólakvenna heldur aðalfund laugardaginn 7. október 1978 i átthagasal Hótel Sögu og hefst fund- urinn kl. 12.30 með hádegisverði. Fundarefni: Aðalfundarstörf Stjórnar og nefndarkosningar Önnur mál. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.