Þjóðviljinn - 30.09.1978, Side 20
Laugardagur 30. september 1978
Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa
tima er hægtaö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaös-
ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285,
útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
Skipholti 19, R. 1 BUOlfU
simi 29800, (5 llnur)^~~__ ,
Versliö í sérverslun
með litasjónvörp
og hljómtæki
Nýtt húsnæði bætir úr brýnni þörf I Arnarholtí.
Aðstaðan bætt í
Arnarholti
i gær var.fréttamönnum boöiö
upp aö Arnarholti á Kjalarnesi
til þess aö skoöa nýtt húsnæöi,
sem byggt hefur verið við vist-
heimiliö þar. Hefur heimiliö i
Arnarholti verið hluti af geð-
deild Borgarspitalans sfðan 1.
janúar 1972. Hin nýja bygging
leysir af hólmi eldra húsnæði og
var ekki vanþörf á.
Flutt var i þá álmu, sem vist-
mönnum er ætluð i desember á
fyrra ári. Eru þar nú til húsa 45
vistmenn af 60, sem dvelja á
heimilinu.
Eldhúsálma hússins er aö
mestu fullbúin og við anddyri og
þjónustuálmu verður lokiö á
næsta ári.
Með þessari byggingu er
merkum áfanga náð en þó að-
eins einum á langri leið.
Eftir helgina mun nánar sagt
frá heimsókninni i Arnarholt.
—mhg
Dauöadómi
fullnægt að
næturþeli
Asmundur Ste- Haukur Már
fánsson: Verð- Haraldsson:
ur lektor við Ráöinn blaöa-
lláskólann. fulltrúi og rit-
stjóri Vinnunn-
ar.
Nýr rltstjóri
Vmnimnar
Manna-
skipti
hjá ASÍ
Á miðstjórnarf undi ASÍ í
fyrradag var Ásmundi
Stefánssyni hagfræðingi
sambandsins veitt lausn
frá störfum frá og með 1.
október. Ásmundur hefur
verið hagfræðingur ASÍ í
f jögur ár og getið sér gott
orð í því starf i. Hann tekur
nú við lektorsstörfum við
Háskóla íslands.
A miðstjórnarfundinum var
jafnframt ákveöið að ráða hag-
fræðing i stað Ásmundar og verð-
ur liklega gengið formlega frá
þeirri ráöningu næstu daga.
Þá hefur Haukur Már Haralds-
son verið ráðinn i fullt starf sem •
ritstjóri Vinnunnar, timarits ASI,
og blaðafulltrúi Alþýðusam-
bandsins, en Haukur Már hefur
gegnt þessum störfum i hálfu
starfi á móti störfúm á Þjóðvilj-
ánum undanfarið.
Vegfarendur sem leið áttu um
Laugaveginn á fimmtudags-
morgun veittu þvi athygli að
silfurreynirinn fagri, sem stóð
þar undir húsgafli, hafði veriö
höggvinn niður. Tveir kaupmenn
ætla að byggja stórhýsi á horninu
og gátu ekki séð af smáhorni fyrir
hið aldna tré. 1 fyrra þegar ljóst
var að byggingin hafði verið
leyfð, urðu nokkur blaöaskrif um
silfurreyninn, og vildu margir að
honum yrði þyrmt enda tslend-
ingar ekki of rikir af gömlum og
limmiklum trjám. Ekki hefur
samviska kaupmannanna verið
upp á hið besta þvi að þeir laum-
uðust til þess að næturþeli að
fullnægja dauðadómnum sem
þeir höfðu sjálfir fellt yfir trénu.
Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri
lýsti þvi yfir bréflega að skipu-
lagsyfirvöld Reykjavikurborgar i
fyrra að tréð væri ónýtt og kom-
inn i það fúi sem ekki yrði
stöðvaður. Voru þá fengnir tveir
skógfræðingar, þeir Vilhjálmur
Sigtryggsson framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Reykjavikur
og Baldur Þorsteinsson hjá Skóg-
rækt rikisins og boruðu þeir i
stofn trésins og komust að gagn-
stæðri niðurstöðu. Silfurreynirinn
væri fullkomlega heilbrigður og
gæti lifað i 100 ár i viðbót. Stað-
festi Baldur þetta i samtali við
Þjóöviljann i gær. Samt
samþykktu yfirvöld teikningar.
Þá hringdi Þjóðviljinn i Hákon
Bjarnason, fyrrv.
skógræktarstjóra, en hann er
manna kunnugastur trjám i
Reykjavikurborg. Sagði hann að
silfurreynar hefðu verið gróður-
settir allmargir á þessum slóðum
milli 1924 og 1930 og væri þessi
vafalaust einn af þeim. sá alfall-
egasti hefði verið á baklóð við
Laugaveg 66 og þegar P & ó reisti
hús þar á framlóðinni vildu þeir
þyrma honum en verktakinn
hefði orðið fyrri til og höggvið
hann án þess að spyrja kóng né
prest.
Eigendur lóðarinnar á Lauga-
vegi 67 eru þeir Hákon Jóhanns-
son i versluninni Sport og
Þorsteinn Daviðsson i versluninni
Mirru. Þjóðviljinn hringdi i
Þorstein og spurði hann hvenær
tréð hefði verið hoggið og svaraði
hann þvi til að hann hefði átt þetta
tré og það kæmi engum öðrum
við. ,,Það er horfið og þarf ekkert
um það að ræða”, sagði hann.
,,Þeim virðist vera sérstaklega
annt um tré sem ekki eiga þau”,
Litið timburhús stendur á horn-
inu og hefur leigjendum nú veriö
sagt upp en ekki sagðist
Þorsteinn neitt vilja tjá sig um
hvort það yrði rifið og ekki heldur
hvort það yrði flutt. „Ég þarf ekki
að gefa neinar upplýsingar um
þaö”, sagöi hann. —GFr.
Silfurreynirinn var' hið glæsileg-
asta tré (Ljósm. eik)
Meðal jólabóka Almenna
bókatelagsins:
Ný ljóðabók
eftir Jón úr
Vör
Meðal jólabóka Almenna
bókafélagsins eru tvær nýar
skáldsögur, þrjár Ijóðabækur
þ.á.m. Altarisbergið eftir Jón úr
Vör, ævisaga Rögnvalds
Sigurjónsson og Kallaö 1
Kremlarmúr, frásögn af ferð um
Sovétrikin ásamt Steini Steinar
o.fl. eftir Agnar Þórðarson.
Eirikur Hreinn Finnbogason tjáði
Þjóðviljanum þessi tíðindi I gær.
Hinar nýju skáldsögur eru
Hægar pælt en kýlt eftir Magneu
J. Matthiasdóttur en það er fyrsta
skáldsaga hennar og Blóö eftir
Guðmund L. Friðfinnsson.
Ljóðabækurnar eru Fyrirstríö
eftir Erlend Jónsson sem þegar
er komin út, Vængir draumsins
eftir Ingólf Jónsson frá Prest- Spilað og spaugað og hefur
bakka og Atlarisbergið. Guðrún Egilson skrifað hana,
. Ævisaga Rögnvalds heitir _GFR
Ekkert nema stubburinn eftir (Ljósm.: Leifur)
Búið er að segja upp lcigjendum i litia timburhúsinu og verður það
vafalaust rifið innan skamms þó að eigandinn, Þorsteinn Daviðsson
kaupmaður, vildi ekkert urn það segja. Silfurreynirinn, sem nú er horf-
inn, I baksýn. ( Ljósm.: eik)