Þjóðviljinn - 06.10.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.10.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 6. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 ERLENDAR FRÉTTIR Starfsmenn Leyland- verksmiöj- unnar krejjast 30 % launahœkkunar LONDON, 5/10 (Reuter) — Foringjar hundraö þúsund starfs- manna hjá Leyland-bilaverksmiöjunum bresku samþykktu 1 dag aö kref jast 30% launahækkunar. Starfsmenn eiga eftir aö greiöa atkvæöi um kröfuna, en dregiö er i efa aö hdn muni mæta nokk- urri andstööu þar. Um þessar mundir eru fimmtlu og sjö þúsund starfsmenn Ford-verksmiöjanna i verkfalli en þeir krefjast 27% launahækk- unar. Stefna rikisstjórnarinnar, undir forystu James Callaghan, er aö takmarka launahækkanir viö 5%, en fjármálastefna hans hef- ur mætt mikilli andstööu á flokksþingi Verkamannaflokksins. Hörö átök vegna hœkkunar á strœtisvagnafargjöldum i Guatemala GUATEMALA, 5/10 (Reuter) — Fjórir menn létu lifiö og fimm hundruö særöust i mótmæiaaögeröum gegn hækkun á strætis- vagnafargjöldum I Guatemala. A mánudaginn var tilkynnt 100% hækkun á fargjöldum með strætisvögnum og olli þaö mikilli reiði meðal borgarbúa i Guate- mala. Fólk setti tálmanir á götur höfuöborgarinnar og þvi svaraöi lögreglan meö aö dreifa táragasi yfir mannfjöldann. Þrjú hundruð menn voru handteknir. Um helmingur þeirra sem særöust höföu fengið skotsár. Sjö spœnskir fangar fluttir á sjúkrahús vegna pyntinga MADRID, 5/10 (Reuter) —Yfirmaður Carabanchelfangelsisins i Madrid skýröi frá þvi i gær, aö sjö fangar heföu veriö fluttir á sjúkrahús vegna pyntinga sem þeir máttu þola af hálfu sam- fanga sinna. Að sögn hans voru mennirnir lamdir meö keöjum, þeim veitt raflost og brenndir meö sigarettum, um siðustu helgi, þar sem samfangar þeirra grunuðu þá um aö hafa sagt fangelsisyfirvöld- um frá leynigöngum sem lágu frá fangelsinu. Carlos Parada fangelsisstjóri segist hins vegar hafa vitaö af þessum leynigöngum, enda væru þau ekki hin fyrstu sinnar teg- undar i Carabanchel. I ágústmánuöi fann lögreglan klefa, sem fangar notuöu ber- sýnilega til aö pynta félaga sina i, ef grunur féll á þá, um aö hafa ljóstraö einhverju upp. Hýenur leggjast á börn álndlandi LUCKNOW, Indlandi, 5/10(Reuter) — Borgaryfirvöld i Lucknow hafa ráöiö atvinnuveiöimenn til aö skjóta hýenur sem valda * miklum mannskööum i borginni. A sex mánuöum hafa hýenur drepiö tuttugu og fjögur börn i fátækrahverfum i útjaöri Lucknow. Sföasta fórnarlambið var fjögurra ára gömul stúlka, sem fannst skammt frá heimili sinu i fyrradag. Ný fóstureyðingalög í Grikklandi AÞENA 5/10 (Reuter) — Yfirmenn grisku kirkjunnar hafa lýst andstööu sinni viö fóstureyöingarfrumvarp sem nú biöur undir- skriftar forsetans. Frumvarpiö leyfir eyðingu á fóstri fram til tuttugustu viku meögöngutimans, ef i ljós kemur aö fóstriö sé skaddað á ein- hvern hátt. Fóstureyðing veröi leyfileg fram aö tólftu viku meö- göngutimans, ef i ljós kemur að geðheilsa móðurinnar sé eitt- hvað tæp. Núgildandi lög leyfa einungis fóstureyðingu ef lif móöurinnar er i hættu, eða ef þungunin er afleiðing nauðgunar. Fjögurra manna sendinefnd mun hafa skýrt Tsatsos forseta frá andstööu kirkjunnar gegn sliku frjálslyndi, sem nýja frum- varpið er. Taliö er að tvö hundruð þúsund fóstrum sé eitt árlega i Grikk- landi á ólöglegan hátt. Fœrri konur á p-pillunni LONDON, 5/10 (Reuter) —Fjölskylduráðgjafar i London skýrðu frá þvi i dag, aö á einu ári heföi hálf milljón breskra kvenna hætt notkun á getnaðarvarnarpillunni. t staö hennar hafa þær gripið til annarra getnaöarvarna, sem ekki þykja eins hættulegar. Um er aö ræöa konur yfir þritugt. A siöasta ári var þeim konum, sem náö hafa þrjátiu og fimm ára aldri, ráðlagt að nota aörar getnaðarvarnir en p-pilluna. Konum, sem voru orönar þritugar og höfðu notaö pilluna i fimm ár eöa meira,var einnig ráölagt aö gripa til annarra varna. Einnig var þess getiö, aö margar yngri konur heföu einnig hætt notkun pillunnar, en slikt væri ekki nauðsynlegt. Komiö hefur i ljós I Bretlandi og Danmörku aö dregið hefur mikið úr notkun getnaöarvarnarpillunnar, en meira notast viö verjur. Kynsjúkdómar urðu tiðari meö tilkomu pillunnar, en nú hefur dregiö úr þeim á ný. Kjarasamningar blaöanna KAUPMANNAHÖFN, 5/10(Reuter) — Blaðamenn viö Börsen i Danmörku hafa nú náð samkomulagi viö útgefendur blaösins um laun sin næstu þrjú árin. Veröa meðallaun þeirra á þessum tima um það bil ein milljón islenskra króna á mánuði. RAFVEITUSTJÓRINN í HAFNARFIRfH; Getum ekki selt rafmagn ódýrara Töpum ekki á þessari orkusölu, segir rafveitustjórinn á Sauðárkróki þar sem raforka til brauðgerðar er einn þriðji af því sem er í Hafnarfirði Eins og skýrt var frá í Þjóöviljandum i gær, er raforkuverð til brauðgerð- ar um það bil helmingi hærra i Hafnarfirði en annars staðar á landinu. I gær náðum við tali af Jón- asi Guðlaugssyni rafveitu- stjóra í Hafnarfirði og spurðum hann hvers vegna raforka til brauðgerðar þar væri svona dýr. Jónas sagöi, aö hann teldi þetta, verakosnaðarverö eftir þá kostn- aöargreiningu, sem RH heföi gert. „Við getum ekki selt rafmagniö undir kostnaöarverði”, sagöi Jónas. Aðspuröur hvernig hann teldi aörar rafveiturá landinu fara að i þessu sambandi, þar sem veröið væri sumsstaöar ekki nema 1/3 af þvi sem er i Hafnarfirði og viöast aðeins helmingur.sagði Jónas, aö hann teldi þær rafveitur tapa á orkusölunni. Viö leituöum þá til Siguröar Agústssonar, rafveitustjóra á Sauðárkróki, en rafmagn sem þar kostar 41.580 kr. kostar i Hafnar- firði 114.807 kr. Við spuröum hann hvort þeir á Sauöárkróki töpuöu á þessari raforkusölu til brauögeröar. Sigurður hló viö og sagöi, aö samkvæmt reikningum RS væri ekki tap á þessari orku- sölu. Þaö sama sagöi Sverrir Sveins- son, rafmagnsveitustjóri á Siglu- firöi, en þar kostar sama m agn af rafmagni40.810 kr. En hann benti á aö til væru margir rafmagns- taxtar, sem rafmagniö væri selt eftír, en sér sýndist Rafveita Hafnarfjaröar vera sú dýrasta og benti á að rafmagn til lýsingar i búöargluggum i Hafnarfiröi væri selt á 77,15kr kgw.-stundin, 45.00 kr. á Siglufiröi og á 25.88 kr. i Reykjavík. — S.dór. Flóðin í Víetnam og Thailandi: Hrísuppskera ónýt og hungursneyð yfirvofandi BANGKOK, 5/10 (Reuter) — Yfirvöld í Thailandi skýrðu frá þvi i dag, að meira en áttatiu manns hefðu far- ist i flóðunum sem nú eru i landinu og liggi nú þrjú hundruð og tuttugu þúsund hektarar lands undir vatni. Þar af er mikill hluti hrisakrar. Þetta eru verstu flóö sem menn muna, — stór hluti hrisuppskeru fólksins hefur eyðilagst I vatni. Taliö er aö flóöin hafi bitnað á hálfri miljón manna i átján hér- uðum. Vegir hafa eyðilagst svo og fjörutiu brýr. Víetnamar sögðu i dag aö mikil þörf væri fyrir matvæli til svæða þeirra inoröurhluta landsins sem verst hafa oröiö úti I rigningum og flóöum að undanförnu. Tugir þúsunda ibúa i héraðinu Ha Son Binh eiga við alvarlegan fæöu- Somoza hyggstefla herinn MANAGUA, 5/10 (Reuter). — Somoza forseti Nicaragua lýsti þvi yfir i gær, aö hann myndi auka fjárlög til hermála um helniing i staö þess aö láta undan kröfum andstæöinga sinna og segja af sér. Hann endurtók enn einu sinni.aö hann yröi viö völd út kjörthnabil sitt, sem er til ársins 1981. Herlög veröa ekki afnumin á næstunni i landinu. Hermönnum i stjórnarsveitunum veröur fjölgað um sjö þúsundir. Um þessar mundir er stödd fimm manna nefnd i Nicaragua, sem rannsaka á hvort ásakanir um grimmilegar aöferðir stjórnarhersveita eigi viö rök aö styöjast. skort aö striöa. Hrisforöi fólksins hefur hreinlega skolast burt. — Til að létta undir, hefur verið ákveðiö aö ibúar þeirra svæöa i Víetnam, sem ekki hafa orðið fyrir baröinu á flóöum, skuli hver gefa tvö kiiógrömm af hrisi mán- aöarlega fram á vor, til aö hlaupa undir bagga hjá bágstöddum löndum sinum. Hjúkrunar- fræðingar Félagsfundur Reykjavikurdeildar H.F.f verður haldinn 9. október i Átthagasal Hótel Sögu kl. 20,30. Fundarefni: Málefni fréttablaðs númer 5 Takið með ykkur blaðið. Stjórnin. S ementsv erksmiði a Ríkisins óskar »að ráða tvo verkamenn til starfa i verksmiðjunni Akranesi. Sementsverksmiðja rikisins. Þurrkaður harðviður Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik og oregon pine. Harðviðargólflistar fyrir parket. Sendum i póstkröfu um allt land. ðQMi HÖFÐATÚNI 2 - REYKJAVÍK Sími: 22184 (3 llnur) u

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.