Þjóðviljinn - 06.10.1978, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJlNNi Föstudagur 6. október 1978
Umsjón: Magnús H. Gíslason
Sudurnes
Slökkvibíllinn
kominn heim
Hinn nýi siökkvibill Suður-
nesja er nú loksins kominn til
Keflavikur. Hefur á ýmsu
gengið með að leysa hann úr
tolli þar sem sveitarfélögin á
Suðurnesjum gátu ekki snarað
úr þeim 6 milj. kr. fýrir sölu-
skatti og tolli, en fjármálaráðu-
neytið fékkst ekki til þess að
veita gjaldfrest á þessum gjöld-
um um stundarsakir og bar þvi
við, að það skapaði fordæmi.
Sýnist Suðurnesjamönnum það
umhugsunarefni fyrir hina nýju
ráðherra hvort ekki sé eðlilegra
að feUa niður gjöld af svona
tækjum, sem nauðsynleg eru
fyrir almanna heill^en að ráð-
herrar njóti ýmissa friðinda i
þessum efnum.
Lausn þessa máls er að þakka
Sparisjóði Keflavikurog Bruna-
bótafélagi Islands þvi þeir
aðilar lánuöu Brunavörnum
Suðurnesja það sem á vantaði
til þess að geta leyst bilinn út:
BDlin kostar 21,5 milj. kr., en
þá vantar á hann lausar
slöngur, sem kosta sem næst 1,2
milj..Billinn er af Ford-gerð og
svipaður bil þeim, er Bruna-
varnirnar fengu 1973, en þó
nokkru hærri. Hann er með 4
„buster”-slöngum og er með
mun stærri vatnstank og mun
ekki af veita þar sem hann er
með mjög afkastamikla dælu.
Með tilkomu þessa bils má
heita að húsnæði Slökkvi-
stöðvarinnar sé fullnýtt þegar
allur tækjakosturinn er inni.
Sjúkrabillinn, sem geymdur
hefur verið á stöðinni, kemst
þar nú ekki lengur fyrir og er i
geymslu annars staðar.
(Heim.: Suðurn.tið.)
—mhg
Hinn nýi slökkvibill Suðurnesja.
táÉÉÍÍii
Þingeyri við Dýrafjörð. Mynd: I.K.
Frá Þingeyri:
Togarinn moktiskar
en tregt hjá trillum
— Tiðarfar hefur verið hag-
stætt hér um slóðir, bæði til
lands og sjávar, segir frétta-
ritari Þjóðviljans á Þingeyri,
Davið Kristjánsson okkur.
— Frostnætur tvær komu hér
i þessari viku og er það fyrsta
frostið i byggð á þessu hausti.
Ber hafa verið óskemmd fram
að þessu og hafa margir nýtt sér
þau vel, þar sem berjaspretta,
sérstaklega á aðalbláberjum, er
með besta móti.
Heyskapur — Garðrækt
— Slátrun
Hey bænda eru bæði mikil að
vöxtum og góð og hafa allir
lokið heyskap og sumir fyrir
allnokkru.
Kartöflur spruttu hér ágæt-
lega i sumar og er upptöku
þeirra lokið. Fengu margir allt
að 10-falda uppskeru, sem þykir
mjög gott.
Framleiðendum fækkar
en mjólkin vex
A vegum Framleiðsluráðs
landbúnaðarins hefurverið gert
yfirlit um framleiðslu og sölu
mjólkurvara fyrir timabilið 1.
sept. 1977 til 31. ágúst 1978.
Innvegin mjólk var 117,8 milj.
ltr., aukning frá fyrra verðlags-
ári var 4,6%. Meðalinnlegg i
mjólkursamlag frá framleið-
Nafnabrengl
leiörétt
Siöastliðinn þriöjudag birtist
hér i Landpósti fréttaspjall við
Ingimar Júliusson, fréttaritara
Þjóðviljans á Bildudal. Þar
segir m.a. að Tónlistarskólinn á
BDdudalsé „einskonar útibú frá
Tónlistarskólanum á Patreks-
firði”.
Kjartan Eggertsson, tónlist-
arkennari á Bildudal, hringdi i
Landpóst og benti á, að ekki
væri rétt að tala um Tónlistar-
skólann á Patreksfirði i þessu
sambandi þvi skólinn héti Tón-
listarskóli Vestur—Barða-
strandarsýslu.
Kjartan Eggertsson sagði
okkur að I fyrra vetur hefðu
nemendur Bildudalsskólans
verið 54. Nú væru þeir þegar
orðnir 40 og mætti fastlega
búast við að þeir yrðu ekki
færri i vetur en i fyrra vetúr. Er
sá áhugi með hreinum ólik-
indum þvi 54 nemendur er
býsna hár hundraðshluti af I-
búum byggðarlagsins. —mhg
anda var 44.607 ltr. af mjólk en
var á fyrra verðlagsárinu 40.675
ltr. Samtais eru mjólkurfram-
leiðendur, sem leggja inn mjólk,
taldir vera 2.670. Hefur þeim
fækkað á undanförnum árum
um 3% árlega.
Sala á nýmjólk hefur enn
minnkað. Samtals voru seldir
45,2 milj. ltr. af mjólk en það
var 4,4% minna en á verðlags-
árinu 1976/1977. Sala á rjóma
var aftur á móti 2,9% meiri nú
en á fyrra timabili, heildarsalan
var 1,1 milj. ltr.
Sala á venjulegu skyri
minnkaði nokkuð en sala á
bláberja- og jarðarberjaskyri
varð aftur á móti meiri.
Heildarsala á skyri var 3,8%
meiri en á fyrra ári og nam hún
1,706 lestum.
Aukning var i sölu undan-
rennu um 18,8%. Heildarsala á
siðasta ári var um 3,8milj. ltr.
Nokkur aukning varð í smjör-
framleiðslunni eða um 1,1% en
það voru 1.802 lestir. 1 upphafi
verðlagsársins voru birgðir af
smjöri 936 lestir en það var 56%
meira en i upphafi fyrra verð-
lagsárs.
Samtals voru seldar beint til
neyslu 1.433 lestir en það var
samdráttur frá fyrra ári um
0,7%. Notaðar i aðra fram-
leiöslu voru 8 lestir. Birgðir 1.
sept.sl. voru 1.297 lestir en það
var 38,6% meira en i upphafi
fyrra verðlagsárs.
Framleiðsla á 45 og 30%
ostum var 3.263 lestir en það var
41% meira en á fyrra verö-
lagsári. Nokkur samdráttur
varð i sölu á þessum ostum en
veruleg aukning i sölu á
bræddum ostum. Heildsala á
öllum ostum var 1.402 lestir,
sem var 2,4% aukning frá fyrra
ári.
Fluttar voru út á verðlags-
árinu 1.842 lestir en árið áður
var útflutningur aðeins 662
lestir. Birgðir af ostum
l.sept.sl. voru 1.419 lestir en það
var 14% meira en i fyrra.
Neysla á ostum breytist þvi
nú er meira keypt af mögrum
ostum en þeim fiturikari.
(Heim.: Uppl.þjón.landb.)
—mhg
Slátrun sauðfjár stendur nú
yfir. Gerðar hafa verið endur-
bætur á sláturhúsinu og vinnu-
skilyrðum þar breytt nokkuð frá
þvi, sem áður var. Þykir það til
bóta sérstaklega er kjöt-
iðhreinna.
Frá sjósókninni
Róðrar á smærri bátum liggja
nú niðri þar sem frystihúsið
tekur ekki á móti fiski þann
tima, sem slátrun stendur yfir.
Annars er mikil gróska hér i
trilluútgerð. Þrettán trillur
lönduðu hér i sumar, þegar þær
voru flestar. Afli þeirra var
heldur tregur.
Afli togarans Framnes I.
hefur verið með eindæmum.
Hreinlega mokafli. Hann landar
nú afla sinum á Isafirði meðan
slátrun sauðfjár stendur yfir
hér.
M.b. Sæhrimnir var gerður út
á troll héðan i sumar. Hann
hefur nú hætt veiðum i bili og
hýggja eigendur hans til sölu á
honum og þá væntanlega á kaup
á stærri bát.
M.b. Framnes var ekki
gerður út i sumar en stór endur-
bót á bátnum og viðgerð fór
fram.
Byggingaframkvæmdir
Óvenjumikið hefur verið um
byggingaframkvæmdir hér i
sumar. Kaupfélagið hefur látið
vinna að byggingu tveggja stál-
grindahúsa. Er annað þeirra
fiskimjölsverksmiðja en i hinu
er ætluð aðstaða fyrir útgerðina
til viðgerða og geymslu.
A vegum rikisins og sveitar-
félagsins er unnið að byggingu
skólahúss, sem nú er komið
undir þak. Og bygging læknis-
bústaðar er hér á lokastigi.
Fjögur einbýlishús eru i
smiðum fyrir einkaaðila og
þrjár ibúðir i raðhúsi eru i
Akranes:
Varanleg gatnagerd
1 sumar hefur verið unnið að
þvi að steypa Kalmannsbraut,
milli Stillholts og Esjubrautar
og hluta af Háholti. Er sú vinna
búin að taka gifurlega langan
tima eða þvi nær allt sumarið.
Til stóð að leggja oliumöl á
Skarðsbraut en það hefur ekki
verið gert enná. Er það fyrir-
tækið Hlaðbær, sem tekið hefur
að sér verkið en þeir leggja
einnig 4 km. á Akranesveginn
og 1 km. á Innnesveginn, (Akra-
fjallsveg), frá Leyni að Kirkju-
garðsveginum gamla. Bærinn
mun svo leggja þaðan að Garða-
braut.
F'yrir nokkrum árum var
gerður samningur við Sements-
verksmiðju rikisins þess efnis,
að hún sæi um að steypa Faxa-
braut. Samningurinn hljóðaði
upp á það, að gatan yrði steypt i
tveimur áföngum. Sá fyrri var
steyptur sl. sumar og sá seinni
átti að steypast i sumar. Það
hefur ekki verið gert. Verk-
smiðjan hefur frestað þessu
verki án samráðs við bæjar-
stjórn. Er það að sjálfsögðu al-
varlegt mál. (Heim.:Umbrot)
—mhg
smiðum á vegum Þingeyrar-
hrepps. Er þar um að ræða sölu-
eða leiguibúðir á vegum
sveitarfélaga, samkvæmt
lögum þar um.
Vegagerð
Opinberar framkvæmdir á
sumrinu hér i nágrenni aðrar en
þær, sem áður eru taldar, eru
helstar þær, að vegurinn milli
Meðaldals og Haukadals var
endurbyggður. Einnig var
hækkaður hluti vegarins á Hóla-
hlið. Þessar framkvæmdir miða
að þvi að vegurinn um sveitina
verði snjóléttari.
Út og suður
Hlaupabraut var lögð
umhverfis iþróttavöllinn.
Byrjað er og á framkvæmdum
við að girða af þorpið. Aætlað
var og, að eitthvað yrði unnið
við Þingeyrarflugvöll á þessu
ári, en sú vinna hefur ekki hafist
ennþá.
1 menningarmálum er það
helst til tiðinda, að Sinfóniu-
hljómsveitin og Þjóðleikhúsið
miðluðu okkur hér i sumar af
sinu nægtaborði, og nutu þess
margir.
Skemmtimál
Nokkrir aðrir farandflokkar
af skemmtanafólki höfðu hér
viðdvöl á ferðum sinum um
landið ; og árlegt hestamanna-
mót i byrjun ágústmánaðar fór
fram með miklum sóma. Einnig
má nefna nokkur iþróttamót og
Vestfjarðamót i svifdrekaflugi.
Ýmis félagssamtök hér eru að
hefja vetrarstarf sitt og má þar
helst nefna kvenfélagið Von,
sem byrjaði starf sitt i haust nú i
vikunni með námskeiði i
meðferð grænmetis.
Lionsklúbbur Þingeyrar hélt
sinn fyrsta fund á haustinu einn-
ig i þessari viku og bridds-
félagið Gosi hóf sitt 21. starfsár
með skyndisveitakeppni s.l.
föstudagskvöld.
Læknirinn kominn
Heldur virðist nú vera að rofa
hér til i heilbrigðismálum, þar
sem við höfum fengið lækni,
Kristján Vikingsson að nafni,
sem hefur ráðið sig hér i heilt
ár, og erum við þvi lausir við
mánaðarlæknana i bili a.m.k.
Hér má svo bæta þvi við, að
við erum prestslausir eins og
sakir standa eða siðan prest-
urinn okkar, sr. Stefán Eggerts-
son, andaðist. Hann var búinn
að þjóna hér i 28 ár og naut
almennra vinsælda og virð-
ingar. Ekkja hans, Guðrún
Sigurðardóttir, mun flytjast til
Reykjavikur. Við vonum að úr
þessu rætist með prestinn þótt
auglýsing starfsins hafi enn
engan árangur borið. dk/mhg