Þjóðviljinn - 06.10.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 6. oktáber 1978 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 11
Spjallað við Hrein Halldórssonj
t blaðinu á morgun verður birt viðtal við Hrein Halldórsson kúluvarpara. jjj
Margt ber á góma i viðtalinu s.s. fyrstu kynni hans af iþróttinni, staða |
kúluvarpsins um þessar mundir og viðhorf hans til keppnisiþrótta. — |
Ljósmynd: Leifur.
Frá Sundsambandi Islands
Fjáröflunarherferð
Hefur þegar hleypt happdrœtti af stokkunum
Nú og á næstunni
gengst Sundsamband
íslands fyrir fjáröflunar-
herferð. Ástæða þessa er
sú/ að skuldir sambands-
ins eru orðnar svo miklar,
að fastir tekjustofnar
þess duga ekki lengur til
vaxtagreiðslna af lánum.
Meðan svo er ástatt er
sundíþróttin í hættu sem
keppnisgrein.
Nú þegar hefur Sundsam-
bandið farið af stað með happ-
drætti. Gefnir hafa verið út
48.000 miðar og heildarverð-
mæti vinninga rúmar 4
miljónir, en aðalvinningurinn er
ný Lada Sport bifreið.
Sambandiðhyggst einnig efna
til sérstaks fjáröflunardags og
verður hann 9. desember n.k.
Það er von Sundsambands
tslands, að fólk bregðist vel við
þessum aðgerðum og leggi sitt
af mörkum, til að islenskt sund-
fólk megi enn bæta árangur sinn
og hasla sér áfram völl á
alþjóðavettvangi.
Jock Stein tekur nú
við skoska landsliðinu
Hœttir hjá Leeds eftir aöeins 6 vikna starf
Hinn heimsfrægi knattspyrnusérfræðingur var i
gær ráðinn framkv.dastjóri skoska landsliðsins i
knattspyrnu, eftir að Ally Macleod, hafði sagt starfi
sinu lausu eftir hrakfarir skoska landsliðsins i
Argentinu sl. sumar.
Kvennstúdentafélag íslands og
féiag íslenskra háskólakvenna
heldur aðalfund laugardaginn 7. október
1978 iÁtthagasal Hótel Sögu og hefst fund-
urinn kl. 12,30 með hádegisverði.
Fundarefni:
Aðalfundarstörf
Stjórnar og nefndarkosningar
önnur mál.
Stjórnin.
Jock Stein var framkvæmda-
stjóri hjá Celtic i meira en áratug
og geröi liðið þrisvar að Evrópu-
meistara auk fjölmargra
meistara.og bikarmeistaratitla I
Skotlandi. Hann hætti hjá Celtic
sl. vor og réðist sem fram-
kvæmdastjóri til Leeds fyrir 6
vikum.
—'Þetta er erfiðasta ákvörðun
lifs mins, sagði Stein i gær eftir aö
hann haföi tekið ákvörðun um að
hætta hjá Leeds og taka viö
skoska landsliöinu.
Manny Cussins, formaöur
Leeds sagöi: Þetta hryggir mig
mjög, Stein er besti fram-
kvæmdastjóri sem hægt er að fá.
—S.dór
Asmundur Sverrir Pálsson
um
helgina
I Handknattleikur \
Reykjavíkurmót.
Laugardagur:
Kl. 15.00 Fylkir — Þróttur
Kl. 16.15 1R — Vikingur
Kl. 17.30 KR — Fram
Kl. 18.45 Leiknir — Armann
Sunnudagur:
Kl. 20.15 Leikið um 7.-8. sætið.
Kl. 21.30 Leikið um 5.-6. sætiö.
Reykjanesmót.
Sunnudagur
Kl. 13.00
Haukur — IBK i mfl. kv.
FH — HK i mfl. k.
Grótta — Afturelding i mfl. k.
Leikirnir verða i Hafnarfiröi.
Kl. 15.00
UMFN — FH i mfl. kv.
Haukar — Stjarnan i mfl. k.
Leikirnir verða i Asgarði.
1 Körfuknattleikur |
Reykjavfkurmót.
Sunnudagur:
Kl. 13.30 IS — Fram
KR — Valur
IR — Armann
Þetta er 5. og siðasta umferð.
mótsins.
A miðvikudaginn var hér d siðunni greint frá úrslitum á HM i blaki:
Póisku ólympiumeistararnir áttu erfitt uppdráttar á þessu móti og
urðu aö láta sér lynda 8. sætið. Þessi mynd er úr leik þeirra við Japani,
en þá tókst þeim að sigra 3:2.
Styrkir
til isienskra visindamanna til námsdvalar
og rannsóknastarfa i Sambandslýðveldinu
Þýskalandi.
Þýska sendiráðiö 1 Reykjavik hefur tjáð Islenskum stjórn-
völdum aö boðnir séu fram nokkrir styrkir handa Islensk-
um visindamönnum til námsdvalar og rannsóknastarfa I
Sambandslýöveldinu Þýskalandi um allt að f jögurra mán-
aða skeið á árinu 1979. Styrkirnir nema 1200 þýskum
mörkum á mánuði hið lægsta, auk þess sem til greina
kemur að greiddur-verði feröakostnaður að nokkru.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. nóvem-
ber n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráöuneytinu.
Mennta mála ráðuney tið
3. október 1978.
> Umsjófi:
íþróttir