Þjóðviljinn - 15.10.1978, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. október 1978.
mmm
í FJALA-
KETTINUM
Kvikmyndin sem Fjala-
kötturinn sýnir þessa viku
heitir Ef til vill djöfullinn
(Le diable probablement)
og er nýjasta mynd
franska leikstjórans
Robert Bresson. Hann stóð
á sjötugu þegar myndin
var frumsýnd í fyrra. Ef
til vill djöfullinn mun vera
tólfta mynd hans/ en hin
fyrsta hét Englar syndar-
innar (Les Anges du
Péché), gerð 1943.
Bresson hefur jafnan þótt „sér
á parti” i franskri kvikmynda-
gerð. Hann hefur ekki fylgt nein-
um tiskustraumum, en haldið
sinu striki. í fyrstu tveimur
myndum sinum, Englum syndar-
innar og Konunum i Boulogne-
skógi (Les Dames du Bois de
Boulogne, 1944) notaði hann at-
vinnuleikara, en i öllum siðari
myndum hans, allt frá Dagbók
sveitaprests (Le Journal d’un
Curé de Campagne, 1950) hafa
leikendur verið það sem hann
kallar „módel” — þ.e. áhuga-
menn. Þar með hafnar hann öll-
færiðsjáist i myndinni. Hann seg-
ir að kvikmyndalist sé ekki fyrst
og fremst myndlist, heldur sé um
það að ræða að skapa „sjónræna
hrynjandi”. Sem fyrr segir af-
neitar hann atvinnuleikurum, en
talar um að módelin sem hann
notar séu „tvö hreyfanleg augu i
hreyfanlegu höfði á hreyfanleg-
um likama”. Persónurnar i
myndum hans eru yfirleitt ungar
og mjög alvarlegar, breyta sjald-
an um svip og tala yfirleitt ekki
saman, heldur er einsog hver og
ein þeirra sé aö tala við sjálfa sig.
Aðdáendur Bressons telja að með
þessum aðferðum hreinsi hann
persónurnar af öllu ónauðsynlegu
og yfirborðskenndu, svo eftir
stendur sálin, ein og nakin,
Kvikmyndir Bressons hafa
flestar verið tiltölulega ódýrar i
Ef
til
vill
innihald þeirra, sjálfan boðskap
listamannsins. Það fer vist ekki á
milli mála að Bresson er bölsýn-
ismaður. Honum finnst — að visu
ekki að ástæöulausu — sem hann
lifi i snargeggjuðum heimi. Og
hann trúir eiginlega ekki á neitt
sem til bjargar megi koma.
Mannkynið rambar á heljarþröm
og fer áreiðanlega fram af, fyrr
eða siðar. Trúmál hafa jafnan
skipað stóran sess i myndum
hans, en þau megna heldur ekki
að bjarga heiminum. t nýjustu
myndinni, Ef til vill djöfullinn,
gengur Bresson svo langt að láta i
það skina að það sé sennilega
djöfullinn sem stjórni mannkyn-
inu á hraðri niðurleið þess.
Le diable, probablement fjallar
um sjálfsmorð ungs manns og að:
alvarlega. Þaö eina sem Charles
græðir á samtalinu við hann er
nöturlegt ráð: sálfræðingurinn
segir honum að útvega sér leigu-
morðingja og fá hann til að drepa
sig, úr þvi honum sé svo umhugað
að fremja sjálfsmorð. Charles
tekur hann á orðinu og fær mann
nokkurn til að framkvæma
„sjálfsmorðið” fyrir sig. Mynd-
inni lýkur á þvi að leigumorðing-
inn læðist burt frá morðstaðnum,
sem er kirkjugarður. Charles
kaus að láta skjóta sig við leiði
Maurice Thorez, fyrrverandi
leiðtoga franskra kommúnista.
Vinur Charles er umhverfis-
verndarmaður, og umhverfismál
og mengun koma mjög við sögu i
myndinni. Ef hægt er að finna i
henni ljósan punkt má segja að
þetta sé lifsmark sem þrátt fyrir
allt er að finna hjá sumu ungu
fólki. Sumir gagnrýnendur hafa
sagt að myndin fjalli um hina si-
gildu baráttu milli hins illa og
hins góöa i tilverunni. Hið illa sé
þá fólgið i mengun og rányrkju i
kærleikslausum heimi, en hið
góða sé unga fólkið, éina aflið
sem enn er hægt að binda ein-
hverjar vonir við.
Ef til vill djöfullinn er, eins og
Úr fyrstu mynd Bressons, „Englar syndarinnar'
Ef til vill djöfullinn: Charles hjá sálfræðingnum
Ingibjörg
Haraldsdóttir
skrifar
um
kvikmyndir
um leikhúshefðum og einbeitir
sér að tjáningarmeðulum kvik-
myndlistarinnar. Fólkið sem
hann kvikmyndar fær fyrirmæli
um aö vera i staðinn fyrir aó
þykjast vera.
Hiö hreina form
Rauði þráðurinn I sköpunar-
starfi Bressons er leitin að hinu
„hreina formi”. Hann er á hött-
unum eftir fullkomnu raunsæi,
notar t.d. ekki tónlist nema hljóð-
framleiðslu, enda hefur still
þeirra einkennst fremur ööru af
sparnaði og jafnvel meinlæta-
stefnu. „Notaðu aldrei tvær fiðlur
ef þú kemst af með eina” — sagði
hann einhverntima. Hinsvegar
tekur langan tima að undirbúa og
fullgera hverja mynd. „Kvik-
myndalistin er hernaðarlist.
Kvikmynd þarf að undirbúa á
sama hátt og orrustui’ segir hann,
og myndirhans bera þvi merki að
þar er hvert atriði og hvert skot
þaulhugsað. Tilviljanir eiga ekki
upp á pallborðið hjá Bresson. T.d.
er sagt að hann hafi látið endur-
taka 52 sinnum mjög einfalt atriði
i myndinni Au hasard Balthasar
(1966): kona leggur hönd á bekk
og karlmannshönd kemur inn i
myndina og snertir konuhöndina.
Tilgangurinn meö þessari smá-
munasemi er auövitað fyrst og
fremst nákvæmni, en einnig vill
Bresson að „módelin” hreyfi sig
án umhugsunar, á „sjáTfvirkan”
hátt, þvi aö þannig telur hann að
þau verði sjálfkrafa innbiásin og
hugmyndarik.
Ef til vill hefur nákvæmni og
smámunasemi Bressons hvergi
notið sin betur en i myndinni
Dauðadæmdur fangi er flúinn
(Un condamné a mort s’est
echappé, 1956). Þar er at-
burðarásin takmörkuð við undir-
búning flótta úr fangabúðum og
flóttann sjálfan. Hvert smáatriði
er sýnt og spennan sem hleðst upp
er ótrúleg. Engin „hjálparmeð-
ul” eru notuð, þögn kemur i stað
dramatiskrar tónlistar. Hér er
það myndavélin ein sem segir
frá, lýsir atburöum og dregur
ályktanir.
Bölsýnismaður
Fáir verða til að vefengja
mikilvægi Bressons fyrir kvik-
myndasöguna. Hinsvegar eru
menn ekki á eitt sáttir um myndir
hans, og er þá einkum deilt um
draganda þess. Ungi maðurinn,
Charles, er þreyttur og leiður á
lifinu. Hann reynir að finna eitt-
hvað sem til bjargar megi verða:
vináttu, ást, trú eða stjórnmála-
lega sannfæringu, en allt kemur
fyrir ekki. Vinur hans og tvær
vinkonur gera allt sem i þeirra
valdi stendur til aö hjálpa honum,
en ekkert dugar. Loks fer hann tií
sálfræöings, en nær engu sam-
bandi við hann vegna þess að sá
lærði maður tekur hann ekki nógu
aðrar myndir Bressons, langt frá
þvi að vera auðmelt. Hún gerir
miklar kröfur til áhorfandans,
sem verður að halda athyglinni
vakandi og hugsa, vilji hann á
annað borð nema það sem Bres-
son hefur að segja. Hvað sem um
boðskap þessa franska öldungs er
að segja veröur það ekki af hon-
um skafið að list hans er hrein-
ræktuð kvikmyndalist.
Sýningarnar i Fjalakettinum i
dag eru kl. 17, 19.30 og 22.
Þurrkaður harðviður
Einnig fyrirliggjandi hnota, japönsk eik
og oregon pine. Harðviðargólflistar fyrir
parket. Sendum i póstkröfu um allt land.
HÖFÐATÚNI 2 - REYKJAVÍK
Sími: 22184 (3 Knur)
• Blikkiðjan
Asgaröi 1, Garöabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
í Auglýsingasíminn er
81333