Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 1
UOWIUINN
Þriðjudagur 17. október 1978 — 227. tbl. 43. árg.
50 ára gömul útvarpsmöstur á Vatnsendahœð:
Geysflegt öryggisatriði
að möstrin séu í lagi
segirGuðjón Petersen, framkvœmdastjóri Almannavarna
Almannavarnaráð ríkisins
samþykkti svo að fylgja þessu
eftir með frekari viðræðum við
ráðamenn útvarpsins um úrbæt-
ur.
Guðjón sagði að ætla mætti að
útvarpið gæti komið tilkynning-
um til almennings, þó að þessi
möstur hryndu. Endurvarps-
stöðvarnar yrðu áfram i gangi,
þvi ekkert af dreifingunni fer um
langbylgjustöðina, heldur ýmist
með simalinum eða á örbylgju.
Þar að auki hefðu Almannavarnir
rætt við forráðamenn Landssim-
ans um möguleika á þvi að bæta
við 209 kilóriðum i sendana á
Rjúpnahæð, þannig að með tak-
mörkuðum styrk yrði hægt að út-
varpa á þau svæði hér Suðvestan-
lands, sem hafa ekki FM-stöðvar.
„En þó að hægt sé i neyð að
merja út einhverja útsendingu til
bráðabirgða, þá er samt sem
áður nauðsynlegt að Rikisútvarp-
ið verði gert sem öruggast,”
sagði Guðjón Petersen að lokum.
— eös.
LANDSAMBAND VERSLUNARMANNA
V æntir þess aö skriöur
sé að komast á málin
Langbyigjumöstrin tvö við
endurvarpsstöð útvarpsins á
Vatnsendahæðeru nú orðin 50 ára
gömul og úr sér gengin. Þau geta
hæglega brotnað i ofsaroki og er
aðeins timaspursmái hvenær
Jóhannes
PáUII.
Pólskur kardínáli
kjörinn páfi.
Sjá umsögn
Frehens biskups
á íslandi
SÉÐA 3
slikt gerist. Samt sem áður hefur
engu fé verið veitt til úrbóta eða
endurnýjunar útvarpsmastr-
anna.
„Það er geysilega mikið ör-
yggisatriði að langbylgjumöstrin
séu í fullkomnu lagi, ” sagði
Guðjón Petersen framkvæmda-
stjóri Almannavarna rikisins i
samtali við Þjóðviljann i gær.
Hann sagði að haldinn hefði verið
einn fundur með tæknimönnum
simans og útvarpsins, þar sem
rætt hefði verið um öryggi Rikis-
útvarpsins. Þá hefði staða þess-
ara mála verið rædd, bæði með
tilliti til langbylgjusendisins og
dreifikerfisins, sem viða er með
brotalömum. A þessum fundi
komu ýmis atriði i ljós, sem gera
það að verkum að Rikisútvarpið
er mjög veikt fyrir áföllum.
„Þýðing þess er hinsvegar geysi-
mikil i náttúruhamförum eða
hvaða vá, sem yfir dynur,” sagði
Guðjón.
Hálfrar aldar gömul gnæfa útvarpsmöstrin á Vatnsendahæðinni.
Ljósm.Leifur.
Alagningu tekju- og eignaskattsaukans lokiö
Hálfum miljarði
meiri en áætlaö
Fyrirtæki greiða 2,2 miljarða en einstaklingar 1,5
Sambandsstjórn Landssam-
bands islenskra verslunarmanna
hefur á fundi sinum á laugardag,
14. okt. gert samþykkt um kjara-
mál, og kveður þar nokkuð við
annan tón en hjá talsmönnum
Verslunarmannafélags
Reykjavikur um svipuð efni.
Land rís við
Kröflu
,,Þvi miður hef ég ekki haft
neinar (réttir frá Kröflusvæðinu i
dag, þar sem simasambandslaust
hefur verið við Kröflu I dag, en
siðustu fréttir sem ég hef frá
s væðinu eru þær, að land risi jafnt
og þétt, þó hægar en áður og eðli-
leg sprungugliðnun eigi sér stað,
samfara landrisinu”, sagði Axel
Framhald á 14. siðu
Fundurinn visaði til sam-
þykktar þings LIV 1977, þar sem
það markmið var sett fram, að
leita eftir leiðréttingum á launa-
töxtum verslunar- og skrifstofu-
fólks til samræmis við þá nýgerða
samninga við opinbera starfs-
menn.
Hafi verið leitað eftir viðræðum
við atvinnurekendur, en undir-
tektir verið afar dræmar Um þá
hluti segir, að ,,er þess að vænta
að skriður sé um það bil að
komast á málin”. Siðan segir:
Þvi skorar sambandsstjórnin á
öll aðildarfélög sambandsins að
hverfa ekki frá uppsögn kaup-
gjaldsákvæða samninganna, en
búa sig heldur undir að standa
fast að framgangi þess réttlætis-
máls, að verslunar- og skrifstofú-
fólk fái með samningum viður-
kennd hliðstæð kjör og aðrir, sem
sambærileg störf vinna.
Nú er lokið álagningu tekju- og
eignaskattsaukans samkvæmt
ákvæðum bráðabirgðalaga rikis-
stjórnarinnar frá 8. september
s.l. og nemur heildarálagningin
3,7 miljörðum króna og er það
hálfum miljarði meira en áætlað
var. Þessi skattauki var lagður á
til að standa undir niðurfærslu
vöruverðs, þ.e. niðurfellingar
söluskatts af matvælum og aukn-
um niðurgreiðslum landbúnaðar-
vara.
Félög og fyrirtæki greiða 2.2
miljarða og einstaklingar 1,5
miljarða.
100% eignarskattauki nemur
923 miljónum króna og greiðist af
3.517 félögum og fyrirtækjum.
6% tekjuskattur á hreinar tekj-
ur atvinnurekstrar áður en fyrn-
ingar eru dregnar frá greiðist af
3.361 félagi og nemur samtals
1200 miljónum króna.
6% tekjuskattauki á sjálfstæð-
an atvinnurekstur greiðist af
9.757 einstaklingum og nemur
þessi skattauki 673 miljónum
króna.
50% eignaskattauki greiðist af
Framhald á 14. siðu
Flokksstarfið eflt 1 samræmi við aukin verkefni
Verið að boða um
700 manns á fundl
Um þessar mundir er flokks-
skrifstofa Alþýðubandalagsins að
senda fundarboð til um 700
félagsmanna i flokknum í sam-
bandi við fimm meiriháttar ráð-
stefnur og fundi sem framundan
eru i flokksstarfinu á næstu
tveimur mánuðum. Hér er um að
ræða m.a. landsfund ungra
sósialista, ráðstefnu um sveitar-
stjórnarmál, ársfund verkalýðs-
málaráðs og flokksráðsfund.
Tvennar kosningar og rikis-
stjórnarmyndun hafa að verulegu
leyti gjörbreytt verkefnum Al-
þýðubandalagsins og undirstrik-
að forystuhlutverk þess á mörg-
um þjóðfélagssviðum. Þessi
breyttu viðhorf kalla á stóraukið
flokksstarf og á opnu blaðsins i
dag er fjallað um undirbúning
framkvæmdastjórnar og skrif-
stofu Alþýðubandalagsins að
þessum auknu verkefnum.
Sjá opnu
Miöstj órnarfundur
Fundur er boðaður i miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins föstudaginn 20. október kl. 20.30 að
Grettisgötu 3.
Dagskrá:
1. Undirbúningur og ákvörðun um flokksráösfund.
2. Onnur mál
3. Ráðherrar flokksins sitja fyrir svörum
Lúðvik Jósepsson.