Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 17. október 1978 ÞJÓDVJLJINN — SIÐA 3 Skæruliðar Mugabes gera sprengiuárás á Umtali á meðan Ian Smith reynir að afla sér stuðnings í Bandarikjunum SALISBURY, 16/10 (Reuter) — 1 gærkveldi gerðu skæruliðar sprengjuárás á borgina Umtaii i Ródesiu. Aögeröir þessar fylgja i kjölfar innrásar hermanna Robert Mugabe foringi skæruliöa sem aösetur hafa f Mósambik. minnihlutastjórnar hvitra manna inn I Mósambik fyrir þremur vik- um, er hundruö skæruliöa voru myrt og bækistöövar þeirra eyöi- lagöar. Arásin var gerð frá svipuöum staö og sú sem gerö var 7. september. Skæruliöar undir for- ystu Roberts Mugabe fram- kvæmduhana, en þeir hafa aöset- ur innan landamæra Mósambik. Umtali er þriöja stærsta borg Ródesiu og liggur skammt frá Mósambik. Nokkrir menn særö- ust i árásinni, en enginn alvar- lega. Um þessar mundirer Ian Smith forsætisráöherra Ródesiu stadd- ur I Bandarikjunum, en þangaö var honum hleypt til aö skýra stefnu sina. Vesturveldin vinna nú aö þvi aö koma á viöræöum núverandi valdhafa i Ródesíu og Fööurlandsfylkingarinnar Nóbelsverðlaun í hagvísindum veitt bandariskum prófessor í tölvutækni og sálfrœöiy Herbert A. Simon STOKKHÓLMI, 16/10 (Reuter) — I dag var tilkynnt i Stokkhólmi, hver hlyti Nóbelsverölaun i hag- visindum að þessu sinni. í ár er það Bandarikjamaöur aö nafni Herbert A. Simon sem hlýtur þessa viðurkenningu. Simon er fæddur i Wisconsin- fylki fyrir sextiu og tveimur árum. Tuttugu og sjö árum slðar lauk hannprófi i stjórnvisindum. Nú kennir hann tölvisindi og sál- fræði viö Carnegie-Mellon há- skóla I Pittsburg. Ariö 1946 kom út bók eftir hann, þar sem hann sagöi fyrirtæki samsett af likamlegum, persónu- legum og félagslegum andstæö- um sem haldiö væri saman með sambandi þeirra á milli og vilja þeirra til að stefna aö sameigin- legu marki. Meö þeim oröum hafnar hann þeirri kenningu, að eigandi fyrirtækis eigi einungis aðhugsa um gróöa, og tekur hann atvinnulff iö frekar fyrir, eins og þaö er i eöli sínu. Meö tilkomu stærri fyrirtækja, sem leysa þau smærri af, breikki biliö á milli eigenda og þess sem raunverulega stjórnar þvi. Sam- keppni um útþenslu og verö hafi látiö undan samkeppni um gæöi og þjónustu. Skoöun hans mun vera sú, aö þeir, sem ákvaröanir taka i rekstri fyrirtækja, hafi of tak- markaðan skilning á persónu- legum sem félagslegum af- leiöingum ákvaröana þeirra. Ndbelsverölaunin i hagvis- indum uröu fyrst til áriö 1968 aö tilstuölan sænska rikisbankans sem þá fagnaöi þrjúhundruö ár'a afmæli sinu. Að þessu sinni nema þau um það bil fimmtiu miljónum is- lenskra króna. Markið hækkar en dollarinn heldur áfram að lækka BONN, 16/10 (Reuter) — Vest- ur-Þjóðverjar ákváöu i gær aö hækka gengi þýska marksins, til aö koma mætti á betra jafnvægi á gjaldeyrismarkaönum. Markið mun hækka um fjóra af hundraöi gagnvart gjaldmiöli Dana og Norðmanna, en um tvo af hundraöi gagnvart hollensku gyllini, belgiskum franka og gjaldmiöli Luxemborgara. Þegar fréttist aö þýska markið yröi hækkaö féll dollarinn enn meir, en japanski jenið styrktist i stöðu sinni, gagnvart honum. A föstudaginn var bandariski dollarinn jafnviröi 186.70 jaia, en var i dag aöeins sem nemur 185,30. Pólskur páfí VATIKANIÐ, 16/10 (Reuter) —í dag gerð- ist sá einstæði atburður að páfi var valinn, en ekki úr röðum italskra kardinála eins og venja hefur verið i fjórar ald- ir. Pólski kardinálinn Wojtilla i Krakow var valinn eftirmaður Jóhannesar Páls 1. sem lést snögglega 29. sept- ember siðast liðinn. Siðasti páfi, sem ekki var af itölskum ættum, var Adrian 6., en hann tók við embætti árið 1542. Wojtifla valdi sér páfanafnið Jóhannes Páll 2. til heiöurs hinum nýlátna fyrirrennara sinum. Hann er fæddur 18. mai 1920 og er þvi fimmtíu og átta ára aö aidri. A námsárum sinum er hann sagður hafa leik- iö i „avant-garde” (framúr- stefnu) leikhóp og ort ljóð. í heimsstyrjöldinni siðari, var hann sendur i þrælkunarbúöir, þegar nasistar hertóku Pólland. Upp úr þvf mun hann hafa snúiö sér að kirkjunnar málum. A hann var minnst fyrir kjör Jóhannesar Páls 1. en engum datt hann i hug fyrir þessar kosningar. Frehen biskup sagði: Kaþólski biskupinn á tsiandi, Hinrik Frehen, var spurður álits á úrslitum páfakjörsins, sem kunngerö voru í dag. Sagöist hann litib geta sagt um hinn nýja páfa, þar sem hann þekkti ákaflegalitiötilhans. Kjör hans hefði veriö óvænt og augu fölks þvi ekki beinst aö honum sér- staklega, fyrr en I dag. Hann kvaö þetta þó einstakan atburö, þar sem brotin væri fjögurra alda hefö I vali páfa, i sambandi viö þjóöerni þeirra. Frehen var búsettur i Róm, þegar Wojtilla var útnefndur kardinali i Karkow, og rak þann minni til þess aö kjör hans heföi verið álitið sem mótvægi viö Wyszynski kardinála i Varsjá, en hann mun hafa verið talinn full ósveigjanlegur i samskipt- um kirkju og stjórnvalda. I þágu bættra samskipta Vati- kansins og Austur-Evrópu- landa, var taliö ráðlegt aö velja frjálslyndan kardinála i Karkow. Frehen treystisér þóekki til að dæma til um hvort Wojtilla heföi reynst eins „framfarasinn- aöur” og talið var I fyi'stu. á \ V>(að At- et . (i t i w Eflum íslenskan iðnað Engum dylst að hlutur islensks iðnaðar verður æ stærri og mikil- vægari i rekstri þjóðarskútunnar. ómissandi þáttur i vexti hans og framgangi er sérrit um iðnaðar- mál sem flytur reglulega fréttir af tækninýjungum og nýjum viðhorf- um. Iðnaðarblaðið stefnir að þvi að efla iðnaðarmenningu og tækniþróun á tslandi. Það aflar frétta erlendis frá um nýjungar og tækni i iðnaði, það birtir sérfræðigreinar um ýmis málefni iðnaðar og kynnir nýjung- ar i iðnaði hér innanlands, auk greina um rannsóknir og tilrauna- starfsemi. Ert þú áskrifandi að Iðnaðarblaðfnu? ----------------------------------------------| Til Iönaöarblaösins, Armúla 18, 105 Reykjavik I Oska eftir áskrift. Nafn Ileimiiisfang v Sírni fóna&arMafó Askriftarsímar 82300 og 82302

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.