Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓDVILJINP/ Þriðjudagur 17. október 1978
Mikill
sigur
KR-inga
Unnu stúdenta
100:79
A sunnudag léku KE og 1S i
Crvaisdeildinni i körfuknatt-
leik.
t nýafstöbnu Reykja-
vikurmóti báru stúdentar
hærri hlut i viðureign lið-
anna, en nú reyndust KR-
ingar þeim ofjarlar og unnu
auðveldan sigur.
1 fyrri hálfleik hafði 1S þó
lengst af örlitla forystu, en
undir lok hans jöfnuðu KR-
ingar og i leikhléi höfðu þeir .
tveggja stiga forskot, 41:39.
Hafði Hudson þá skorað 24
stig fyrir KR, eða riflega
helming allra stiga liðsins.
Einnig náði Dunbar sér oft
vel á strik og sýndi, hve frá-
bæra knattmeöferð hann
hefur og gott auga fyrir
skemmtilegum samleik.
f siðari hálfleik rauk öll
barátta og ieikgleði stúdenta
út i veður og vind. Þeir
horfðu hver á annan meðan
KR-ingar röðuðu stigunum á
töfluna. Þeir komust fljót-,
lega i 47:41 og litlu siöar var
staðan orðin 65:49, og enn
áttu þeir eftir að auka mun-
inn eins og lokatölur leiksins
sýna.
Það hlýtur að verða stú-
dentum nokkurt umhugsun-
arefni, hvernig hægt er að
missa einn leik svo út úr
höndum sér. Eins og áður
segir var augljóst, að þá
skorti alla leikgleði i siðari
hálfleik. Varnarleikur jafnt
og sóknarliekur voru í mol-
um.
Engu var likara en þeir
ætluðu Dunbar að sigra leik-
inn upp á eigin spýtur. Það
var ekki ósjaldan, að þegar
hann prjónaði sig inn I vörn
KR, þá drógu engir sig til
baka til að varna KR-ingum
hraðaupphlaupum. Einnig
dreifðu þeir spilinu litið og
langskot sáust varla.
Allur annar bragur var á
leik KR-inga. Þeir nýttu völl-
inn vel, voru óragir við lang-:
skot og teymdu andstæðing-
ana þvi fram og til baka i
vörninni. Með þessu móti
gáfust Hudson góö tækifæri
til að hirða sóknarfráköstin.
Einnig náði hann flestum
varnarfráköstunum, þar
sem liðsmenn hans stigu stú-
denta vel út ogTékk hann þvi
oftast frið til athafna.
Flest stig KR skoraði Hud-
son eöa bvorki meira né
minna en 42. Jón Sigurðsson
kom næstur með 22 stig og
sýndi afbragðs leik. Einar,
Gunnar Jóakimsson, Krist-
inn Stefánsson og Eirikur Jó-
hannesson skoruöu 6 stig
hver, en aðrir minna.
Dunbar var stigahæstur tS
með 35 stig og næstir honum
komu Jón Héöinsson, Steinn
Sveinsson og Ingi Stefánsson
og skoruðu þeir 6 stig hver.
Jón Oddsson frjálsíþrótta-^
maöur vestan af Isafirði er'
byrjaöur að leika með IS.
Þar er maður, sem býr yfir
gifurlegum krafti, og ef rétt •
veröur á málum haldið ætti
hann að geta orðið einhver
allra besti hraðaupphlaups-
maöur i islenskum körfu-
knattleik.
Fyrstu leikir
I úrvals-
deildinni
Klukkan 14.00 á laugar-
dag mættust Valur og Þór í
Hagaskóla og á sama tíma
léku UMFN og IR i Njarð-
vík. Opnuðu þessi lið hina
nýstofnuðu úrvalsdeild í
íslenskum körfuknattleik.
Framan af i fyrri hálfleik höfðu
Þórsarar forystu i leiknum við
Val, en þegar siga tók að hléi
hafði Valur náð öruggum tökum á
ieiknum og i hléinu var staðan
55:46 fyrir þá. i síðari hálfleik
varð engin breyting á og öruggur
sigur Vals óumflýjanlegur,
101:89.
Norðanmenn komu ákveðnir til
leiksins og um miðjan fyrri hálf-
leik höfðu þeir skorað 19 stig gegn
16 stigum Vals. Slik forysta telst
þó mjög naum I körfuknattleik og
t)r leik Vals og Þórs. Torfi Magnússon og Jón Indriðason berjast um
knöttinn. Liósmynd: GIsli Fr.
Námskeid
knattspyrnu-
þjálfiara
20.-22.
október
Tækninefnd KSÍ og KÞÍ
gengst fyrir fræðslunám-
skeiði fyrir alla islenska
knattspyrnuþjálfara, sem
lokið hafa einhverjum af
þjálfaranámskeiðum KSÍ
eða iþróttakennaraprófi.
Námskeiðið, sem er i senn
verklegt og fræðilegt, verður
haldið i Kennaraháskóla is-
lands dagana 20., 21. og 22.
október n.k. og hefst þann 20.
kl. 9.30.
Landsliðsþjálfarinn, dr.
Youri Ilichev mun halda
fyrirlestra á námskeiðinu
m.a. um nýjustu sjónarmið i
leikaðferðum og leikkerfum.
Knattspyrnuþjálfarar eru
beðnir að tilkynna þátttöku i
sima 83386 eigi siðar en n.k.
fimmtudag.
Valur og UMFN sigruðu
fljótlega úr þessu tók að halla á
Þór. Var þar fyrst og fremst um
að kenna ótimabærum lang-
skotum Þórsara, sem fæst rötuðu
rétta leið. Fram hjá hinu
verður þó ekki gengið, að Vals-
arar léku af miklu öryggi og voru
þeir Tim Dwyer og Þórir nær
óstöðvandi.
Strax i siðari hálfleik juku
Valsmenn forskotið með 7 stigum
Kristjáns Agústssonar I röð, án
þess að Þór tækist að svara fyrir
sig og staðan orðin 62:46. Hélst
þessi munur svo til leiksloka.
Þessi sigur Vals kom ekki á
óvart. A dögunum sigraði liðið
Reykjavikurmótið á mjög sann-
færandi hátt og virðist ekki siðra
nú en i fyrravetur. Tim Dwyer
fellur vel inn i liðsheildina og er
sterkur bæði i vörn og sókn. Þórir
Magnússon er mjög sterkur um
þessar mundir og sýnir oft
snilldar tilburði. Siðast en ekki
sist er öryggi Kristjáns Agústs-
sonar mjög mikið og bregst
honum varla bogalistin undir
körfunni.
Sjálfsagt er varlegast að biða
enn um sinn með mat á liði Þórs,
þó verður ekki hjá þvi komist að
minna á, hve skotgleði sumra
þeirra var mikil i leiknum,
einkum Jóns Indriðasonar. Hittni
þeirra var ekki að sama skapi
mikil.
Þórir var stigahæstur Vals-
manna, skoraði 27, Kristján skor-
aði 25 og Dwyer kom næstur þeim
með 23 stig.
Mark Christensen skoraði 27
stig fyrir Þór, Jón Indriðason 22
og Eirikur Sigurðsson 18, aðrir
minna.
UMFN marði sigur yfir ÍR
IR-ingar áttu ekki góðu gengi
að fagna i Reykjavikurmótinu á
dögunum, enda lagði þjálfarinn
. litið kapp á það mót heldur
stefndi að góðri frammistöðu á
Islandsmótinu. Leikurinn við
Njarðvikinga var besti leikur IR
á þessu hausti og virðist sem liðið
sé að smella saman. Vendipunkt-
Undanfarið hafa Þór og Breiöa-
blik ást við á ritveliinum, en ekki
er ætlunin að rifja það upp hér. A
laugardaginn áttust þeir hins
vegar viö á leikvellinum og að
þeirri viðureign verður hér vikið
nokkrum orðum. Leikur þessi var
háður til að skera úr um það,
hvort liðið hlyti rétt til keppni I 2.
deild lslandsmótsins I handknatt-
leik I vetur. Leikurinn var háður á
Akureyri og er skemmst frá þvl
að segja, að Þór sigraði með 17
mörkum gegn 15.
I upphafi leiksins komust
Breiðabliksmenn i 5:3 og héldu
siðan forystu fram i miðjan fyrri
ur leiksins var, þegar um íu
minútur voru til leiksloka, þá var
staðan 70:69 fyrir IR-inga, en á
næstu minútum skoruðu þeir
aðeins 2 stig gegn 10 stigum
Njarðvikinga, sem með þessu
gerðu út um leikinn. Loka-
tölurnar urðu 97:94.
Njarðvikingar höfðu þó forystu
i leiknum utan þetta eina skipti og
mest var hún 10 stig. I leikhlé var
staðan 46:39 Njarðvikingum i vil.
1 siðari hálfleik jöfnuðu IR-ingar
hálfleikinn. Þá tókst Þdrsurum að
jafna og hélst leikurinn siðan i
jafnvægi fram að leikhléi, en rétt
áöur en flautað var skoraði Þór
sitt 11. mark og staðan 11:10.
Fyrstu 12 minúturnar i siðari
hálfleik gerði hvorki að ganga né
reka. Tókst hvorugu liðinu að
skora mark allan þennan tima.
Afganginn af leiknum notaði Þór
siðan til að skora 6 mörk, en
Breiðabliksmenn nýttu hann að-
eins til 5 marka og þvi fór sem
fór.
Þórsarar áttu i mjög miklum
erfiðleikum með þá Hörð Má og
Kristján Gunnarsson, sem skor-
leikinn smám saman, en Njarð-
vikingar létu ekki að sér hæða og
náðu, sem áður getur, mjög
góðum leikafla og reyndist 1R um
megn að brúa bilið eftir það.
Að sögn fellur Ted Bee vel inn i
lið sunnanmanna, styrkir liðs-
heildina en sker sig ekki úr. Hann
átti ágætan leik og skoraði 29 stig.
Næstur kom Gunnar Þorvarðar-
son með 18 stig.
Flest stig IR-inga gerði Paul
Stewart, eða 37 og næst flest
Kristinn Jörundsson, 22.
uðu 7 mörk hvor fyrir Breiðablik.
Gripu þeir til þess ráðs að taka þá
félagana úr umferð og þétta vörn
sina til muna. Varð þetta Þór til
bjargar þar sem sóknin var allan
timann i molum hjá liðinu.
Breiðablik fékk 6 viti og tókst
ekki að nýta nema tvö þeirra.
Þór skoraði einnig úr tveimur vit-
um, en fékk 4 dæmd.
Arnar Guðlaugsson þjálfari
Þórs og Sigtryggur Guðlaugsson
voru markahæstir Akureyringa,
Skoruðu 6 mörk hvor. Næstur
þeim kom Sigurður Sigurðsson
með 3 mörk.
Þór í aðra deild
Sigraði Breiðablik um helgina
Júgóslavar
A laugardag sigruðu Júgó-
slavar Sovétmenn i úrslitaleik
hei m s m eistara keppninna r I
körfuknattleik. Eftir venjulegan
lciktima var staöan jöfn 73:73
og þvi þurfti að framlengja leik-
inn. Þá tókst Júgóslövum að
knýja fram eins stigs sigur,
82:81. Fjölmargir áhorfendur
voru aö þcssum æsispennandi
leik og þeirra á meðal Anatoly
Karpov, sem tók sér fri frá ekki
siður spennandi keppni við
Kortsnoj.
Dragan Dalipagic átti nú enn
einn stórleikinn i liði Júgóslava
og skoraði 21 stig. Nafni hans
Kicanovic gerði 17 stig og var
sigruðu
næst stigahæstur Júgóslavanna. ’
Flest stig Sovétmanna skoraði
‘Vladimir Tkachenco, 14. Þeii
Belov og Salnikov skoruðu 12
stig hvor.
Bronsið i keppninni' hreppti
Brasilia, sem vann nauman
sigur á Italíu, 86:85. Kanada-
menn lentu i 5. sæti, en um það
kepptu þeir við Bandarikja-
menn og sigruðu með 94 stigum
gegn 86. Astralia hafnaði siðan i
7. sæti og Filipseyingar i hinu 8.
Röð liðanna frá 9-14 varð
þessi: Tékkóslóvakia, Puerto
Rico, Kina, Dominikanska
lýðveldið, Suður-Kórea og
Senegal.