Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 17. október 1978 DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs hreyfingar og þjóðfrelsis L’tgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- uröardóttir, Guðjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson. Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta- fréttamaöur: Asmundur Sverrir Pálsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur, Blaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar, öskar Albertsson. Safnvörður: Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: Kúnar Skarphéöinsson, Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir Skrifstofa: Guörún Gúövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson. Kristln Pétursdóttir. Sfmavarsia: Olöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Kitstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6. Reykjavlk, slmi 81333 Prentun: Blaöaprent h.f. Bingóblööin og tíu króna stríðið Tíu króna stríðið geisar á síðum síðdegisblaðanna. Líkt og krossfararnir á miðöldum berjast riddarar bingó- blaðanna fyrir háleitum markmiðum. Prentfrelsið er sumsé í hættu, stjórnarskráin hef ur verið vanvirt og við- skiptaráðherra ætlar með austantjaldsaðferðum að koma f ram skoðanakúgun á vegum þess illræmda félags sem kennt er við samtryggingu stjórnmálaflokkanna. Án tíkalls ekkert frelsi. Hlutföllin íþeirri sameiginlegu herferð sem ritstjórar og forráðamenn bingóblaðanna hafa hrint af stað fyrir frjálsri verðlagningu á blöðum eru brosleg og ekki innan ramma þess sem skynsamlegt getur talist. Þjóðviljinn hefur aldrei verið þrælbundinn markaðs- lögmálunum vegna þess stuðnings sem hann nýtur af framlögum lesenda sinna og velunnara i árvissum f jár- hagserfiðleikum. Samt sem áður getur blaðið vel fallist á það sjónarmið að óskynsamlegt sé að láta dagblöðin gjalda jóess að hækkun á þeim hafi áhrif á framfærslu- vísitöluna. Þjóðfélagsleg staða og þýðing blaðanna er slik að þau ættu að hafa nokkra sérstöðu. Hitt hlýtur að vera sanngirnismál að tillit sé tekið til þess að núverandi rikisstjórn hef ur bundið sig við að halda niðri verðhækk- unum. í sjónvarpsþætti fyrir helgina lýsti viðskiptaráð- herra yf ir því að hann hefði notaðaðstöðu sína til þess að knýja fram hækkun á verði dagblaðanna meðan nánast er setið á öllum öðrum hækkunarbeiðnum. Samt sem áður líkir talsmaður bingóblaðanna ráð- herranum við Indiru Gandhi og Pahlevi Rheza (rans- keisara i afstöðu sinni til frjálsrar pressu. Það liggur auðvitað i augum uppi að eigi að taka blöðin út úr vísitölu hlýtur það að taka töluverðan tima og hljóta sínu þing- legu meðferð. í stað þess að fallast á slík sjónarmið og taka þátt í viðræðum við ríkisstjórnina um samskiptamál ríkis og dagblaða lætur Dagblaðs-Jónas hafa sig út í pólitíska herferð gegn viðskiptaráðherra að undirlagi flokkspóli- tíkusanna og heildsalanna í stjórn Reykjaprents. Það er ekkert smdvegis vfxlspor hjá Dagblaðsmönnum að ganga þannig til liðs við kúgara sinn ,, Vísis-maf íuna” og treysta á að þeim hlotnist nýtt píslarvætti í tíu króna stríðinu við viðskiptaráðherra. „Staiinisk frjálshyggja" hef ur það viðhorf verið nefnt erlendis þegar því er haldið fram að markaðslögmálin eigi alfarið að ráða því hverjir lifa og deyja á blaða- markaðinum. Ekki er annað að heyra á talsmönnum síðdegisblaðabandalagsins en þeim fyndist ekkert við það að athuga þótt þeim tækist að ná einokun á íslenskum blaðamarkaði með auglýsingaskrumi, sjálfs- hóli, bílahappdrættum og bingói. Gegn stalínískri frjálshyggju á blaðamarkaði hefur verið teflf rökum um rétt þjóðfélagsþegna til þess að velja úr f jölbreyttum blaðakosti, f lokkspólitískum og óbundnum, svo og því sjálfsagða viðhorfi að stjórn- málahreyfingum sé nauðsyn að koma stefnumálum sinum á framfæri án þess að eiga allt sitt undir „frjálsum" gróðarekstri á dagblöðum. Niðurstaða umræðna um þessi mál í nágrannalöndum okkar, t.d. annarsstaðar á Norðurlöndum, hefur leitt til þess að ríkisvaldið þar lítur á það sem skyldu sína að tryggja þessi markmið með skatta- og gjaldskrárívíln- unum, niðurgreiðslum á blaðapappír, hagstæðum lána- kjörum og beinum styrkjum til blaða sem standa höllum fæti i samkeppni. Hvernig menn geta komist að þeirri niðurstöðu,að slikar opinberar aðgerðir til þess að tryggja frjáls skoðanaskipti séu tilræði við lýðræðið/flokkast undir yfirskiIvitlega hluti. Enda bendir ekkert til þess að lýðræðið standi höllum fæti í Noregi og Sviþjóð þótt þar tíðkist opinber stuðningur við pressuna. Þvert á móti. Hér þurfa íslensk dagblöð þessutan að standa í sam- keppni við ríkisf jölmiðlana um auglýsingar, en fá ekki krónu fyrir veitta þjónustu við þessa samkeppnisaðila sina, og allsenga opinbera styrki. Umræða bingóblaðanna um þessi mál er gjörsamlega á haus miðað við það sem annarsstaðar tiðkast. Þeim væri nær að sameinast viðleitni morgunblaðanna til þess að knýja á um réttlátari verðlagningu samhliða úrbótum i samskiptamálum ríkis og dagblaða. —ekh Hvenœr getur stjórnar- andstaðan hafist? „Stjórnarandstaðan er byrj- uð” segir höfundur ritstjórnar- greinar Visis í gær og er þaö honum fagnaðarefni að vonum. Það er hinsvegar afar kostulegt aö stjórnarandstaöan upphefst ekki úr þeirri átt sem menn áttu heist von á heldur úr „stjórnar- andstöðudeild” Alþýðuflokksins sem hefur lýst yfir þvi að hún sé andvig vaxtastefnu rikis- stjórnarinnar og hyggist leggja fram frumvarp um raunvexti. Stærsti stjórnmálaflokkur landsins sem nú er i stjórnar- andstöðu virðist hinsvegar van- hæfur um að hefja stjórnarand- stööu eða standa i henni yfirleitt vegna magnaðra innanflokks- deilna. „Ekkert nema guð almáttug- ur getur bjargað þessum mönn- um”, sagði óánægður Sjálf- stæðismaður við klippara i gær. Þeir hafa nú haft úrslit próf- ikjörsins i vor að engu með þvi að fella Albert Guðmundsson úr þeim nefndum sem hann sóttist eftir. Með þvi eru þeir ekki að- eins að lýsa frati á Albert heldur alla þá kjósendur Sjálfstæðis- flokksins sem unnu að þvi að gera Albert að efsta manni framboðslista Sjálfstæðis- flokksins i Reykjavik við kosn- ingarnar. Þetta er svo dæma- laus vitlaus framkoma að hún hlýtur að leiða til fylgishruns. j Geir beitir j liðsforingjunum Við verðum að vanda valið með þvi að hafa þig ekki með i neinu. grimsson formaður Sjálfstæðis- flokksins fram sem sáttasemj- ari i þeim hatrömmu deilum sem innan þingflokksins geisa. Hann beitir þó liðsforingjum sinum Ragnhildi Helgadóttur og Eyjólfi Konráö Jónssyni til þess aö knýja fram atkvæðagreiðslu um nefndakjör innan þing- flokksins i stað þess að leita sátta og samninga. Tilraunir þessara liösforingja Geirs virð- ast miða að þvi að Albert Guð- mundsson fái enga viðurkenn- ingu á þvi að hann er fyrsti þingmaður Reykvikinga. I stað þess er tveimur Reyknesingum tryggð seta i fjárhags- og við- skiptanefnd neðri deildar og Reykjavik fær þar engan full- trúa enda þótt þingmenn Reyk- vikinga séu fjórðungur þingliös Sjálfstæðisflokksins. Það bætir svo gráu ofan á svart að átök standa um kjör Gunnars Thoroddssens i þing- flokksformennsku sem hann hefur gegnt. Meðan það mál stendur i járnum og er ekki út- kljáö er ekki von að Sjálfstæðis- flokkurinn geti snúið sér að þvi Útávið kemur Geir Hall- að sinna stjórnarandstöðuhlut- verki sinu. Lítill matur í liðinni sögu Raunar má ætla aö núverandi rikisstjórn verði alfarið að treysta á stjórnarandstöðudeild Alþýðuflokksins til þess að fá upp andstæð viðhorf og umræðu um verk sin. Og væri það ekki i fyrsta sinn sem kratar taka ómakiö af ihaldinu. Það er svo býsna kátlegt þeg- ar svona er i pottinn búið hjá f- haldinu þegar Morgunblaöið loksins rumskar og fer að ræöa um að Lúövik og Geir Gunnars- son hafi tekiö Alþýðubandalags- strákana i ráðherrastólunum i karphúsiðfyrirað hafaætlaö að láta Tómast Arnason plata sig til þess að leggja fram fjárlaga- frumvarp i upphafi þings án samráðs við þingflokkana. Talið um yfirráðherra og valda- leysi ráðherranna kemur um það bil tveimur vikum of seint fram i dagsljósið, þaö er eftir aö flokkarnir þrir sem að rikis- stjórninni standa voru búnir aö koma sér saman um hvernig vinna ætti að framlagningu fjárlagafrumvarpsins. Og rikisstjórnin þarf við það að glima að samræma sjónar- mið ráðherra þriggja flokka og þriggja stjórnmálaflokka þann- ig að togstreita og ágreiningur um leiöir hlýtur að vera nánast daglegt brauð á stjórnarheimil- inu. En þeir sem ekki einu sinni geta byrjaö stjórnarandstöðu vegna innanflokksilldeilna og átaka um persónur ættu ekki að breiða yfir eigin vanmátt meö upphrópunum um vandamál annarra. Sérstaklega ekki þeg- ar þau eru liðin saga. —ekh. | Nefndaskipan Alþingis I gær fór fram kosning f allai fastanefndir Alþingis, nema fjár veitinganefnd sem að ósk rikis- stjórnarinnar var samþykkt aö fresta með 54 samhljóöa atkvæö- um. Þessikosningáttiupphaflega aðfara fram s.l. fimmtudag en þá var þingfundi frestaö aö ósk Sjálfstæöisflokksins, eins og kunnugt er. I upphafi þingfundarins minnt- ist forseti sameinaös þings. Gils Guðmundsson látins lýrrverandi alþingismanns, Siguröar Ingi- mundarsonar forstjóra, sem and- aðist I Landsspttalanum s.l. föstudag hinn 13. október, 65 ára aö aldri. Er þingmenn höföu vott- aö hinum látna viröingu sina meö því aö rlsa ur sætum var gengið til kosninga i fastanefndir sam- einaös þings, aö undanskilinni fjárveitinganefnd, og fara niöur- stööur kosninganna hér á eftir. Utanríkismálanefnd Aðalm.: Einar Agústsson (F), Gils Guðmundsson (Abl.), Ami Gunnarsson (Alþfl.), Jónas Arna- son (Abl.), Vilmundur Gylfason (Alþfl.), Ragnhildur Helgadóttir (S) og Friöjón Þórðarson (S). Varam.: Ingvar Gislason (F),' Svava Jakobsdóttir (Abl.), Karl Steinar Guðnason (Alþfl.), Kjart- an Ólafsson (Abl.,), Finnur Torfi Stefánsson (Alþfl.), Geir Hall- grimsson (S) og Eyjólfur K. Jóns- son (S). Atvinnumálanefnd Björn Jónsson (Alþfl.), Þórarinn Sigurjónsson (F), Kjartan ólafs- son (Abl.), Jóhanna Sigurðar- dóttir (Alþfl.), Stefán Valgeirsson (F), Jón G. Sólnes (S) og Friörik Sophusson (S). Allsherjarncfnd Páll Pétursson (F), Jónas Arnason (Abl.), Vilmundur Gylfason (Alþfl.), Ólafur Ragnar Grímsson (Abl.), Gunnlaugur Stefánsson (Alþfl.), Lárus Jóns- son (S) og Ellert B. Schram (S). Kosning f þingfararkaupsnefnd var annaö mál á dagskrá og i henni hlutu sæti: Garöar Sigurös- son (Abl.), Arni Gunnarsson (Alþfl.), Ingvar Gislason (F), Stefán Jónsson (Abl.), Eiður Guðnason (Alþfl.), Sverrir Her- mannsson (S) og Friöjón Þóröar- son (S). í fastanefndir efri deildar voru eftirfarandi þingmenn kjörnir: Fjárhags- og viöskiptanefnd: Lúðvík Jósepsson (Abl.), Finnur TorfiStefánsson (Alþfl.), Halldór E. Sigurðsson (F), Kjartan Ólafs- son (Abl), Vilmundur Gylfason (Alþfl.), Matthias A. Mathiesen (S) og Ólafur G. Einarsson (S). Samgöngunefnd: Halldór E. Sigurösson (F), Garöar Sigurðs- son (Abl.), Arni Gunnarsson (Alþfl.), Kjartan ólafsson (Abl.), Finnur Torfi Stefánsson (AlþfU, Friöjón Þórðarson (S) og Sverrir Hermannsson (S). Landbúnaöarnef nd: Stefán Valgeirsson (F), Eðvarö Sigurös- son (Abl.), Finnur Torfi Stefáns- son (Alþfl.), Þórarinn Sigurjóns- son (F), Lúövik Jósepsson (Abl.), Pálmi Jónsson (S) og Eggert Haukdal (S). Sjávarútvegsnefnd: Sighvatur. Björgvinsson (Alþfl.), Garðar Sigurðsson (Abl.),Páll Pétursson (F), Eiöur Guönason (Alþfl.), Lúövík Jósepsson (Abl.), Matthi- as Bjarnason (S) og Sverrir Her- mannsson (S). Iönaöarnefnd: Kjartan Ólafs- son (Abl.), Arni Gunnarsson (Alþfl.), Ingvar Gislason (F.), Eðvarö Sigurðsson (AbU, Gunn- laugur Stefánsson (A.þfl.) Gunn- ar Thoroddsen (S) og Jósep H. Þorgeirsson (S). Félagsmálanefnd: Jóhanna Siguröardóttir (Alþfl.), Stefán Valgeirsson (F), Eðvarð Sigurðs- son (Abl.), Gunnlaugur Stefáns- son (Alþfl.), Páll Pétursson (F), Gunnar Thoroddsen (S) og Egg- ert Haukdal (S). Heilbrigöis-og trygginganefnd: Einar Agústsson (F), Jónas Arnason (Abl.), Jóhanna Sig- urðardóttir (Alþfl.), Garðar Sig- urðsson (Abl.), Vilmundur Gylfa- son (Alþfl.), Matthias Bjarnason (S) og Jósep H. Þorgeirsson (S). Menntamálanefnd: Svava Jakobsdóttir (Abl.), Eiður Guðnason (Alþfl.). Ingvar Gisla- son (F), Jónas Arnason (Abl.), Sighvatur Björgvinsson (Alþfl.), Ellert B. Schram (S) og Friðrik Sophusson (S). Allsherjarnefnd: Vilmundur Gylfason (AlþfU, Svava Jakobs- dóttir (Abl.), Einar Agústsson (F), Arni Gunnarsson (AlþfU, Gils Guðmundsson (Abl.), Matthias A. Mathiesen (S) og Friörik Sophusson (S). I neðri deilder nefndaskipan eft- irfarandi: Fjárhags- og viöskiptanefnd : Jón Helgason (F), Karl Steinar Guðnason (Alþfl.), ólafur Ragn- ar Grimsson (Abl.), Björn Jóns- son (Alþfl.), Geir Gunnarsson (AbU, Jón G. Sólnes (S) og Eyjólfur K. Jónsson (S). Framhald á bls. 14

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.