Þjóðviljinn - 07.12.1978, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 07.12.1978, Qupperneq 13
Fimmtudagur 7. desember 1978ÞJÓDVILJINN — SIÐA 13 Tsjekhov les Máfinn fyrir leikara Listaleikhússins I Moskvu ári6 1898. útvarp kom hann þvi til leiðar, aö Máfurinn var tekinn upp af Lista- leikhúsinu i Moskvu. Hann var sjálfur annar af forustumönnum leikhússins, ásamt leikstjóranum Stanislaskij, sem enn þann dag i dag er talinn einn af áhrifamestu leikhúsmönnum er uppi hafa veriö. Sýning Listaleikhússins á Máfinum varö látlaus sigur- ganga. Móttökurnar sem verkiö Geðshræringin býr í látleysi orðanna Máfurinn eftir Anton Tsjekov, eitt helsta verk rússneskra leikbókmennta Útvarpiö flytur í kvöld kl. 20.15 leikritið „Máfinn” eftir Anton Tsjekhov i þýðingu Péturs Thor- steinssonar. Leikstjóri er Sveinn Einarsson, en meðal leikenda eru Þóra Friöriksdóttir, Arnar Jóns- son, Þorsteinn ö. Stephensen, Gisii Halldórsson, Guðrún Þ. Stephensen og Þorsteinn Gunn- arsson. Leikritið tekup tæpar tvær klukkustundir í flutningi. Otvarpið hefur áður flutt allmörg leikrit Tsjekhovs, nú siðast „Vanja frænda” f október si. Leikfélag Reykjavíkur sýndi Máfinn veturinn 1970-71, undir leikstjórn Jóns Sigurbjörnssonar. í leikskrá eru „Þankabrot um Máfinn” og við tökum okkur þaö bessaleyfi aö birta hér megin- hluta þeirra. Þegar rússneska skáldiö og leiklistarfrömuöurinn Nemirovitj Dantjenkos hlaut Gribojedov- verðlaunin 1897 fyrir besta leikrit ársins, Verömæti lifsins, skrifaöi hann úthlutunarnefndinni og sagöist ekki geta tekiö viö verö- laununum, þar sem miklu merkara verk, Máfurinn eftir Anton Palovitj Tsjekhov, ættu þau óumdeilanlega skiliö. „Hér er á feröinni einstæö perla, hér ris rússnesk leikritun hæst.” Þessi óeigingjörnu orö, eru ekki síöur einstök, ef haft er I huga aö þau koma I kjölfar þess, aö gagnrýn- endur höföu tætt verk Tsjekhovs i sig og þaö kolfalliö á frum- sýningu. Ahorfendur misskildu leikritiö algerlega, hlógu á röngum stööum og sýningin varö hreinn skrlpaleikur. Tsjekhov, sem haföi bundiö miklar vonir viö Máfinn, varö svo sleginn aö hann hét þvi aö skrifa aldrei leikrit framar. Hanh átti þó eftir aö falla frá þessu heiti og skrifa þrjú önn- ur leikrit, sem ásamt Máfinum •eru talin ein þau bestu á rúss- neska tungu. Þó Máfurinn kolfélli á frum- sýningunni I Pétursborg, var aðdáun Nemirovitj-Dantjenkos ódrepandi og tveim árum slöar fékk voru svo fádæma góöar, aö mynd af máfi prýðir siöan for- tjald leikhússins. Þessar tvær litlu sögur benda á þá staöreynd, hve Máfurinn og raunar öll verk Tsjekhovs eru vandmeðfarin I leik. Hve stutt er á milliþess annars vegar, aö yfir- drifa þau og afskræma og hins vegar aö ná þvl og halda þeirri innri spennu sem þau byggja á: meö látlausum og jöfnum leik, án þess aö lama styrk þeirra. Fátt er jafn varasamt I leik og aö básúna þær tilfinningar sem Tsjekhov gæöir persónur sinar. Verk hans eru lygn á yfirboröinu en búa yfir þvi kröftugri undir- öldu. Þjáning þeirra er innhverf. Ljóöræna og hárfin samtöl berá uppi hinn hljóöláta harm þeirra. Geöshræringin býr ekki i upp- þyrluðu oröskrúöi heldur i lát- leysi oröanna sjálfra. Leikrit hans er flautuleikur. Tregafull laglina meö óvæntum gáskafullum tónum. Sjálfur undirtitlaöi Tsjekhov Máfinn sem kómidlu. Margar útskýringar eru til á þessu. Ságt er aö hér gæti áhrifa frá fyrri tilraunum hans á sviöi leikritunar, en trúlegast vildihann meö þessu leggja á þaö áherslu, aö Máfinn bæri hvorki aö skilja né leika sem harmleik. Sjálfur kallar hann leikrit sin I sendibréfi, ljóðræna draumleiki. Þetta undirstrikar þá reynslu sem fengist hefur af sviösetningu á verkum hans, aö þvi látlausari og efnisminni sem leiktjöld og sviösmynd eru, þvi liklegra er aö viö fáum fram ljóörænan draum Tsjekhovs. Leikrit hans eru oröin sjálf. Þar þarf sem minnstu að bæta viö. Verk fárra höfunda hafa oröið jafn vinsæl á Noröurlöndum og Tsjekhovs. Liklega er skýringin á þvi sú aö sál þeirra og andi likist I eöli slnu bókmenntaarfleifö þess- ara þjóöa, Islendingasögunum. Fyrir utan Rússa leika engar þjóöir Tsjekhov meir en Norður- landaþjóöirnar. Verk Tsjekhovs hafa löngum veriöumdeild. Sagt er aö Leo Tol- stoj hafi eitt sinn gert eftirfarandi athugasemd: „Þér vitið þaö, Anton Pavlovitj, aö ég kann ekki aö meta Shakespeare, en yðar leikrit eru ennþá siöri.” En hvaö sem rætt er og ritaö um Máfinn veröur þvl ekki neitaö aö hann er einn af hornsteinum nútlma leikritunar. Klasslskt verk i leikbókmenntunum. Anton P.Tsjekhov Anton Pavlovitsj Tsjekhov fæddist i Taganrog I Suöur- Rússlandi áriö 1960 og lést I Badenweiler I Þýskalandi sum- ariö 1904. Hann var kaupmanns- sonur, tók embættispróf I lækn- isfræði, en stundaöi þó lækning- ar tiltölulega skamman tima. Mest fékkst hann við ritstörf og blaöamennsku, og fyrstu sögur hans birtust einmitt I timarit- um. Tsjekhov haföi nána sam- vinnu viö Listaleikhúsið I Moskvu um margra ára skeiö og kvæntist einni af leikkonun- um þar, Olgu Knipper. „Máfur- inn” er eitt af fjórum hinna „stóru” leikrita hans, sem frumsýnd voru á árunum 1896 — 1904. Það hlaut ekki góöar und- irtektir i fyrstu, en er nú taliö meöal höfuðverka rússneskra leikbókmennta. Anton Tsjekhov. Myndin er tek- in árið 1902. J 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll Heiöar Jónsson og Sigmar B.Hauksson. (8.00 Fréttir) 8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin vali. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Þórir S. Guöbergsson heldur áfram sögu sinni „Lárus, Lilja, ég og þú” (4) 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög: frh. 11.00 Vershm og viðskipti. Umsjónarmaöur: Ingvi Hrafn Jónsson. 11.15 Lestur úr nýþýddum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.40 Kynlif I islenskum bók- menntum. Báröur Jakobs- son lögfræöingur þýöir og endursegir grein eftir Stefán Einarssonprófessor: — fjóröi hluti. 15.00 Miðdegistónleikar: Werner Haas leikur á planó Etýöur op. 10 eftir Chopin / Gerard Souzay syngur laga- flokkinn „Sannar sögur” eftir Ravel: Dalton Baldwin leikur á pianó. 15.45 Brauð handa hungruðum heimi. Þáttur I umsjá Guömundar Einarssonar framkvæmdastj. Hjálpar- stoftiunar kirkjunnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikar 16.40 Lagið mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.20 Lestur úr nýjum barna- bókum. Umsjón: Gunnvör Braga. Kynnir: Sigrún Siguröardóttir. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.40 Daglegt mál Eyvindur Eiriksson flytur þáttinn. 19.45 islenskir einsöngvarar og kórar syngja 20.15 Leikrit: „Mávurinn” eftir Anton Tsjekhoff. Þýö- andi: Pétur Thorsteinsson. Leikstjóri: Sveinn Einars- son. Persónur og leikendur: Arkadina Trépleva leikkona ... Þóra Friöriksdóttir, Kon- statin Trépléff, sonur hennar ... Arnar Jónsson, Pétur Sorin, bróöir hennar ... Þorsteinn ö. Stephensen, Nína Zarétsnjaja, dóttir riks jaröeiganda ... Þórunn M. Magnúsdóttir, Ilja Sjamraéva ráösmaöur ... Gisli Halldórsson, Pálina Sjamraéva, kona hans ... Guörún Þ. Stephensen, Maria, dóttir þeirra ... Kristbjörg Kjeld, Boris Trigorin rithöfundur ... Þor- steinn Gunnarsson, Évgeni Dorn læknir ... Rúrik Haraldsson, Simon Méd- védenko kennari Guömundur Magnúsáon, Aörir leikendur: Sigurður Sigurjónsson og Klemenz Jónsson. 22.10 Kórsöngur: Kór Mennta- skólans við Sund syngur fslensk og erlaid lög. Söng- stjóri: Ragnar Jónsson. Orð kvöldsins á jóiaföstu. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Viðsjá: Friörik Páll Jónsson sér um þáttinn. 23.05 Áfangar. Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. PÉTUR OG VÉLMENNIÐ — II. HLUTI EFTIR KJARTAN ARNÓRSSON

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.