Þjóðviljinn - 29.12.1978, Side 3
Föstudagur 29. desember 1978. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3
Karpov kos-
inn íþrótta-
maður ársins
í Sovét
MOSKVA, 28/12 (Reuter) —
Samtök sovéskra iþróttafréttarit-
ara hafa valið Anatoly Karpov
sem iþróttamann ársins 1978.
Karpov varði heimsmeistara
titil sinn i skák þann 18. október
eftir einvigi við landa sinn Viktor
Kortsnoj.
Houari Boumedienne
forseti Alsír látinn
ALGEIRSBORG, 28/12 (Reuter)
— Houari Boumedienne forseti
Alsirs lést I gær. Banamein hans
var ólæknandi blóðsjtikdómur.
, Enginn veit með vissu hve gamall
Boumedienne var, en sumir giska
á að hann hafi verið um það bil
hálfsextugur er hann lést.
Lik hans liggur nú á viðhafnar-
börum i Þjóðarhöllinni. Forseta-
embættinu gegnir til bráöabirgða
Rabah Bitat forseti þingsins. For-
setakosningarverða aöfara fram
Houari Boumedienne forseti
Alsirs.
ERLENDAR FRÉTTIR
I stuttu
máli
Teknir fyrir njósnir í Perú
LIMA, 28/12 (Reuter) — Utanrikisráðuneytiö i Peró skýrði frá
þvi I gærkveldi að fjórum stjórnarerindrekum frá Chile hefði
verið visaö úr landi fyrir njósnir. Fyrrverandi yfirmaöur úr
fiugher Perú er nú i yfirheyrslum vegna þessa máls. Sögusagnir
herma að hans biði dauðadómur.
Brottvisun fjórmenninganna átti sér stað i nóvembermánuði,
en fyrir tveimur vikum var komið að tveimur löndum þeirra úr
sjóher lands sins þar sem þeir voru að taka ljósmyndir 1 bæki-
stöðvum flughers Perúmanna.
Starfsmenn sendiráðs Chile í Lima vilja ekkert um máliö
segja.
Þjóöirnar tvær háðu fjögurra ára styrjöld fyrir öld siðan, en á
allra siðustu árum hafa þær reynt að bæta samskipti sin.
Francisco Morales Bermudez hershöfðingi, forseti Perú,sagði
fyrir stuttu að þjóð sin ætti ekkert tilkall til lands I Chile þrátt
fyrir að hún hefði misst námuhéraðið Atacama i hendur
Chilemanna i styrjöldinni.
íbúar flýja frá landamœrahéruöum
SAN JOSE, 28/12 (Reuter) — Yfirvöld I Costa Rica hafa farií
þess á leit við Samtök Amerikurfkja, að þau sendi fulltrúa til
landamæra Costa Rica og Nicaragua til að koma i veg fyrir átök
á milli hermanna þjóðanna.
Skærur hafa verið á landamærunum að undanförnu. Yfirvöld i
Nicaragua segja sandinista (skæruliða) gera árásir frá vigi sinu
á grund Costa Rica, en yfirvöld þar neita þeim ásökunum að
segja skotin koma frá Nicaragua.
Ibúar I landamærahéruðum hafa flust frá heimilum sinum
um stundarsakir af öryggisástæðum.
Yfirvöld i Costa Rica slitu stjórnmálasambandi við Nicaragua
i nóvembermánuði þegar tveir lögreglumenn voru drepnir.
Þremur Cézannemálverkum stolið
CHICAGO, 28/12 (Reuter) — Þremur málverkum eftir franska
listmálarann Paul Cézanne hefur verið stoiið úr listastofnun
Chicago-borgar. Málverkin voru geymd á góðum stað sem fáir
höfðu aðgang aö, aö sögn starfsmanns stofnunarinnar.
Málverkin sem horfin eru hétu: Frú Cézanne i gulum hæginda-
stól, Epli á dúk og Hús á fljótinu. Verðmæti þeirra munu nema
um þremur miljónum dollara.
Peningum rigndi yfir vegfarendur
LOS ANGELES, 28/12 (Reuter) — Margur bflstjórinn kleip sig
i handlegginn á hraöbraut i Kaliforniu i gær, þegar þrjú þúsund
dollarar i mynt hrundu út úr bil einum. Þrátt fyrir nistandi sárs-
auka I báðum handleggjum hætti draumurinn ekki. Menn snar-
hemluöu þvi og þustu að rennandi gullkálfinum. t ákafanum
urðu fjölmargir árekstrar þegar fóik þyrptist að i bflum sinum.
Þegar iögreglumenn komu að til að koma ró á höfðu nokkrir
menn slasast.
Þegar peningarnir voru taldir vantaöi 1/6 af myntinni en þaö
samsvarar um hundrað og sextiu þúsundum Islenskra króna.
áöur en 45dagar eru liðnir frá láti
þjóðhöfðingjans.
Arið 1965 var fyrsta forseta Al-
sirs, eftir aö landiö losnaði undan
áþján Frakka, Ahmed Ben Bella
varpaö frá völdum og varð
Boumedienne þá forseti. Hann
gegndi mörgum öðrum embætt-
um: hann var forseti byltingar-
innar, rikisráðsins, auk þess sem
hann var varnarmálaráöherra
og æðsti yfirmaöur hersins.
Óvister meðöllu hvergæti orð-
iö hugsanlegur eftirmaður
Boumedienne. Þjóðfrelsisfylk-
ingin er eini stjórnmálafloUcur
landsins og hafði hinn látni forseti
i huga að þinga meö flokksbræðr-
um slnum um væntanlega skipu-
lagsbreytingu i stjórnun landsins.
Honum gafst ekki tækifæri til
þess. Sérfræðingar gátu ekkert
gert til að bjarga lifi forsetans.
Hann veröur jaröaður á morgun,
föstudag, en slíkt þykir mikill
heiður meðal múhameðstrúar-
manna þar sem föstudagur er
þeirra heilagi dagur.
TAIWAN:
sendlnefnd
fær óblíðar móttökur
TAIPEI, 28/12 (Reuter) —
Þúsundir mótmælenda grýttu tólf
manna sendinefnd frá Bandarfkj-
unum sem kom til Taiwan I gær
til viðræðna um framtiðarsam-
skipti þjóðanna. Munu þetta vera
mestu mótmælaaögeröir sem
fram hafa farið slðan Kfna var
komið fyrir á Formósu fyrir
þremur áratugum.
Mótmælendur héldu á and-
amrlskum spjöldum. Þeir hentu
úldnum eggjum I bifreiðar sendi-
mannanna og fleygðu tómötum
og steinum I rúöur farartækjanna
þegar Bandarikjanlennirnir yfir-
gáfu fTugvöllinn. Talið er að ein-
hverjir tólfmenninganna hafi
slasast vegna glerbrota, að sögn
aðstoöarrfkisritara Bandarikj-
anna Richard Holbrooke.
Múgurinn reyndi aö hefta för
bifreiðanna og voru skammarorð
hrópuð svo sem: Carter er
viðbjóöur!
Bandarisk yfirvöld hafa firrst
yfir þessum dónalegu móttökum
og sent harðorö mótmæii til yfir-
valda á Taiwan. Sögðu þau m.a.
að I nafni forsetans og rikisrit-
arans lýstu þau yfir að öryggi
sendinefndarinnar væri
gersamlega á ábyrgð yfirvalda
Taiwan.
Aö sögn aðstoöarrlkisritara
barst skeyti um hæl, þar sem
yfirvöld Taiwan sögðust harma
atburðinn og vildu þau fullvissa
Bandarikjamenn um að öryggi
sendinefndarinnar yröi varðveitt
eftir fremsta megni.
Leitaö sátta milli
Argentínu og Chile
SANTIAGO, 28/12 (Reuter) —
Sendimaður páfa er nú kominn til
Santiago-borgar i Chile, en hann
reynir nú að miðla málum I deil-
um Argentlnumanna og Chilebúa.
Dciiansýnst um þrjár eyjar.sem
báðar þjóðir þykjast eiga.
Nú sem stendur ráða
Chilemenn yfir eyjunum sem
heita Lennox, Picton og Nueva.
Argentinumenn samþykkja hins
vegar ekki þessi yfirráð, þar sem
Chilemenn geta gert tilkall til
hluta af landhelgi Argentinu-
manna. Benda hinir siöast
nefndu á samning sem gerð-
ur var á slðustu öld þess efn-
. is, að Chilemenn myndu ekki
krefjast yfirráða Atlantshafs-
megin landanna og þá myndu
Argentlnumenn ekki krefjast
lands Kyrrahafsmegin.
Báðar þjóðirnar eru nú
vigbúnar. Sendimaður páfans,
Antonio Samore kardináli, segir
mál þetta vera erfitt viðureignar
en hins vegar sé hann ekki svart-
sýnn um að friður haldist.
95
Punkturinn”
kominn á sænsku
Nú bendir flest til þess
að fyrsta persóna eintölu
Péturs Gunnarssonar
verði metsölubók í ár.
önnur metsölubók hans
og litlu eldri, Punktur
punktur komma strik er
nú komin út í sænskri
þýðingu Inge Knutson.
Bókin fær mjög lofsamlega
dóma I Dagens Nyheter. Þar
kallar Erik Beckman höfundinn
stilsnilling og fer öllum góðum
oröum um bókina sem hægt er
ið koma fyrir I einni bók-
menntagagnrýni. Sem dæmi má
geta þess aö fyrirsögnin hljóm-
ar svo:
Islanning meö litterar stil.
Beckman minnist á aö oft séu
bækur innihaldsrikar en verði
það oft á kostnaö stilsins. Pétri
takist hins vegar að lýsa lifi
stráks á svo snilldarlegan hátt
að ekki eingöngu bókmenntir
heldur lifiö sjálft verði að
hreinni ljst.
Hann lýkur grein sinni meö aö
segja að bók Péturs Gunnars-
sonar sé einn af skemmtilegri
textum sem til eru um svipaö
efni. ES
Jarðskjálfta
vart á Italíu
RÓM, 28/12 (Reuter) —
Starfsmenn á jarðfræöistofnun I
Faenza nærri austurströnd Italiu
uröu I gær varir við harðan jarö-
skjálfta, um fimmleytiö að
Islenskum tima. Kippurinn virtist
eiga upptök sin nálægt
landamærum Júgóslaviu.
Ef jaröskjálfti af sama
styrkleik hefði oröið I þéttbýli
heföu afleiðingar hans orðið al-
varlegar, að sögn visinda-
mannanna.
Jón Kristinsson I hlutverki
Siguröar i Dal i
Skugga-Sveini.
40 ára
leik-
afmœli
Þess var minnst með smá-
athöfn i lok frumsýningar
Leikfélags Akureyrar á
Skugga-Sveini annan i jól-
um, að einn af elstu og
reyndustu leikurum féiags-
ins og forystumaður um
langt skeið, Jón Kristinsson,
átti þá 40 ára leikafmæli. 1
Skugga-Sveini fer Jón með
hlutverk Sigurðar bónda i
Dal.
Guömundur Magnússon
formaður L.A. færði Jóni
fyrir hönd félagsins veglega
blómakörfu, rakti feril hans
sem leikara og þakkaði
óeigingjörn störf i þágu
félagsins fyrrog siöar á sviöi
sem utan. Leikarar á s viðinu
og áhorfendur i sal hylltu Jón
meö langvarandi lófataki.
Jón Kristinsson þakkaöi
með ræðu og færði við þetta
tækifæri Leikfélagi
Akureyrar gjöf á móti: 250
þúsund krónur sem stofn-
framlag i styrktarsjóð fyrir
félagið, um leið og hann
óskaði þvi allra heilla i
framtlðinni.
Jón er fæddur 2. júli 1916
aö Kambfelli. Fremsta bæn-
um i Djúpadal i' Saurbæjar-
hreppi, sem nú er löngu
kominn i eyði. Hann lærði
rakaraiön og starfrækti rak-
arastofu I 30 ár, lengstaf i
samvinnu við læriföður sinn,
Sigtrygg Júliusson rakara-
meistara. Hann hefur veriö
forstöðum aður Dvalar-
heimilisins I Skjaldarvik
siðan 1966 og veitir nú einnig
forstöðu Dvalarheimilinu
Hlið á Akureyri.
Jón Kristinsson var
formaður Leikfélags
Ákureyrar 112 ár. Kona hans
er Arnþrúður Ingimarsdóttir
frá Þórshöfn og börn þeirra
tvö, Helga og Arnar, eru
bæði landsþekktir leikarar.
—vh
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Jólatrés-
skemmtun
verður haldin að Hótel Sögu, Súlnasal,
miðvikudaginn 3. jaúar 1979 og hefst kl. 15,
siðdegis.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu
Verslunarmannafélags Reykjavikur,
Hagamel 4. Tekið verður á móti pönntun-
um i simum: 26344 og 26850.
Versiunarmannafélag Reykjavikur.