Þjóðviljinn - 12.01.1979, Side 5
Föstudagur 12. janúar 1979. — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Veiða hér
það sem
þeir gefa
Færeyingar slungnir i samningum
óskar Vigfússon: Ekki aflögu-
færir með boifisk.
r
Oskar Vigfússon,
formaður Sjómanna-
sambandsins
Afskaplega
óvarlegt
„Að minu mati var afskaplega
óvarlega gert aft semja um 17
þúsund tonna bolfiskafla til handa
Færeyingum þvi það er fráleitt aö
við séum aflögufærir á bolfisk og
það þvert á móti.” sagði Óskar
Vigfússon formaöur Sjómanna-
sambands lslands í viötali við
dagblað I gær. Sjómenn höföu
harðlega mótmælt þvi að slikt
samkomulag yrði gert áöur en
gengiö var til þessara samninga.
— ekh
Kristján Ragnarsson:
Samningarnir eru tilefnislausir.
Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ
Óeðlilegir
samningar
„Ég er nokkuð hissa á þvi aö
þessir samningar skuli hafa verið
endurnýjaðir þar sem sjávarút-
vegsráðherra sagði á aðalfundi
LIO I haust að hann legðist gegn
þvi”, sagði Kristján Ragnarsson
formaður LIO I viötali við Visi I
gær.
„Þegar við sætum svo veru-
legum takmörkunum sem við
gerum i dag I þorskveiðum og
einnig á loðnuveiöum teljum við
aö þetta séu óeðlilegir samn-
ingar.
Færeyingar eiga engan sögu-
legan rétt til loðnuveiða hér við
land. Þeir hófu þær fyrir tveim
árum siðan þegar ekki þótti nein
þörf á takmörkunum en nú þegar
er búið að stöðva veiöarnar i einn
mánuð og viö vitum ekki enn
hvernig vertiðinni reiðir af. Þvi
teljum við þessa samninga til-
efnislausa”, segir Kristján I við-
talinu. —ekh.
EBE
Sá botnfiskafli sem Færeying-
ar fá veiðiheimild fyrir sam-
kvæmt nýgerðum samningi við
utanrikisráðherra og sjávarút-
vegsráðherra er ekki stórum
minni en sá afli sem þeir heim-
ila að taka á Færeyjarmiðum.
Sfðastliðið ár veiddu Norömenn
6500 tonn við Færeyjar, aðallega
ufsa og löngu. Vestur-Þjóðverj-
ar voru með 7000 tonn af karfa
og 2000 tonn af ufsa. Bretar
munu hafa veitt 7600 tonn við
Færeyjar i fyrra, þar af 2500
tonn af þroski. Eða samtals
23.100 tonn af botnlægum fiski á
móti 17 þúsund tonnum sem þeir
eiga að fá að veiða á tslands-
miðum.
Fiskveiðisamningar þessara
þjóða eru nú I endurskoðun og
munu viðræður hefjast siðar i
þessum mánuði.
— ekh
Lúðvik Jósepsson formaður Alþýöubandalagsins
Fráleitir
samningar
Hefur A Iþýðuflokkurinn tryggt sér
meirihlutastuðmng á Alþingi til þess
að samþykkja þennan samning?
„Að þessum samningur hefur
veriö staðið á býsna sérkennileg-
an hátt”, sagði Lúðvik Jósepsson,
formaður Alþýðubandalagsins, i
gær um fiskveiðisamningana við
Færeyinga. „Þó að rikisstjórnin
hafi veitt heimild til samninga-
viðræðna við Færeyinga hefur
legið fyrir að einstakir ráðherrar
væru andvigir öllum samningum
um veiðiheimildir til útlendinga.
Það er og ljóst að rikisstjórnin
hefur aldrei samþykkt samning-
ana fyrir sitt leyti, þeir hafa ekki
veriö bornir undir rikisstjórnina
og ekki verið leitað álits stuðn-
ingsflokka stjórnarinnar.”
Bitnar á atvinnu fólks
Þjóöviljinn leitaði álits ráð-
herra Alþýðubandalagsins á
þessu og staðfestu þeir aö samn-
ingarnir hefðu ekki verið bornir
upp I stjórninni. Aöspurður kvaös
Lúðvik Jósepsson hafa marglýst
yfir þvi að fráleitt væri að veita
nokkrum útlendingum leyfi til
veiöa I Islenskri fiskveiðilögsögu
eins og ástatt væri. Þessvegna
væri hann andvigur samningum
við Færeyinga.
„Eg vil sérstaklega benda á”,
sagði Lúðvik „að meö þessum
samningum er beinlinis verið að
afhenda Færeyingum verðmæti
sem tekin eru frá okkur sjálfur og
nema áreiðanlega amk 7 miljörð-
um króna. Þetta er enn furðu-
legra þegar þess er gætt að tog-
araflota okkar hafa veriö bannað-
ar veiðar I tvo mánuöi á ári og
loönuflotinn stöðvaður I einn
mánuð. Þetta varðar ekki bara
sjómennina og útgerðina, sem
alltaf er að kvarta undan tap-
rekstri, heldur alla fiskvinnsluna
og atvinnu fólks við hana. Þaö
bitnar á þvi fólki þegar verið er
að gefa þessa upphæð.”
Þeir geta leyst sitt heimil-
isböl
Þjóöviljinn innti Lúðvik Jós-
epsson eftir þvi hvort ekki væri
eðlilegt að Færeyingar nytu
nokkurrar sérstöðu i sambandi
við veiðiheimildir hér við land. —
„Ég segi það nú eins og áður að
Færeyingar eru alls góðs makleg-
ir og ég myndi taka þá fram yfir
alla aöra þegar við værum af-
Lúðvik Jósepsson: Meft þessum
samningum er verift aft afhenda
Færeyingum verðmæti sem tekin
eru frá okkur sjálfum og nema
amk. 7 miljörðum króna.
lögufærir meö veiðiheimildir. En
i öllum okkar samskiptum við þá
veröum við að gæta aö eigin stöðu
og hvernig mál standa hjá Fær-
eyingum sjálfum. Þeir hafa verið
með vaxandi heildarafla á siöustu
árum og hafa aukið afla sinn á ts-
landsmiöum frá þvi fyrir land-
helgisdeiluna. Samt halda þeir
áfram aö semja viö Breta, Vest-
ur-Þjóðverja og aðrar Vestur-Ev-
rópu þjóðir um stórfelldar veiöi-
heimildir I sinni fiskveiðilögsögu.
Þeir hafa ekki losað sig við út-
lendingana þrátt fyrir að þeir hafi
til þess alla möguleika. Nú er svo
að útlendingar veiöa fullan þriðj-
ung af öllum botnlægum fiskafla
á Færeyjarmiðum.
Furðuleg vinnubrögð
Lúðvik benti einnig á að fyrst
og fremst vekti athygli að hér
væri ekki um samþykkt rikis-
stjórnarinnar að ræða heldur
samning sem utanrikisráðherra
ag sjávarútvegsráðherra geröu
án yfirlýsts stuönings stjórnar-
flokkanna. Aldrei hefði áður verið
•staöiö þannig að málum I sam-
bandi við fiskveiðisamninga. „Ég
spyr: Hefur Alþýöuflokkurinn
tryggt sér meirihlutastuðning á
Alþingi til þess að samþykkja
þennan samning? Málið veröur
enn undarlegra þegar þess er
gætt að Kjartan Jóhannsson sjáv-
arútvegsráðherra hefur marg-
lýst yfir þvi, meðal annars á aðal-
fundi LIÚ i haust, að hann sé and-
vigur öllum samningum um
veiöiheimildir til útlendinga eins
og á stendur. Samt stendur hann
að samkomulaginu við Færey-
inga öllum aö óvörum. En hann
mætti gæta að þvi hvernig fólki I
fastri og öruggri atvinnu hér á
höfuðborgarsvæöinu, t.d. skrif-
stofufólki, þætti þaö ef þvi væri
bannaö aö vinna I einn mánuð eöa
tvo á árinu og fengi ekki kaup fyr-
ir þann tima. Við okkar aöstæöur
i dag þýöa samningarnir viö Fær-
eyinga einmitt samskonar kvaöir
á fiskvinnslufólk og sjómenn um
land allt.” - ekh
Garöar Sigurðsson, alþingismaður
Regínhneyksli
• Engum datt í hug aö samið yrði um
það sem ekki er tH
# Nú er ekki umhyggjan fyrir atvinnu
fólks hjá Benedikt
„Að láta Færeyinga veiöa hér
fisk sem annaðhvort er ekki til
eða okkur er bannað að veiöa er
ekkert annað en reginhneyksli”,
sagði Garðar Sigurðsson alþing-
ismaður i viðtali við Þjóðviljann i
gær. „Ég veit að sjómenn og út-
gerðarmenn I Vestmannaeyjum
Ég greiði atkvæði
gegn samningunum
segir Ágúst Einarsson
Ég mun greiða atkvæði gegn
þessum samningum á þingi, sagði
Agúst Einarsson, þingmaöur Al-
þýðuflokksins.
Ég er á móti þvi að við séum aö
láta útlendinga fá fisk sem við er-
um að friða hér heima eins og
loðnu og þorsk. Þaö voruaðrir
möguleikar á að semja við Fær-
eyingana. Við hefðum getað skipt
á kolmunna og kolmunna eða
samið um aðrar tegundir sem
ekki eru ofveiddar og við erum aö
Framhald á 14. sibu
eru ævareiðir. Engum datt i hug
að samiðyrbi um það sem ekki er
til, sérstaklega eftir yforlýsingar
Kjartans Jóhannssonar sjávarút-
vegsráðherra á Ltú-þingi og ann-
arsstaðar um að ekkert svigrúm
væri til samninga um veiöiheim-
ildir til útlendinga.”
Á hvað er ávísað?
Garðar Sigurðsson benti á að
Færeyingar mættu samkvæmt
samkomulagi utanrikisráðherra
og sjávarútvegsráðherra við þá
veiöa jafnmikiö af botnlægum
fiski og áöur enda þótt þorsk-
veiöiheimildin væri minnkuð um
þúsund tonn. Garöar kvaðst ekki
vita á hvaða fisk þarna væri ávis-
að, þvi enda þótt búið væri að
reikna út að ufsi og karfi væru til i
miklu magni hefði gengið afar illa
að finna og ná þessum tegundum.
„Sömu dagana og þessir menn
eru að búa til tiu miljaröa gjöf
handa Færeyingum eru togararn-
ir okkar úti, hringsóla um miðin
Garftar Sigurftston: Ég veit aft
sjómenn og útgerftarmenn I Vest-
mannaeyjum eru ævareiftir.
umbverfis allt land, og það finnst
ekki dýr,” sagði Garðar.
Okkur bannað — þeim
leyft.
Þé.minnti hann á að sex þúsund
tonn af þorski væri ekkert smá-
ræði, heldur um það bil sama
magn og allir Vestmannaeyjar-
togararnir koma með að landi á
einu ári. Og sautján þúsund tonn
af botnfiskafla mætti bera saman
við það að allur þorskaflinn hjá
bátum og togurum I Vestmanna-
eyjum væri 14 þúsund tonn. Þá
væri Vestmannaeyingum bannað
að veiða þorsk á besta timanum á
sumir og væri það mjög bagalegt
þvl úthald bátanna væri stutt.
Loðnubannið i desember hefði
Framhald á 14. siöu