Þjóðviljinn - 12.01.1979, Blaðsíða 11
Föstudagur 12. janúar 1979. —ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
íþróttir 0 íþróttir g) íþróttir
Naumt tap gegn Pólverjum
Umsjón: Ingólfur Hannesson
Iþróttir á árinu 1978:
Atyinnutilboöin settu
mestan svip á knatt-
spyrnuna
Enn er tekinn upp þráö-
urinn þar sem frá var
horfið viö umfjöllun á
þróttum ársins 1978.
Vegna plássleysis hefur
ekki veriö hægt að birta
greinarnar fyrr. Nú er
komið að körfuknatt-
leiknum með allan sinn
innflutning bandariskra
leikmanna og knatt-
spyrnunni/ hvaðan þeir
bestu f lykkjast til stórliða
Evrópu.
Körfuknattleikur
Körfuknattleikurinn viröist
eiga slvaxandi vinsældum aö
fagna hér á landi. Þetta er
mikiB aö þakka þeim banda-
risku leikmönnum og þjálf-
urum, sem flykkst hafa til
landsins hin seinni ár. Þessir
menn hafa nokkra yfirburöi yfir
nær alla okkar leikmenn og
þannig dregiö aö sér áhorf-
endur. Þá eru margir þeirra
mjög liötækir þjálfarar og i
yngri flokkunum er þaö ákaf-
lega spennandi aö vera þjálf-
aöur af útlendingi. Þaö er svo
annaö mál, hvort þetta sé
framtiöarþróun, en ‘víst er aö
Kanarnir hafa hleypt nýju blóöi
i körfuboltann og gert hann
betri aö öllu leyti.
Hér aö framan var minnst
litillega á yngri flokkana, en
eins og allir vita er gott
meistaraflokkslið tilkomiö
vegna þróttmikils starfs hjá
þeim yngri. Þess vegna hefur
þaö komiö undirrituöum nokkuö
undarlega fyrir sjónir, aö hjá
sumum félögunum eru yngri
flokkarnir nánast látnir sitja á
hakanum meöan starf i
kringum meistaraflokkinn er
gott. Þessu veröa þeir
körfuknattleiksmenn aö huga
aö, ætli þeir sinni iþrótt veglegri
sess i islensku iþróttalifi hér
eftir en hingaö til.
Dómaramálin eru sifellt
deiluefni i körfuboltanum og
hefur sitt sýnst hverjum. Þó
hafa umræðurnar mest snúist
um þaö, hvernig góöir dómarar
eiga aö vera, ekki hvaö sé helst
til úrbóta i þessum málum, svo
ekki sé nú minnst á aö láta
hendur standa fram úr ermum.
Islandsmeistarar 1978 varö liö
K.R. og sigruöu þeir UMFN
(Njarövik) i hreinum úrslitaleik
96-86. Bikarmeistarar uröu
stúdentar (I.S.) og Valur sigraöi
á Reykjavikurmótinu nú I
haust. Hjá kvenfólkinu bar liö
Í.S. nokkuö af og sigruöu þær I
öllum mótum ársins, en K.R.
var þeirra skæöasti keppi-
nautur.
Sjö landsleikir voru á árinu og
þar af rúmur helmingur þeirra
gegn Noregi eöa fjórir alls. Þrir
sigrar voru i þessum lands-
leikjum, Norömenn I tvigang og
Danir einu sinni. Þaö viröist
augljóst aö gera þarf mikiö átak
i landsliösmálunum og gefa
bestu körfuknattleiksmönnum
landsins tækifæri á aö spreyta
sig I keppni viö erlend landsliö.
Knattspyrna
Knattspyrnan viröist alltaf
vera jafnvinsæl og engum
blööum um þaö aö fletta, aö ekki
er eins vel fylgst meö nokkurri
Iþróttagrein og knattspyrnunni.
Þaö er þvi í rauninni aö bera i
bakkafullan lækinn, aö ætla sér
aö fjalla um viöburöi ársins hjá
þeim fótboltamönnum. Þó ætla
ég aö minnast nokkrum oröum á
þaö sem skeöi á liðnu ári.
A árinu geröu nokkrir af
fremstu knattspyrnumönnum
okkar samninga viö erlend
knattspyrnufélög og eru ekki
nema gott eitt um þaö aö segja,
og i þessu felst viss viöur-
kenning fyrir gæöum iþróttar-
innar hér á landi. Máliö á sér þó
aöra hliö. Belgiska félagiö
Lokaren sýndi fáheyröa ókurt-
eisi og ruddaskap þegar þeir
lokkuöu til sin tvo islenska
knattspyrnumenn á miöju
keppnistimabilinu og voru siöan
meö tóman skæting á eftir.
Vonandi eiga atburöir sem
þessir ekki eftir aö endurtaka
sig.
önnur hliö þessa máls er sú,
aö furöulegt er aö Islensk (sem
og aörar þjóöir I svipaöra
aöstööu) knattspyrnuyfirvöld
skuli ekki setja þaö sem skilyröi
fyrir atvinnusamningum, aö
leikmennirnir fái aö leika lands-
leiki Islands, einkum þá sem
eru i Evrópu- eöa heims-
meistarakeppni. Gott dæmi um
þetta var mismunurinn á þvi
landsliöi Dana, sem lék gegn
Islendingum s.l. sumar og þvi
landsliði, sem lék gegn Eng-
lendingum nú stuttu fyrir ára-
mótin, en þaö var nær eingöngu
skipaö atvinnumönnum. Sé slik
klásúla I öllum samningum
tryggir hún þaö, aö ætiö er hægt
aö stilla upp þvi besta landsliöi
sem völ er á og þá kemur hin
raunverulega geta best I ljós.
Ekki held ég aö þaö sé neinum
vafa undirorpið, aö K.S.I. er
best skipulagöa sérsambandiö
innan l.S.l. og er þaö eflaust
bæöi orsök og afleiöing vinsæida
iþróttarinnar. Dómaramálin
eru i mjög góöu lagi miöaö viö
þaö sem gerist i öðrum iþrótta-
greinum. Meira er lagt i starf-
semi yngri flokkanna en hjá
öörum samböndum og I mjög
mörgum félögum er sérstök
unglinganefnd, sem sér um allt
þaö er viövikur þeim yngri.
Merkilegast viö starf KSÍ er
eflaust hve góöan grunn er búiö
aö leggja aö fullnaöarmenntun
þjálfara og stofnun sérstaks
skóla i þvi sambandi, Knatt-
spyrnuskóla KSI og er þaö
tækninefnd, sem sér um rekstur
hans. Þar á þó stærstan hlut aö
máli Karl Guömundsson,
iþróttakennari, sem manna
mest hefur plægt þennan akur.
Fimm landsleikir voru á
árinu 1978 og vannst enginn
sigur. Jafntefli var gert á móti
Dönum og Bandarikjamönnum,
en töp gegn Hollendingum, Pól-
verjum og Austur-Þjóöverjum.
Þrir siöastnefndu leikirnir voru
I Evrópukeppni landsliöa og
öngvir aular sem viö var átt.
Úrslit landsleikjanna sýndu
nokkra afturför frá árinu á
undan, en ekki er ástæöa til þess
aö örvænta, sérstaklega meö til-
liti til þess, aö mjög margir
isienskir knattspyrnumenn á
erlendri grund njóta nú sömu
aöstööu og þeir menn sem veriö
er aö keppa viö I landsleikjun-
um.
K.R. sigraöi i Reykjavikur-
mótinu, en tvö langbestu knatt-
spyrnuliö landsins böröust um
sigurinn i Islandsmótinu og
bikarkeppninni, Valur og Akra-
nes. Þau skiptu titlunum siöan
bróöurlega á milli sin, Í.A. vann
bikarinn og Valur Islandsmótiö.
Þá tóku þessi liö þátt I Evrópu-
keppnum og stóöu sig þar meö
mikilli prýöi. Þriöja liöiö i þeim
slag var IBV og komust þeir i
aöra umferö og varö þar meö
þriöja Islenska liöiö, sem nær
þeim árangri.
Nokkuö meira er nú um þaö,
aö leikmenn skipti um félög en
áöur og er ekki nema gott eitt
um þaö aö segja. Þannig má
búast viö góöri og fjörugri
knattspyrnuvertíö næsta
sumar.
IngiH
„Þetta var mjög góður
leikur af okkar hálfu, sér-
staklega hvað varðar
sóknarleikinn. I fyrri hálf-
leiknum var sóknar-
nýtingin yfir 60%, sem
telst ágætt og nýtingin í
leiknum í heild var um
50%, sagði Arni Indriða-
son, fyrirliði íslenska
landsliðsins eftir leikinn í
gærkvöld, en þá iéku
Islendingarnir gegn Pól-
verjum og töpuðu með
tveggja marka mun, 22-20.,
íslenska liöiö haföi undirtökin
allan fyrri hálfleikinn og léku
strákarnir þá af miklum krafti og
festu. Mestur var munurinn þrjú
mörk okkar mönnum I hag 10-7,
en staöan i hálfleik var 12-10 fyrir
Island.
I seinni hálfleiknum hélt sami
barningurinn áfram og leiddi
landinn meö 2-3 mörkum. Pól-
verjarnir náöu siöan aö jafna 18-
18 þegar 7 min. voru til leiksloka
og sigu fram úr lokamínúturnar
og sigruöu 22-20.
Allir strákarnir stóöu sig vel,
einkum þeir sem litiö höföu fengiö
aö spreyta sig fram aö þessu.
Jens Einarsson varöi markiö af
mikilli prýöi mestan leikinn og
Axel Axeísson var drýgstur viö
markaskorunina.
Mörkin fyrir Island skoröuö:
Axel 8, Páll 4, Þorbjörn G. 3,
Bjarni 2, Ólafur Jónsson 1, Stefán
1 og Ólafur E. 1.
I gærkvöldi voru einnig þrir
aörir leikir á dagskrá Baltik
keppninnar. Sviar unnu B-lið
Dana 20-14, Austur-Þjóöverjar'
sigruöu Rússa 20-19 og Danir og
Vestur-Þjóðverjar geröu jafntefli
13-13.
ísland leikur þvi á laugardag-
inn gegn Svium og spurðum viö
Arna hvernig sá leikur legöist i
hann: „Leikurinn leggst vel i
mig. Viö höfum aldrei sigraö Svi-
. ana og er þvi öll statstik á móti
okkur. Þaö veröur spennandi aö
vita hvernig sú viðureign fer.”
IngH
Axel Axelsson lék meö aö nýju I
gærkvöld og átti snjallan leik.
Valur —
ÍS 94:90
Þeir áhorfendur, sem lögöu leiö
sina I iþróttahús Kennaraháskól-
ans i gærkvöld á ieik Vals og l.S.
bjuggust viö næsta auöveldum og
öruggum sigri Valsmanna. En
stúdentarnir voru staöráönir I aö
láta ekki sinn hlut fyrr en I fulla
hnefana og veittu þeir Val haröa
mótspyrnu.
l.S. tók forystuna strax I
upphafi leiksins, 6-3, 18-11 og 24-
19. Valsmenn sóttu nú mjög á og
tókst aö komast yfir 25-24 og hélst
þessi jafni leikur allt til hálfleiks,
en þá var staöan 42-40 fyrir Val.
Valsararnir mættu mjög
ákveönir til seinni hálfleiksins og“
náöu fljótlega öruggri forystu 63-
54. l.S. tókst aö minnka muninn
niöur i 3 stig, 75-72, en nær komust
þeir ekki. Eftir nokkurn spenning
sigruöu Valsmenn meö fjögurra
stiga mun 94-90.
Vörn stúdentanna er þeirra
höfuöverkur um þessar mundir,
en hins vegar viröist sóknin veröa
liflegri meö hverjum leik. Bjarni
Gunnar átti sinn besta leik i vetur
og skoraöi grimmt. Dunbar var
aöeins meö seinni hálfleikinn og
var þá iöinn viö aö koma knett-
inum i körfuna. Ekki er gott aö
segjá, heföi hans einnig notið viö i
fyrri hálfleiknum. Þá voru þeir
Gisli og Steinn sprækir.
I liöi Vals var Tim Dwyer yfir-
buröamaöur og hefur sjaldan
veriö betri. Þórir hitti mjög vel I
fyrri hálfleiknum. Annars veröa
Valsmenn að taka sig saman i
andlitinu ætli þeir sér aö veröa
meö i toppbaráttunni.
Fyrir Í.S. skoruöu mest: Bjarni
Gunnar 26, Dunbar 18, Jón H. 16
og Steinn 14.
Fyrir Val skoruöu mest: Dwyer
39, Torfi 16, Kristján 11 og Þórir
10 IngH
Sjúkrahús Keflavíkur-
læknishéraðs
Tilboð óskast i að fullgera siðari áfanga
nýbyggingar við sjúkrahús Keflavikur-
læknishéraðs, útboðsverk II. Verkinu skal
að fullu lokið 28. febrúar 1981. Áætlað er að
2. hæð hússins verði tilbúin til notkunar 15.
febrúar 1980.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri Borgartúni 7, Reykjavik, gegn
40.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 6. febrúar 1979, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Frá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur
Athygli samlagsmanna skal vakin á þvi að
Ásgeir Karlsson læknir hefur látið af sér-
fræðingsstörfum fyrir samlagið frá og
með siðustu áramótum.
Reikningar hans eru þvi ekki lengur end-
urgreiddir af hálfu S.R.
Sjúkrasamlag Reykjavik.
Sjúkraliðar
sjúkraliðar
Athugið að skrifstofan er flutt af Klappar-
stig 27 i Félagsmiðstöð BSRB, Grettisgötu
89.
Blaðberabíó
Varist vætuna.
Aðalhlutverk Jaekie Gleason.
Sýnd kl. 1. eh. i Hafnarbiói, laugardaginn
13. jan.
Þjóðviljinn, Siðumúla 6. simi 81333.