Þjóðviljinn - 21.01.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 21.01.1979, Blaðsíða 3
Sunnudagur 21. janúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 BeðiOum gott veöur — og mun ekkiaf veita. A þessum hrörlega bæ búa tvær fjölskyldur, alls nltján manns. Hátt upp til hlíða Hátt upp i fjöllum i Suður-Týrol, sem hefur verið italskt land síðan heimsstyrjöldinni fyrri lauk, er enn að finna um 7000 bóndabæi. Þessir Alpabæir eru einhver einangraðasta byggð i Evrópu. Sumir bæjanna liggja i 16-17000 metra hæð yfir sjávarmál, og þangað verður ekki komist nema eftir brött- um einstigum. Aðföng verða menn helst að bera á bakinu. Fjallabúar bera upp brattar hllöar 60 , 80 eða 100 kg. þungar byröar — saltogsykur, fóöurbæti handa kúm, fjalir til smiöa. Blaöamaöur kemur I heimsókn ogspyr: af hverju er hér enn fólk, af hverju eru ekki allir farnir til þægilegri byggða? Engin náttúra iengur Svörin eru kynleg sum — gefin á þyskri mállýsku, en drjúgur hluti ibúa Suöur-Tyrol er þýskrar ættar. Engilbert fetar einstigiö heim tii sin meöþakplötur á bakinu. Hann sneri heim eftir aö hafa unniö niöri Idalnum. Þaö er svo þykkt loftiö i daln- um, aö maöur getur ekki andaö, segir einn. Maöur hefur enga matarlyst þar. Hér er gott aö vera ef aö þaö kemur stríö, segir annar karl. En sonur hans er mælskari. Hann hefur veriö niöri á láglend- inu, unniö þar hjá grænmetis- bóndaogí verksmiöju. Uss, segir hann, þetta er ekki neinn búskap- ur lengur hjá þeim. Hér er sprautaö, þar er sprautað — þetta er ekki nein náttúra lengur. Ég er feginn aö ég er kominn aftur heim. Auralaus búskapur Fjallbændur eru snauöir, llf þeirra er erfitt, en þeir standa fast á þvl, aö einangrunin, stritiö og gllma við snjóflóð, kulda og skriöuföll sé prýöilegt hlutskipti. Hús og búskaparhættir eru forn- eskjulegir. Taka má dæmi af fjöl- skyldu sem ber ættarnafnið Gamper. Hún lifir á fjórum kúm, þ-em svinum, nokkrum geitum, 30 kindum, tólf hænum. Og þrem hektörum af grýttu brekkulandi. Kýr og geitur eru mjólkaöar til smjörs og osta. Þaö er slátraö i matinn. Stundum er seldurkálfur eöa geit eöa mjólkurdreitill, en þaö nægir ekki til aö kaupa íyrir brýnustu nauöþurftir. Fjallabú- skapurinn gefur ekkert af sér I reiðufé, eöa svo gott sem. Karl- arnir ráöa sig þvl til skógarhöggs I tvær-þrjár vikur til aö safna reiðufé. Konumar vilja fara Húsfreyjan, sem Hedwig heitir, er 45 ára, Hún hefur eignast tiu börn; auk þessalast upphjá henni tvö börn sem dætur hennar uröu sér úti um niöri I dalnum. Hún er ekki eins hress yfir lifi slnu og karlarnir ábænum. Égheföi flutt niöur I dalinn hér áöur, meöan börnin væru færri. Nú get ég þaö ekki, þaöer allt oröiö svo dýrt þar niöurfrá. Reyndarerþaö svo, aö konurn- ar sækja fyrst aö heiman. Enn er til dr júgur hópur af yngri mönn- um, sem vill taka við af feðrum sinum, eins og sonurinn Engilbert á bæ Egg-fjölskyldunnar, sem áð- ur var nefndur. En hans vandi er sá, aö hann er konulaus. Hann fer stundum á böli niðurfrá, og hefur sýnt tveim stúlkum bæ sinn. En þær sögöust vera hræddar viö aö hrapa niður. Og þær eru aö sjálf- sögöu hræddar viö fleira en þaö. Italska stjórnin nef- ur uppi ýmsar áætlanir til að gera lif fjalla- búa léttara en þaö er. En eiginkonur getur hún ekki útvegað. Helmingur yngri bænda I fjallasveitum eru piparsveinar. vegna þess aö þaö eru aöeins til 25 SKODA 120 L AMIGO á þess< lága veröi. Sölumenn okkar veita allar nánari upplýsingar. Auóbrekku 44-46, Kópavogi, sími 42600.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.