Þjóðviljinn - 21.01.1979, Side 7
Sunnudagur 21. janúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7'
Eftir ERLU SIGURÐARÐÓTTUR
Alþjóðaár barnsins
1979 er hafið. Einu sinni
var kvennaár, en siðan
hafa mörg vötn runnið
til sjávar. Varla sést
hræða á Lækjartorgi
nema helst til að biða
eftir strætisvagni.
Nú er ár barnsins,
okkar allra. Við erum nú
einu sinni hluti af hinum
sameinuðu þjóðum og
látum þvi ekki okkar
eftir liggja. Og hvað
gerum við?
Viö stofnum nefndir. Nefndirtil
aö ræöa málin. Stofnaöar hafa
verið sex nefndir sem ræöa eiga
málin. Þær heita voöalega falleg-
um nöfnum, meira aö segja heitir
ein þeirra Barniö, fjölmiölar og
listir. Um mann fer hrollur af
spenningi. Fáum við nii loks aö
sjá Stundina okkar i umsjón
sjálfra barnanna? Munu börn
spila tónlistfyrir sig og jafnaldra
slna i staö þess aö syngja einungis
fyrir fulloröna fólkiö? Er timi
litlu feitu strákanna sem sungu
maaamma liöinn? Eöa hnellnu
litlu stúlkunnar sem syngur um
hve dásamlegt barn hún er? Uss,
svona má vist ekki hugsa.
—0—
Vöknum af draumnum og lítum
aftur á nefndirnar. Þær ætla aö
vinna að ýmsum verkefnum,
halda ráöstefnur (dásamlegt),
fræöslufundi (umm), skemmtan-
ir (aah) og gefa út fræöslurit. Allt
I einu er jarökúlan komin á
hreyfingu.
Verkefnin eru siöur en svo vit-
laus. Barninu veröur velt fram og
aftur, þaö sett i samhengi við um-
feröina, skólann, dagheimiliö, já
jafnvel foreldra sina. Siöast en
ekki sist á aö endurmeta trúar-
legt uppeldi barna, eöa er þaö
ekki?
Bandalag kvenna ætlar aö pæla
i mataræöi krakka á næstunni,en
eftir tvo mánuöi ætlar sama
bandalag aö bera bækur sinar
saman viö presta og skólastjóra.
Ekki er þess getið hvort mata-
ræöiö veröi þá enn á dagskrá.
Endalaust mætti telja upp hvaö
ræöa á um á ári barnsins. Nú,svo
álika aö halda sýningar á árinu,
okkur mun gefast kostur á að
skoöabækurog leikföng oghaldin
veröurlistahátlö barnanna. Þetta
er svo spennandi allt saman.
—o—
I greinargerð frá fram-
kvæmdanefnd barnaársins segir
m.a.: „Hitt er jafnvist aö i krafti
alþjóðaársins geta komið fram
hugmyndir sem kunna aö valda
straumhvörfum i lffi barna um
viöa veröld. Þaö er þvi mikilvægt
aö nota þetta tækifæri sem best”.
Annars staðarstendur hvatning
Sameinuðu þjóðanna um aö I öll-
um aöildarrikjum þeirra veröi á
alþjóöaaári barnsins 1979 unnið
að varanlegum umbótum á kjör-
um barna um heim allan. Jasso.
Það á að ræða málin. Röfla og
rugla, rugla og röfla, röfla og
rausa, þú veist ér meö lausa, seg-
ir I kvæðinu. Leggja á drög aö
hinu og þessu, stinga upp á um-
bótum. Ekki veröur sparaö viö
sig. Hinar mörgu og margvislegu
nefndir munu tala og tala, hraðar
oghraðar, meira ogmeira, hærra
og hærra. úff. Þá er helvftis
krakkaárinu lokið og timi kominn
til aö snúa sér að öðru.
Nú, en I tilvitnununum að ofan
má sjá aö ætlast er til aö tækifær-
iö veröi notaö sem best til ab
valda straumhvörfum i lifi barna.
En hægara er pælt en kýlt og litur
allt út fyrir að látiö veröi nægja
aö pæla.
Margt þarf aö laga
Mörgu þarf aö bæta úr.
Margt má færa til betri vegar.
Það er svo margt ef aö er gáö.
Væri þvi ekki nær aö kýla i hlut-
ina?
Hve mörg börn blöa eftir aö
komast inn á dagheimili? Þegar
þörf er á vinnukrafti hljómar
raddaöur söngur i þingsölum sem
annars staðar um að nú skuli
barnaheimili byggö svo mamma
komist út aö vinna. Svo þagnar
þessi söngur skyndilega þegar
ekki er lengur þörf fyrir konur á
vinnumarkaönum. Þá á konan
nefnilega aö nota tima sinn frá kl.
00.00-23.59.59 til aö sinna elsku
litlu hjartans greyjunum sem
aldrei öskra og grenja skrúfurnar
lausur úr heilakúpu mömmu
slnnar. Æösta hlutverk mömmu
er að sjá um ungana sina, þjóð-
félagiö þarfnast, pabba.
Litið bara á blessuö dýrin,skyn-
lausar skepnurnar. Þar situr
mamman á eggjunum og sér
siöan um afkvæmin. Þessi
viðmiöun minnir á ráöstefnu sem
haldin vari Róm á dögunum þar
sem læknar og aörir sérfræðingar
ræddu kynþörf konunnar. Þar
kom fram sú kenning aö kynþörf
konu næði hámarki sinu mitt á
milli tlöa. Margir ráku upp stór
augu og sperrtu eyrun. Hvernig
komust menn aö þessari niður-
stööu? Jú, rannsóknir á
KVENAPA höfðu leitt þetta I ljós.
Þegar talað er um straumhvörf
I lifi barna má geta þess að börn
vaxa úr grasi. Þvi væri nærtækt
ahbyrja að takatil i þjóðfélaginu
sem þau eiga aö erfa. Reyndar
áttum viölfkaaöerfa það^en þó er
eins og sumir veröi arflausir og
aörir borgi erfðaskatt fyrir hönd
þeirra sem virkilega hnepptu
hnossið. Nema hvað, tlmi er kom-
inn til (vonandi ekki farinn aftur)
aö lyfta sinum þunga rassi og
taka til hendi.
Flesta rennir grun I hvérnig
börnin verða til. Einnig finnst sá
sannleikur aö börn slysist tD aö
eiga börn og þykir fæstum þaö
gott. Tlmabært hefur veriö siöan
Adam beit í epliö aö fræða börn
um getnaöarvarnir svo ekki sé
minnst á aörar hliðar frumþarfar
mannsins. ÖU fæðumst viö á
sama hátt hvort sem okkur likar
betur eða verr, og er þvi
ónauösynlegt aö viöhalda ein-
hverjum trúarbrögðum fá-
fræðinnar um þessi mál.
Margt margt fleira mætti
minnast á. Ef allt yröi tekiö fyrir
yrði sá verkefnalisti öilu lengri en
sá sem settur var fram I greinar-
gerð framkvæm danefnda r
barnaársins, en hann hefst svo:
„Endurskoðun laga er varða
réttarstöðu barna og foreldra
ungra barna”.
Gaman verður að sjá hvort ein-
hverjir utan nefndarinnar taki á
sig rögg og geri eitthvaö i hlutun-
um.
Gód reynsla þeirra fjölmörgu sem auglýsa reglulega í
þjónustuauglýsingum Vísis er til vitnis um ágæti þeirra
og áhrifamátt.
JLisftini síi °°j Sun
*&***&* I c f\Cl^ tiirmlill pÉmiS
, 4n\ ó" f\ jsSv
‘fliriSr igæsu nnsni^
Ef þú býður þjónustu af einhverju tagi er smáauglýsing
í Vísi sterkasti vettvangurinn til viðskipta, þar eru þær
lesnar af tugþúsundum og þjóna þúsundum.
WJIͧ)JIWi ®86611
smáauglýsingar