Þjóðviljinn - 02.02.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.02.1979, Blaðsíða 1
UOWIUINN FÖstudagur 2. febrúar—27. tbl. —44. árg. AÐGERÐIR HARÐNA Ragnar Karlsson formaður Flugvirkja- félagsins: Góðar vonir um að þetta takist Flugvirkjar vilja láta 4% kauphækkun sína renna til byggingar flugskýlis gegn jafn- hárri upphæð frá Flugleiðum og ríkinu Setuverkfall hjá Sókn Sóknarkonur hefja setuverkfall f dag til að leggja áherslu á kröfu sina um að hætt verði við einhliða breytingu atvinnurekenda á um- sömdum vinnutima á rikissjúkrahúsunum. Fulltrúar Sóknar áttu fund me6 samstarfsnefnd rfkisstjórnarinn- ar og verkalýðshreyfingarinnar I fyrradag og var gert ráö fyrir öðrum f gær eða amk. tilraunum til sátta, en engin skilaboð höföu borist Sókn er þar var haldinn fundur f gærkvöld. Var þá ákveð- iö að hefja haröari aögerðir og byrja með setuverkfalli í öldrun- ardeildinni, Hátúni 10B. I gær var haldið áfram fyrri að- gerðum og mættu starfsstúlkur á Kleppsspitalanum eins og um er samiö kl. 7.30 en ekki kl. 8 eins og auglýst breyting gerir ráð fyrir. Sams konar aðgerðir voru á öldrunardeildinni í fyrradag eins og skýrt var frá í Þjóðviljanum. —vh. Tvö ung börn nærri köfnuð þegar bifreið valt Um hádegisbilið I gær vildi það óhapp til á Reykjanesbraut- inni að bifreiö rann til I fljúgandi hálku og valt i Kópa- vogslækinn. t bifreiðinni var kona með tvö ung börn. Bifreiðin hafnaði á hvolfi i Kópavogslæknum og þar sem flóö var um þetta leyti, fylltist bifreiðin mjög fljótt af sjó. Kon- unni tókst að komast út úr bifreiðinni og skömmu siöar náðust börnin tvö út og var þá annað þeirra meövitunarlaust. Mátti engu muna að verr færi, enda voru þau orðin helköld þegar þau náðust uppúr sjónum. Þau voru bæöi flutt á Borgar- sjúkrahúsið og lögð inná gjörgæsludeild. Læknir þar tjáði Þjóöviljanum að þau hefðu veriö orðin mjög köld, en um miöjan dag höfðu þau jafnaö sig og voru úr allri hættu. Mjög mikil hálka var á vegin- um þar sem slysið átti sér stað og má sem dæmi nefna að bifreiö rann á lögreglubifreiö, meöan lögreglan var að sinna skyldustörfum á slysstaönum. —S.dói Það var lán að ekki hlaust af stórslys þegar bifreiðin valt I Kópa- vogslækinn t gær. Hér er búið að draga bifreiðina uppúr vatninu (Ljósm. Leifur) Stjórn Flugvirkjafélagsins sendi fyrir nokkru félögum sfnum bréf, þar sem sú hugmynd er reyfuð, að flugvirkjar gefi eftir 4% kauphækkun, sem þeir eiga aö fá og að sú upphæð renni i byggingarsjóð fyrir flugskýli á Keflavíkurflugvelli, gegn þvl, 'aö Flugleiðir h.f. og rfkisstjórn láti hvor um sig jafn háa upphæð á móti. „Við höfum rætt þetta mál við ráðherra og forstjóra Flugleiða h.f. og viðtökurnar hafa verið á þann veg, aö ég er bjartsýnn og hef góðar vonir um þaö þetta tak- ist. Svör félaga okkár I Flug- virkjafélaginu viö bréfinu sem viö sendum út voru jákvæð og þvi héldum við áfram með málið”, sagði Ragnar Karlsson formaður Flugvirk jafélagsins. Sagði Ragnar það hugmynd flugvirkja að Flugleiðir h.f., rikissjóður og Flugvirkjafélagið ættu flugskýlið saman að jöfnu. Þaö er kunnara en frá þurfi aö segja, að aðstaöa til viðgerða á flugvélum hér á landi er fyrir Fjölmiðlakönnun Leyndar- mál fyrir 400 þúsund SIA, samtök islenskra auglýs- ingastofa, létu nýlega fram- kvæma könnun til að komast að raun um útbreiðslumöguleika á auglýsingum. Hagvangur hf. annaöist könnunina og kostaði hún 4.8 miljónir króna. Niðurstöðurnar keyptu 12 aðil- ar, þeas. 8 auglýsingastofur, Morgunblaðið, Visir, Dagblaöið og útgáfufyrirtækið Frjálst framtak. 1465 einstaklingar um allt land fylltu út og endursendu spurn- ingaeyðublöö i þessari „Fjöl- miðlakönnun Hagvangs hf 1978”. Niðurstöðurnar munu þó aldrei koma fyrir almenningssjónir, þar eð þær eru i einkaeigu kaupendanna 12. jás. Yflrlit ráðherranefndarinnar aðeins efniviður 30 efnisatriði, — 26 athugasemdir „ Það er langt því f rá að búið sé að semja um efnahagsmálin", sagði Ragnar Arnalds fulltrúi Alþýðubandalagsins í ráðherranefndinni, sem lagði fram skýrslu um viðræður í nefndinni á rikisstjórnarfundi í gær, í samtali við blaðið. „Mikil samningalota er nú af- staðin og má segja að hún sé fjórða meiriháttar samningalotan frá því að stjórnin var mynduð. I þetta sinn hefur verið fjallað um efnahags- stefnuna til lengri tíma. Það mál er allsekki út- kjáð, langt því f rá", sagði Regnar ennfremur. Ráðherrann lagði áherslu á að niðurstaða ráðherranefndarinn- ar væri ekki frumvarp eins og sumir virtust halda, heldur yfirlit um efnisatriði sem ráö- herrarnir teldu liklegt aö sam- staða gæti náöst um, ásamt at- hugasemdum þar sem einstakir ráðherrar hefðu viljað ganga lengra en geta þó fallist á niöur- stöðuna I aðaltextanum. „Ég tel rétt á þessu stigi aö birta þessi efnisatriði vegna þess að málið er enn á samningastigi, en ég get upplýst að þessir efnis- punktar eru liðlega 30 og at- hugasemdir einstakra ráðherra eru 26.” Aöspuröur um framhaldiö sagði ráðherrann að þetta væri aðeins lyrjunin. 1. febrúar væri enginn dómsdagur rikisstjórnar innar og ekki hafi staðið til aö sprengja neinar stórar bombur á þeim ákveðna degi. „Við erum búnir að kort- leggja, þessi efnisatriöi sem annarsvegar er hugsanlegt að ná samstöðu um og hinsvegar þau sem bersýnilega er ágrein- ingur um. Nú er það flokkanna að meta þennan efniviö og vinna nánar úr honum undir forystu rikisstjórnarinnar.” —ekh Sjá baksíðu neöan allar hellur, enda hefur stór hluti viðgerðarþjónustunnar hjá þotunum flust úr landi af þessum sökum. Flugvirkjar hafa um árabil barist fyrir þvi aö kom- ið yrði upp viðunandi viögerðar- aðstöðu hér á landi og verður ekki annað sagt, en aö þessi slðasta tillaga þeirra sé snjöll og sýnir glöggt hve mikil alvara fylgir þessari baráttu þeirra. —S.dór. Borgarstjórn samþykkti ráðningu Þóru Borgarstjórn samþykkti á fundi sinum I gær með 10 samhljóöa at- kvæöum að ráða Þóru Kristjáns- dóttur iistráðunaut Kjarvals- staða. Fulltrúar Alþýöubandalagsins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Guörún Helgadóttir tók fram, aö þau hefðu ekkert við Þóru að athuga, sem saklaus hefði dregist inn I þessar umræður. Kvaðst hún vænta hins besta af starfi Þóru við Kjarvalsstaði sem og sam- starfsins við hana. Voðaskot Það óhapp varð á Blönduósi i fyrramorgun, að 19 ára piltur, Már Sigurbjörnsson varð fyrir riffilskoti og slasaðist talsvert. Var hann aö handleika vopnið, er skot hljóp skyndilega úr þvi I öxlhans. Már var fluttur isjúkra- húsið á Blönduósi en þaðan flug- leiðis til Reykjavikur, þar sem hann gekkst undir aðgerð. Var liðan hans i gær eftir atvikum. Nýjar úthlut- unarreglur hjá LÍN Menntamálaráðherra befur nú staðfest tillögu stjórnar Lána- sjóðs Islenskra námsnranna um nýjar úthlutunarreglur. Eins og Þjóðviljinn gat um fyrir skömmu, þá er helsta nýmæli þessara reglna að nú verður tekið tillit til fjölskyldu námsmanns við útreikning námslána. Fær náms- maöur þvi lán út á þau börn sem hann hefur á framfæri sinu. Nánar verður fjallaö um nýju úthlutunarreglurnar i blaðinu á morgun. isg. Atvinnu- málanefnd Atvinnumálanefnd Reykja- vikurborgar var kjörin í gærkvöld og er formaður hennar Guðmundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks og borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins. Aörir I nefndinni eru: Þórunn Valdimarsdóttir (A), Páll R. 'Magnússon (B), Magnús L. Sveinsson (D) og Barði Friöriks- son (D). Varamenn: Grétar Þorsteinsson (G) Valtýr Guömundsson (A), Kjartan Stefánsson (B) Hilmar Guðlaugs- son (D) og Haukur Björnsson (D). —AI.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.