Þjóðviljinn - 02.02.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.02.1979, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 2. febrúar 1979 DIOÐVIUINN Málgagn sóslalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Otgefandi: tJtgáfufélag ÞjóBviljans Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg HarBardóttir Kekstrarstjóri: Olfar ÞormóBsson GuB AfgreiBslustjó Blaöamenn: urBardóttir Margeirsson. fréttamaöur: Þingfréttamaöur Ljósmyndir: E Otlit og hönnu Handrita- og p Elias Mar. Safnvöröur: E : Filip W. Franksson heiBur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig- 'jón FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. tþrótta- Ingólfur Hannesson : SigurBur G. Tómasson nar Karlsson, Leifur Rögnvaidsson. : GuBjón Sveinbjörnsson. Sævar GuBbjörnsson. ófarkalestur, Blaöaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir, ólfur Arnason. Auglýsingar: Rúnar SkarphéBinsson, SigriBur Hanna Sigurbjömsdóttjlr. Skrifstofa: GuBrún GuBvarBardóttir, Jón Asgeir SigurBsson. Afgreiösla: GuBmundur Steinsson. Kristin Pétursdóttir. Sfmavarsla: ðlöf Halldórsdóttir, Sigrlfiur Kristjénsdóttir. Bflstjóri: Sigrún-BárBardóttir. Húsmóöir: Jóna SigurBardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdðttir. Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slfiumdla 6. Reykjavik, sfmi S1333 Prentun: Blaöaprent h.f. Að blekkja og svekkja • Enda þótt ærin tilefni séu vegna innbyrðis deilna stjórnarflokkanna gengur Morgunblaðinu illa að ná áróðurstaki á ríkisstjórninni. Sjálfstæðismönnum geng- ur ekki vel að telja landsmönnum trú um að þeir séu blekktir, en öllum er hinsvegar Ijóst eftir fundarferð þeirra um landið að forystumenn íhaldsins eru svekktir. Líklegt má telja að sú sveif la sem óf ullkomnar skoðana- kannanir benda til að átt hafi sér stað frá krötum yf ir á íhaldið sé sprottin af heimilisböli hinna fyrrnefndu, en ekki af frammistöðu þeirra síðarnefndu. • Það er heldur ekki von á árangri þegar Morgunblað- ið beitir hvað eftir annað augljósum fölsunum í mál- flutningi sínum. Síðasta dæmið eru fullyrðingar um að fundin hafi verið upp ný aðferð til vísitölufölsunar og kaupráns með því að draga afgreiðslu á hækkunarbeiðn- um opinberra stofnana og fyrirtækja f ram yf ir mánaða- mótin, þannig að gjaldskrárhækkanir komi ekki til hækkunar framfærsiuvísitölu 1. febrúar og verðbóta samkvæmt henni 1. mars. • Þessi tugga er margendurtekin í Morgunblaðinu í fréttum og forystugreinum þrátt fyrir að forsætisráð- herra hafi í svari við fyrirspurn Matthíasar Bjarnasonar alþingismanns tekið skýrt fram að afstaða yrði tekin til allra þeirra hækkunarbeiðna sem fyrir liggja frá opin- berum aðilum áður en vísitalan verður reiknuð út og f ullt tillit tekið til leyfðra hækkana við útreikning verðbóta- vísitölunnar 1. mars n.k. Ölafur upplýsti einnig að for- dæmi væru fyrir því að hækkanir hefðu verið leyfðar eftir formlegan viðmiðunardag framfærsluvísitölunnar. Slíkar hækkanir hefðu alltar verið teknar inn í vísitöluna og framkvæmdin aldrei sætt átölum f kaupgjaldsnefnd, enda ekki hallað á launþega með þessum hætti. Þar með væri samkomulagið við samtök launafólks um að verð- hækkanir opinberrar þjónustu komi ekki til fram- kvæmda nema síðustu lOdaga fyrir útreikning verðbóta- vísitölu hverju sinni virt í raun. • Skýrara getur þetta ekki verið og ber það raunar vott um dæmalausa málefnafátækt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli telja sér hag af því að láta málgagn sitt bera á borð augljósar lygar og útursnúninga sem pólitískt gilda vöru fyrir landsmenn. Það blekkir ekki þjóðina, en svekkir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins þegar til lengdar lætur. • Engan þarf að undra þótt garmurinn Ketill gelti undir þegar húsbóndinn á höfuðbólinu í Aðalstræti byrst- ir sig. Á ritstjórastól á Vísi er nú sestur eftir áralanga baráttu VL-ingurinn Hörður Einarsson og hefur tekið upp virðingarheitið „kommúnisti" á Alþýðubandalags- mönnum. Honum hefur verið falið að dansa á f lokkslínu Sjálfstæðisf lokksins enda birtast nú nær daglega næst- um samhljóða forystugreinar í Morgunblaðinu og Vísi. Ekkert samkomulag • I viðtali við Ragnar Arnalds f Þjóðviljanum sl. mið- vikudag kom skýrt fram að ekkert samkomulag er um breytingar á vísitölugrunninum í ríkisstjórninni eða ráð- herranefnd hennar í efnahagsmálum, sem skilað hefur af sér skýrslu um störf sín og hugsanleg samkomulags- atriði við mótun efnahagsstefnu til lengri tíma. • Ragnar benti á að endurskoðun vísitölunnar væri til umræðu í sérstakri nefnd og mikið hefði verið rætt um það í verkalýðshreyf ingunni hvort menn teldu sig tilbúna til breytinga á verðbótavísitölunni. Þar er meðal annars rætt um einhverskonar viðmiðun við viðskiptakjaravísi- tölu, og úr röðum Alþýðubandalagsmanna hafa heyrst raddir um að einhverskonar viðmiðun af því tagi væri skynsamleg ráðstöfun. • En eins og ráðherrann tekur fram stendur Alþýðu- bandalagið ekki að samkomulagi um neina breytingu á vísitölunni án þess að hafa fullt samráð við forsvars- menn verkalýðshreyf ingarinnar og þessvegna er ut í hött að halda því fram að samkomulag liggi fyrir um þetta mál. Þau mál skýrast í f yrsta lagi um miðjan mán- uð er vísitölunefndin skilar af sér, og ekki er hægt að gef a sér það f yrirf ram að samkomulag verði um það við verkalýðshreyfinguna að hnika til viðmiðun launa við framfærsluvísitölu fyrir verðbótaútreikning nú. —ekh Virðum forráða- menn barna! Ekkert er nýtt undir sólinni og nú hefur Ragnhildur Helgadótt- ir alþingismaður tekiö aö sér aö flytja þær umræöur sem staöiö hafa um árabil annarsstaöar á Noröurlöndum um pólitiska inn- rætingu i skólum i frumvarps- formi inn á Alþingi. Inn i máliö blandast lika friöhelgi einkalifs- ins þvi að félags- og sálfræðing- ar eru farnir aö reka nefiö ofan i hagi skólabarna og aöstandenða þeirra. Mestum tiðindum sætir fyrsta grein frumvarps Ragnhildar Ragnhildur: Sérþörfum for- ráöamanna barna veröi sinnt. Helgadóttur. Þar segir m.a. ,,Viröa skal rétt forráöa- manna nemenda til þess aö tryggja þaö, aö menntun og fræösla gangi ekki gegn trúar- ou lifsskoöunum þeirra”. NU hafa flest börn meö fékíö kristilega fræöslu i skólum landsins um árabil, sálma, siöa- boöskap, trúarleg spakmæli og bibliusögur og ekki oröið meint af, þótt deilt hafi veriö um kennsluaöferöir, enda er hér um aö ræða hluta okkar siö- menningar og arfleiföar. Hins vegar hefur skólinn látið sér i léttu rúmi liggja hvort fræöslan hefur gengiö gegn trúar- og lifsskoöunum foreldra eöa forráöamenna barna, og haldiö fast viö þessa meinlausu lúthersk-evangelisku trú Þjóö- kirkjunnar. Sérþörfum verði sinnt Nú leggur Ragnhildur sem- sagt til aö fariö sé aö sinna sér- þörfum forráöamanna barna veröandi trúarlegt og jafnvel skoöanalegt uppeldi þeirra. Enda mála sannast aö foreldrar hafa litinn tima til þess aö sinna þessum málum, — allir úti aö vinna eins og Ragnhildur og Þór. Hitt verður þingmaöurinn aö leggja betur út hvernig koma á viö sérkennslu af þessu tagi. Hugsanlega mætti bjóöa for- eldrum úr hópi Votta Jehóva, mormóna af siöustu daga heilög um og maóista aö koma I skól- ana og messa yfir heilu bekkjunum. Þaö myndi þó mæta andstööu vegna hættu á óhollum áhrifum frá Bahalforeldrum, Fylkingar- foreldrum og fl. í annan staö kærni til greina aö skipta nemendum niöur I hópa eftir trúarskoöunum og pólitiskum skoöunum foreldra. Þaö fengist varla samþykkt af kostnaöarsökum nú á sparnaöartlmum og hefur auk þess þann ókost aö stundum skarast lifsskoöanir i merking- unni pólitisk viöhorf og trúar- skoöanir hjá foreldrum og for- ráðamönnum, eins og t.d. hjá mörgum Alþýöubandalags- manninum. Til þess aö þessi stórmerka tillaga Ragnhildar Helgadóttur fái praktiskt gildi i skólakerfinu hlýtur hún aö útfæra nánar fram- kvæmd hennar á næstunni. Barnaforráösmenn meö sér- þarfir i trúar- og lifsskoöunum bföa spenntir eftir þvi hvort Ragnhildi Helgadóttur tekst aö aflétta áralangri lúthersk- evangeliskri innrætingu i skól- um landsins. Lúövik: Ætla þelr aö gefa til baka? Fá menn til baka? Lúövik Jósepsson formaöur Alþýöubandalagsins sendir „smákrötum” breiösiöu i Visi i gær. Um lögbindingaráhuga þeirra á hinum ýmsu þjóö - hagsstærðum segir hann m.a.: „Þeir flytja tillögur þessa dagana um aö fastbinda i lögum hvaö megi vera mikiö peninga- magn f umferö áriö 1980. Þeir vilja lika lögbinda aö hvorki tekjur né gjöld rikisins megi fara yfir 30% af þjóöar- framleiöslu áriö 1980. Nú vita allir, aö þjóöarfram- leiösla getur aukist og hún getur minnkaö. Hafi fjárlög i upphafi árs gert ráö fyrir 30% markinu ætti liklega aö skila álögöum gjöldum aftur og neita aö bók- færa gjöld, ef þjóöarframleiösl- an yxi ekki jafnmikiö og áætlaö heföi veriö”. Lögfestum verðbólguna! Sama dag itrekar Vilmundur Gylfason þaö sjónarmiö sem Lúövik afgreiöir með oröunum hér aö ofan i Dagblaöinu: „Þaö veröur að ná verö- bólgunni niöur. Tillögur okkar gengu út á þaö aö lögbinda helstu stæröir efnahagslifsins til tveggja ára, ná samkomulagi viö launaþegahreyfinguna inn- an þess ramma og ná þar meö mælanlegum árangri i viöur- eigninni viö veröbólguna: 30 af hundraöi fyrir árslok þessa árs og 15 af hundraði 1980”. Vilmundur: Veröbólgan niöur i 15% eins og hjá Geir. Réttast væri aö fara aö tillögu kratanna og binda þaö einnig i lög aö veröbólgan eigi aö fara niöur i 30% á árinu og 15% á þvi j næsta. Fariengu aö siöur svo aö | ekki veröi meira úr 15% mark- ■ inu en hjá Geir Hallgrimssyni I sem lofaöi 15% veröbólgu en | skildi eftir sig 55% gæti Alþýðu- | flokkurinn snúiö sig út úr lög- ■ brotinu meö „Egilsstaöasam- I þykkt”. Líkt og Framsóknar- I flokkurinn sem samþykkti aö | Jónas frá Hriflu væri ekki geö ■ veikur og fjárlögin væru halla- I laus, gætu smákratarnir sam- I þykkt aö veröbólgan væri 15% | og sett fyrirvara um stjórnarslit ■ ef hinir flokkarnir féllust ekki á I samþykktina. Miðvikudags- bylting i FUF | Hin árvissu umbrot I Félagi ■ ungra Framsóknarmanna i | Reykjavik eru nú afstaðin. Jó- steinn Kristjánsson var kjörinn | formaöur FUF á miðvikudags- ■ kvöldiö meö 114 atkvæðum en I Kjartan Jónasson fékk 54 at- I kvæöi. Alfreö: Sigurvegarinn I Félagi ungra Framsóknarmanna. Alfreö Þorsteinsson er ekki dauöur úr öllum æöum. Meö mikilli smölun áriö 1971 tókst honum aö gera laugardagsbylt- ingu I FUF gegn Ólafi Ragnari og Baldri óskarssyni. Nú tekst honum meö svipuðum aöferöum aö skáka bæöi Eiriki Tómassyni og nýjum hópi „Mööruvellinga” meö vel heppnaöri miöviku- dagsbyltingu. Ekki færri en 90 félögum var smalað inn i FUF og þeir teknir inn i félagiö sl. föstudag og mun þaö liö hafa riöiö baggamuninn i kosning- unum á aöalfundinum. Breiöholtsdeildin undir for- ystu Alfreös Þorsteinssonar og ýmsir óánægöir Framsóknar- menn ráöa nú lofum og lögum i FUF og má þvi gera ráö fyrir aö stærsta félaginu i Sambandi ungra Framsóknarmanna veröi óspart beitt gegn „hreinsunar- mönnunum” fyrrverandi i stjórn sambandsins, Eiriki Tómassyni, formanni, og Birni Lindal, sem stjórnaöi kosninga- baráttunni i Reykjavlk sl. vor aöallega meö skömmum um „góöa og gilda” Framsóknar- menn. Athyglisvert er aö óánægjan innan FUF beinist sérstaklega gegn Eiriki og hafa báöir for- mannsframbjóöendurnir keppst um aö sverja af sér tengsl við hann opinberlega. Alfreösmenn héldu þvi stift fram aö Eirikur stæöi aö baki framboðs Kjart- ans Jónassonar, og varö þaö honum ekki til framdráttar. Aö framboöi hans stóö hinsvegar hópur ungra manna sem telja sig ekki hafa nein tengsl viö aö- stoöarráöherrann, og hyggjast bjóöa fram nýjan „vinstri” lista i FUF á næsta aöalfundi. Þaö er þvi ekki friövænlegt á Fram- sóknarheimilinu i Reykjavlk þegar „ungu menninrnir” eru orönir þriklofnir. —e.k.h.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.