Þjóðviljinn - 03.02.1979, Síða 8

Þjóðviljinn - 03.02.1979, Síða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. febrúar 1979 Um helgina Frá afmælistónleikum Lúörasveitar verkalýösins I Austurbæjarbiói. (Mynd: Leifur.) Lúðrasveit verkalýðsins / I Þjórsárveri Lúðrasveit verkalýösins heldur mælistónleikum lúðrasveitarinn- tónleika i' Þjórsárveri i dag kl. 3,, ar i nóvember sl. 27 manns leika en ekki Þjórsártúni, eins og sagt með Lúðrasveit verkalýðsins. var i blaöinu i gær. Flutt verður Stjórnandi er Ellert Karlsson. sama dagskrá og á 25 ára af- —dös Rune- bergs- vaka Suomifélagið gengst fyrir ár- legri Runebergsvöku sinni i Nor- ræna h úsinu á morgun, sunnudag, kl. 20.30. Barbro Þórðarson, for- maður félagsins, flytur ávarp og séra Ólafur Skúlason dóm- prófastur heldur ræðu. Taru Valjakka, ein þekktasta söngkona Finna, mun siðan syngja einsöng við undirleik Agnesar Löve. Söngkonan kom hingað til lands og söng á lista- hátið árið 1972 við mjög góðar undirtektir. Hún er fastráðinn einsöngvari við finnsku óperuna. Taru Valjakka en einnig hefur hún sungið sem gestur i' óperuhúsum viða um heim. Einar Bragi skáld flytur þýðingar sinar á finnskum ljóð- um. Loks verða bornar fram Runebergskökur með kaffinu i kaffistofunni. Ollum er heimill ókeypis að- gangur. ih Samsetningar í Suðurgötu 7 Svala Sigurleifsdóttir opnaði sýningu i Galleri Suöurgötu 7 um siðustu helgi, og stendur hún til 11. febrúar. Sýninguna nefnir Svala ,,Samsetningar”. Sýningin er opin kl. 4-10 virka daga og 2-10 um helgar. ih Auglýsing í Þjóðviljanum ber ávöxt Keramík Nú stendur sem hæst i Ffm-salnum við Laugarnes- veg sýningin Lif f leir, þar sem sýna sexmenningarnir Gestur Þorgrimsson, Jónina Guðnadóttir, Steinunn Marteinsdóttir, Guðný Ma gnúsdóttir, Elísabet Iiaraldsdóttir og Sigrún Guðjónsdóttir. A sýningunni eru margir eigulegir munir úr ýmiskon- ar leir og postulini, og eru flestir þeirra tilsölu. Bæöi er um að ræða muni sem hafa notagildi og aöra sem flokk- ast undir hréina myndlist. Þetta er ein stærsta keramik-sýning sem haidin hefur veriö hérlendis. Börnin spyrja Junior Chambcr i Mos- fellssveit gengst fyrir J.C. degi þann 3. febrúar. 1 tilefni af ári barnsins verður haldinn fundur um skóla- og féiagsmál barna i Mosfellssveit. Verður fund- urinn haldinn i Hlégaröi milli 2 og 5 laugardaginn 3. feb. Þar veröur börnum og ungl- ingum gefinn kostur á að leggja spurningar fyrir hreppsnefnd og skólayfir- völd og einnig munu þau halda framsöguræður til að skýra sin sjónarmið. Verður fundur þessi opinn öllum aimenningi. Mynd- listar- menn fá heimsókn Norræna húsiö hefur boðið Lars Brandstrup forstjóra sýningarsala 1 Moss til þess að kynnast nánar isienskri myndlist. Lars Brandstrup kom á fótGalleri F-15Í Moss og hefur rekiö þaö árum satnan, en Moss er skammt frá ósló. Galleri F-15 er til húsa í gömlu sveitasetri, sem Lars Brandstrup hefur breytt I sýningarsali. Þar hefur hann af ótrúlegri þrautseigju og elju staðið fyrir norrænum og alþjóö- legum myndlistarsýningum, oft viðamiklum og dýrum, en Lars Brandstrup er maöur hagsýnn og tckst oft að létta undir kostnaðinum m.a. með þvf að fara sjáifur meö sinn eigin flutningabil og sækja sýningarnar, og fara með þær aftur á sama hátt. Auk þessarar umfangsmiklu sýn- ingarstarfsemi, gefur hattn út tfinaritið F-15 Kontakt, sem trúlega er eitt víðlesn- asta listtlmarit á Norður löndunum. Lars Brandstrup hefur tekiö aö sér aö vera Norræna húsinu innan handar við að senda islenska grafisýningu um Noröurlöndin i haust, og er dvöl hans hér nú aö nokkru af þvi tilefhi. En hann vill einnig komast i samband við einhverja þá, sem gætu tekiö að sér aö skrifa reglulega um islenska myndlist i tlmarit hans, og ennfremur kynnast islensk- um myndlistarmönnum með það i huga, aö, að þeir haldi einhvern tima sýningu i Galleri F-15. Lars Brandstrup dvelst hér á landi 5.-11. febrúar. Þeir islenskir myndlistarmenn, sem hug hafa á, geta hitt Lars Brandstrup I kaffistofu Norræna hússins miðviku- daginn 7. febrúareftir kl. 15, eöa mælt sér mót viö hann, ogþá hringt i sima skrifstofu hússins 17030. Þeir sem vilja hlæja sig máttlausa geta séð Silent Movie i Nýjabiói. Bíóin um helgina Nú um helgina ber svo við að kvikmyndaunnendur geta valið úr nokkrum verulega góðum myndum sem sýndar eru i bióum höfuðborgarinnar. Laugarásbió sýnir Dersu Uz- ala, nýjustu mynd japanska snillingsins Kurosawa. Austur- bæjarbió sýnir itölsku myndina Sev,en Beaties.sem átti stærstan þátt i að gera italska kvikmynda- stjórann Li'nu Wertmúller að stórstjörnu i' bransanum. Fjalakötturinn sýnir Lifsmark, fyrstu mynd Werners Herzog og á mánudaginn er hægt að fara i Háskólabió og sjá myndina VIxl- sporeftir Fassbinder. Þeir sem vilja verða máttlausir af hlátri eiga þess enn kost að sjá jólamynd Nýjabiós, Silent movie og aðdáendur Agötu Christie geta enn labbað sig niður i Regnboga og séð Dauöann á Níl. ih Tveir unglr tónlistarmenn Vatnsberamir í Lindarbæ „Vatnsberarnir”, barnaleikrit cftir Ilerdisi Egilsdóttur, verður frumsýnt i Lindarbæ á morgun, sunnudag, kl. 14.00. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir en leikmynd og búninga gerði Þórunn Sigriður Þorgrimsdóttir. Lög og textar sem fluttir eru i leikritinu eru einnig eftir Herdlsi Egilsdóttur. Leikritið er til orðið i samvinnu við skólarannsóknardeild menntamálaráöuney tisins i tengslum við kennslu i samfé- lagsfræði. „VATNSBERARNIR” hafa undanfarið veriö sýndir i flestum Grunnskólum Reykjavik- ur og nágrennis og eru sýningar nú orðnar um 60 talsins. Nú i febrúar verða örfáar sýningar i Lindarbæ fyrir almenning. Aö þeim loknum verður farið i leik- ferð um landið með „VATNS- BERANA”. Köku- basar Nokkrir nemendur Laugalækjar- skóla standa fyrir kökubasar i skólanum i dag. Kökubasarinn hefst kl. 14. Leika einleik með sinfóníunni í Háskólabíói í dag Burtfararprófstónleikar á veg- um Tónlistarskólans I Reykjavlk og Sinfóniuhljómsveitar tslands verða haldnir I Háskólabiói I dag kl. 14.30. Þar leika einleik meö sinfóniuhljómsveitinni tveir nemendur úr Tónlistarskólanum I Reykjavik og er það liður I ein- leikaraprófi þeirra frá skólanum. Nemendurnir eru Þórhallur Birgisson sem leikur fiðlukonsert eftir Mendelssohn og Þorsteinn Gauti Sigurösson sem leikur pi- anókonsert eftir Ravel. Hljóm- sveitarstjóri er Páll Pampichler Pálsson. Þeir Þórhallurog Þorsteinn eru nýkomnir heim frá Malmö, þar sem þeir tóku þátt i tslandsvik- unni í Svíþjóö. Þessir tónleikar eru einnig merkilegir fyrir þá sök, að þetta er I fyrsta sinn sem Tónlistarskól- inn i Reykjavik og Sinfóniuhljóm- sveitin hafa samvinnu á þennan hátt. Allir tónlistarunnendur eru velkomnir og aðgangur er ókeyp- is. Þorsteinn Gauti Sigurðsson og Þórhallur Birgisson

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.