Þjóðviljinn - 09.02.1979, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.02.1979, Blaðsíða 16
E WÐVIUINN Föstudagur 9. febrúar 1979 AAalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 —12 og 5 — 7 á laugardögum. Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaös- ins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. U 81333 Einnig skalbent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviijans i sima- skrá. Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins Ólafsdrögin kynnt í dag Ólafur Jóhannesson forsætis- ráöherra hefur haft skýrslu þál sem ráðherranefndin um efna- hagsmálin afhenti honum 1.- febrúar til einkaumfjöllunar í|- nokkra daga. Gert er ráö fyrir aðt hann vinniupp úr þeim efnisdrög-, um eigið frumvarp sem mála- miölun og leggi fyrir rikisstjórn-j ina eftir helgina, ef til vill á þriöjudaginn. Framsóknarflokkurinn heldur þriggja daga miöstjórnarfund sem byrjar i dag, og i upphafi hans munu ráðherrarnir ólafur Jóhannesson og Steingrimur Her- mannsson gera grein „fyrir til- lögum Framsóknarflokksins, til- lögu ráðherranefndarinnar og drögum að frumvarpi um efna- hagsmál” eins og segir i boði til fréttamanna um að fylgjast með efnahagsmálaumræðunni fyrsta dag miðstjórnarfundarins. — ekh Stund milli stríöa i Kjarvalsstaðadeilunni „Varðandi Kjarvalsstaðamálið lýsir stjórn FÍM þvi yfir að félag- ið æskir hinnar bestu samvinnu við framkvæmdastjóra stjórnar og listráðunaut, og mun leggja sitt af mörkum til að vel megi til takast” Þannig hljóöar yfirlýsing, sem stjórn Félags islenskra myndlist- armanna gerði heyrinkunna á blaðamannafundi i gær. Spurn- ingu blaðamanns um hvort Kjar- valsstaðastriðinu væri þar með lokið af hálfu FIM svaraði Jón Reykdal á þá leið, að fremur mættili'tasvoá sem núværihlé — stund milli striða, ef svo mætti orða það. Enn ætti eftir að koma i ljós hver yrði raunverulegur starfs- grundvöllur Þóru Kristjánsdótt- ur, og legði FIM rika áherslu á að hún væri ekki aðeins listráðu- nautur, heldur einnig fram- kvæmdastjóri stjórnar, einsog ætlunin hefði verið frá upphafi með þetta embætti. A blaðamannafundinum var starfsemi FIM kynnt, og m.a. sagt frásamskiptumfélagsins við erlend samtök myndlistarmanna, og verður nánar greint frá þvi hér i blaðinu á næstunni. ih Myndin er tekin á miövikudagskvöld eftir viöureign þeirra Asgeirs og Júliusar Friöjónssonar. — Ljósm.: -eik- Skákþing Reykjavíkur Ásgeir 1 gærkvöldi voru tefldar biö- skákir frá siöustu umferö Skák- þings Reykjavikur. Bragi og Guömundur geröu jafntefli, Jóhannes Gisli vann Jó- hann en sú skák sem mesta at- hygli vakti var viöureign þeirra yann Aukin út- flutningur iðnvarnings Útflutningur iðnaöarvara jókst aö verömæti um 56% á sföasta ári miöað viö 1977. Flutt var út fyrir 34,8 miljaröa króna, þar af ál og álmelmi fyrir 23,6 miijaröa. Otflutningur annarra iönaðar- vara nam þvi 11,2 miljöröum og jókst á árinu um 51%. Ullariðnaðurinn er langstærsta útflutningsgreinin eins og áður og jókst útflutningur ullarvara um 32%. Magnsamdráttur var þó nokkur vegna minni sölu til Sov- étrikjanna en á undanförnum árum. Mesta aukningin var i skinna- iðnaði bæði i verðmætum (78%) og magni (23%). Þá jókst magn og verðmæti lagmetis mikið eða um 67% i verðmæti og 7% i magni. Kisilgúrútflutningur dróst litil- lega saman vegna jarðrasksins nyröra. Ctflutningur Hampiöj- unnar þrefaldaðist aö verðmæti og einnig varð aukning i bang- mjöli og málningarvörum. — AI Omars og Sævars. Ómar varö aö sigra til aö ná Asgeiri að vinn- ungum. Það tókst þó ekki þvl þegar aöeins kóngarnir og sitt- hvort peðið voru eftir á borðinu bauö Ómar jafntefli. Þrir efstu menn i A-flokki urðu þvi: Ásgeir Árnason 8,5 vin., Ómar Jónsson 8 vin. og Elvar Guðmundsson 6,5 vin.Sjá nánar skákþátt á bis. 13. Héldu rœður afþingpöUum 1 gær flykktust nemar I Kenn- araháskóla Islands á þingpalla og þegar hlé varð á ræöuflutn- ingi, eftir ræðu Matthíasar Bjarnasonar og áöur en Gunn- laugur Stefánsson tók til máls, tók til máls vörpulegur stúdent á palli og flutti þingmönnum boöskap sinn. Þrjú ávörp voru flutt og vissu þingmenn vart hvaöan á þá stóð veðrið. Meðan þessu fór fram á pöllum stóðu aðrir nemendur KHÍ á Austur- velli andspænis þinghúsinu með spjöld og borða. Jafnframt þrumaði þar talkór sem flutti kvartanir og ákærur nemenda á hendur yfirvöldum fjármála og menntamála. Ekki varö þetta spell til þess aö trufla störf „ Góður kennari malar gulV1 stóð á einu spjaldanna þingsins um lengri tima og héldu þau áfram þegar ræöu- menn á pöllum höfðu lokið máli sinu. Hlýddu stúdentar nokkra stund á tal þingmanna en héldu svo út til félaga sinna á vellin- um. Nemendur KHI dreifðu bréfi til þingmanna, meö boöskap sinum. — sgt Leigubifreiðastjórar vilja breyttan lokunartíma veitingahúsa ÓFÆRT ÁSTAND Bandalag islenskra leigubif- reiðastjóra er mjög hlynnt fram- kominni tillögu um breyttan lok- unartima veitingahúsa. Borg- arráð hefur tillöguna nú til með- ferðar og hefur ákveðið aö leita umsagna Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda, Félags starfs- fólks i veitingahúsum, lögreglu- stjórans i Reykjavik, Félags framreiðslumanna, Félags isl. hljóðfæraleikara, Neytendasam- takanna, Félags matreiðslu- manna og Afengisvarnarnefndar borgarinnar um hana. 8-10.000 manns á götuna á sömu mínútunni. I dreifibréfi sem leigubifreiða- stjórar hafa sent borgarráðs- mönnum segir að það ástand að um 8 — lO.OOOmanna þurfi að fara út á götuna á einni og sömu min- útunni eins og nú sé, geri þeim ókleift að veita svo stórum hóp þjónustu hversu vel sem að sé staðið. Jafnframt að leigubil- stjórar séu reiðubúnir til að veita sem besta þjónustu, en telja að til þess að það sé mögulegt verði framkomin tillaga að verða að raunveruleika. Leigubilstjórarnir benda á i þessu sambandi að hvergi i' Evrópu né Bandarikjun- um séu jafnmargir leigubilar miðað við ibúa og á Islandi. — AI AGREININGUR í FÉLAGSMÁLARÁÐI Sammála um Mæöraheim- iliö, ekki Útideildina A fundi f Félagsmálaráöi i gærmorgun var fjallað um framkomnar hugmyndir um að leggja niður starfsemi Óti- deildarinnar og Mæðraheimilis- ins, en formlegar tillögur þar að lútandi hafa ekki verið lagðar fram i borgarráði. Mæðraheimilið Formaður félagsmálaráðs Gerður Steinþórsdóttir og Bessl Jóhannsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun varðandi Mæöraheimilið, en þær skipuöu sérstaka undirnefnd Félags- málaráðs sem vann upp tillögur um áframhaldandi rekstur heimilisins.: „Við viljum lýsa ýfir furðu okkar á þeirri máls- meðferð sem Mæðraheimilið við Sólvallagötu 10 hefur hlotið i borgarráði og borgarstjórn. Félagsmálaráð hafði einróma samþykkt á fundi sinum aö halda áfram rekstri Mæðra- heimilisins árið 1979 og þvi hefði veriö eðlilegt að visa málinu til afgreiöslu fjárhagsáætlunar.” I framhaldi af þessari bókun var eftirfarandi tillaga sam- þykkt samhljóöa: „Félags- málaráð samþykkir aö beina þvi til borgarráðs að við lokaaf- greiðslu fjárhagsáætlunar veröi gert ráö fyrir gjaldalið til áframhaldandi þjónustu við mæður og börn þeirra sem hvergi eiga höfði sinu aö halla um stundarsakir og þurfa veru- lega félagslega aðstoð.” útideildin Þorbjörn Broddason lagði fram eftirfarandi tillögu varð- andi Útideildina: „Félagsmáia- ráð varar alvarlega við fram- komnum hugmyndum um niðurlagningu útideildarinnar.” Tillaga þessi hlaut aðeins at- kvæði þeirra Þorbjörns Brodda- sonar, Guörúnar Helgadóttur og Gerðar Steinþörsdóttur og hlaut þvi ekki stuðning. Hjá sátu Markús Orn Antonsson, Hulda Valtýsdóttir, Bessi Jóhanns- dóttir og Sjöfn Sigurbjörns- dóttir. Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins i félagsmálaráði bók- uðu eftirfarandi: „Rekstur úti- deildar er ákvörðunaratriði við endanlega gerð fjárhags- áætlunar. Félagsmálaráð hefúr gert tillögu um framhald þessa rekstrar og hafa engar tillögur um annað verið kynntar félags- málaráðsmönnum. Þvi sjáum við ekki ástæðu til að álykta sér- staklega um það mál nú.”—ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.