Þjóðviljinn - 10.02.1979, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 10.02.1979, Qupperneq 13
Laugardagur 10. febrúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Um helgina Fröken Margrét til Grímseyjar Þessa dagana sýnir leikflokkur frá Þjóöleikhúsinu leikritiö FRÖKEN MARGRÉT fyrir Norö- lendinga og eru sýningar fyrir nemendur framhaldsskólanna á Akureyri i þessari viku. 1 leiöinni ætlar Herdis Þorvaldsdóttir ásamt fylgdarliöi aö bregöa sér út i Grimsey og leika fyrir ibúana þar. Er þetta i fyrsta skipti, sem Þjóöleikhúsiö sýnir i Grimsey og reyndar i fyrsta skipti aö aö- komuleikflokkur sýnir þar. Sýn- ingin i Grimsey veröur siödegis á laugardag. Forráöamönnum framhalds- skóla og félagasamtaka skal bent á, aö enn er unnt að panta sýning- ar á FRÖKEN MARGRÉTI, en verkiö veröur jafnframt tekiö til sýninga á ný á Litla sviöi Þjóö- leikhússins innan skamms. Norskar þjód- háttakvík- myndir W i Þjóðminja- safninu Góö aösókn hefur veriö aö Ijós- færasýningu Þjóöminjasafnsins i Bogasalnum, ..Ljósiö kemur langt og mjótt”, einkum um helg- ar, en hún hefur veriö opin á venjulegum rima kl. 1.30-4.00. A morgun 11. febrúar kl. 4, gefst gestum safnsins auk þess kostur á aö sjá i fornaldarsalnum nokkrar stuttar norskar þjóöhátta- kvikmyndir, sem safnið hefur fengið aö láni. Eru þar sýnd vinnubrögð viö bátasmiöi, mó- tekju, vattarsaum, silfursmiði og loks norska þjóðbúninga, einkum höfuöbúnað og brúöarskart. Sýn- ingartimi er alls um 1 1/2 klst. Aögangseyrir er enginn, heldur er þetta nokkurskonar aukaþjón- usta við safngesti þennan dag. Ennfremur verður ljósfærasýn- ingin i Bogasalnum opin til kl. 6 á sunnudaginn. )i,co'79 "W , 0'V«'7<3 S J Kicmovw* : ./ A OT$Y*. £»^79 :KtORBUW Diskó keppni í Klúbbnum A þessari mynd sjáum viö nokkra þá keppendur sem ætla aö taka þátt I diskókeppni sem hefst I Klúbbnum á morgun og mun standa nokkur næstu sunnudagskvöld. (mynd:Leifur). Allsherj- arfundur Rauð- sokka Rauðsokkahreyfingin efnir til allsherjarfundar i Sokk- holti annaö kvöld kl. 20.30 Rætt verður um undir- búning fyrir alþjóölegan baráttudag verkakvenna, 8. mars. Félagar eru hvattir til aö mæta, hressir aö vanda. Síðasta helgln Nú um helgina gefst mönn um siðasta tækifærið til að sjá hina gullfallegu kera- miksýningu Lif i leir, sem staðiö hefur i tvær vikur I FiM-salnum, Laugarnesvegi 112. Þar sýna 6 listamenn verk, sem unnin eru f ýmsar leirtegundir og postulin. Sýningin hefur veriö mjög vel sótt, og mikiö hefur selst. Listamennirnir sem sýna eru Gestur Þorgrimsson, Elisabet Haraldsdóttir, Guö- ný Magnúsdóttir, Jónina GuÖnadóttir, Sigrún Guö- jónsdóttir og Steinunn Mar- teinsdóttir. Sýningu Svölu að ljúka Annað kvöld lýkur sýningu Svölu Sigurleifsdóttur i Galleri Suðurgötu 7. Sýningin hefur vakiö verö- skuldaöa athygli, og m.a. hafa gagnrýnendur slðdegis- blaöanna rifist ótt og titt um kosti hennar og galla. Þeim sem viija vera meö á nót- unum i listalifi höfuöborgar- innar er þvi bent á aö fíýta sér niöur i Suöurgötu. Eftir kl. lOannaökvöld veröur þaö um seinan. Sýningin er opin i dag og á morgun frá 2 til 10. Mann- réttindin og einstak- lingurinn I dag kl. 2 gengst lagadeild Háskóla tslands fyrir al- mennum fundi i Norræna húsinu um efnið „Mannrétt indin og einstaklingurinn”. Fundurinn er haldinn i til- efni þess aö 25ár eru liöin frá þvi aö Island geröist aöili aö Mannréttindasamningi Evrópu og 30 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóöanna. A fundinum veröa haldin þrjú stutt erindi. Gaukur Jörundsson prófessor talar um mannréttindanefnd Evrópu, en hann er fulltrúi Islands i nefndinni. Jakob Möller, starfsmaöur mann- réttindadeildar Sameinuöu þjóöanna i Genf, ræöir um störf samtakanna aö mann- réttindamálum og Þór Vil- hjálmsson hæstaréttar dómari fjallar um störf Mannréttindadómstóls Evrópu, en hann skipar þar jdómarasæti af Islands hálfu. Af erindunum loknum veröa fyrirspurnir og umræöur. Fundurinn er öllum opinn, sem áhuga hafa á umræöu- efnunum. um helgina Víkur vegna þrengsla Gamanleikurinn bandariski A SAMA TIMA AÐ ARI hefur nú veriö sýndur yfir 110 sinnum á vegum Þjóöleikhússins og hefur enginn gamanleikur annar náð svo miklum sýningarf jölda. Vegna þrengsla á Stóra sviöinu veröur nú gert hlé á sýningum um skeiö, þrátt fyrir mikla aösókn, þar eð fyrir dyrum erfrumsýning á nýju leikriti: Ef skynsemin blundar, en þaö verk fjallar um ævi spánska málarans Goya. Afram veröa i sýningu leikritin Sonur skóarans, Máttarstólpar þjóðfélagsins og Krukkuborg. Siðasta sýning á A SAMA TIMA AÐ ARI er á sunnudagskvöldiö 11. febrúar. Það eru Bessi Bjarnason og Margrét Guömundsdóttir, sem leika hlutverkin tvö i leikritinu og sjást á myndinni. Leikstjóri er Gisli Alfreösson . Mickie Gee hefur nú vakað yfir plötunum slnum 118 sólarhringa og er ákveðinn að komast f heimsmetabók Guinness. Um leiö fer fram söfn- un fyrir „Gleymd börn 79”. Urslitakeppni í diskódansi Nú um helgina fer fram úrslita- keppni um tslandsmeistaratitil i diskódansi. Allur ágóði af skemmtuninni rennur til söfnun- arinnar Gleymd Börn 79. Undanfarin fimm sunnudags- kvöld hefur fariö fram á vegum Óöals og Vísis keppni um tslands- meistaratitil i diskódansi. Þáttakendur i þessari keppni hafa eingöngu veribáhugafólk, og hafa um 10 keppt hverju sinni. Af þessum tiu hafa tveir eöa þrir verið valdir úr, og sá hópur keppir til úrslita n.k. laugardag. Keppnin veröur haldin i Há- skólabióoghefstkl. 3. Auk keppn- innar sjálfrar verðuráhorfendum boðiö upp á skemmtiatriði, s.s. hljómsveitina Geimstein, Is- lenska dansflokkinn, Sæma og Diddu og sýningafólk frá dans- skólum Sigvalda og Heiöars Ast- valdssonar. Verð aðgöngumiða er 2.500 kr. Dómarar i keppninni eru atvinnu- dansarar, og er yfirdómari Heið- ar Astvaldsson danskennari. Óhætt er að fullyrða aö mikill áhugi hefur veriö á þessari diskó- danskeppni undanfarin sunnu- dagskvöld, enda vinsældir diskó- dans i algleymingi. Söfnunin Gleymd Börn 79, til styrktar van- gefnum börnum aö Lyngási, hef- ur nú staöiö i tvær vikur. Tak- markib er að safna fimm miljón- um. Verndari söfnunarinnarer séra Ólafur Skúlason, dómprófastur. Póstgirónúmer Gleymd Börn 79, er 1979-04.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.