Þjóðviljinn - 21.02.1979, Page 7

Þjóðviljinn - 21.02.1979, Page 7
Miðvikudagur 21. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Orðaskipti um Islam Hr. ritstjóri: Vinsamlegast takiö eftirfarandi til birtingar I Þjóöviljanum: Ýmsir hafa á undanförnum mánuöum fundiO sig tilknúna aö skrifaum íran i tilefni þess mikla vandræöaástands, sem þar rikir. Meöal þeirra er AB, sem viöraöi þetta efni fyrir nokkru I heilsiöu- grein um „herskáa múhameös- trú”. Ef leiörétta ætti aliar þær fjarstæöur um tranog Islám, sem Islensk blöö ein saman hafa birt siöan um áramót, yröi þaö efni i margar heilsiöugreinar, en þar sem i grein AB fer saman meiri hroki og minni skilningur en hjá flestum öörum sem um þessi efni rita, þykir mér hlýöa aö taka að- eins upp hanskann fyrir Islám. Væntanlega þýöir AB rétt upp úr heimildum sinum, þegar hann segir að Islám sé öðruvisi trúar- brögð en „við” eigum að venjast — en hvernig þá öðruvisi? Jú, Islám er „fyrirmæli um rétt líferni hér og nú I rikari mæli en kristindómur ”, Nú vill svo einkennilega til að öll trúarbrögð eru fyrirmæli um rétt liferni — Islám vegur aðeins þyngra að þessu leyti að Muslimir virðast taka meira mark á trú sinni en t.d. kristnir menn. Þannig er Islám I sjálfu sér ekkert mikið ööruvisi en önnur trúarbrögð — kjarni þeirra allra er aö heita hinn sami, þau hafa aðeins meiriáhrif á játendur sina. Sá sem kynnir sér sögu Islám mun komast að raun um hversvegna. Fróðleik um þessi mál má m.a. finna I bók eftir Maxime Rodinson „Mu- hammed”, sem fékkst I bókabúð M&M til skammstima, en Max- ime þessi er orþódox kommi og verður ekki sakaður um óþarfa undirlægjuhátt við Múhammeð. AB notar hvað eftir annað orðið „múhameöska”. Þetta merk- ingarlausa oröskripi mun runnið undan rifjum dr. Helga Pjeturs og er að finna I einhverjum Ný- alnum, en dr. Helgi hafði sem kunnugter litlar mætur á negrum og aröbum og gyöingum (hann talar m.a. um „júðsku”). Allúr tónninn i grein AB og I skrifum um þessi mál yfirleitt ber vitni þeirri skoðun, að múhameöskan sé trúarbrögð af lægri gráðu en „við” eigum að venjast. Þótt hann leitaði meö logandi ljósi I öllum trúarbókmenntunum, mun hann hvergi finna eina einustu röksemd þessu til stuðnings. Þetta viöhorf á rætur aö rekja til þeirrar vandræðalega áleitnu skoðunar, að arabarnir séu ekki einsmerkilegtfólk og ,,viö” hinir. Þaðer undarlegt hvemönnum, sem lifa á þvi að skrifa um póli- tik, er gjarnt aö tala af miklum drýgindum um hluti, sem þeir bersýnilega hvorki þekkja né skilja. AB vitnar I Kemal Ata- turk, sem nefndi Islám „reglu- gerð siðlauss Arabahöfðingja Nú kann Atattírk að hafa verið mikið átoritet um marga hluti en hann hafði þó sannanlega hvorki þekkingu né metnað til að vera átoritet um Islám. Sann leikurinn er sá, aö i Kóraninum er að finna einhvern tignarlegasta siðaboðskap, sem heimurinn þekkir, karlmannlegan og þrótt- mikinn.Löghans eruaftur á móti sniðin að bóðþyrstum og hálfvillt- um ættbálkum Arabiuskagans. Boðskapur Kóransins sameinaði fjölda þjóða og kynkvisla i eina heild og af honum spratt ein glæsilegasta hámenning, sem heimurinn hefur augum litið — arabarnir kenndu Evrópumönn- um m.a. aö þvo sér og stofnuöu fyrir þá fyrstu skóla álfunnar. Hinu er auðvitað ekkiað leyna, að á siðari timum sækir mikill hrumleiki þessi merkilegu trúar- brögð ekki sfður en kristindóminn — en trúin finnur sér stöðugt nýj- an farveg. Einkennilegasti textinn er und- ir mynd af Ayat’ulláh Khomaynl i lótusstellingum, en þar segir: „Khomayni er „ajatoDah” einn þeirra helgu manna, sem eru tákn um vilja Allah.” Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að Khomayni sé heilagri en aðrir menn, og að hann sé tákn um vilja Allah er ekki annað en saklaus fyndni hjá Le Nouvel Observateur, aðal- heimildAB. Nafnið Ayat’ulláher virðingartitill, sem manngarm- urinn hefúr gefið sjálfum sér eða fengið að gjöf, þegar hann út- skrifaðist úr prestaskólanum. ’ulláh er eignarfallsmynd arab- iska orðsins Alláh. Þetta nafn ber ekki vitni um neina verðleika i sjálfu sér fremur en t.a.m. séra. Eövarð T. Jónsson, isafirði. Athugasemd um hrokann og karl- mennskuna Þetta bréf hefur af misgáningi legið lengur óbirt en skyldi. En vegna þess aö undirritaöur er sakaður um „minni skilning og meiri hroka” I skrifum um Iran og múhameðstrú,Islam, en flestir aðrir, þá er rétt aö hnýta aftan við tilskrifið nokkrum athugasemd- um. Eðvarði T. Jónssyni þykja það mikil firn að ég sagði I grein minni að Islam væri „öðruvisi” trúarbrögð en sú kristni sem við eigum að venjast. Setningin sem hann hefur i huga er þessi: „Islam er fyrirmæli um rétt lff- erni nú og hér i rikari mæli en kristindómur treystir sér til aö vera nú um stundir.” Siðari hluta setningarinnar sleppir bréf- ritari — ogskiptir hann þómestu i þessu samhengi. Vitaskuld geyma öll trúarbrögð fyrirmæli um rétta eða æskilega hegöun. Hér er enginn að deila um svo augjósan hlut, heldur er því blátt áfram slegið fram, að Islam og stofnanir hans hafi sterkari stöðu til að fylgja boðum sinum eftir i múhameðskum heimi en kirkja á Vesturlöndum. Mér er gjörsam- lega óskffjanlegt hvernig slikur samanburður á að bera vitni um „fyrirlitningu” á Islam, eöa þá skoöun sem bréfritari er að reyna að gera mér upp: að ég telji aö „arabarnir séu ekki eins merki- legt fólk og „við” hinir”. Arabar voru reyndar ekki á dagskrá I grein minni, heldur fyrst og fremst Persar, Tyrkir og Pakist- anir. Samantekt min byggði blátt á- fram á þeim skilningi mála, að Islam gerist nú um stundir veru- legt pólitiskt afl, bæði vegna þeirrar stöðu sem trúarbrögðin hafa i reynd i múhameðskum samfélögum, og vegna þess aö þau viðhorf eru útbreidd I þessum samfélögum að hvorki vestrænn kapitalismi, sovéskur kommún- ismi né „veraldleg” þjóðernis- hyggja hafi risiö undir vonum, leyst hin brýnustu vandamál. Og þegar vitnaö var til niðrandi um- mæla Kemals AtatÖrks um Islam, þá á hver læs maður að geta skilið, að það er gert til þess eins að minna á það djúp sem staðfest er á mflli þjóöernissinna afhansskóla ogmanna á borð við Khomeini hin iranska. EðvarðT. Jónssonhefur komist að þeim sannleika sem hann kall- ar svo, aði Kóraninum sé aðfinna „einhvern tignarlegasta siöaboð- skap sem heimurinn þekkir, karlmannlegan og þróttmikinn”. Má vel vera. Heimurinn virðist reyndar yfirfullur af tignarlegum siðaboðskap. En að þvi er varöar þróttinn og karlmennskuna, þá getur ekki hjá þvi farið að menn taki eftir þvi, aö þvi sterkari og beinni áhrif sem fyrirmæli Kór- ansins hafa á löggjöf og lffshætti i múhameöskum rikjum, þeim mun meiri kúgun sæta konur og þeim mun grimmdarlegri eru refsingar gegn þeim sem lög brjóta. Dæmi má taka af Saudi-Arabiu og nú siðast af Pakistan. Ef sá sem er litið hrifinn af slikri „karlmennsku” er þar með oröinn sekur um kyn- þáttafordóma, trúarlega fordóma og guömávitahvaö, þá er sannar- legaorðiö erfitt að Dfa og skrifa. En hvað segir dcki sú góða bók Kóraninn: „Hvern þann, sem ó- hlýðnast Allah og Sendimanni hans og brýtur boð Hans, þann mun Hann láta i Eld ganga, og mun sá dvelja þar um eilifð” (Surah IV, 14). Arni Bergmann P.S. Það var reyndar ekki Le Nouveí Observateur heldur þau Spiegel og Guardian i samein- ingu sem lugu þvi aö mér að Ajatollah þýddi „tákn Allah”, eða eitthvaö þessháttar. Sömu heim- ildir vilja ljúga þvi aö okkur, að ajatoDar séu, samkvæmt hug- myndum Sjita, staðgenglar siðasta Imamsins, en ímamir bjuggu yfir yfirnáttúrlegum vis- dómi meðan þeir voru og hétu og voru frjálsir undan allri synd. Þjóðtrúin segir, aö siðasti tmam- inn sé reyndar enn á jörðunni og muni birtast rétttrúuöum þegar stundin er komin og stofna guðs- riki á jörðu, jarðneska paradis. Það er þá ekki nema von að mikl- ar pólitiskar vonir séu bundnar viö Khomeini. 100 braut- skráðust úr Tækni- skólanum sl. ár 100 nemendur brautskráðust á sl. ári frá Tækniskóla tslands, en alls stunduðu 381 nemandi nám, við skólann, þaraf 22 á Akureyri og 11 á tsafirði. Af þeim sem brautskráðust frá skólanum voru 16 útgerðartækn- ar, 7 I fyrsta hluta raftæknifrasði, 9 I fyrsta hluta véltæknifræði og náskyldum greinum, 29 raun- greinadeildarprófsmenn (þaraf 6 á Akureyri og 3 á Isafirði), 19 meinatæknar, 12 byggingatækni- fræðingar, 6 raftæknar og 2 vél- tæknar. Heildarfjöldi brautskráöra frá Tækniskólanum er þar með kom- inn uppi 954, að þvi er fram kem- ur i yfirliti frá skólanum. Afangakerfið, sem nú er orðið þriggja ára gamalt veldur þvi, að tvisvar á ári er hægt að ljúka hvaða námsbraut sem er við skól- ann. Enn um sinn amk. verður þó algengast að brautskrá i desem- ber byggingatæknifræðinga og tækna i byggingum, rafmagni og vélum. 1 mai verður aftur á móti venjulegur endir námsbrauta i útgerðardeild og i frumgreina- deild (undirbúnings- og raun- greinadeild). Þá lýkur einnig fyrri hluta náms i rafmagns- og véltæknifræöi. Meinatæknar eru jafnanbrautskráðir Ibyrjun októ- bermánaðar, en það helgast af þvi hve langan tima verklega námið tekur. Afangakerfið sækir viða fram. Dönsku tækniskólarnir, sem Tækniskóli Islands hefur frá upp- hafi haft samstarf við, eru nú á fyrsta ári með nýtt áfangakerfi. I þvi er margt frábrugðið kerfinu hér, en snurðulaus skólaskipti rafmagns- og vélamanna hafa þó verið tryggð. A árinu uröu ýmsar langþráðar lagfæringar i skólanum, segir i yfirliti rektors. Mötuneyti tók til starfa, bókasafn er verið að byggja upp og verður rekið sem útibú frá Tæknibókasafninu viö Iðntæknistofnun Islands, húsgögn fengust I setustofu og viðar og nokkur tæki fengust I tilrauna- stofu véladeildar. Aukin hafa verið stórlega tengsl Tækniskóians við fjöl- brautaskóla, en sem kunnugt er tengdist Tækniskólinn frá upphafi aðallega iðnskólunum. — vh • Blikkiðjart Ásgarði 7, Garðabæ Önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SIMI 53468 Tökum að okkur viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smiðum eldhúsinnréttingar; einnig við- gerðir á eldri innréttingum. (Jerum við leka vegna steypugalla. Verslið við ábyrga aðila TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ Bergstaðastræti 33, simar 41070 og 24613

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.