Þjóðviljinn - 21.02.1979, Síða 16

Þjóðviljinn - 21.02.1979, Síða 16
UOÐVIUINN Miövikudagur 21. febrúar 1979 Alþingi í gær: Sjá yeður- guðirnir um friðun loðnunnar? 1 gær sagbi Magnús H. Magnús- son sta&gengill sjávarútvegsráð- herra, i svari við fyrirspurn Guð- mundar Karlssonar um takmörk- un loðnuveiði, að ekki væru á döf- inni í sjávarútvegsráöuneytinu sérstakar ráðstafanir til þess að takmarka loðnuaflann á þessari vertiö viö 350 þús. lestir eins og Hafrannsóknarstofnun lagöi til. Magnús sagöi að nýjustu rann- sóknir á loðnugöngu fyrir Vest- fjörðum gæfu til kynna að meira væri af þessum mikilvæga fiski I Islandsálum en menn hefðu áður talið. Rannsóknum væri ekki lok- ið og ekki yrðu geröar neinar ráð- stafanir til aflatakmarkana áður. Þá sagði Magnús að Hjálmar Vil- hjálmsson, sem gert hefði rann- sóknir á þeim hluta loðnustofns- ins sem gengið hefði suöur meö Austfjörðum.hefði lagt til aö ekki yröu veidd nema 350 þús. tonn úr þeim hluta en veiðum til bræöslu hinsvegar beint aö Vestfjaröá- loðnunni. Því yrði ekki af hálfu yfirvalda um neinar takmarkanir veiða að ræða á næstunni, fyrr en séð væri hve mikilli friðun veður- guðirnir ætluðu að standa fyrir. Ekki hlutu þessi svör ráðherra góðar undirtektir þingmanna. Matthias Bjarnason sem þó er ekki þekktur að neinu guðleysi kvað þessar yfirlýsingar aumleg- ar. Það væri ljóst að ráðuneytið vissi ekkert i hvora löppina þaö ætti að stiga. sgt Leitað lið- veislu Svía Kagnar Arnalds samgöngu- og menntamálaráðherra og Þor- steinn ólafsson aðstoöarmaöur iðnaðarráðherra gengu i gær l Stokkhólmi á fund viðskipta- málaráðherra Svia til að kynna honum sjónarmið rikisstjórnar lslands varðandi hækkun jöfn- unargjaids á innfiuttum iönaðar- vörum úr 3% i 6%. Er þetta gert i framhaldi af för sendinefndar tslands til viðræðna við fulltrúa EFTA og EBE sem sagtvarfrá I Þjóöviljanum i gær og er þess vænst að sænski við- skiptaráðherrann leggi málinu lið á vettvangi EFTA i Genf. AAalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9 —12 og 5 — 7 á laugardögum. Utan þessa tlma er hægt aö ná i bla&amenn og aðra starfsmenn blaðs- ins I þessum Simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaðaprent 81348. U 81333 Einnig skalbent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá. Edera frá Napólilá fyrir norðan Engey og beiö ákvarðana um viögerö. (Ljósm.: Leifur) „Voruni liræddir um að devja” sögðu skipverjar á Ederu á ytri höfninni í Reykjavík í gær Lúguhlerarnir eru fast að 10 tonnum að þyngd og þeir höfðu svipst upp I átökunum. (Ljósm.: Leifur) ,,Þaö var afspyrnuveður og við vorum mjög hræddir. Viö hcldum að við værum aö deyja”, sögðu skipverjarnir Parrino Pietro, D’Orlando Giovanni og Langella Pasquale frá Napoli er Þjóðvilja- menn fóru um borð i italska skip- ið Edera á ytri höfnina i gær til að kanna skemmdirnar um borð eftir brotsjóinn sem það fékk á út af Reykjanesi um helgina. Það liggur nú fyrir norðan Engey. Tveir fremstu lúguhlerarnir höfðu svipst af skipinu og undist upp en þeir eru upp undir 10 tonn að þyngd og i þeim allt að tommu þykkt stál. Þá hafði mikið for- mastur með um 10—12 mm þykku stáli lagst niöur og auk þess voru grindverk farin og fleiri skemmd- ir á skipinu. D’Orlando Giovanni vélamaöur hafði orð fyrir þeim þremenning- um enda sá eini sem eitthvað kunni i ensku. Hann fullyrti að þetta risastóra skip væri 50 þús. tonn en sumir segja að það sé 40 þús. tonn og enn aðrir 33 þús. tonn. Sannfróðir segja að siðasta talan fari næst lagi. Búið var að dæla öllum sjó upp úr fremstu lestarhólfunum i gær en enginn samgangur er milli hólfa. Edera virðist vera komin nokkuð til ára sinna enda yfirbygging þess tærð og ryðguð á köflum. Fulltrúar eigenda skipsins áttu að koma til landsins i gær til að taka ákvörðun um viðgerð á þvi. —GFr Við vorum mjög hræddir, sögðu skipverjarnir Pietro, Giovanni og Langelia er þeir töluöu við blaöamann I gær. Yfir höfðum þeirra sést formastriö kengbogið. (Ljósm.: Leifur) Efnahagsstefna Sjálfstæöisflokksins á 4 1/2 síöu Verðbólgan kveðin niður Krónan öðlast traust með því að miða alfarið við erlent gengi Forráöamenn Sjálfstæöisflokksins á fundi meö fréttamönnum i gær. Frá vinstri: Sigurður Hafstein, Jónas Haralz, Geir Hallgrimsson, Gunnar Thoroddsen, Ólafur G. Einarsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Ljósm-eik. Forráðamenn Sjáifstæðis- flokksins boðuðu blaðamenn á sinn fund i gær og kynntu tillögur flokksins i efnahagsmálum. Að sögn Geirs Hailgrimssonar og Gunnars Thoroddsen, sem báðir sátu fundinn, hefur tillöguflutn- ingur þessi veriö rækilega undir- búinn af þingflokki, miðstjórn og efnahagsmálanefnd flokksins. Tillögurnar bera yfirskriftina „Endurreisn I anda frjáls- hyggju” og eru aö mestu upptaln- ing á almennt viðurkenndum atriðum til úrbóta i efnahagslifi þjóðarinnar, svo sem aö verö- bólga skuli kveðin niöur og verö- mætasköpun aukin með skyn- samiegri nýtingu náttúruauð- linda. Ekki er i tillögum þessum vikiö einu orði að helstu vandamálum sem nú eru efst á baugi I efna- hagsmálum, svo sem oliukrepp- unni og yfirvofandi atvinnuleysi. Sjálfstæðismenn telja almenn- ar reglur heppilegri en boð og bönn og vilja draga úr miðstýr- ingu meö þvi aö flytja verkefni frá riki til sveitarfélaga, fyrir- tækja og einstaklinga. 1 þessu til- viki benda þeir á aö sveitar- félögin eigi aö reka grunnskólann og fá til þess aukinn hluta af sölu- skatti. Þá er I markmiöakafla tillagn- anna sagt aö verðbólgan skuli kveöin niður þannig aö krónan öölist traust innan lands og utan, en i kafla sem ber yfirskriftina „Helstu leiöir” segir aö frjálst skuli að semja um tengingu fjár- skuldbindinga viö skráö gengi er- lends gjaldmiöils eöa verötrygg- ingu meö öörum hætti. Annað helsta markmiö tillagn- anna er aö verömætasköpun skuli aukin meö skynsamlegri nýtingu náttúruauölinda, en i kaflanum um markmiö er ekki frekari út- færslu á þessu stefnuatriöi aö finna. Onnur markmiö tillagnanna eru: jöfnuöur I viöskiptum viö aörar þjóöir, — aö dregiö veröi úr spennu á vinnumarkaöi jafn- framt þvi sem næg atvinna hald- ist, — yfirvinna minnkuö, en kaupmáttur á vinnustund aukinn. Þá miöa tillögurnar aö þvi aö skattheimta verði minnkuð og dregiö úr opinberum afskiptum þannig að frjáls atvinnustarfsemi geti eflst og einstaklingar fengiö meiri ráöstöfunarrétt yfir tekjum sinum. Upptaka erlendrar myntar? Meginatriöi tillagnanna sem miöa að þvi aö kveöa niður verð- bólgu er aö finna I kaflanum Vextir, verðtrygging, fjárfesting og sparifjármyndun. Þar segir aö draga verði úr opinberum af- skiptum á peningamarkaöi og aö ákvöröunarvald um kjör al- mennra innlána og útlána skuli flytjast frá Seölabanka til ann- arra fjármagnsstofnana. Frjálst skuli aö semja um fjárskuldbind- ingar miðaö viö gengi erlends gjaldmiöils eöa verötryggingu meö öörum hætti. Að þessu fengnu telja Sjálfstæöismenn aö sparifjármyndun muni aukast og stuðlaö sé aö hagkvæmri nýtingu fjár. 1 lokin segir aö þegar þessi leiö hafi skilaö árangri sé rétt aö Framhald á 14. siöu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.