Þjóðviljinn - 07.07.1979, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júll 1979
AFSKARKALAMENGUN
Ég bý í einu snobbaðasta hverfi borgarinn-
ar, í Tjarnargötunni, rétt hjá Ráðherrabú-
staðnum. Það gefur lífinu að sjálfsögðu tals-
vert gildi að vera svona staðsettur, en svo
fylgir líka böggull skammrifi. Hér er sem
sagt meiri skarkalamengun en góðu hófi
gegnir. Satt að segja held ég að fólk ætti að
fara að gefa þessari tegund mengunar meiri
gaum en hingað til og hyggja að því hvort ekki
er hægt að koma við einhverjum skarkala-
mengunarvörnum áður en þjóðin ærist af
óþverranum.
Ég vaknaði semsagt i morgun við ærandi
hávaða. Leit útum gluggann og sá ekki betur
en kominn væri í götuna skriðdreki. Þegar ég
þó gætti betur sá ég að þarna var á ferðinni
einn af þrifabílum borgarinnar, bæði
sprautubíll og götusópari í senn. Það fór sem
sagt ekki milli mála að nú var tiginna gesta
von í Ráðherrabústaðinn. Götur eru aldrei
þrifnar í Reykjavík nema þjóðhöfðingjum og
öðrum pótintátum til dýrðar.
Ég fór uppi aftur og reyndi að sofna, en þá
byrjuðu árrisulir eljumenn að grafa fyrir hús-
grunni hjá nágranna mínum með ioftbor.
Skömmu síðar kom svo öskubíllinn og áhöfn
hans með tilheyrandi slagverki, og í sama
mund hringdi vekjaraklukkan. Ég kveikti á
morgunútvarpinu. Þar var verið að klára
Diskófriskó og næst kom Helgi Péturs (al-
nafni Helga Péturs) með yndið sitt yngsta og
besta. Mér finnst Helgi þessi merkilegastur
fyrir auglýsingu um hann í sjónvarpinu:
„Helgi kemur á þessari plötu skemmtilega á
óvart með fáguðum söng".
Nú var skarkalinn orðinn svo mikill heima
hjá mér á þessum kyrrláta sumarmorgni að
kötturinn skaut upp kryppunni, orðinn úfinn
eins og broddgöltur. Þá ákvað ég að yfirgefa
-staðinn. Ég gerði á mér morgunverkin og
hraðaði mér út. Um leið og ég kom útá tröpp-
urnar f laug hljóðf rá þota hjá í seilingarhæð að
því er virtist, en það vildi mér til happs að ég
var orðinn dofinn í eyrunum og sjokkið þess
vegna ekki eins harkalegt eins og ef eyrun
hefðu verið í hvíldarstöðu.
Ég ákvað að f ara niður á Hressó, gerði það
og rabbaði svolítið um daginn og veginn við þá
sem þar voru fyrir. Okkur kom öllum saman
um það að höfuðskepnurnar væru í raun og
veru aðeins kraftbirting æðri máttar, sem er
frumefni allra frumefna og að þessi æðsti
máttur sem er óef nislegur væri táknaður með
guði ástarinnar. Við kjöftuðum svolítið meira
um þetta og urðum síðan sammála um það
sem raunar liggur í augum uppi, að það er ein-
mitt þessii máttur, ástin, og andstæða hennar
hatrið, sem setur höf uðskepnurnar á hreyf-
ingu og lætur frumefnin blandast og leysast í
sundur.
Við vorum sem sagt rétt svona að komast á
strik þegar ærandi hávaði yfirgnæfði þetta
kyrrláta morgunrabb. Fjarstýrður hátalari
frá f jarlægu útvarpstæki glumdi allt í einu á
fullu svo skar í eyrum. Diskófriskó Diskó-
friiiiiiskó. Mig skal ekki undra þó Ljósin í
bænum seljist.
Við gerðum ítrekaðar tilraunir til að ná í
hinar hýru og viðmótsþýðu gengilbeinur stað-
arins til að fá slökkt á glymskrattanum en
auðvitað heyrðu þær ekki til okkar fyrir há-
vaða. Ég hröklaðist útá götuna örvita af hljóð-
mengun þessa kyrrláta sumarmorguns, en
það kom brátt í Ijós að ég var kominn úr ösk-
unni í eldinn. Yf ir saklausa vegfarendur Aust-
urstrætis var á þessum fagra sólskinsmorgni
sturtað úr tveim hátölurum hljómplötuauglýs-
ingamúsikk fyrir fábjána. Einhverra hluta
vegna virðist óhugsandi að fá skrúfað fyrir
þennan ófögnuð og það þó allt starfsfólk, sem
vinnur við götuna, hafi sent borgarstjórn og
borgarráði bænaskjal um að skrúfa fyrir
þessa eyrnanauðgun.
Mér er sagt að á miðöldum hafi göturæsi
legið eftir miðjum götum, en vegfarendur
haf i stundum orðið fyrir því að skvett var úr
hlandkoppum yf ir þá þegar þeir gengu h já. Ég
get ekki að því gert að mér finnst skarkalinn
úr plötubúðunum í Austurstræti og við Lauga-
veg engu betri en þó skvett væri yfir mig úr
næturgagni, og mér finnst að borgarráð og
borgarstjórn ættu að skammast sín fyrir þá
óhæf u að láta það óátalið að fólki sé á þennan
háttþröngvaðtil að hlusta á vanvitamúsikk og
mætti raunar einu gilda þó verið væri að
pumpa sígildum snilldarverkum út í göngu-
götuna. Svona skarkali hljómplötumangara
er frekleg móðgun við vegfarendur, sem eiga
að fá að ráða því sjálfir hvaða tónlist þeir
hlusta á og hvenær, án þess að henni sé
þröngvað uppá þá, sem ef til vill langar meira
til að hlusta á veðurblíðuna.
Nú ákvað ég að flýja í náðarfaðm vestur-
bæjarins, en þar er ég borinn og barnfæddur
og hef raunar átt heima fyrir vestan læk alla
mína hundstíð.
Ég gekk uppá Landakotstún og viti menn:
Búið að sprengja Landakotstúnið í loft upp og
var raunar veriðað reka smiðshöggið á verkið
þegar mig bar þar að. Eini grasreiturinn í
vesturbænum orðinn opin und eins og ferleg-
asti sprengigígur og viðurstyggð eyðilegging-
arinnar í hámarki. Ég spurði of ur kurteislega
einn af sprengimönnunum sem þarna voru
hver djöfullinn í heitasta helvíti gengi eigin-
lega á.
Hann svaraði því til að úrgangurinn úr
geistlegheitum páfadóms í Landakoti þyrfti
að komast í „neðra" klóakið og þess vegna
þyrfti aðgera þennan ægilega holskurð á eina
opna grasbletti vesturbæjarins. Þarna ætti
lika að byggja hús yfir einhvern guðsmann.
Og í sama mund kvað við ógurleg sprenging í
túninu. Ég forðaði mér hnugginn burt, orðinn
heyrnarlaus af skarkalamenguninni í gamla
bænum mínum. Og sem ég hafði snúið baki við
kaþólsku kirkjunni á Landakotstúninu kvað
við önnur sprenging sýnu meiri en sú f yrri, og
ég sá ekki betur en helgidómurinn riðaði. Mér
datt í hug vísa sem sagt er að páf inn haf i sent
borgarráði um leið og þess var farið á leit að
leyfi yrði veitttil að breyta Landakotstúninu í
svað:
Kirkja vors guðs er gamalt hús,
en guðs mun ei bygging falla
þó að við breytum grasi í grús
svo glóakið fái halla. Flosi.
Bœklunarsérfrœðingar óánœgðir meö kjör sín
Þurfa sjuklingar að greiöa fuDt gjald?
„Það er okkur áhyggjuefni, aö
bæklunarsérfræöingar hafa sagt
sig úr Sjúkrasamlagi Reykja-
vikur” sagöi Björn önundarson
yfirtry ggingarlæknir hjá
TryggingastofnunRfkisins, þegar
Þjóöviljinn haföi samband viö
hann.
Bæklunarlæknar eru óánægöir
með kjör sin, og kjósa að standa
utan við tryggingakerfið og taka
beinar greiðslur samkvæmt taxta
Læknafélags Reykjavikur. Það
þýðir að sjúklingar, sem nú
greiða 2000 kr. fyrir hvern
viðtalstlma, þurfa að greiða 7630
kr. fyrir viðtalið, ef af úrsögn
verður.
Einstaka læknir hefur sagt sig
úr Sjúkrasamlaginu en þetta er
fyrsti hópurinn sem tekur sig
saman vegna óánægju með laun.
Biörn önundarson sagði að
Tryggingastofnun hefði
áhyggjur vegna sinna skjól-
stæðinga, sem flestir væru
örorku- og ellilifeyrisþegar og
hefðu ekki á öðru að byggja en
lífeyri, sem væri rétt um 100 þús.
kr. Þeim væri ofviða að greiða
svo há sjúklingagjöld til sérfræð-
inga auk lyfjakostnaðar, san oft
væri verulegur ef hlutur
trygginganna félli niöur.
Samningar við læknana renna
út I nóvember en viðræður eru að
hefjast milli læknanna annars
vegar og Tryggingastofnunar og
Sjúkrasamlagsins hins vegar.
Mótmæla framkvæmd-
um á Landakotstúni
tbúasamtök Vesturbæjar eru
nú að safna undirskriftum gegn
framkvæmdum á Landakotstún-
inu. Krefjast þeir þess að fram-
kvæmdir verði stöðvaðar og bætt
það jarðrask sem þar má nú sjá.
Magnús Skúlason, formaður
íbúasamtakanna, sagöi að áriö
1977 hefði verið haldinn fundur
m.a. með fulltrúum borgarinnar
þar sem eindreginn vilji var lát-
inn I ljós um að túnið yrði ekki
skert með neins konar fram-
kvæmdum.
Skömmu síðar gerði borgin
samning viö kaþólsku kirkjuna
um byggingu tveggja húsa og
eftir að sú borgarstjórn, sem nú
situr, tók við, var leyfisamþykkt I
byggingarnefnd.
Áskriftasími
Þjóðviljans 81333
Þaö er þvi við páfann og hans
umboðsmenn hér á landi aö eiga
ef takast á að stöðva
framkvæmdir, sagði Magnús.
—ká
Hlutu bókaverðlaun
frá Þjóðleikhúsinu
Þjóöleikhúsiö hefur veitt 15
bókaverölaun til jafnmargra
krakka fyrir réttsvör viö mynda-
getraun sem birt var I leikskrá á
barnaleikritinu Krukkuborg sem
sýnt var I vetur.
Bækurnar gáfu bókaútgáfurnar
örn og örlygur, Iöunn og Mál og
menning, en rétt ráðning var að
myndirnar voru úr Dýrunum I
Hálsaskógi, Kardemommubæn-
um, Karlinum á þakinu, ösku-
busku og Milli himins og jarðar.
Dregið var úr lausnunum og
hlutu eftirtaldir verðlaunin:
Gunna Vala Asgeirsdóttir,
Garðaflöt 21, Margrét Hjartar-
dóttir, Suðurgötu 51, Hafnarfirði,
Stella Stefánsdóttir, Skólavöllum
3, Selfossi, Eðvarð Þór Williams-
son, Viðilundi 1, Una Margrét
Jónsdóttir, Ljósvallagötu 32,
Hil^ur Njarðvik, Skerjabraut 3,
Seltjarnarnesi, Magnús Edvald
• Björnsson, Fálkagötu 21, Rvlk,
Björg Sigurjónsdóttir, Sæbóli við
Nesveg, Seltjarnarnesi, Hafdls
Birna Baldursdóttir, Tjarnargötu
16, Rvík, Svanur og Hilmar
Sævarssynir, Borgarheiði 10,
Hveragerði, Hugrún Ragnheiður
Hólmgeirsdóttir, Hraunbæ 108,
Rvík, Lilja Guðrún Lange, Víði-
hvammi 28, Kópavogi, Ester og
Asta Andrésdætur Laugarnesvegi
112, Rvik, Kristófer Pétursson,
Skaftahllð 12, Rvik, Jón Arnar
Þorbjörnsson, Vallarbraut 5.
Af ofannefndum nöfnum voru
dregin út nöfn þriggja, sem að
auki fá ókeypis aðgöngumiða að
barnaleikriti næsta leikárs og
komu eftirtalin nöfn upp:
Eðvarð Þór Williamsson, Haf-
di's Birna Baldursdóttir og Hug-
rún Ragnheiður Hólmgeirsdóttir.