Þjóðviljinn - 07.07.1979, Page 3

Þjóðviljinn - 07.07.1979, Page 3
Laugardagur 7. júli 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 3 Nokkrir úr bráðabirgðastjórn Sandinista og' bandamanna þeirra, talið frá vinstri: Alfonso Ro- belo, f ulltrúi borgaralega sinnaðra andstæðinga So- moza, Violeta Barros de Chamorro, ekkja Chamorros ritstjóra sem menn Somoza myrtu í jan- úar í fyrra, Sergio Ramirez, sem sumir telja að verði næsti forseti Nicaragua,og kaþólski prestur- inn Ernesto Cardenal, talsmaður Sandinista-hreyf- ingarinnar. Óntan selur USA oliu fyrir vopn 6/7 — Sagt er aö furstadæmiö Óman á Arabiuskaga sunnan- veröum ætli aö draga úr hrá- oliuútflutningi sinum til Jap- an, aö likindum til þess aö selja meira af oliu sinni til Bandarikjanna fyrir vopn. Er þetta i samræmi við fréttir þess efnis, að Bandarikin hafi ákveðið að auka hernaöarlega nálægð sina á Indlandshafi og þá sérstaklega i nánd viö Persaflóann, einkum meö það fyrir augum að koma i veg fyrir „annaö tran.” Einn liö- urinn i áætlunum Bandarikja- stjórnar þvi viðvikjandi er aö auka vopnasölu til valdhafa, sem taldir eru hlynntir Bandarikjunum. Siðastliðið ár var Japan stærsti viöskiptavinur ómans og flutti þaöan inn 180.000 tunnur af oliu á dag. Nú á sá innflutningur að skerast niður um 30% að sögn. Þetta er við- kvæmt mál fyrir Japani, sem eru jafnvel enn meira komnir upp á oliu frá Austurlöndum nær en Vesturlönd. 32% olíuhœkkun hjá Mexikönum 5/7 — Mexikó tilkynnti i dag að verðið á útfluttri hráoliu það- an hefði verið hækkað um rúmlega 32%, eða úr 17.10 dollurum upp i 22.60 dollara á tunnuna. Pemex, oliufélag mexikanska rikisins, sagði að þetta nýja verð myndi gilda frá 1. iúli til 30. sept. Þessi verðhækkun er i tengslum við nýja verðiags- kerfið frá sambandi oliuút- flutningsrikja (OPEC), enda þótt Mexikó sé ekki i þvi bandalagi. Hámarksverðið, sem OPEC ákvað i s.l. viku, er 23.50dollarar á tunnu. Mexikó er i örum uppgangi sem oiiu- riki og er búist við að undir áramótin verði framleiðsla þess orðin 1.8 miljón tunnur á dag. Sprengja slasar franska feröamenn 6/7 —Þrir franskir ferðamenn reglu þar i borg. Ætla má að særðust er sprengja sprakk palestinskir skæruliðar hafi nálægt styrjaldarminnismerki verið þar að verki. i Jerúsalem i dag, að sögn lög- Nicaragua: Sandinistar vinna á 23 borgir og bæir á valdi þeirra 6/7 — Sandinistar vinna jafnt og þétt á I Nicaragua, eftir flestum fréttum þaðan að dæma. Frétta- maður Reuters hefur eftir heim- ildarmönnum sinum út um land að 23 borgir og stærri bæir séu nú á valdi þeirra, og bendir það til þess að meirihluti landsins utan höfuðborgarinnar Managua hafði nú verið frelsaður úr klóm So- moza-stjórnarinnar. Undanfarna daga hefur verið barist af hörku um Rivas i suðvesturhluta lands- ins, en þá borg hyggjast Sandin- istar gera að aðsetri bráða- birgðastjórnar sinnar og banda- manna sinna, sem þegar hefur verið viðurkennd af tveimur riki- um, Panama og trak. Búist er við að fleiri rómanskamerisk riki viðurkenni bráðabirgðastjórnina innan skamms vegna þess að striðsgæfan brosir nú æ meir við Sandinistum. Sendiráðsmenn i Managua segja að skæruliðar Sandinista. muni nú hafa slegið hring um höf- uðborgina og megi búast við að þeir ráðist inn i hana þá og þegar. Skæruliðum virðist hvarvetna vel tekið af ibúunum, þannig hefur Reuter eftir borgarbúum I Rivas að f jöldi smábænda þar um slóðir gangi i lið með Sandinistum og sjái þeim fyrir matvælum. Sand- inistar hafa heitið þvi að bændur skuli frá meira land til ræktunar, að sigri unnum. '- Somoza-hersveitirnar virðast nú halda uppi harðastri vörn i suðvestanverðu landinu, á land- spönginni milli Kyrrahafs og Nic- araguavatns, sem er stærsta stöðuvatn i Mið-Ameriku. Þannig segir talsmaður þeirra að þeir hafi hrundið áhlaupum Sandin- ista i Rivas i gær. Hinsvegar taka Sandinistar hverja herstöðina af annarri i norður- og austurhlutum landsins og beita til þess sprengjuvörpum, sem þeir eink- um miða á skotfærageymslur herstöðvanna. Fiýja hermennirn- ir þá gjarnan herstöðvarnar af ótta við að springa að öðrum kosti i loft upp með þeim. Bandaríkjamenn telja Somoza vonlausan Reyna að sveigja Sandinista-stjómina til hœgri 5/7 — Sendimenn Bandarikja- stjórnar eru nú á ferð og flugi um mörg lönd Mið- og Suður-Ame- riku og ræða við hina og þessa ráðamenn um gang mála I Nicar- agua. Talsmenn Bandarikja- stjórnar fara nú ekki leynt með að stjórn þeirra hafi gefið Somoza að fullu og öllu upp á bátinn. Tals- mennirnir segja Hka berum orð- um að nú einbeiti Bandarikja- stjórn sér að þvi að fá þvi til leið- ar komið að fleiri „hófsamir” (hægrisinnar og miðjumenn) séu teknir inn i bráðabirgðastjórn Sandinista og bandamanna þeirra, liklega I von um að með þvi móti sé hægt að hindra að hin nýja Nicaragúa-stjórn verði Bandarikjunum óþjál i samskipt- um. Að sögn Reuters eru Banda- rlkjamenn haldnir sárum kviða út af þvi að ef ekki takist að koma fleiri „hófeemdarmonnum” inn 1 Sandinistastjórnina verði „Kúbu- þjálfaðir marxistar” þar mestu ráðandi. Hér er um greínilega stefnubreytingu að ræða hjá Bandarikjastjórn, þvi að til þessa hefur hún reynt að fá málin jöfn- uð i Nicaragua með þeim kostum að Somoza sjálfur færi að visu frá, en að ööru leyti yrðu sem minnstar breytingar i landinu. Stefnubreytingin stafar að sögn talsmanna Bandarikjastjórnar af þvi, að hún telji nú Sandinistum sigur visan. Bandarikin hafa von um að ýmsar rómanskameriskar rikis- stjórnir, sem að visu vilja hvorki heyra né sjá Somoza og hans fylgifiska, séu ekki fráhverfar áð- urnefndum tillögum Bandarikj- anna um breytingu á stjórn Sand- inista. Bandarisku sendimennirn- ir hafa meðal annarra nýverið rætt við ráðamenn i Venesúelu, Kólombiu, Dóminiku, Panama og Kostariku, auk Somoza og for- ustumanna bráðabirgðastjórnar andstæðinga hans. Somoza — Bandarikin telja ekki upp á hann púkkandi lengur. DlOOVIUINN Auglýsmgasími Þjóðvlljans er 8-13-33 GREIÐSLUR FRÁ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS BEIÐNI Dag, 21, júní 1979 Til Tryggingastofnunar ríkisins um að leggja greiðslur inn á viðskiptareikning. NAFN Jón Jónsson NAFNNÚMER 1234-5678 FÆÐINGARNÚMER 03.03.-123 HEIMILI Laugavegi 234 SVEITAHFÉLAQ 105 REYKJAVÍK Hér meS fer ég þess á lelt vlS Tryggingastofnun ríklsins. aS hún leggl greiðslur til mln, jafnéðum og þær koma til útborgunar, Inn á neSangrelndan viðsklptareiknlng hjá: INNLÁNSSTOFNUN BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS VIÐSKIPTAREIKNINGUR Ávísanarelknlngur BANKI HB REIKN. NR. ÚTIBÚ/ Austurbæjarútibú við Hlemm Sparlsjóðsreiknlngur 0303 12345 REIKNINGSEIGANDI/MERKI Jón Jónsson Glró/hlauparelkn. Staðfest: BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS Að gefnu tilefni skal vakin athygli þeirra aðila í REYKJAVÍK, sem eiga rétt á greiðsl- um frá TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS á, að hægt er að fá greiðslur þessar lagðar inn á reikning í hvaða innlánsstofnun sem er. Eyðublað sem hér er sýnt fæst hjá viðkom- andi banka eða Tryggingastofnun. Rétt er að benda rétthöfum lífeyris og bóta á, að það flýtir fyrir greiðslum og sparar fyrirhöfn að láta innlánsstofnun annast þessa milligöngu. BUNAÐARBANKI ÍSLANDS BANKASTIMPILL UNDIRSKRIFT

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.