Þjóðviljinn - 07.07.1979, Qupperneq 9
Laugardagur 7. jlil! 1979 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 9
Tel þá ekki ætla að
leyfa frj álsar fiskveiðar
segir Benedikt um ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar
Á fundi norsku ríkis-
stjórnarinnar í fyrradag
var ákveðið að fiskveiði-
yfirvöld í Noregi skyldu
fylgjast nákvæmlega með
veiðum Norðmanna við
Jan Mayen og mun ekki
vera heimilað að hefja
veiðarnar fyrr en 23. júlí
n.k. Hinsvegar voru engar
tölur nefndar i þessu sam-
bandi/ en sú ákvörðun var
tekin að farið yrði fram á
frekari viðræður við ís-
lendinga jafnframt þvi að
samþykkt var að koma á
fót islensk-norskri fisk-
veiðinefnd.
Þjóöviljinn haföi af þessu tilefni
samband við Benedikt Gröndal
utanrikisráðherra og spuröi hann
álits á þessari ákvöröun rikis-
stjórnarinnar. Benedikt sagði að
með þessari ákvörðun þá stað-
festi rikisstjórnin að nokkru það
samkomulag sem náðist i við-
ræðunum um siðustu helgi, þe.
um veiðidag og stofnun fiskveiði-
nefndar. Hins vegar eru Norð-
menn ekki bundnir af neinu og
bendi ég á þvi skyni að engar töl-
ur um veiðikvóta eru nefndar i
ákvörðun rikisstjórnarinnar. Ég
vil hins vegar túlka þetta á þann
veg að rikisstjórnin norska muni
ekki leyfa frjálsar veiðar. Varð-
andi nefndina þá tel ég að Islend-
ingar eigi að starfa þar af fullum
áhuga. Aðspurður hvort hann
teldi þessa samþykkt um nefnd-
ina vera boðbera þess að Norð-
menn væru að stiga eitthvert
skref til samkomulags við tslend-
inga um sameiginlega lögsögu
sagði Benedikt að hann 'teldi svo
ekki vera, andstaða Norðmanna
hafi verið slik við hugmyndina á
viðræðuf undunum.
— Þig
Þórarinn Þórarinsson
Nordmenn
eru ekki
bundnir af
neinu sam-
komulagi um
veidikvóta
segir Þórarinn
Þórarinsson
1 norska stórblaðinu Aftenpost-
en er greint frá þvi i gær að þar
sem samkomulag hafi ekki náðst
i viðræðum Norðmanna og Is-
lendinga um heildarlausn i Jan -
Mayen deilunni þá séu Norðmenn
ekki bundnir af neinu samkomu-
iagi við tslendinga um 90 þúsund
tonna veiðikvóta þar sem skilyrði
sjómannasamtakanna i Noregi
hafi verið að slikur kvóti væri
hluti af heildarlausn.
Vegna þessarar fréttar þá hafði
Þjóðviljinn samband við Þórar-
in Þórarinsson fulltrúa Fram-
sóknarflokksins i islensku við-
ræðunefndinni og spurði hann á-
lits á þessum ummælum.
Þórarinn sagðist ekki telja að
Norðmenn væru bundnir af neinu
þar sem ekki hefði verið gengið
frá neinu formlegu samkomulagi
við Norðmenn. Hins vegar taldi
hann aö frá siðferðilegu sjónar-
miöi þá bæri Norðmönnum að
framfyigjaþessuóformlega sam-
komulagi sem náðst heföi.
Þórarinn var jafnframt inntur
eftir skoðun hans á þvf hvort Is-
lendingar ættu að beita fyrir sig
herstöðvarmálinu til að knýja
Norðmenn til samkomulags, en
hann svaraði þvi til að ekki mætti
blanda saman þessum málum
þótt ef til vill kæmi um það krafa
frá almenningi eins og i þorska-
striðunum. —Þig
Ummœli utanrikis-
ráöherra i Aftenposten
Hreinn mis-
skilningur,
segir
Benedikt
Þjóðviljinn hafði i gær sam-
band við Benedikt Gröndal og
innti hann eftir þvi hvort þau um-
mæli séu rétt sem höfð eru eftir
honum i norska blaðinu Aften-
posten um að Islendingar geti
sætt sig við að Norðmenn fari
meðstjórnloönuveiöanna við Jan
Mayen utan efnahagslögsögu ts-
lands og láti þá nokkurs konar
lögsögu Norðmanna þar óátalda.
Benedikt sagði að hann hefði
ekki séð þetta viðtal viö sig enn,
Ólafur Ragnar: Norðmenn hafa
brugðist við eins og við mátti bá-
ast.
en ef það væri rétt að þetta hefði
staðiö i viðtalinu þá væri það
hr«Snn misskilningur hjá blaöa-
manni Aftenposten. Hann hefði
ekki breytt i neinu sinni afstöðu
frá þvi I viðræðunum og væri
þetta alls ekki skoðun sin sem
fram kæmi i viðtalinu. —Þig
Reykjavikurskák mótið:
Keppendum fjölgar
1 vetur er fyrirhugað að halda
Reykjavikurmót i skák með þátt-
töku alþjóðlegra stórmeistara.
Þegar hefur sigurvegari siðasta
móts, Walter Browne frá Ame-
riku þekkst boð á mótið, og vinir
eru bundnar við að Robert Hubn-
er, stórmeistari frá V-Þýska-
landi, komi ennfremur.
Þá má geta þess að Skáksam-
bandið hefur verið i sambandi við
heimsmeistarann Karpov og í
fréttabréfi Skáksambandsins er
þeim merku upplýsingum komið
á framfæri að Högni Torfason
hafi fyrir hönd St fært kappanum
hamingjuóskir i tilefni brúðkaups
hans og hvatt hann „til að hafa
konuna ~eð sér” þegar hann
kæmi tn Islands. En likur eru á
þvi að Karpov komi hingað i sept-
ember.
—ÖS
Ákvöröun norsku rikisstjórnarinnar
Er mikill sigur
fyrir sjónarmid
Alþýöubandalagsins
Vegna ákvörðunar norsku
rikisstjórnarinnar hafði Þjóðvilj-
inn samband við Ólaf Ragnar
Grimsson fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins i isiensku samninga-
nefndinni og innti hann eftir áliti
hans á þessari ákvörðun.
Þessi ákvörðun er mikill sigur
fyrir þau sjónarmið sem ég hélt
fram i samninganefndinni, sagði
Ólafur. Niðurstaða málsins hefur
orðið nákvæmlega i samræmi við
það sem ég taldi að myndi gerast
ef tslendingar stæðu fast á sinum
rétti. Málflutningur Norðmanna
um einhliða útfærslu við Jan
Mayen og um ofveiði á loðnu var i
reynd ekki annað en hótun sem
ætluð var til að knýja tslendinga
til samþykkis við aðgerðir við
eyna sem þeir i reynd vissu að
þeir höfðu engan rétt til að fram-
kvæma.
Þeir islensku aðilar sem voru
hræddir við hótanir Norðmanna
og drógu stundum i efa þá
samningastöðu sem við vildum
fylgja ættu að ihuga vel þessar
niðurstöður. I samningaviðræð-
unum hélt ég þvi fram að það
væri i senn æskilegt og raunhæft
fyrir islendinga að stýra málun-
um þannig að þeir réðu i reynd
takmörkunum á sumarveiðunum
sem og öðrum aðgerðum við Jan
Mayen. Akvörðun norsku rikis-
stjórnarinnarsýnirað þetta hefur
orðið niðurstaðan og er það þvi
mikill sigur fyrir þau sjónarmið
sem ofan á urðu hjá okkur. 1
fyrsta lagi vegna þess að Norð-
menn ætla að fylgja i reynd tak-
mörkunum á sumarveiðum og
hefja þær ekki fyrr en 23. júli þó
svo þeir af pólitiskum ástæðum i
Noregi nefni ekki neinar tölur i
sambandi við aflamagn. í öðru
lagi þá viðurkenna Norðmenn það
að stækkun landhelginnar geti
ekki farið fram án samráðs við
Islendinga og að lokum þá sýnir
ákvörðun rikisstjórnarinnar um
þátttöku i sameiginlegri fisk-
veiðinefnd að Norðmenn eru að
nálgast sjónarmið tslendinga um
að á fót verði sett sameiginleg
lögsaga viö Jan Mayen, sagði
Ólafur Ragnar að lokum. _Þ:„
Loðnustríð við Norðmenn?
Viöbrögð í Noregi viö
deilunni um Jan Mayen
Frá Þorgrimi Gestssyni, frétta-
ritara Þjóðviljans i Oslo:
„Hætta á ofveiði og loönu-
str®i. Astæða til aö ætla að
Rússar reyni sig við Jan Mayen
ef loðnan kemur á annað borð.
Þar sem tslendingar eru and-
snúnir norskri lögsögu sem
meðal annars hefði útilokað
Rússana frá veiðunum getur
orðið erfitt fyrir Norðmenn að
gera nokkuö ef þeir koma.”
Þetta eru sýnishorn af fyrstu
viðbrögðum hér i' Noregi við
þeirrifréttað slitnaðhafi upp úr
viöræðum Islendinga og Norö-
manna um loönuveiðar og 200
milna lögsögu við Jan Mayen.
Fréttin barst ekki fyrr en
seint á fimmtudagskvöld og að-
eins2 dagblöð skýröu frá henni I
gærmorgun. Það voru Aften-
posten, sem fyrrgreindar til-
vitnanir eru teknar úr, og Stav-
anger Aftenblad, hvort tveggja
hægri sinnuð blöð.
Aftenposten bendir á að þar
sem samkomulag náöist ekki
gildi 90 þúsund tonna veiðikvót-
inn ekkilengur. Það var skilyrði
sjómannasamtakana að slikur
kvóti væri hluti heildarlausnar.
Samt sem áður bendir blaðið
á að samkvæmt norskum lögum
geti yfirvöld gripið inn 1 veiðar
norskra sjómanna á alþjóðleg-
um hafsvæöum „taki þær
óheillavænlega stefnu”.
Stavanger Aftenblad segir i
leiðara á föstudag að ekki sé
auðvelt að eiga við tslendinga
þegar fiskur sé annars vegar.
Það hafi m.a. Bretar fengið aö
reyna i 2 þorskastriöum. Blaðið
bendir á að fiskurinn skipti Is-
lendinga miklu en tekur jafn-
framt fram að fiskveiðar séu
lika mikilvægarfyrir Norðmenn
ogþað þýöi ekki fýrir þá að vera
með einhverja góðsemi og gefa
fiskinn.
Norska útvarpið sagði frá
máiinu i gær og hafði eftir fiski-
fræðingi hjá norsku hafrann-
sóknarstofnuninni aö ekki sé ör-
uggt aö loðnan komi yfirleitt til
Jan Mayen i sumar. 1 frétt út-
varpsins var einnig sagt að
Norðmenn muni fylgjast náið
með loðnuveiðunum að þessu
sinni.
Knud Frydenlund var að þvi
spurður i útvarpinu hvort þetta
þýddi endanlegslit viðræðna Is-
lendinga og Norðmanna. Svar
hans var i hæsta máta loðið en
þó mátti á honum skilja að
stjórnir landanna hefðu áfram
samband i sima og I gegnum
sendiráðin.