Þjóðviljinn - 07.07.1979, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júll 1979
Rœtt við Hrei
síldveiða frá a
Sfldarplönin voru meðal annars merkur hjónabandsmarkaður.
Síldarævintýrið mikla
Síldarævintýrið mikla.
sem stóð allt frá aldamót-
um og f ram yf ir 1970 er að
fá á sig þjóðsagnablæ. Það
heyrir nú sögunni til eftir
að síldin ,,hvarf“ eins og
sagt er. Sögur um sjómenn
og ungar stúlkur sem sölt-
uðu frá morgni til kvölds
og fóru svo beint á ball á
eftir kannast allir við úr
danslagatextum og 'víst er
um það að fátt hefur haft
eins afgerandi áhrif á
efnahagslíf á íslandi og
blessuð síldin. Verðsveifl-
ur, tækniþróun og fólks-
flutninga, allt hefur þetta
sett sitt mark á atvinnulíf-
ið.
Um þessar mundir er Hreinn
Ragnarsson kennari á Laugar-
vatni að vinna að magistersrit-
gerð um sögu og þróun silveiða
frá aldamótum til 1935. Hann fékk
nýlega styrk frá Visindasjóði til
verksins og stefnir að þvi að ljúka
verkinu með haustinu.
— Að hverju beinast rannsóknir
þinar?
— Ég er að kanna og safna
heimildum um sildveiðar á svæð-
inu frá Látrabjargi allt austur að
Eystra horni. Ég kanna
vinnsluna, veiðarnar, fyrirtækin
og hreinlega allt sem viðkemur
sildinni á timabilinu 1900-1935.
— Hvers vegna þetta afmark-
aða timabil?
— Það varð að samkomulagi
milli min og Sildarútvegsnefndar
sem styrkti mig i fyrra, að ég
safnaði heimildum frá þessum
tima. Þeir hafa mikinn áhuga á
að iáta skrá sögu sildveiðanna.
Fyrir 1900 er eingöngu um ritaðar
heimildir að ræða sem hægt er að
kanna hvenær sem er, en hinar
lifandi heimildir, fólkið sem vann
i sildinni hverfur óðum. Árið 1935
var Sildarútvegsnefnd stofnuð og
frá þeim tima hefur öllum gögn-
um verið haldið saman.
Ævintýralega
mörg fyrirtæki
— Hver var þróunin i síldveið-
um á þessum tima?
— A seinni hluta 19 aldar komu
Norðmenn hingað með landnætur
og veiddu hér upp við landsteina
Þeir voru einkum við Eyja-
fjörð og á Austfjörðum, en um
aldamótin komu bæði reknetin og
snurpunótin og þá. fóru Islend-
ingar að taka þátt i atvinnu-
rekstrinum.
— Hvar voru mestu umsvifin?
— Sildin var veidd fyrir norðan
og austan en einnig á Vestfjörð-
um og Ströndum voru ótrúlega
mikil umsvif, og stórar söltunar-
stöðvar. 1 sumum tilfellum voru
ari flytti fólkið þennan og þennan
dag. Siðan voru kannski 100-200
manns samferða norður og
kynntust á leiðinni. Fólk fór að
heiman, komst yfir peninga, sild-
arböllin voru fræg á sinum tima
og verbúðalifið, allt hafði þetta á
sér ævintýraljóma i augum unga
fólksins. Svo voru sildarplönin
auðvitað ákjósanlegur hjóna-
bandsmarkaður.
Það er merkilegt við þennan
hluta atvinnusögunnar að
heimildarmanna er að leita i
öllum stéttum, þvi sildin lagði
grundvöll að menntun fjölda
manna. Þarna var sumarvinna
skólafólks árum saman og það
kemur fram i endurminningum
manna. Ég get nefnt sem dæmi
frá siðari árum, að þegar ég var
að vinna i sild á Raufarhöfn á
minum námsárum voru þar
menn sem nú eru læknar og
prófessorar. Sildarævintýrið
þekkja margir af eigin raun.
Hörkuvinna
—Þessar rómantisku minn-
ingar eru merkilegar, þvi nú
hefur þetta verið hörkuvinna, salt
og slor, oft kuldi og langur vinnu-
dagur ekki satt?
— Jú, það kom fyrir að það
varð að loka söltunarstöðvum
vegna þess að allar stúlkurnar
voru óvinnufærar vegna sára á
höndunum. Atan var svo sterk að
hún olli sárum, áður en gúmmi-
hanskarnir komu á markað. En
við skulum lika minnast þess i
sambandi við rómantikina að
þarna var fólk i afmörkuðum
heimi. Hugsum okkur stað eins
og Djúpuvik á Ströndum fyrir
daga útvarps og sjónvarps. Þar
var ekki einu sinni simi, enda var
hafður hraðbátur til taks ef ein-
hver þurfti að komast i sima i
næstu byggð.
— Hvar er helstu heimildir að
finna um sildina?
— Heimildirnar eru þinglýsingar,
sölulóðasamningar, blöð frá
þessum tima og endurminningar,
auk þess byggi ég mikið á munn-
legum heimildum frá fólki sem ég
hef rætt við. Þá hef ég einnig
fengið skrifleg svör frá fólki sem
ég hef leitað til. Það er einna
erfiðast að finna fólk sem vann á
þeim stöðum sem nú eru i eyðútil
dæmis á Hesteyri og i Alftafirði
við Djúp. Það er samt ótrúlegt
hvað fólk man langt aftur. Ég
ræddi við mann i fyrra sem var
skipstjóri á reknetabát 1903.
— Ef einhverjir iesendur muna
gamla tið, eftir hverju leitarðu þá
helst?
— Ég vil gjarnan fá allar upp-
lýsingar um sildartimann. Fólk
er sér oft ekki meðvitað hvenær
lifið er orðið saga. Þó að ég hafi
nú aflað mér heildaryfinsýnar
yfir sildarævintýrið, þá eru ein-
stök atriði sem mig vantar og ef
fólk vill skrifa mér eða hringja þá
er þaö vel þegið, sérstaklega
minningar frá þeim stöðum sem
nú eru i eyöi. _kí
Það er sama við hvern maður ræðir um sildina, fólk ljómar upp
þegar minnst er á rómantíkina....
fiskafurðir þ.e. sölufyrirtæki með
einkalevfi.
— Þú nefndir að fyrirtækin
hefðu verið mörg, voru ekki stór-
rikir kapitalistar meðal sildar-
gróssera?
— Það má sjá það á veð-
setningarskjölum hversu miklar
eignir sumir þeirra áttu. Það má
til dæmis nefna Ásgeir Pétursson
sem átti stöðvar á Siglufirði,
Akureyri og á Ströndum. Hann
veðsetti eignir sinar vegna láns
sem hann tók, upp á 550 þús, kr.
árið 1920. Meðal eignanna var
einn togari auk söltunar-
stöðvanna.
— Hvernig var sildin unnin?
— Hún var mest söltuð en einn-
ig brædd. Stærstu atvinnu-
rekendurnir fengust við söltun en
Norðmenri og Danir sáu um
bræðsluna framan af vegna þess
að tslendingar höfðu ekki bol-
magn til að reka sildarverksmiðj-
ur. Fyrsta verksmiðjan var reist
1911 og þær voru i höndum
útlendinga til 1924. Arið 1940
komst sú siðasta i hendur íslend-
inga.
Sildarrómantikin
—Það hvilir rómantiskur blær
yfir sildarævintýrinu i augum
flestra, veistu hvers vegna?
—Já, það er sama við hvern
maður ræðir um sildina, fólk
ljómar upp þegar minnst er á
rómantikina. Atvinnureksturinn
i kringum sildina kallaði á mikla
fólksflutninga á hverju
sumri. Þegar togarafélögin
stofnuöu söltunarstöðvar fyrir
norðan gekk sagan þannig fyrir
sig, að þeir auglýstu eftir fólki
syðra og tilkynntu um leið að tog-
gömlu norsku stöðvarnar not-.
aðar. Stærstu og mestu umsvifin
voru á Siglufirði og við Eyjafjörð.
— Hefurðu nokkrar tölur um
hversu mörg fyrirtækin voru i
sildarbransanum?
— Ég hef ekki nákvæmar tölur
um það en þau voru ævintýralega
mörg.
— Hvernig gengu sildveiðarnar
fram til 1935?
— Þær gengu upp og niður. Út-
flutningurinn gekk i bylgjum og
það urðu miklar verðsveiflur. Til
dæmis hækkaði verðið gifurlega i
fyrri heimsstyrjöldinni en við
togarasölurnar 1917 dróst fram-
leiðslan saman. Arið 1919 varð
mikið veröhrun vegna þess að þá
fóru þær þjóðir sem ekkert gátu
veitt i striðinu að stunda veiðar á
ný, framleiðslan varð of mikil og
kreppan sem rikti eftir stríð hafði
sitt að seg ja. Menn kölluðu hrunið
„krakkið mikla”. Krakkið felldi
marga framleiðendur, sumir
hjöruðu þó 4-5 ár en náðu sér
aldrei upp.
„Krakkið mikla”
— Hvernig var markaðurinn
skipulagður og hvert var selt?
— Það voru hin ,,frjálsu
markaðslögmál” sem réðu rikj-
um enda voru sveiflurnar miklar
eins og ég sagði. Fyrstu árin var
sildin seld i gegnum Danmörku til
Eystrasaltslandanna þar sem
markaðurinn var stærstur. Eftir
„krakkið mikla” var stofnað
sildarsamlag og rétt áður en
kreppan skall yfir, Sildareinka-
sala Rikisins,en hún fór á hausinn
upp úr 1930. Það var sem sagt
gerð tilraun til að skipuleggja
sölurnar likt og gert var viö aörar
Sveiflurnar voru miklar og fyrirtækin fleiri en tölu veröur á komið...