Þjóðviljinn - 07.07.1979, Page 11

Þjóðviljinn - 07.07.1979, Page 11
Laugardagur 7. júll 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 NESKAUPSTAÐUR Þessara timamóta var minnst með hátið- arfundi og kaffisamsæti þann 7. janúar sl, en um þessa helgi fara aðalhátiðarhöldin fram, og er vegleg dagskrá alla hátiðardagana. Nýtt islenskt leikrit var frumflutt á fimmtu- daginn var, 3 myndlistarsýningar standa nú yfir i barnaskólanum, auk mikillar sögusýn- ingar um þróun kaupstaðarins þessi 50 ár. Þá verða háðar iþróttakeppnir, skemmti- dagskrár fluttar, auk óteljandi annarra dag- skráratriða,en Þjóðviljinn mun greina nánar frá hátiðarhöldunum i Neskaupstað eftir helgina. Hér á siðunni verður brugðið upp nokkrum myndum úr bæjarlifinu á Neskaupstað um leið og Þjóðviljinn óskar Neskaupstaðarbú- um til hamingju með þessi merku timamót i sögu bæjarins. Fiskveiöar og fiskvinnsla eru aðalatvinnuvegir Neskaupstaðarbúa. Þessi mynd er tekin I vinnslusal hraðfrystihúss Sildarvinnslunar h/f, en Sildarvinnslan er langstærsti útgerðaraðili á Neskaupstað, en á siö- asta ári var landað alls 8.189 tonnum af fiski til vinnslu I hraðfrystihús- inu. Þessi mynd er af fulltrúum Alþýðubandalagsins sem mynda meirihiuta I stjórn Neskaupstaöar eins og undanfarin ár. Fyrir framan þá er eitt af verkum Gerðar Helgadóttur, en bærinn hefur keypt afsteypu af þessu verki sem er 1.40 metrar á hæð og var hugmyndin aö afhjúpa listaverkið nú um helgina, en þvi hefur verið valinn staður fyrir framan félagsheimilið Egilsbúð. Af þvi gat þó ekki orðiö þar- sem verkið er enn ókomið ti i; landsins sökuni farmannaverkfaiísins, en afsteypan var unnin I Noregi. Svipmyndir úr bæjarlífínu A Neskaupstaö eru 8 opnir leikveilir fyrir börn auk dagheimilisins. Ali- ir eru leikvellirnir vel sóttir, en þessi mynd sýnir þann nýjasta sem tek- inn var i notkun i vor og er á svæðinu milli sundlaugarinnar og lysti- garðsins. Unnið er nú af fullum kraft við byggingu fjölbrautaskólans á Neskaupstað, en áætlað er að gera bygg- inguna fokhelda I haust, en ennþá er óreist ein hæð til viðbótar. Fjölbrautaskóiabyggingin er viðbygg- ing við Gagnfræðaskólann, en þar hefur veriö starfrækt fjölbrautakerfi undanfarin tvö ár. Skólastjóri Gagnfræðaskólans cr Geröur óskarsdóttir, en nemendur I skólanum voru um 140 á siðasta ári. Þessa heiðursmenn kannast sjálfsagt allir Neskaupstaðarbúar við, en A myndinni sést hluti lystigarösins þar sem meginhluti hátiðarhaldanna mun fara fram. Litla stúlkan á þeir eru frá vinstri: Bjartmar Magnússon bæjarstarfsmaður, Arsæll myndinni, sem virðir fyrir sér nýútsprungna túlipanan^heitir Hlin Jensdóttir. Júliusson sjómaður og Vigfús Guttormsson fyrrum bæjarfulltrúi Sós- ialistaflokksins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.