Þjóðviljinn - 12.07.1979, Page 3

Þjóðviljinn - 12.07.1979, Page 3
Fimmtudagur 12. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 SOVÉSKA OLÍAN ÓDÝRARI? Eimskip flyt- ur olíukaup sín til íslands Keypti olíu sína erlendis áöur Eimskipafélagið hyggst flytja eins mikið af oliu- kaupum sínum til islands og kostur er, þar sem olía fæst nú hér á hagstæðara verði en t erlendum höfn- um, þar sem mestöll eldsneytiskaup félagsins hafa farið fram til þessa. Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipafélagsins sagði ástæ&u þessarar ákvörðunar vera þá að þeir keyptu olíu þar sem hún væri ódýrust hverju sinni. „I bili eru allar oliuvörur sem Eimskip notar ódýrari hér á Islandi og á meðan það ástand varir munum við leita eftir oliu- kaupum hér,” sagði Höröur. „En ég legg áherslu á þá skoðun mina að það verði aðeins skamman tima að oliuverð hérlendis veröur svo hagstætt að það borgi sig fyrir okkur að kaupa eldsneyti hér heima.” Hörður sagði að i fyrra hefðu oliukaup félagsins numið 34.5 þúsundum tonna. Það magn hefði þá kostað 4,6 miljónir dollara, en nú kostaöi þetta sama magn um 10 miljónir dollara. Þess má geta að Þjóöviljinn hefur það eftir oliufróðum heim- ildum, að OPEC verð á óunninni hráoliu sé nú 140 dollarar tonnið. Létta svartolian sem Islendingar kaupa frá Sovétrikjunum er á svipuðu verði, en svartoliutonnið komið i skip hér á landi kostar um 160 dollara tonnið á móti 200 dollurum i höfnum i Danmörku og viðar. Það er þvi ekki að furða, þó Eimskipafélaginu finnist hag- stætt að kaupa hér heima fremur en I Evrópuhöfnum. -ÖS SAGAN UM SÁM: Kvikmyndun heimiluð á Skaftafelli Náttúruverndarráð hef- ur nýlega veitt leyfi til að kvikmynda hluta „Sög- unnar um Sám" eftir sögu Per Olof Sundmans í Skaftafelli. I dag heldur Þingvallanefnd fund, þar sem væntanlega verður Skattskrá Norðurlands eystra lögð fram í dag Hinar sivinsælu skattskrár fara nú að koma út hver af ann- arri. Skattskrá Vestfjaröa- umdæmis hefur nýlega veriö lögð fram og i dag verður skattskrá Noröurlandsumdæm is eystra lögö fram. Búist er við að skattskráin i Reykjavik komi út 25.-26. júli, en áður veröur skattskrá Vestur- lands komin fram, eða nk. mánu- dag, 16. júli. Skattskráin á Norðurlandi vestra sér dagsins ljós I byrjun ágúst og;skattskrá Vestmannaeyja i fyrsta lagi um miðjan ágúst. Óvist er hvenær Sunnlendingar fá sinn glaðning og enginn svaraöi á Skattstofu Austurlands 1 gær,er við ætluðum að forvitnastum skattskrá þeirra Austfirðinga. ákveðið hvort leyfi fæst til kvikmyndatöku á Þing- völlum. Sigrún Vaibergsdóttir, sem sér um fyrirgreiöslu fyrir sænsku kvikmyndagerðarmennina hér á landi, sagðist hafa fengið bréf frá Náttúruverndarráði, dagsett 29. júni', þar sem leyfið er veitt með ýmsum skilyrðum. Þetta var önnur umsókn um kvikmynda- töku I Skaftafelli, en fyrri umsókninni hafði Nátt- úruverndarráð hafnað. Sigrún sagði að einungis hefði veriö sótt um að kvikmynda viö bæinn að Hæðum, en ekki i þeim hluta þjóðgarösins þar sem ferða- menn koma. Sótt hefur verið um leyfi til Þingvallanefndar um aö fá að kvikmynda þingförina, sem sagt er frá I bókinni, á Þingvöllum. A fundi nefndarinnar I gær var máíiö reifað, en ekki tekin endan- leg afstaða. AÖ sögn Sigrúnar Valbergsdóttur bentu nefndar- menn á ýmsa annmarka, sem þeir töldu á leyfisveitingu. Er nú verið athuga hvort kvikmynda- fyrirtækið geti breytt ýmsum atriöum og verður viðræöum haldiö áfram við Þingvallanefnd eftir aö leikstjóri og framleiðandi myndarinnar hafa fengið aö vita um stööu málsins. Upphaflega var áætlað að taka þessa kvikmynd hér á landi nú i sumar. Vegna þess hve dregist hefur að svara umsóknum um kvikmyndatöku og eins vegna upphaflegrar synjunar Náttúru- verndarráðs á kvikmyndatöku i Skaftafelli, hefurnú veriðráðgert að taka kvikmyndina i júni, júli og ágúst næsta sumar. —eös Kaupfélag Arnesinga: Oddur Sigurbergsson kaupfélagsstjóri heldur fólki eins neðarlega og hægt er Kjaradeila hjá Kaupfélagi Árnesinga Tóm lygi og þvæla A kaupfélagsskrifstofunum. Aðstoöarkaupfélagsstjórinn og for- maöur Verslunarmannafélagsins vildi ekkert við blaöamann Þjóð- viljans tala og neituðu að láta taka mynd af sér. segir Guðni B. Guðnason aðstoðar kaupfélagsstjóri Frá Þórði Ingva Guðmunds- syni, blaðamanni Þjóöviljans, stöddum á Selfossi. Upp er risin kjaradeila milli Kaupfélags Arnesinga og versiunarmanna um röðun I launaflokka. Þjóðviljinn ræddi i gær við Guðna B. Guðnason að- stoðarkaupfélagsstjóra og Þormóð Torfason, formann Vershinarmannafélags Arnes- sýslu, sem er jafnframt starfs- maður á kaupfélagsskrifstof- unni og voru þeir báðir ófúsir að láta nokkrar upplýsingar i té. Guðni B. Guðnason sagði að ekki væri nein deila I uppsigl-1 ingu heldur væru örfáir ein- staklingar með óánægju. Sagöi hann aö frétt sem birst hefur um að fólk með 30 ára starfsreynslu væri enn á byrjunarlaunum væri tóm lygi og þvæla. Vildi hann ekkert frekar tjá sig um málið en deilan mun fyrst og fremst snúast um að kaup- félagsstjórinn, Oddur Sigur- bergsson, hefur verið spar á að hækka starfsfólk I launastigum. Meðal annars er skrifstofu- stjóri I fyrirtækinu titlaður skrifstofumaður I launaskrá til að halda honum miðri I launum og gekk Þjóðviljinn úr skugga um að utan á skrifstofu hans stendur skýrum stöfum skrif- stofustjóri. Þormóður Torfason, for- maður Verslunarmannafélags- ins, staöfesti að viðræðunefnd frá Verslunarmannafélaginu myndi ræða við forráöamenn kaupfélagsins I dag en er hann var inntur eftir þvi um hvað deilan snerist svaraði hann stutt og laggott. Égvil ekkert segja meir. Að sögn deiluaöila sem Þjóö- viljinn ræddi við á kaupfélags- skrifstofunni er málið á mjög viðkvæmu stigi og mun fundur- inn i dag skera úr um það hvort deilan leysist á farsælan hátt. Steini Þorvaldsson. Steini Þorvaldsson, stjómarmaður í Versiunar- / mannafélagi Amessýsluj Starfsreynsla að engu metin Kaupfélagsstjórinn flokkar ■ fólk einhliöa i launaflokka og 1 heldur þvi eins neðarlega og 2 hægter.Dæmieru til um að fólk n með 14-15 ára starfsreynslu sé I flokkað I kaupstigann eins og ■ byrjendur, sagði Steini Þor- | valdsson, stjórnarmaöur i ■ Versiunarmannafélagi Arnes- L sýslu er Þjóðviljinn náði tali af honum á Selfossi I gær. Steini sagði að kjaradómur heföi úrskurðaö launaflokka verslunarmanna 10. aprii s.l. og þegar fólk fékk laun greidd fyrir. júnimánuð uppgötvaöi þaö aö þvi var haldið langum neðar I flokkum en þvi bar. Um það snýst deilan. Kosin hefur veriö 3 manna viðræðunefndtil þess að tala við kaupfélagsstjórann I dag og reyna að ná samkomulagi um niðurröðun I flokka. Sagði Steini að ekki væri timavært aö spá neinu um úrslit málsins fyrr en að loknum þeim fundi. —eös

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.