Þjóðviljinn - 12.07.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.07.1979, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 12. júll 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Frá vinstri: Ólöf, Stella, Jén og loks Benedikt Sverrisson úr Dölunum, sem fékk reisupassann fyrir aö hafa ekki skoðanir I stil viö atvinnurekandann. Verkafólk í Eyjum: Einn rekinn til yara adra viö Hœttum samt ekki baráttunni Eftír að verkstjóri i Vinnslu- stöðinni h/f f Eyjum rak einn af talsmönnum farandverkafóiks fyrir það eitt að telja aðbúnað á verbúð og fæðiskjör ekki I góðu lagi, talaði blaðamaður Þjóð- viijans á staðnum við nokkra starfsmenn Vinnslustöðvarinnar um brottreksturinn og fleira. Ólöf Þórarinsdóttir, trúnaöar- maður Snótar I stööinni, sagöi aö þaö heföi oftar en einu sinni áöur komið fyrir að menn væru vittir fyrir aö hafa skoðanir sem féllu ekki i kram atvinnurekand- ans. Brottrekstriheföihins vegar ekki verið beitt fyrr, og hún taldi einsýnt, að meö því aö hengja einn ætti að vara hina við. En geöþóttaákvarðanir af þessu tæi væru alveg út I hött, og Ólöf taldi rétt aö verkalýöshreyfingin beitti sér gegn þvi aö slik vinnubrögö mættu liöast. Jón Gislason úr Eyjum tók i sama streng og kvaöst styöja farandverkafólkiö fullkom- lega. Aöbúnaður þess væri fjarri þvi nógu góöur. Hann tiltók sér- staklega hiö háa matarverö sem aökomufólk værilátið borga. Jón sagöi þaö gersamlega ótækt, ef atvinnurekanda ætti aö liöast aö reka starfsmann fyrir þaö eitt aö telja aðbúnaösinnog félaga sinna ekki nægilega góöan. „Veröieinn látinn fara, þá má alveg eins bú- ast viöfrekari hreinsunum” sagði Jón. Einn af þeim sem teljast til farandverkafólksins er Guösteinn Þorvaldsson. Hann kemur frá Sauöárkróki og býr I verbúðum Vinnslustöövarinnar h/f, þarsem hann vinnur. Guösteinn sagöi, aö margt mætti betur fara á verbúö- inni, áöur en þær teldust sæmi- legur mannabústaöur. Hann kvaö lika fjandi hart aö þurfa aö borga hátt á annað hundraö þúsund krónur fyrir fæöi á mán- uöi og sagöi mál til komiö aö farandverkafólk reyndi aö rétta sinn hlut. Tvær farandverkakonur úr Reykjavlk, Agústa Hólm Jóns- dóttir og ÞuriðurLilja Rósinkars- dóttir, voru á fundi aökomufólks sem starfar i Vinnslustööinni kosnar trúnaöarmenn þeirra og eiga aö koma fram sem fulltrúar farandverkafólksins gagnvart verkalýösfélögunum, og einnig yfirvöldum verbúðanna og Vinnslustöðvarinnar. Þær kváö- ust hafa unnið lengst af þeim aökomnu hjá Vinnslustööinni. Aö sögn þeirra er ein af kröfum aökomufólksins einmitt sú, aö það fái trúnaðarmenn sem geti komið óskum um lagfæringar á ýmsum hlutum á framfæri viö rétta aöila. Þær sögöust alls ekki myndu láta baráttuna niöur falla þó einn félaginn væri rekinn til að vara hina við. ,,Þeir veröa þá bara aö reka okkur lika” sögöu þær stöllur vigreifar. -ÓS Jón Kjartansson um stöðu farandverkafólks: Tökum málið upp hjá VMSÍ á þingi sambandsins í haust „Framhjá þvi er ekki hægt aö horfa, að verkalýöshreyfingin hefurhagað sér gagnvart farand- verkafólki einsog Eva gagnvart óhreinu börnunum sinum”, sagöi Jón Kjartansson formaöur Verkalýösfélags Vestmannaeyja við blaöamann Þjóöviljans i Eyj- um. „Imyndaöir hagsmuna- árekstrar valda oft vissum sam- búöarvandamálum milli farand- verkafólks og heimamanna. Atvinnurekendavaldiöi Eyjum, einsog annars staöar, gerir þaö sem hægt er til aö sá sundrungu milli þessara hópa. Það er sagt aö aökomufólkið hafi fritt húsnæöi, fritt Jjós og hita, niöurgreitt fæöi og þar fram eftir götunum. Hins vegar er staöreynd að húsnæðiö sem þessu fólki er viöast hvar á landinu boöið uppá, er vægast sagt ekki upp á marga fiska. Hvaö varöar niöurgreidda fæöiö er þaö eitt aö segja, að það er beinlinis ósvifni aö kalla þaö ódýrt. A hinn bóginn er farandverka- fólk oft ekki meðvitað um stéttar- lega stööu sina. Þaö litur gjarnan á atvinnurekandann sem eitt- hvert hjálpræöi, telur sig brauö- bita hjá honum. Fyrir bragöiö hefur þaö komiö fyrir ,aö farand- verkafólk lætur etja sér i aö brjóta samþykktir og jafnvel verkföll, einsog gerðist hér i Eyj- um i verkföilunum 1. og 2. mars I fyrra, aö visu litill hópur. Aö stórum hluta stafar þetta af þvi aö aökomufólkiö litur gjarnan svo á, að verkalýösfélagiö hafi þaö einungis aö féþúfu, hiröi félagsgjöld án þess aö veita þvi sömu réttindi og ööru verkafólki. Þetta er að miklu leyti rétt. Farandverkafólk þarf aö greiöa félagsgjöld til stéttarfélagsins á hverjum staö, en þaö fær samt ekki atkvæðisrétt um málefni verkafólksins. Þaö fær ekki einu sinni aögang aö sjóðum i vörslu félagsins. I neyöartilvikum höfum viö samt lokaö augunum fyrir þessu, og styrkt fólk, sem hefur oröiö illa úti af veikindum eöa slysum, þó það sé farandverkafólk . en ekki fullgildir meðlimir i félaginu. I þeirri deilu sem hér er komin Framhald á 14. siöu Forstöðumenn vinveitingahúsa Böggull fylgir skammrifí Forstöðumenn allflestra vin- veitíngahúsa I Reykjavik héldu nýlega meö sér fund til aö ræöa um nýja reglugerö um sölu og veitingar áfengis sem tekur gildi þ. 16. júli n.k. Fundarmenn lýstu yfir ánægju sinni meö breytingarnar en harma aö ekki var haft samráö viö þá meöan unniö var aö breyt- ingunum og aö reglugeröin skuli fela i sér skerta þjónustu viö gesti vinveitingahúsa i hádeginu. Hafa stuðníng sjómanna hér segir Valur Valsson um kröfur farandverkafólks í Eyjum Aðkomusjómenn eru jafnan margir í Eyjum. Þeir búa i mis- góöu húsnæöi, og standa aö ýmsu leyti ekki jafnfætis ööru verka- fólki. Viö spuröum þvf Val Vals- son hjá Sjómannafélaginu i Eyjum, um afstööu hans tíl þcirra krafa sem farandverkamenn i Eyjum settu fram. ,,Það er staöreynd aö aökomu- sjómenn hér í Eyjum búa aö ýmsu leyti viö lakari kjör en aörir,” sagöi Valur. „Til dæmis má nefna, að meöan þeir eru i landi, veröa þeir aö greiöa hærra verö fyrir matinn i mötuneytum frystihúsanna, en landverkafólk. Oft getur lika komiö upp sú staða, aö þeir geta átt erfitt með aö komast i matföng. Þegar netabátur er kannski búinn aö landa klukkan átta aö kvöldi, kokkurinn farinn og engan mat aö fá um borö, þá er búiö aö loka mötuneytunum. Þeir veröa þá aö biöa á verbúöunum þangaö til morguninn eftir til aö fá heitan mat. Framhjá þvi er heldur ekki hægt aö lita, aö húsnæöiö sem aökomusjómönnum er boöiöuppá er oft heldur slaklegt, einkum þar sem útgerðarmennirnir út- vega húsaskjól. Hjá Vinnslustöð- inni h/f veröa þeir aö búa allt að fimm iherbergi, þegar mannflest er. Þaö er náttúrlega ekki gott. Hvaö snertir þær kröfur sem farandverkafólk hefur sett upp um fritt fæöi fyrir sig og annaö fólk i fiskiönaöinum, þá get ég bent á, aö þaö er búin aö vera ein höfuökrafa sjómanna um langt skeiö aö fá fritt fæöi. En þeir veröa aö borga allt aö 10-25% af hlutnum i fæöi, auk dagpening- anna sem fara beint i þaö. Sjómenn hljóta þvi aö taka undir allar kröfur þessafólks. Og auðvitaö hljóta allir aö takaaf- stööugegn þvi aö verkstjóri skuli geta rekiö starfsmann aö eigin geöþótta, fyrir þá sök eina aö hannhefur skoðanir. Slikt á eng- inn maöur aö þola,” sagöi Valur aö lokum. AUGLýBING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRVGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓOS FLOKKUR INNLAUSN ARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ 10.000 KR. SKÍRTEINI 1967 —1.rL.: 1970 —1.FL.: 1971— 1.FL.: 1972 — 2. FL.: 1973 —1.FL.A: 1974 — 1. FL.: 15.09.79 15.09.79 — 15.09.80 15.09.79 — 15.09.80 15.09.79 — 15.09.80 15.09.79 — 15.09.80 15.09.79 — 15.09.80 kr. 411.476 kr. 228.480 kr. 153.905 kr. 114.811 kr. 86.682 kr. 55.084 INNLAUSNARVERÐ ARGREIÐSLUMIÐA 1973 —1.FL.B: 15.09.79 — 15.09.80 10.000 KR. SKÍRTEINI kr. 6.925 50.000 KR. SKÍRTEINI kr. 34.625 Innlausn spariskírteina og árgreiöslumiða fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júlí 1979 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.