Þjóðviljinn - 12.07.1979, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. júli 1979.
Umsjón: Magnús H. Gíslasson
Frá Djúpavogi.
Lokauppgjör
frá Breiðdalsvík og Djúpavogi
A Breiðdalsvik búa nú nærri
240 manns, og hefur farið
fjölgandi þar á siðustu árum.
Skuttogarinn Kambaröst
leggur upp frá Breiðdalsvik,
hluta af afla sinum en mestum
partínum erlandað á Stöðvar-
firði.
Á siðustu vertið voru gerðir
út 3 bátar frá Breiðdalsvik og
öfluðu þeir sæmilega.
Heildaraflinn á vertiðirini
var nærri þrefalt meiri en á
vertiðinni i fyrra, enda lönd-
uöu fleiri bátar á Breiðdalsvik
á þessari vertið auk þess sem
aflinn var mun betri en i fyrra.
Gæftir voru góðar i mars og
april og má segja að aflahrot-
an i aprfl hafi staðiö einna
hæst þegar þorskveiðibannið
skall á um mánaöamótin
april/mai.
Annars varð aflaskiptingin
þessi hjá bátunum það næst
verður komist, en bátarnir
skiptu allir yfir á net i mars.
Llnu-og
netabátar róðrar afli
Hafnarey SU 210 44 458,2 t
Drifa 46 382,91
HrönnSH 23 175,41
Skuttogari landanir afli
Kambaröst SU 200 7 961
Heildaraflinn á vertiðinni
1978 — 451 1
1979—11601
ustu vertið, að visu ekki allir
að staðaldri.
Skuttogararnir Kambaröst
og Hólmanes frá Eskifirði
lönduöu báðir 1 sinni á siðustu
vertiö samanlagt um 80 tonn-
um.
Þá voru gerðir út 3 bátar frá
Djúpavogi á ratkju og stund-
uöu þeir veiðar i janúar og
febrúar, en voru siöan komnir
yfir á net og togveiðar i april.
Afli rækjubátanna þriggja
var sæmilegur, en alls var
landað á Djúpavogi nærri 35
tonnum.
Eins og áður sagði voru
margir bátar gerðir út frá
Djúpavogi á siðustu vertið
eins og á fyrri vertiðum.
Afli bátanna var nokkuð
misjafn, en i heildina var hann
alveg sæmilegur. Minni afli
barst á land á Djúpavogi á
þessari vertið en þeirri sið-
ustu. Munar þar um 80 tonn.
Annars varð aflaskiptingin
þessi hjá bátunum:
Linu- og
netabátar róftrar afii Jón Guðmundsson
GK 43 366.2 t
Ottó Wathne lina 30 234.0 t
Einir 28 129.5 t
Ræk jubátar róftrar afli
Nakkur 22 10.900 kg
Glaöur 20 12.329 kg
Höfrungur 22 11.726 kg
A Djúpavogi búa nærri 380
manns, og hefur orðiö þar
nokkuð ör fólksfjölgun á sið-
ustu árum.
Mikil útgerð er stunduð á
Djúpavogi og alls lönduðu
nærri 20 bátar afla þar á sið-
Skuttogarar landanir afli
Kambaröst 1 10.31
Hólmanes 1 68.21
Heildaraflinn á vertiðinni
1978 —1182 t
1979—1101 1.
Línuvertíðin
var mjög góð
Rœtt við Helga Þorgrímsson á Breiðdalsvík
„Þaö er frekar tregt, hálf-
gert kropp hjá trollbátunum,
en annars höfum við ekkert
þurft aö kvarta undan fisk-
leysi hérna i frystihúsinu”,
sagði Helgi Þorgrimsson
verkstjóri i Hraöfrystihúsi
Breiödælinga i samtali við
Þjóðviljann i vikunni.
„Ef við sjáum fram á skort'
á fiski þá getum við alltaf sótt
hann úr Kambaröstínni niöur
á Stöðvarfjörð, þannig að viö
höfum alltaf haft nóg. Héðan
eru geröir út núna tveir troll-
bátar Hafnarey og Drifa. Þeir
lönduðu báöir hér i gær, Drifa
um 16 tonnum og Hafnarey um
10 tonnum, báðir eftir vikuróö-
ur. Það var betra fyrir svona
hálfum mánuöi en þá lönduöu
þeir um 20 tonnum hvor, en
þaðdattfljótlega niðuraftur”.
— Hvernig gekk til á vertift-
inni hjá ykkur?
„Þaö barst mun meiri afli
hér á land en i fyrra, enda
voru gerðir héðan út þrir bát-
ar á vertiðinni, en i fyrra var
ekki nema 1 bátur gerður héð-
an út alla vertiðina og annar
bættist við i enda netavertið-
arinnar. Þá má lika segja að
llnuvertiöin hafi veriö mjög
góö. Gæftir voru með eindæm-
um góðar, róið svo til upp á
hvern einasta dag, þannig að I
heildkom vertiðin alveg ágæt-
lega út hjá okkur”.
— Hvernig list ykkur núna á
framhaldiö?
„Það er ekki gott að segja,
þetta litur alveg sæmilega út
núna, en brátt skellur þrosk-
veiðibannið á og togararnir
fara sjálfsagt einnig að fara á
skrap, þannig að það er ekki
gott að segja til. Maður verður
aö vona það besta, enda erum
viö ávallt vel stæöir gagnvart
þvi að getaö fengið fisk á
Stöðvarfiröi”, sagði Helgi að
lokum.
- lg
Bœndafundur við ísafjaróardjúp:
Stjórnvöld þurfa að
sýna meiri skilning
á sérstöðu vestfirskra byggða
Laugardaginn 30. júni 1979 var
haldinn almennur bændafundur
aðReykjanesivið ísafjarðardjúp.
Gestir fundarins voru þeir Stein-
grimur Hermannsson, land-
búnaðarráðherra og Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda.
Þeir Steingrimur og Gunnar
fluttu framsöguræður og ræddu
um þann mikla vanda, sem nú
steðjar að islenskri bændastétt
vegna offramleiðslu á land-
búnaöarvörum og hins slæma
tiðarfars á liðnu vori. Siðan gafst
fundarmönnum kostur á aö beina
fyrirspurnum til þeirra félaga og
að lokum voru almennar umræö-
ur og tóku margir til máls.
1 lok fundarins var samþykkt
svofelld ályktun:
,,Almennur bændafundur i
Reykjanesi 30. júni 1979, telur að
ekki hafi verið staöið aö áfram-
haldandi uppbyggingu við ísa-
fjarðardjúpeins og Inndjúpsáætl-
un gaf fyrirheit um. Ýmsir
félagslegir þættir hafa setið á
hakanum og aðstöðumunur er
mikill, miðaðvið aðra landshluta.
Stjórnvöld þurfa að sýna meiri
skilning á sérstöðu vestfirskra
byggða, þar sem ymsar fram-
kvæmdir hafa dregist og eru nú
lítt viðráðanlegar vegna kostnað-
ar og lánsfjártakmarkana.
Fundurinn telur að offram-
leiðsluvandamál sé ekki hægt að
rekja til Vestfjarða þar sem
framleiðsluhluti hefur minnkað
um nær 20% sé miðað við árin
1951 — 1960 annarsvegar og árin
1971 — 1976 hinsvegar. Mjólkur-
framleiðsla þarf að aukasta.m.k.
um 25 — 30% svo að mjólkurþörf
sé fullnægt hjá Mjólkursamlagi
tsfirðinga.
Bændur við Isafjarðardjúp
mótmæla þvi harðlega, að fram-
leiðsluskattar verði lagöir á vest-
firska bændur til aö styrkja of-
framleiöslu til útflutnings og telja
að þeir þoli ekki slikar f járhags-
legar byrðar.
Fundurinn mótmælir harðlega
hverskonar fóðurbætisgjaldi og
bendir ráðamönnum á, hvernig
fóðrun siðasta vetrar heföi endað
ef fóðurbætisskattur hefði komist
á haustið 1978. Einnig bendir
fundurinn á sérstöðu Vestfjaröa
og aöstööumun vegna flutninga,
en kjarnfóður fæst ekki nema
sekkjað og er mun dýrara en
viðast annarsstaðar og veldur
þvi, að kjarnfóðurskattur kæmi
hart niður á vestfirskum bænd-
um. Ræktunarkostnaður er hærri
á Vestf jörðum og langt fyrir ofan
landsmeðaltal, rikisframlög til
jarðræktar eru þvi hlutfallslega
lægri af stofnkostnaði. Sama
gildir um bygginakostnað, hann
er hærri en víðast annarsstaðar.
Jarðabótaframlög rikisinshafa
komið almennt til bænda sem
niðurgreiðsla á stofnkostnaði og
hafa haft það meignmarkmiö, að
lækka vöruverð til neytenda.
Fundurinn varar við þvi að horfið
veröi af þessari braut með þvl aö
skerða jarðræktarframlög til
vestfirskra bænda en styrkja i
staðinn svokallaðar aukabú-
greinar, sem almennir bændur
munu ekki tileinka sér eins og t.d.
refarækt o.fl.
Fundurinn tekur undir þau
sjónarmið að forðast frekari
röskun i byggð landsins og að
gerðar verði ráöstafanir til aö
styrkja byggð i einstökum
byggöum og landssvæðum.
Fundurinn samþykkir eftirfar-
andi leiðir til þess aö bæta hag
vestfirskra bænda og tryggja bú-
setu viö Inn-Djúp, sem annars-
staðar á Vestfjörðum:
1. Aö gera úttekt á þjóðhags-
legu gildi svokallaðrar umfram-
framleiðslu i landbúnaði.
2. Að þar sem byggð stendur
höllum fæti og ekki er nægjanleg
framleiðsla fyrir innanlandsþarf-
ir verði gerðar sérstakar ráð-
stafanir til úrbóta.
3. Að leggja aukna áherslu á
markaðsöflun innanlands og ut-
an.
4. Aö greiða fyrir fækkun bú-
penings I offramleiðsluhéruðun-
um og þar sem ofbeit er rikjandi.
5. Að láta koma til fram-
kvæmda beinar greiðslur á
rekstrarlánum til bænda.
6. Að veita óskert jarðabóta-
framlag til Vestfjarða og annarra
harðbýlla sveita.
7. Að byggja upp þjónustu-
starfsemi, iðnað og fyrirtæki,
sem vinna úr landbúnaðarafurð-
um þannig, að það skapi aukin
atvinnutækifæri fyrir sveitafólk.
8. Að veita sveitarfélögum að-
stoð við að tryggja búsetu i héruð-
um, sem standa höllum fæti.”
—mhg
Skjaldfönn vift tsafjarðardjúp.
Skógarhólamót
átta hestamannafélaga
Atta hestamannafélög efna til
hestamannamóts að Skógarhól-
um á Þingvölium nú um næstu
helgi. Fer hér á eftír dagskrá
mótsins:
Kappreiðar og
góðhestakeppni
Laugardagur 14. júli:
Kl. 10:00 A-flokkur gæðinga.
Kl. 13:30 B-flokkur gæðinga.
Kl. 18:00 Undanrásir kappreiða:
250 m skeiö, 250 m unghrossa-
hlaup, 350 m hlaup, 1500 m.
brokk, 800 m stökk.
Sunnudagur 15. júli:
Kl. 14:00 Úrslit i gæðingakeppni.
Kl. 15:00 Verðlaunaafhending
fyrir gæðinga.
Kl. 16:00 Úrslit i hlaupagreinum.
Endaö á verðlaunaafhendingu i
kappreiðagreinum.
tslandsmót i
hestaiþróttum
Laugardagur 14. júll:
Kl. 9:00 Töltkeppni og taka ungl-
ingar þátt i þeirri keppni.
Kl. 11:00 Keppni i fimmgangi.
Kl. 13:30 Keppni i fjórgangi. Þar
koma unglingar einnig viö sögu.
Kl. 16:00 Keppt til úrslita i fimm-
gangi og fjórgangi.
Kl. 17:00 Gæðingaskeið.
Sunnudagur 15. júll:
Kl. 11:00 Hlýðniskeppni og eru
unglingar meðal þátttakenda.
Kl. 13:00 Mótið sett.
Kl. 13:30 Úrslit i töltkeppni.
Kl. 14:30 Hindrunarstökk.
Kl. 15:00 Verðlaunaafhending.
Bent skal á, að á laugardags-
kvöldiö verður sýndur akstur i
léttikerruog mun fákurinn fara á
flugskeiði, að þvi er fréttamanni
var tjáð. —mhg
Freyr komínn út
Tólfta tbl. Freys hefur bor-
isthér inn á borðið. Efni þess
er:
Freðmýrakenningin, rit-
stjórnargrein. Sagt er frá
heimsókn tíl ólafs i Geirakoti i
Sandvikurhrqipi. ólafur R.
Dýrmundsson, ráðunautur,
skrifar um burðartlma áa og
fjölbreytni I sauðfjárfram-
leiðslu og um óvenjulegan
burðartima áa. Einar Hann-
esson hjá Veiðimálastofn-
un ritar um Veiöimál á
Suðurlandi. Sigurjón Frið-
riksson, bóndi I Ytrihlið I
Vopnafirði, segir frá Ferða-
sjóði Búnaðarfélags Vopn-
firöinga. Sigurður J. Lin-
dal, bóndi á Lækjarmóti svar-
ar spurningum Júliusar J.
Daníelssonar, aöstoðarrit-
stjóra Freys um prjónastof-
una Bjarg I Viðidal. Hold er
mold, gamanþáttur eftir Hall-
dór Þórðarson, bónda á
Laugalandi vestra.
— mhg.