Þjóðviljinn - 12.07.1979, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 12.07.1979, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 12. júli 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Leikrit vikunnar i kvöld kl. 20.10: Kona eftir Agnar Þórðarson í kvðld kl. 20.10 verður flutt leikritið ,,Kona” eftir Agnar Þórðarson. Leikstjóri er Gísli Al- ferðsson og með hlut- verkin fara Gunnar Ey- jólfsson, Helga Jóns- dóttir og Randver Þor- láksson. Flutningstími er 55 minútur. Listmálarikemur úr gönguferö með mágkonu sinni. Þau fara m.a. að ræða um eiginkonu mál- arans, sem haföi horfiö á dular- fullan hátt. Þvl lengra sem liöur þvi furðulegra verður allt sem viðkemur hvarfinu, en málarinn heldur sig þó hafa uppgötvaö h.vernig i öllu liggur. Og brimið svarrar við ströndina... Höfundur „Konu”, Agnar Þórðarson rithöfundur. Agnar Þórðarson er fæddur ár- ið 1917. Hann lauk prófi i Islensk- um fræðum frá Háskóla Islands 1945, stundaöi framhaldsnám i Englandi 1947-48 og I Bandarikj- unum 1960-61. Frá árinu 1951 hef- ur hann veriö bókavörður við Landsbókasafnið. Fyrsta Ut- varpsleikrit Agnars (1953) var „Förin til Brasiliu” en siðan hef- ur hvert tekið viö af öðru, svo að alls eru þau orðin 17 talsins, þar af nokkur framhaldsleikrit. Agn- ar hefur einnig skrifað verk fyrir sjónvarp og leiksviö, auk þess skáldsögur og smásögur. 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.20 Bæn.7.25 Tónleikar. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustu- gr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Af mælisdagur Lárusar Péturs” eftir Virginíu Allen Jensen. Gunnvör Braga les fyrri hluta þýðingar sinnar. 9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Tónleikar. 11.00 Iðnaðarmál. Umsjón: Sveinn Hannesson og Sig- mar Armannsson. Rætt viö Þórleif Jónsson fram- kvæmdastjóra Landssam- bands iðnaðarmanna og Hauk Björnsson fram- kvæmdastjóra Félags is- lenskra iönrekenda. 11.15 Morguntónleikar: Andrés Segovia og hljóm- sveit Enriques Jordá leika Gitarkonsert I E-dúr eftir Luigi Boccherini. / Hallé hljómsveitin leikur Sinfónlu nr. 83 g-moll eftir Joseph Haydn: Sir John Barbirolli stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Við vinnuna. Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Svarta kóngulóin” eftir Hanns Heimz Ewers Arni Björns- son les þýöingu slna: — fyrri hluti. 15.00 Miðdegistónleikar: JanetBaker syngurariur úr óperum eftir Gluck með Ensku kammersveitinni: Raymond Leppard stj. / j Sinfónluhljómsveit sænska j útvarp6ins leikur Sinfóniu i nr. 1 f f-moll op. 7 eftir Hugo Alfvén: Stig Westerberg stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir.) 16.20 Tónleikar. 17.20 Lagið mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál.Arni Böðv- arsson flytur þáttinn. 19.40 tslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 20.10 Leikrit: „Kona” eftir Agnar Þórðarson Leik- stjóri: GIsli Alfreðsson. Persónur og leikendur: Listamaöur, Gunnar Eyjólfsson. Hún, Helga Jónsdóttir. Maöur, Randver Þorláksson. 21.05 Sinfóniuhljómsveit ts- lands leikur lög úr kvik- myndum Stjórnandi: Páll P. Pálsson. 21.20 „Búinn er hann Blá- hvammur” Smásaga eftir Kolbein frá Strönd, Gunnar Stefánsson les. 21.40 Pianókonsert nr. 2 op. 102 eftir Dmitri Sjostako- vitsj Leonard Bernstein leikur einleik og stjórnar Filharmoníusveitinni I New York. 22.00 A ferð um landið Annar þáttur: Drangey. Umsjón: Tónar Einarsson. Rætt við Sigurð Steinþórsson jarö- fræðing. Flutt blandaö efni úr bókmenntum. Lesari auk umsjónarmanns: Valdemar Helgason leikari. 22.50 Afangar. Umsjónar- menn: Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Idnadarmál Rætt m.a. um aölögunartímann að EFTA Núna um morguninn kl. 11, ræða þeir Sveinn Hannesson og Sigmar Armannsson viö fulltrúa tveggja stærstu samtaka at- vinnurekenda I iðnaði, um sam- tökin og málefni iðnaðarins, I þættinum Iðnaðarmál. Að sögn Sigmars Armanns- sonar, þá verður rætt við þá Þór- leif Jónsson, framkvæmdastjóra Landssambands iðnaðarmanna og Hauk Björnsson fram- kvæmdastjóra Félags fslenskra iðnrekenda. Fyrirhugað er að Þórleifur Jónsson framkvæmda- stjóri Landssambands iðnaðar- manna. skipta þættinum f tvennt og verö- ur siðari helming hans útvarpað eftir hálfan mánuð. I þættinum greina framkvæmdastjórarnir frá uppbyggingu og skipulagi samtakanna, en auk þess veröur rætt um iðnþróun og iðnaðarupp- byggingu. Komið verður inn á hvernig til hefur tekist með að- lögunartimann aðEFTA, en eftir þvi sem Sigmar tjáði blaðinu þá telja þeir Þórleifur og Haukur aö mun verr hafi tekist til en ráð var fyrir gert I upphafi. Þátturinn Iönaðarmál er eins og fyrr segir I dag kl. 11 fyrir há- degi og stendur I 15 mínútur. Haukur Björnsson framkvæmda- stjóri Félags islenskra iönrek- enda. Drangey á Skagafirði. Um Drangey Annar þáttur Tómasar Einars- sonar kennara ,,A ferð um land- ið” er á dagskrá útvarps i kvöld kl. 22. I þessum þætti er Drangey á Skagafirði til meðferðar. Rætt verður við Sigurð Steinþórsson um jarðfræöi eyjunnar, myndun hennar og gerð. Þá verður lesin þjóðsagan um nátttröllin og kúna, en sú saga fjallar einmitt um myndun eyjunnar. Ekki er hægt að minnast á Drangey án þess að rif ja það upp aö hetjan Grettir Asmundsson dvaldist þar, m.a. synti hann milli lands og eyjar til að sækja sér eld. Lesið veröur úr Grettis- sögu um viðureign hans viö drauginn Glám. Þá verður lesið úr Illugadrápu eftir Stephan G. Stephansson. Aður fyrr voru fuglar veiddir af fleka við eyna-Þessum veiðum er lýst I Feröabók Eggerts ölafsson- ar og Bjarna Pálssonar, en að auki verður siðan lesið úr nokkr- um sögum sem fjalla um ýmsa siðiog venjur sem tengjast eynni. Að lokum verður lesið úr grein Hannesar Péturssonar, þar sem hann lýsir ferðalagi sinu til Drangeyjar. PÉTUR OG VÉLMENNIÐ Eftir Kjartan Arnórsson Umsjón: Helgi ólafsson Byrjamr Þaö er löngu vitaö mál að til þess að ná langt i skáklist- inni þarf viökomandi skák- maöur að leggja á sig gifur- lega vinnu við athuganir á skákbyrjunum. Allir fremstu skákmenn heims hafa framúrskarandi þekkingu á byrjunum og sumir þeirra, eins og t.d. ungverski stór- meistarinn Lajos Portisch, geta þakkaö frama sinn að verulegu leyti hinni miklu vinnu viö heimarannsóknir, en talið er að hann eyði a.m.k. 8klst. á dag við skák- boröið. Heimsmeistarinn Karpov hefur að sjálfsögðu frábæra þekkingu á hinum ýmsu byrjunum. Fræg er t.a.m. 2. einvigisskákin við Kortsnoj I einviginu 1974 en taliöer fullvistað staðan sem Kortsnoj gafst upp i hafi verið Karpov fyrirfram kunn. Dæmin um óvæntar nýjungar eru fjölmörg. Hver man t.d. ekki eftir 11. leik Karpovs i 10. skák hans við Kortsnoj siöastliöiö sumar, 11. Rg5, leikur sem menn finna einu sinni á öld, svo notuðséuummæli Kortsnojs. Frá „Einvigi aldarinnar” hér I Reykjavlk sumarið 1972, sem ég gruna að fari 1 skáksöguna sem stórkost- legasti skákviðburöur fyrr og siöar, mátti sjá mýgrút af nýjum leikjum og hugmynd- um. Hafi menn einhverja af hinum fjölmörgu einvigis- bókum við höndina er hægt að ganga á rööina: 1. skák, 14. — Bd7! (Fischer) 2. skák!?, hvitur mætti ekki til leiks (Fischer!!) hér var að sjálfsögðu um nýjung að ræða I sögu heimsmeistara- einvfgjanna. 3. skák, 11. — Rh5! (Fischer) 4. skák, 13. — a5 (Spasski) 5. skák, 11. f4! (Spasski) 6. skák, 14. Bb5 (Fischer) 7. skák, 10. — Be7 (Fischer) 8. skák, 10. Bg5 (Fischer) 9. skák, 9. — b5 (Fischer) 11. skák, 14. Rbl! (Spasskl) 15. skák, 12. Dg3! (Spasskí) 16. skák, 12. Rcxe5 (Fischer) 17. skák, 10. — Bg4 (Fischer) 19. skák, 13. b3 (Spasski) 21. skák, 8. — exd5 (Fischer) I mörgum skákunum var um minni háttar nýjungar aö ræöa, en flestar ef ekki allar skákirnar vörpuðu r.ýju ljósi á þær byrjanir sem upp komu. Ekki er að efa að eng- inn skákviðburöur fyrr eða siðar hefur haft jafn mikil áhrif á framþróun „teóriunnar” og enn i dag gætir þessara áhrifa þó liðin séu 7 ár. Já mikið hefur Fischer á samviskunni að hafa ekki teflt siðan, svo mikið er vist. Aö sjálfsögðu hafa gengið ýmsar sögur um tafliðkanir hans, en aöeins 3 skákir hafa birst, skákir sem hann tefldi viö frekar lélega skáktölvu en lesendum Þjóð- viljans gafst kostur á að berja þessar skákir augum i fyrra. Hollenskur blaöa- maður tjáði mér þegar ég var staddur I Lone Pine á þessu ári að Fischer hefði þá nýverið teflt 6 skáka einvigi viö Shamkovich, fyrrum Sovétmann og unnið 6:0 að sjálfsögðu. Tala, sem menn þekkja úr einvigjunum við Larsai og Taimanov. So- sonko heitir annar landflótta Rússi sem átti að tefla viö Fischer að loknu Lone Pine mótinu. Að sögn Hollendings væru allir sterkir skákmenn velkomnir til meistarans þar sem hann býr i Pasadena i Kaliforniu, en blaðamenn mega að sjálfsögðu ekki sjást.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.