Þjóðviljinn - 19.08.1979, Síða 7

Þjóðviljinn - 19.08.1979, Síða 7
Sunnudagur 19. ágúst 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Jóna Sigurjónsdóttir, skrifar: NAFNLEYND og annað brölt Hafið þið heyrt söguna um hann Jón þjóf? Lif hans var mjög litlaust og hversdagslegt þar til hirðusamur kunningi hans stal frá honum skóhlífun- um. Jón tók þetta ákaflega nærri sér og fjasaði mikið um þennan skóhlifamissi — hann hafði ekkert uppúr þvi nema uppnefnið „þjófur”, sem fylgdi honum útyfir gröf og dauða. Lögfræðingur minn segir mér að ekki séu nein lög I Lýöveldinu Islandi, sem veiti fólki nafn- vernd. Þetta finnst mér alveg afleitt. Núna á dögunum var ungur maður hnepptur í gæslu- varðhald vegna andláts vinar sins og starfsfélaga, þeir höfðu verið aðgera útum sin mál með hnefunum eins og algengt er meðal vor. Dagblöðin birtu reyndar díki nafn þessa unga manns, en létu þess getið hvaða starfi hann gegndi og i hvaða hljómsveit. Þessar upplýsingar jafngilda vissulega nafnbirt- ingu. Hvern fjandann á þetta að þýða? Var ekki hægt að halda gæsluvarðhaldsvist mannsins leyndri þartil úr þvi fengist skorið hvort hann ætti sök á andláti vinar sins? Tilviljanir eða geðþóttaá- kvarðanir virðast ráða þvi eftir annað i vinnunni minni að grandvarir og góðir menn labba inná skrifstofuna, horfa á mig og segja: „Er enginn við”. Það er þó huggun harmi gegn að málgagnið okkar heldur úti jafnréttissiðu, sem er alveg stórskemmtileg, timaritið Samúel er langt á eftir jafn- réttissiðunniokkar i fróðleik um kynlifið. Maður gat svosem séð það fyrir að einhver óáran hlyt- ist af þessu jafnréttisbrölti i okkur kvenfólkinu, en að afleið- ingarnar yrðu svona hrikalegar var meira en nokkurn grunaði. Gestur Guðmundsson upplýsir það að kvenfólk fái nú kyn- ferðislega fullnægingu en aum- ingja strákarnir fái bara sáðlát. Þetta getur ekki gengið, ég krefet þess að nú þegar verði sett nefnd i málið, þetta misrétti verður að afmá. Mér fannst líka gaman aö lesa tilvitnanir úr viðtali við Andreu Oddsteinsdóttur á sömu siðu, en það gleymdist partur af þessu ágæta viðtali, ég vil nota þetta tækifæri til að bæta úr því, hér kemur hann: „Þær konur sem i- mynda sér áð ósnyrtilegur klæðnaður og kæruleysislegur kiæöaburður sé tákn um há- leitar hugsjónir, göfugan mál- stað og framfarahug, vaða i villuog svima. Slitnar gallabux- ur og óhreinar topapeysur eru ekki einkennisbúningur gáfaðra baráttukvenna, sem berjast fyrir auknum mannréttindum kynsystrum sinum til handa. I sannleika sagt er slikur klæöa- burður i minum augum aðeins tákn um sóðaskap, smekkleysu og skort á sjálfsvirðingu.” Mér finnst þetla alveg ljómandi gott hjá Andreu. Hversvegna slepptu stelpurnar þessu? Að lokum vil ég krefjast þess að pistillinn hans Úlfars frá þvi á fimmtudaginn verði birtur i þessu blaði a.m.k. einu sinni i viku, þartil borgarstjórnar- meirihlutinn „okkar” er búinn að sturta útúr ihalds-embættis- mannahreiðrunum i borginni „okkar”. 1 kveðjuskyni litil visa — það skal tekið fram að hún er ekki eftir Flosa. „Peysan min er götótt mjög með hundrað götum mörgum aldrei skal ég úr henni fyrr en hún fer i eldinn.” Jóna hvaða afbrotamenn eða grunað- ir fá nöfn sin gerð alþjóð kunn. I hvert sinn sem farmaður er gripinn með nokkrar flöskur af smygluðu áfengi er þvi slegið upp i blöðunum og þá er til- greint á h vaða skipi hann er og hvaða stöðu hann gegnir þar um borð. öðru hvoru birtast fréttir frá fikniefnarannsóknarlögregl- unni — eða hvað það nú heitir — þeir eru voðalega duglegir og eru sifellt að yfirheyra sömu eiturlyfjasalana. Þeir hæla sér af þvi að vera með gæjana undir eftirliti jafnvel i heil 4 ár. Loksins þegar dómur fellur eru það smásektir og ekki kemur til mála að birta nöfn þessara glæpamanna. Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Vita menn- irnir ekki að eiturlyfjasala er frábærlega arðbær atvinnuveg- ur og fjársektir fyrir svona brot eiga að reiknast með sjöstafa- tölum a.m.k. Þessir sölumenn dauðans eru hættulegustu glæpamennirnir og allstaðar annarsstaðar en hér eru þeir meðhöndlaðir sem slikir. Annars þýðirekkert fyrir mig að vera að skrifa um eitthvað sem máli skiptir, það er alls ekki tekið mark á mér frekar en öðru kvenfólki. Það skeður hvað Hraðhentur hárskeri Japanski hárskerinn Isao Tsu- chiya hefur gert heiðariega til- raun til að komast i heimsmeta- bók Guiness. Hann rakaði 223 karlmenn á einni klukkustund, og mun sá timi vera sá besti sem menn þekkja til i faginu. Bartskerinn brúkaði sem sagt 16.6 sek. á andlit. Ekki er vitað um hvort allir hafi verið jafn á- nægðir með raksturinn eða hvaða tól Japaninn notaði. Fyrrverandi met átti Bretinn Gerry Barley, en hann setti það 20. mai á þessu ári. Kafnaði Billy McQuire, annar feitustu tvibura heims geispaði golunni fyrir nokkru. Billy vóg 336 kiló og var nokkru þyngri en bróðir hans, Bcnny. Þeir bræður voru heimsfrægir fyrir offitu sina og ferðuðust um Bandarikin og viðar og sýndu likamslýti sin og fitusjúkdóma fyrir peninga. Billy lést i sýningarferð, er bræðurnir voru staddir i borginni Niagara Falls i Kanada. Dauðaorsökin var and- nauð. Billy McQuire var 32 ára að aldri. TOYOTA ( Bandaríkjunum eru Toyota bílar langmest seldir innfluttra bíla og eftirspurn eftir þessum hagkvæmu bílum fer ört vaxandi. Því getum við sagt: Það er heppinn maður sem ekur á Toyota fassw* y fiff Toyota er árum á undan örðum í hönnun vandaðra bifreiða. Allar neytendaskýrslur staðfesta lága bilanatíðni Toyota — litla bensíneyðslu — og endingu Toyota bifreiða. Söluskýrslur taka undir þessar staðreyndir. TOYOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 Eyðir aðeins ca. 7 I á 100 km.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.