Þjóðviljinn - 19.08.1979, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 19.08.1979, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJJNN Sunnudagur 19. ágúst 1979 Riddarar Reykjavíkurborgar Rsddarar Reykjavlkurborgar Gunnlaugur Pétursson, borgarrítarí varaoddviti TB-stúkunnar: „Borgin má þakka fyrir aö hafa þennan félagsskap” Gunnlaugur Pétursson, borgar- ritari, svaraöi þvi játandi, þegar hann varspuröur hvort hann væri i TB-reglunni. — Er þetta leyniregla? — Ja, viö höfum smásiöi, sem viö höfum tekiö eftir Sviunum og að þvi leyti er reglan leynileg, siöirnir eru ekki'birtir. Reglan er stofnuð af borgarstarfsmönnum i Gautaborg i Sviþjóö 1928. Hún hefur svo breiöst út um öll Norðurlönd. Tilgangurinn er aö efla samstarf milli borgarstarfs- manna með fundum um borgar- málefni og auka kynningu þeirra, i hvaöa stéttarfélagi sem þeir eru. baö má segja að þetta sé hluti af norrænni samvinnu og þetta er Ut af fyrir sig jafn þýöingarmikið og samskipti islenskra pólitikusa viö aöra norræna pólitikusa. — En er ekki óþarfi aö hafa slika regiu i þessu skyni? — Ja, Sviarnir fundu upp á þessu ’28ogþetta breiddist Ut um öll Norðurlönd. Ég hélt þab væri nú félagafrelsi hér á íslandi lika og viö gætum haft smá siði, ef við vildum. Hér eru til Oddfellowar og allskonar félög. — Hvaö eru fundir haldnir oft hjá ykkur? — Við höldum yfirleitt fundi einu sinni i mánuði, i matartima aö vetrinum til, og tölum þar yfir- leitt um ýmis borgarmálefni. Það er skýrt frá ýmsum nýjungum og þetta er mjög þýðingarmikiö, þetta eru faktiskt hálfgerð nám- skeið, svo borgin mætti i raun þakka fyrir aö fá hér ókeypis ýmislega hluti sem gagna henni i stjórnarstarfi hér I borginni. — Þetta er þá ekki pólitiskur félagsskapur? — Nei, nei, nei, nei. — Er ekki talaö um pólitik d fundum? — Nei, aldrei talað um pólitik. — Eftir hverju er farið, þegar menn eru valdir i þessa reglu? — Menn sem eru I hinum ýmsu stofnunum, stinga kannski upp á ákveönum manni og hann getur sótt um inngöngu lika. — Eru reglur um það, að enginn megi greiöa atkvæði á móti nýj- um félaga, ef hann á aö fá inn- göngu? — Það er yfirleitt samkomulag um alla sem eru teknir inn. Það eru engar slikar reglur um það. Ég er alveg furðu lostinn á skrif- um um þessa hluti. Við sjálfir greiðum hvern einasta eyri I sambandi við þetta. Blöðin eru búin að ljúga þvi upp að við séum á styrkjum úr borgarsjóði. Það hefur verið haldið hér mót tvisvar eftir að þetta var stofnað hér á landi. 1977 komu hingað 140 manns frá Norðurlöndum og dvöldust hér i viku. Þeir voru i einu boði á Kjarvalsstöðum hjá borgarstjóranum. Þangað var borgarráði boðið. — BjörgvinGuömundsson sagöi samt I viötali viö Dagblaðiö, aö hann hefði aldrei heyrt um þessi samtök? — Annað hvort segir hann það af ókunugleika eða gleymsku, ég veit það ekki. Honum var boðið á þetta, ég er með listann yfir það og meira að segja boðskort og allt. Það liggur hér i skjalasafni borgarinnar. Við vitum yfirleitt hvaða fólki við bjóðum. — Eru fundir ykkar haldnir I húsakynnum borgarinnar? — Nei, nei. Þeir eru yfirleitt haldnir úti i bæ Þeir eru haldnir þarsem viðgetum fengiðkeyptan ódýran hádegismat einhverntima i miðri viku. Þetta tekur svona klukkutima og það er byrjað að tala yfir matnum. — Eru engar konur í þessari reglu hér? — Nei, það eru engar konur. — En á hinum Norðurlöndun- um? — Nei, ekki heldur á Norður- löndum. — Nú er talaö um bræöur og systur I félagsriti ykkar? — Já, við höldum einu sinni ár- legan fund og þar tökum við kon- urnar okkar með og ekkjur fyrr- verandi meðlima, sem eru orðnar þónokkuð margar. Það eru allir mögulegir menn I þessu, úr öllum stjórnmálaflokk- um, geri ég ráð fyrir. Viö spyrj- um ekki um stjórnmálaskoðanir embættismanna hér. — Reglubræöur eru allir em- bættismenn eða fyrrverandi em- bættismenn? — Jú, og þeir eru aukameðlimir borgarstjórarnir. Þeim hefur verið gefinn kostur á þvi, þó ekki fyrr en þeir hafa verið borgar- stjórar i allmörg ár. — En borgarfulltrúum er ekki gefinn kostur á inngöngu? — Nei, þeim hefur aldrei verið gefinn kostur á þvi, bara þeim sem eru taldir vera i fram- kvæmdastjórn, eða hafa með framkvæmdastjórn að gera á vegum borgarinnar. — Hvaö eru TB-félagar margir hér? — Þeir eru eitthvaö I kringum sextiu. Svona helmingur þeirra eru virkir og mæta á fundum hjá okkur. Það eru margir fullorðnir menn I þessu, menn sem eru komnir á eftirlaun, og eru orðnir veikir og mæta ekki. — Eru engin önnur samtök borgarstarfsmanna á Noröur- löndum? — Það er til eldgamall félags- skapur embættismanna á Norðurlöndum, sem heitir Nord- isk Administrativt Forbund. I þvi félagi eru nokkrir borgarstarfs- menn. Það er félagsskapur sem heldur stjórnarfundi til skiptis á Norðurlöndunum einu sinni á ári. Að öðru leyti eru engin samtök borgarstarfsmanna á Norður- löndum. — Er þá engin samvinna á öör- um grundvelli milli borgarstarfs- manna á Norðurlöndum? — Nei, við höfum samvinnu á þessum grundvelli. Við getum til dæmis, af þvi að við þekkjum þessa menn og höfum þá á skrá, hvenær sem er fengið góðar upp- lýsingar i gegnum ýmsa menn sem eru i ýmsum lykilstöðum á Norðurlöndum og sem eru I þess- um félagsskap. Alveg eins og þegar stjórnmálamennirnir hérna heimsækja hverjir aðra, þá er þetta eiginlega dálitið svipað þvi. Þetta byrjaðibara miklu fyrr hjá embættismönnunum heldur en stjórnmálamönnunum . Reykjavik er i sambandi höfuð- borga og stjórnmálamennirnir heimsækja hverjiraðra og eru nú miklu stórtækari á þetta en við. — En þaö er sem sagt ekkert annað samband borgarstarfs- manna á Norðurlöndum en TBO? — Nei, ekki nema I vissum stéttum. Ég veit það er til júrista- samband borgarstarfsmanna á Norðurlöndum, en við erum ekki meðlimir I þvi. Og ég veit að það eru til allskonar dómarasambönd og fleiri smáfélög. Það er á stéttarfélagagrundvelli. Þetta er alls ekki á stéttarfélagagrund- velli hjáokkur. Sviarnir stofnuðu þetta einmitt á sinum tima til • þess að komast út úr stéttarfélög- unum, til þess að geta verið góðir félagar þó þeir væru i mismun- andi launaflokkum og mismun- andi stöðum. Stéttarfélögin eru svo sterk og þau eru svo mikið út- af fyrir sig, að þeir töldu það mikla nauðsyn upp á samskipti innan viðkomandi borgarfélags að hafa einhvern svona félags- skap. — En þetta er ekki leynilegt nema hvaö reglunum viövlkur? — Nei, nei. Það hefur verið vit- að um þetta hér á landi alla tið. Það hefur bara ekki komist i blöð- in fyrr en nú. Það er ekkert leyni- legt við þetta, ekki á nokkurn hátt. Við ræðum allskonar hluti T.d. ef menn hafa farið á fund er- lendis út af einhverju máli, þá koma þeir og gera grein fyrir þvi hvað hafi skeð á þessum fundi. Það eru yfirleitt mál sem varða Reykjavik eða sveitarfélög. Þetta eru stuttir fyrirlestrar hjá okkur t.d. um fjármál og alla mögulega hluti. Þetta er bara gagnlegt fyrir borgina. Ég tel að borgin megi þakka fyrir ,'að hafa haft þennan félagsskap til þess að miðla alls- konar þekkingu frá Norðurlönd- unum hingað og til baka aftur. —eös Stofii- og hagiæðingarlán í skipasmíðaiðnaði I samræmi við ákvörðun ríkisstjómar hefurIðnaðarráðuneytið ákveðið aðfela stjóm Iðnlánasjóðs að annast um lánveitingar til stofn- og hgræðingarlána í skipasmíðaiðnaði að upphæð 400 millj. kr. Eftirfarandi meginreglur munu gilda viðþessa lánveitingu: Veitt verði stofnlán til skipasmíðastöðva bæði vegna framkvæmda á yfirstandandi ári ogframkvæmda á liðnum árum. Hvað varðarlán vegna fjárfestinga á liðnum árum telur ráðuneytið ekki rétt að binda það við ákveðin tímamörk heldur meti stjóm Iðnlánasjóðs hve langt skuli gengið íþeim efnum í Ijósi eftirspumareftirlánum þessum og með hliðsjón afalmennum reglum sjóðsins í hliðstæðum tilvikum. 2Veitt verði sérstök lán til að örva og greiðafyrír hagræðingu í skipasmíðastöðvum. íþvísambandi erstjóm sjóðsins heimilt að lána m. a. útákostnað vegna aðkeyptrarþjónustu, vegna skipulagsbreytinga o. fl., enda miði viðkomandi aðgerðir að því að auka framleiðni í viðkomandi fyrírtæki. Lánskjör verða þau sömu oggilda um almenn útlán Iðnlánasjóðs. 4Nauðsynlegt er, að með umsókn fylgi fjárfestingaráætlun fyrirtækisins árið 1980. Hér með er auglýst eftir umsóknum um þessi sérstöku lán til skipasmíðaiðnaðar. Skulu umsóknir berast á eyðublöðum Iðnlánasjóðs til stjómar sjóðsins Lækjargötu 12, Reykjavík, (Iðnaðarbankahúsinu), fyrír 15. sept. n. k. Reykjavík, 13. ágústl979, Iðnlánasjóður Iðnaóarbankinn Lækjargötu 12-101 Reykjavík Sími 20580

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.