Þjóðviljinn - 01.09.1979, Síða 12

Þjóðviljinn - 01.09.1979, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. september 1979. Samanburður á Búreikningum og verdlagsgrundyelli Þrátt fyrir að niður- stöður búreikninga fyrir árið 1978 sýndu mikla tekjuaukningu hjá bændum, sem færðu búreikninga, vantaði tæpar 800 þús. kr. upp á að þeir hefðu þær tekjur, sem gert var ráð fyrir i verðlags grundvelli iandbúnaðarins, að þvl er Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins segir okkur. Gunnar Guöbjartsson, for- ma&ur Stéttarsambands bænda, hefur gert samanburö á niöur- stööum búreininga og launaliö verölagsgrundvallarins fyrir áriö 1978. Þar kemur i ljós, aö skort hefur á launatekjur 1309 kr. á hvert ærgildi á búreikningabúunum, til aö ná þeim tekjum, sem miöaö var viö i verölagsgrundvellinum. Rétt er aö geta þess.aö reiknaöer meö mun hærri afskriftum svo aö munar 905 kr. á hvert ærgildi. Þegar þessar meiri afskriftir eru dregnar frá, þá vatntar 250 þús. kr. á launatekjur búreikninga- Umsjón: Magnús H. Gíslason búanna miöað viö ærgilda- fjöldann á þeim, auk þess sem vantar vexti af eigin fé. Aukning á veltu búreikninga- búanna milli áranna 1977 og 1978 var 72% og þá voru 43,3% af framleiöslutekjunum eftir til aö greiöa laun fyrir vinnu fjölskyld- unnar og upp I vexti af eigin fjár- magni, sem lagt haföi veriö i bú- skapinn. Aukning á framleiöslu- tekjum milli áranna 1976 og 1977 var 70,7%. Ariö 1976 voru aoeins eftir 30,2% af fram- leiðslutekjunum tilað greiöa laun fjölskyldunnar og vexti af eigin fé. Þrátt fyrir mikla hækkun á framleiðshitekjum milli ára, mun meiri en nemur almennum kauphækkunum, þá kemur verö- bólgan i veg fyrir að bændur nái tekjum viðmiðunarstéttanna. Ariö 1976 vantaöi 30% upp á en áriö 1977 vantaöi bændur 22,3% af meöaltekjum viömiðunarstétt- anna. Séra Heimir Steinsson, skólastjóri: Sumarnámskeið á Skálholtsskóla Undanfarin ár hefur Skálholts- skóli haft „opiö hús” yfir sumar- mánuöina. 1 þeim oröum felst þaö, aö skólinn stendur til boöa námskeiðum, fundahaldi ogsam- vistum um félags- og menningar- mál af svo sundurleitu tagi sem til vinnst hverju sinni. Kirkjuleg fræðsla situr i fyrirrúmi. En ýms- ir aöilar skerast í leikinn. 011 þessi starfsemi fer fram i beinni eöa óbeinni samvinnu milli skóla- yfirvalda og þeirra samtaka eöa stofnana, er hlut eiga aö máli. Snemmsumarnámskeið A þvi sumri, sem nú tekur aö halla, hefur athafnasemi innan veggja Skálholtsskóla einnig bor- ið framangreind einkenni. Vetrarstarfi lauk endanlega meö skólanefndarfundi 31. maí en dagana 7.-8. júni fór fram fyrsta snemmsumarnámskeiö ársins. Var þar um aö ræöa fermingar- barnamót á vegum presta úr Ar- nesprófastsdæmi. Námskeið af þessu tagi eru oröin fastur Böur i sumardagskrá Skálholtsskóla. Framkvæmd máía er algjör- lega aö þakka frumkvæöi hlutaö- eigandi sóknarpresta, en skólinn leggur til húsnæði ogréttir hjálp- arhönd eftir þörfum og getu. Þaö samstarf milli Skálholtsskóla og sunnlenskra presta, — raunar einnig margra presta af Reykja- vikursvæöinu, — sem meö þess- um hætti hefureflst umárabil, er hiö mesta fagnaöarefni. Laugardaginn 9. júní var fund- ur Æskulýösriefhdar ArneSþró- fastsdæmis haldinn i skólanum, en dagana 15.-17. júni stóð Kristi- legt félag heilbrigöisstétta aö námskeiöi fyrir eigin meölimi og aöra áhugamenn um kirkjulega þjónustu viö sjúkrabeö. Stjórn- andi námskeiösins var Sigriöur Magnúsdóttir, hjúkrunarfræöing- ur, en gestur fundarins og aöal fyrirlesari var Leonora van Tonder, stjórnandi Evrópudeild- ar Alþjóöasamtaka kristilegra heilbrigöisstétta (IHCF). Sam- vist þessi var fyrir margra hluta sakir merkur viöburöur, en fram- angreindur félagsskapur leitast sem kunnugt er viö aö axia þá byrði kristins manns, er sist skyldi vanrækt. Dagana 22.-24. júni safnaöist söngfóik úr ýmsum áttum til samveru i Skálholti. Setiö var daglangt aö söng og öörum tón- listarflutningi f skóla og kirkju. Hér var á ferö enn eitt dæmið um sivaxandi iökun tónmennta á Skálholtsstaö, en jafnframt um afburöi forystumannsins, Jónas- ar Ingimundarsonar, sem söng- stjóra og kennara. Aökvöldisunnudagsins 24. júni bar aö garöi i Skálholti hóp Norðursetumanna (Nordkalott- inga), og hófst meö þeim hætti ööru sinni tslenskunámskeiö og Islandskynning til handa gestum úr nyrstu héruöum Skandinaviu. Námskeiöþettastóöóslitiö i Skál- holtitil 5. júli, en var meö ýmsum hætti fram haldiö i Reykjavik næstu daga og snéru nemendur heim aö morgni mánudagsins 8. júli. Undirritaöur stýröi nám- skeiöi þessu en aö þvi stóöu Menntamálaráðuneytiö, kenn- araháskólinn, Norrænu félögin á Islandi og f Noröurbotni, Flug- leiöirog .J'ramnesfarar”, en svo nefnfet hópur Islendinga, er sótt hafa hliöstæð námskeiö i Sviþjóö undanfarin sumur. Allmargir fyrirlesarar gistu Skálholtsskóla þessadaga en aöalkennarar voru Aöalsteinn Daviösson cand.mag. og Ingrid Vestin, fyrrum sendi- kennari. Feröir ýmsar voru farn- ar, þ.á.m. aö Skaftafelli f öræf- um. Þótt I litlu sé gerir námskeið sem þetta norræna samvinnu blæbrigöarikari en ella. Þeim aö- ilum, er viö sögu þess komu, er þakkaö og árnaö heilla. Samtimis Noröursetunám- skeiöi var heimsókn fjölmenns kennarahóps frá Osló. Hlýddu gestir þessir á fyrirlestur um Skálholtsskóla og -staö aö kvöldi miðvikudagsins 27. júli. Fyrirles- ari var Jörundur Akason, kennari viö Skálholtsskóla. Hátið á miðju sumri Meö brottför Noröursetumanna lauk snemmsumarnámskeiöum á acálholtsskóla. Varö nú hlé á námskeiðahaldi um hriö, en aö settust I skólanum kærkomnir sumargestir, tónlistarmenn undir forystu þeirra Helgu Ingólfsdótt- ur og Manuelu Wiesler. Tónleika þeirra I Skálholtskirkju, er þetta fólk stóö aö, hefur sem löngum endranær, veriö vinsamlega getiö I fjölmiölum. Verður framtak þetta þó seint of miklu lofi boriö. Meöan á hásumarhléi stóö, fór fram Skálholtshátiö sunnudaginn Sr. Htimir Steinsson, skólastjóri. 22. júli, auk heimsóknar Nor- rænnar prestastefnu hinn 1. ágúst. Viðþetta tækifæri, sem og fjölmörg önnur áþekk,þágu gestir aö vanda beina í matsal Skál- holtsskóla (raunar hátt á þriöja hundraö manns i sföasta tilvik- inu). Yfir sumarmánuöina stend- ur Sveinbjörn Finnsson, Skál- holtsráösmaöur, fyrir þeim mötuneytisrekstri. Er þar ætiö unniö gott starf en á stundum af- rek, svo takmarkaöur sem húsa- kostur skólans og allur aðbúnaður er. Siðsumarnámskeið Siösumarnámskeiö á Skáiholts- skóla hófust hinn 14. ágúst en þá efridi fjölmiðlunarfulltrúi Þjóö- kirkjunnar, séra Bernharöur Guömundsson, til þriggja daga fræöslu fyrir presta og aöra starfemenn kirkjunnar um fjöl- miölun og önnur tjáskipti. Gestur námskeiösins var bandariski pró- fessorinn James Engel. Samvist þessivarótvírætt umtalsveröasta nýlundan sem brotiö er upp á i Skálholti absumrinu, enda er hér um aö ræöa fyrsta námskeiöið af þessu tagi, sem hinn nýskipaöi fjölmiölunarfulltrúi stendur aö. Mikiö fagnaöarefni er þaö, að slikt skuli af staö fara á Skál- holtsskóla, ekki sistþegarsvo vel tekst til um framkvæmd alla sem raun varö á. Sá bræöralagsandi, sem einkenndi hópinn, er saman kom af þessu tillefni, spáir góöu um störf séra Bernharöar. Þessa dagana, 23. til 26. ágúst, gengst Haukur Guölaugsson, söngmálastjóri Þjóökirkjunnar, fyrir árlegu organleikaranám- skeiði í Skálholti. Þetta er fimmta námskeiöiö, sem Haukur efiiir til á Skálholtsskóla, og eru þessu sinni samankomnir meölimir kirkjukóra viösvegar aö af land- inu, aukorganleikara. Söngmála- stjórihefur nú þegargengist fyrir námsförum Evrópu fyrr á sumr- inu, og einkennist Skálholtsnám- skeiöið þessu sinni nokkuö af þvi, enda ýmsir staddir hér á skólan- um, sem' þátt tóku i feröinni. Organleikaranámskeiöin eru hverju sinni hátið fyrir Skálhylt- inga og þykist ég raunar vita, að þátttakendur allir skrifi undir þau orö, enda tekur sú sveit leiö- beinenda, er Haukur Guðlaugs- son hefur safnaö um sig, mörgum öörum fram á landi hér. Rétt er aö geta þess, aö hlutur Hauks I sumarstarfi Skálholtsskóla hefur ekki takmarkast viö organleik- aranámskeiðin ein, og á skólinn honum mikiö aö þakka fyrir alla vinsemd fyrr og siöar. Nú vikur sögunni til þeirra siö- sumarnámskeiða, sem haldin veröa næstu daga og vikur. Dag- ana 30. ágúst til 2. sept. fer fram fermingarbarnamót á vegum presta úr Rangárvallaprófasts- dæmi. Stjórnandi er séra Halldór Gunnarsson. Fermingarbarna- mót hafa sem fyrr greinir átt sér staö innan veggja Skálhoits- skóla aö sumri til frá upphafi, og '»óli. hafa Rangæingar komið hér i þessu skyni árum saman. Dagana 6. til 9. sept. stendur æskulýösfulltrúi Þjóökirkjunnar, séra Ingólfur Guömundsson, að námskeiöi um helgileiki. Gestir mótsins og aöalleiðbeinendur veröa Svíarnir Ingemar og Birgitta Hellerstadt Thorn. Æskulýösfulltrúar undanfarinna ára hafa veitt Skálholtsskóla ómetanlegt brautargengi. Séra Ingólfur er nýtekinn viö embætti þessu. Er honum beðið farsældar og góðs vænst af samstarfi viö hann á komandi tima. Dagana 14. til 16. sept. er áformað æskulýösleiötoganám- skeiö á vegum Æskulýösnefndar Arnesprófastsdæmis. Formaður nefiidarinnar er séra Tómas Guö- mundsson. Sú hugmynd hefur lengi vakaö fyrir velunnurum Skálholtsskóla aö stofnun þessi, ásamt söfnuðum eöa héraöasam- tökum^tæöi aö námskeiöum fyrir fólk, er starfa vildi aö kirkjulegri þjónustu heima fyrir. Umgetið áform Æsmulýösnefndar Arnes- prófastsdæmis erskref í þessa átt og er gott til aö hyggja. Siðsumarnámskeiöum i Skál- holti lýkur dagana 20. til 23. sept. með æskulýðsleiðtoganámskeiði undir stjórn æskulýösfulltrúa Þjóðkirkjunnár. Þar er fram haldiö stefnu, sem fylgt hefur veriöum hrið. Helst hún raunar i hendur viö þá hugmynd, er liggur til grundvallar ráöagerö Æsku- lýðsnefndar Arnesprófastsdæm- is. Samhæfing sundurleitra afla Vetrarstarf Skálholtsskóla hefst um mánaöamót sept.-okt. og veröur skólasetning nánar auglýst siöar. Undirritaöur þakk- ar öllum þeim, sem átt hafa eöa eiga munu hlut aö athafnasemi innan veggja skólans á sumrinu. Sömu kveöjur erusendar gestum nær og fjær. Skálholtsstaöur hinn nýi ris smám saman til þess hlutskiptis sem góöir menn ætluöu honum i öndveröu: Þrátt fyrir ótalda öröugleika eflist kirkjuleg menn- ingarmiöstöö I Skálholti. Sá árangur er einvöröungu aö þakka sameiginlegu átaki ótalinna aö- ila, er ár frá ári hafa lagt af mörkum tima, fé og fýrirhöfn, góöum málstaö til framdráttar. Sú hefur hingaö til verið gæfa Skálholtsstaöar og Skálholts- skóla, aö þar hafa runniö saman margvislegir straumar, er allir hniga þó aö einum ósi um siöir. Slik skyldu raunar um aldur ein- kenni þeirrar stofnunar, er Is- lensk Þjóðkirkja, — kirkja al- þjóöar, — hefur komiö á fót og leiöir nú á veg fram. Skálholti, 25. ágúst 1979. Heimir Steinsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.