Þjóðviljinn - 15.09.1979, Page 2

Þjóðviljinn - 15.09.1979, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. september 1979 AF SÆNSKUM PROBLEMMUM Sænsk dramatík hefur á undanförnum ár- um, eða jafnvel áratugum einkennst mjög af umfjöllun um þau fyrirbrigði sem stundum hafa verið kölluð próblemm. Sé orðinu snarað yf ir á íslenskt gullaldarmál stöndum við and- spænis því próblemmi að þurfa að nota orðið vandamál. Til að firra okkur þvi próblemmi, mun ég brúka orðið próblemm. Þau eru ófá próblemmin, sem lagt hafa sænskar bókmenntir undir sig á síðari árum. Nægir þar að nefna: sambúðarpróblemm, einbúðarpróblemm, kynslóðapróblemm, kyn- hvatapróblemm, náttúruleysispróblemm, próblemm hinna eldri, próblemm hinna yngri, það próblemm sem fylgir því að vera á miðjum aldri, próblemm þeirra sem stunda sjálfsfróun, próblemm þeirra sem ekki gera það, próblemm þeirra sem leiðist að vinna, próblemm þeirra sem ekki hafa yndi af hús- verkum og uppvaski, próblemm þeirra sem hafa slæma húð, próblemm þeirra sem eru „svoleiðis" eða „hinsegin" og svona mætti lengi telja. Um þessar mundir er verið að sýna mjög at- hyglisvert sænskt framhaldsleikrit í islenska sjónvarpinu og er hér á ferðinni dæmigert próblemmdrama eins og þau gerast best frá Svíþjóð. Svo hrífandi er ef nisþráðurinn í þessu vandræðaleikriti að ég get ekki stillt mig um að rif ja hann upp— eftir minni að vísu — , og geta mér siðan til um framhaldið. Þetta hefur skeð: Planta Rosenbaum fimmtán ára er send í sveit frá Stokkhólmi en þar hef ur hún átt við umtaisverð æskulýðspróblemm að stríða, meðal annars vegna þess að hún er farin að reykja oní sig. Hún ferðast ein í járnbrautar- lest og fær snert af einsemdarbrjálæði (mónó- fóbíu). Hún reynir þó að stilla sig í von um að félagsráðgjafi, sálkönnuður, samfélagsfræð- ingur og hómópati bíði sín á járnbrautarstöð- inni. Það kemur hins vegar í Ijós að á stöðinni bíður hennar aðeins konan sem hún á að vera í sveit hjá, frú Niola Blomkvist. Niola er ný- komin af hæli þar sem hún hefur verið í þrjú ár til að reyna að fá bata á sálrænum pró- blemmum sínum, en hún hefur þjáðst af egómaní (sjálfselsku) og er ekki öðrum mönn- um sinnandi fyrir bragðið. Niola ákveður því á spítalanum að fara líka að hugsa um aðra og er þegar útskrifuð. Hún flytur útí sveit með son sinn, gjafvaxta, Arve Blomkvist. Arve á við sálræn problemm að stríða vegna þess hve bólugrafinn hann er. Hann verður innhverfur (introvert), lokar sig gjarnan inni og kreistir bólur og kýli! Niola fer með Plöntu heim í sumarhúsið sitt, en þar á Planta að vera í sveit með Arva og Niolu sumarlangt. Það kemur fljótlega í Ijós að þau standa gagnvart hinu uggvænlega pró- blemmi sem leiðir af hinu svonefnda kyn- slóðabili. Niola og Planta ná ekki andlegu sambandi. Arve lokar sig inni á baðherberginu og heldur uppteknum hætti að kreista á sér andlitið. Þegar hann er orðinn eins og hrúður- karl í framan lítur hann í spegilinn og fær taugaáfall. Það sem á eftir að ske: Niola biður Plöntu að reyna að róa Arva og fer sjálf niður í þorpið til að f reista þess að ná í þorpssálfræðinginn, þorpsfélagsfræðinginn, þorpsfélagsráðgjafann, þorpshúðlækninn og þorpshómópatann. Niðri í þorpinu hittir hún gamlan vin sinn Carl Blomkrona landslagsarkitekt, sem misst hefur fótinn og framanaf vísifingri hægri handar í sænska hernum í síðari heims- styrjöldinni. Carl Blomkrona á við sálræn próblemm að stríða bæði vegna skafanka sinna og einnig vegna konu sinnar, sem á við umtalsverð áfengispróblemm að stríða. Niola fer með Carli heim til hans og huggar hann. Þau f inna það þessa nótt að þau eiga mörg sameiginleg próblemm. Niola segir Carli hvers vegna hún' hafi skilið við manninn sinn, en þeirra pró- blemm var það að hann gerðist fráhverfur uppvaskinu svo eina lausnin var að skilja. Niola og Carl ákveða síðan að leysa lífs- próblemmin saman. Þegar hún svo kemur heim aftur næsta dag eru Arve og Planta enn i rúminu. Arve á ekki lengur við bólupróblemm að stríða og Planta hef ur tekið gleði sína. Þau hafa leyst sín próblemm með líkamsendur- hæfingu (kropsterapí) og Niola sendir þorps- sálf ræðinginn, þorpsfélagsf ræðinginn, þorps- félagsráðgjafann, þorpshúðlækninn og þorps- hómópatann heim aftur. Niola Blomkvist og Carl Blomkrona landslagsarkitekt ákveða að hef ja sambúð með Arve Blomkvist og Plöntu Rosenbaum. En þau standa nú andspænis því geigvænlega próblemmi að ekkert hald- bært próblemm er fyrir hendi að leysa. Hvað sagði raunar ekki dramadurgurinn (leikhúsfræðingurinn) sænski á Vasaleikhús- semenaríinu í fyrra: Það er svía sjónarmið að sýna beri próblemmið, arka með það uppá svið svo áhorfendur komist við. Flosi. Auglýsingasimi Þjóðviljans er 81333 OIODVIUINM Pílagrímsflug hefst ný hjá Flugleiðum a Flugleiðir hafa gert samning við Indónesa um að flytja um 15 TORFÆRUAKSTURS- KEPPNI Veröur haldin við Helgafell, Grindavlk sunnudaginn 16. sept. kl. 14.00 Komið og sjáið spennandi keppni og styrkið gott málefni Björgunarsveitin Stakkur, Keflavlk þúsund pilagrima frá Indónesiu til Keddah i Saudi-Arabiu. Flogið verður i tveimur lotum og flutningunum lokið f byrjun desembcr. Allt að 80 flugliðar munu starfa við flutningana og Flugleiöir munu nota DC-10 þotu sina við leiguflugið. Samningur Flugleiða er geröur við hið indónesiska flugfélag Garuda, og verður flogiö með pilagrimana frá Surabaya i Indónesiu til Jeddah. Þaöan ligg- ur svo leiö pilagrimanna á jörðu niðri til Mekka, en á þeirri borg hvilir mest helgi i gervallri mii- hameðstrú. Fyrri lotan hefst 29. þessa mánaðar og verða þá mú- hameöskupilagrimarnirfluttir til Jeddah með viðkomu í Dubai og þeim flutningum lýkur 25. okt. Siðan verða þeir fluttir til baka frá Saudi-Arabiu milli afmælis- dags rússnesku bytingarinnar, 7. nóv. og 2. desember. Sem fyrr segir veröa fluttir um 15-16 þúsund pilagrimar og verða farnar aö minnsta kosti 20 feröir samanlagt. Möguleiki er á 3-4 ferðum i viðbót. —ÖS 70 þúsund komu á vörusýninguna Nær 70 þúsund manns sóttu Alþjóðiegu vörusýninguna i Laugardalshöll dagana 24. ágúst til 9. september, að þvl er kemur fram i fréttatilkynningu frá for- svarsmönnum hennar. 150 fyrir- tæki sýndu þar vörur frá mörgum löndum á u.þ.b. 6000 fermetra sýningarsvæði. Skemmtiatriöi og tiskusýning- ar voru daglega oglætur nærri aö 55 þUsund manns hafi séö þessi sýningaratriði. Meðal þeirra sem skemmtu sýningargestum voru Hjómsveit- in Brunaliðið — Guðrún A. Simonar — HLH-flokkurinn — Guömundur Guðjónsson og Sigfús Halidórsson —20 manna dans- og söngflokkurfrá Sovétrikjunum og Haraldur og skrýplarmr. Tveggja hæða strætisvagninn frá London sem var tákn sýn- ingarinnar fór i Utsýnisferðir á klukkutimafresti meðan sýning var opin og flutti alls um 9.000 farþega. Sýningargestir voru þátt- takendur I gestahappdrætti þar sem happdrættismiði fylgdi hverjum aögöngumiða. Voru daglega dregnir út ferðavinning- ar aö upphæð kr. 500 þúsund i ein- hverri af sólarferðum Útsýnar. Eftirtalin númer hlutu vinning i gestahappdrættinu: 826— 2707— 8398— 15414 — 16152 — 21997 — 24594 — 26835 — 30219 — 39987 — 41061 — 44728 — 48033 — 52796 — 54353 — 60872 — 66847.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.