Þjóðviljinn - 15.09.1979, Síða 9

Þjóðviljinn - 15.09.1979, Síða 9
”1 Inga á Blökk. Meira nammi! —orangútaninn vissi vel hvað hann vildi. og dóluðum i rólegheitum um þetta fallega landssvæði áleiðis til Limerick, sem er ein stærsta borg lýöveldisins. Við gistum á litlu hóteli^i smábæ. fylgdumst með silungsveiði i ánni, fórum I al- menningsgaröinn sem stóð á ár- bakkanum fullur af risastórum trjám, leiktækjum og bekkjum. I trjánum náttuðu sig þúsundir Etf krákum og þaö var stórfengleg sjón að sjá þær drifa að úr öllum áttum á slaginu hálf niu. Hávaö- inn var ærandi og innan skamms vorutrjákrónurnar orðnar svart- ar og kvikar. Kvöldverður í kastala A Irlandi er að finna ótal minjar frá Vikingatið og enn- fremur stórkostlega kastala frá miðöldum. Einn slikan, Bunratty kastala skammt frá Limerick heimsóttum við. Hann stendur rétt við hraðbrautina f fallegu hæðottu landslagi og á hverju kvöldi yfir sumartimann gefst gestum kostur á að snæöa kvöld- verö að hætti miðaldamanna I matsalnum þar. Þarna er einnig minjasafn með húsum, smiöjum og gripahúsum frá ýmsum timum og er fólk við störf I húsunum. 1 þeim brennur mórinn I eldstó og veggirnir eru þaktir dýrlinga- myndum og ritningargreinum. Tekið var á móti okkur i stórum sal, skreyttum góbelínklæðum og útskornum húsbúnaði. Saga kast- alans og eigenda hans var rakin og skálað í miði. Matsalurinn var á fyrstu hæö kastalans og yfir borðum var leikiö á fiölu og hörpu og söngkór 10 kvenna söng Irska söngva. Matseðillinn var skraut- legur og átti undirrituð fullt i fangi með að útskýra hvers vegna nú mætti borða allt meö hönd- unum og vakti það mikla kátínu. Saltkjötið.grænmetissúpan og kjúklingaarnir runnu Ijúflega niöur. Eftirmaturinn einnig og ávaxtasafinn, en þegar kom að ■ rúsinunni í pylsuendanum, —nef- tóbaki, sem allir voru trakteraðir I á, fengu nú sumir hnerrakast og I snýttu sér i smekkinn. ■ Þessi skemmtun stóð fram eftir I kvöldi og endaði á sekkjapipuleik og kaffiþambi. Ferðalangarnir voru þvi fegnir að leggjast til hvilu á hóteli skammt frá og I næsta dag var haldið sem leið I liggur til Dublinar á nýjan leik. Á þessúm fjórum dögum hafði okkur tekist að kynnast nokkuð dreifbýlinu á suöur-lrlandi og viö tók stórborgin með ljósadýrð sinni og verslunarhverfum. Heim á leið I ■ Heim var haldið á laugardeg- inum og Inga tók fyrstu vél dag- inn eftir til Húsavikur. Ferðin I hafði i alla staði verið hin ánægju- ■ legasta og fyrirgreiðsla af hálfu Irska feröamálaráðsins og Sam- vinnuferöa til fyrirmyndar. Þð stutt sé siðan reglubundnar * hópferðir Islendinga til Irlands hófust hafa nú fjölmargir landar | kynnst vingjarnlegu viömóti og I gestrisni Ira. 1 hópnum með ' okkur voru margir sem höfðu áöur farið slikar ferðir og voru allir samdóma um að þá langaði til að fara sem fyrst aftur. —-En j nú eru Irar llka farnir að sækja okkur heim. Flugvélin sem sótti okkur til Dublin kom þangað full af Irum, sem dvalið höfðu hér á landi i vikutima og létu þeir vel af dvölinni. Margir þeirra höfðu hýst islenska unglinga sem dvaliö 1 höfðu á heimilum þeirra I 6 vikur og verið á enskunámskeiðum i I Dublin og viðar. Hafa góö kynni I tekist með mörgum Islenskum og J Irskum fjölskyldum vegna þessa og voru Irsku „foreldrarnir” nú að koma frá þvi aö heimsækja þá islensku. Að lokum viljum við þakka j viöurgerning allan og góðar mót - tökur. þvl að á betra varö ekki kosið. _ AI Laugardagur 15. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 ERU HVALVEIÐAR ÍSLENDINGA VAFASAMAR? Margt bendir til ofveidi á langreyda- stofninum Hvalir — hvalveiðar — hvalvernd. Þessi orð hafa verið ofarlega á baugi i sumar. Grænfriðungar hafa siglt i striðum byr á öldum fjölmiðlanna og fáir íslendingar hafa komist hjá að taka þátt i einhvers- konar umræðum um aðgerðir grænfriðunga. Þrátt fyrir allt það rými sem blöð og rikisfjölmiðlar helg- uðu þessum baráttuglöðu striðsmönnum meðan á dvöl þeirra stóð, hafa islenskir visindamenn tæpast svarað rökum þeirra einu orði. Það verður ekki heldur talið hérlendum stjórnvöldum til framdrátt- ar, að einasta vörn þeirra gegn málabúnaði græn- friðunga hefur verið litt eða illa rökstuddar fullyrð- ingar löglærðra skrifstofumanna i ráðuneytunum, sem virðast sannarlega ekki bera mikið skyn á raunvisindi. Forsendur hvalveiða illa rökstuddar En hvað er þá hæft I fullyrðing- um grænfriðunga um ofveiði á hvölum á miðum við Island? Við Island eru nú veiddar þrjár tegundir stórhvela: sandreyöur, langreyðurog búrhveli.Auk þess er veitt hér nokkurt magn af smá- hvalnum hrefnu. Um sandreyði og búrhveli er mjög litið vitað, sem undirstrikar frekar en ella þörfina á þvi að fara gætilega I veiðar á þeim. Krafa grænfriðunga um stöðvun veiða á þessum tegundum, að minnsta kosti uns visindalegar forsendur réttlæta þær, sýnist þvi ekki út I hött. Miklu meira er vitað um lang- reyðina. Talið er að af henni séu til fjórir stofnar i N-Atlantshaf- inu. Jón Jónsson, fiskifræðingur og forstöðumaður á Hafrannsóknar- stofnuninni, gerði i samvinnu við þrjá Norömenn athuganir á lang- reyðarstofninum sem er á sumr- um á svæöinu út af vesturströnd Islands. Má segja, að hvalveiðar Islendinga nú grundvallist á niðurstööum fjórmenninganna. Þvi miöur orkar ýmislegt tvimæl- is sem kemur fram I niöurstöðum þeirra félaganna og sömuleiðis virðist sem nægilegt tillit hafi ekki verið tekið til ýmissa staö- reynda, sem fyrir lágu, eins og verður rakið hér stuttlega. Mikilvægu atriði gleymt. Þeir félagarnir benda á að veiði á hverja sóknareiningu hef- ur minnkað nokkuð frá 1948, en slikt þykir alla jafna óbrigðult dæmi um minnkandi stofnstærð. A það fallast þeir, en benda jafn- framt á, að þótt fjöldi veiddra hvala á hverja klukkustund, sem varið er i veiði og leit aö hvölum, hafi minnkað — þurfi það ekki endilega að merkja minnkun á hvalastofninum. Hins vegar virð- ast þeir ekki hafa gætt þess, að breytingar á vélarafli hvalbát- anna, sem voru gerðar á árunum 1960-1966, juku veiöigetu þeirra um þriðjung. Miðað við þessa auknu veiðigetu virðist þvi aug- ljóst, aö veiði á sóknareiningu hefur minnkað mun meira en þeir félagar gera ráð fyrir. Það bendir aftur sterklega til þess að stofn- stærðin hafi minnkað talsvert meira en kemur fram I niðurstöö- um Jóns og félaga. A það má minna, aö grænfrið- ungar hafa margoft bent á þessa staðreynd. Hún er veigamikill hluti af áróðri þeirra erlendis um minnkandi hvalastofn i Islenskum sæ. Það sætir þvi mikilli furðu, að af hálfu Islenskra visindamanna og stjórnvalda hefur ekkert verið gert til að sýna fram á hið gagn- stæða. Meðan svo veigamiklum röksemdum er ekki svarað nema með þögninni, verður það tæpast skilið öðruvisi en að þarna hafi grænfriðungar rétt fyrir sér. Fjöldi langreyða illa þekktur Til að áætla stærð dýrastofna i hafinu er meðal annars beitt svo- kallaðri merkingaraðferð. Akveðinn fjöldi dýra er þá veidd- ur og siðan sleppt lifandi i hafiö aftur. Út frá fjölda þeirra merktu dýra, sem veiðast svo seinna meir af veiðimönnum, má eftir ákveðnum aðferöum reikna út stærð stofnsins. Þessari aöferö hefur meðal annars verið beitt til að reyna að áætla stærð hvala- stofna við Island, að þvi er segir i skýrslu um rannsóknir Jóns og Norðmannanna. A grundvelli endurheimtu á merktum hvölum segja fyrr- nefndir sérfræðingar, að stofninn sé nægilega stór til aö þola veiðar þeirra 250 langreyða sem íslend- ingar drepa árlega með leyfi Alþjóðlega hvalveiðiársins. Sé hugað betur að þeirri staðhæfingu kemur i ljós að hún or ekki á traustum rökum byggö. Hún er nefnilega grundvölluð á endur- heimtum 8 — átta — hvala af 47 sem merktir voru á árunum 1965- 1973. Þær aðferðir sem visinda- menn nota til að reikna stofn- stærðina eru á hinn bóginn ekki nákvæmari en það, aö endur- heimtur átta hvala af 47 merktum gefur einungis til kynna, að stofn- inner á bilinu 1.780 til 17.600 lang- reyðar. Svo mikil óvissa gefur fráleitt tilefni til að segja, aö stofninn sé nægilega stór til að drepa megi á sumri hverju 250 dýr. Þessi staöhæfing Jóns Jóns- sonar fiskifræðings og hinna norsku félaga hans er þvi alls ekki á bjargi reist. Fleira mætti tina til úr skýrslu Jóns og Norðmannanna, sem verkar ekki traustvekjandi á gagnrýninn lesanda en er þó not- að til að styöja veiðar Hvals h/f á langreyðunum. Athyglisverðar stað- reyndir 1 stuttu máli-.Mjög litið er vitað um stofna búrhvela og sandreyöa sem eru drepin hér við land, og fráleitt aö sú litla vitneskja sem fyrir hendi er, réttlæti dráp á þeim I sama mæli og Hvalur h/f viðhefur. Sú vitneskja sem er fyrir hendi um stærð langreyöastofnsins hér við land réttlætir tæpast veiðar á 250 dýrum af tegundinni. Framhald á 14. siðu A myndinni sést langreyðarfóstur, en það er erfitt að koma I veg fyrir að þungaðar kýr séu drepnar i bland við aðrar langreyðar. Það hamiar að sjálfsögðu eðiilegri endurnýjun stofnsins.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.